Þjóðviljinn - 19.07.1972, Qupperneq 11
Miðvikudagur. 19. júli 1972 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11.
Esperanto
Framhald af bls. 2.
kemur valdið til að beita þvi i
ræðu og riti eins og af sjálfu sér,
ef athygli og ástundum er haldið
vakandi.
Þegar rætt hefur verið um að
taka upp einhverja þjóðtungu,
svo sem eins og ensku, og gera
hana að alheimsmáli, þá hefur
þar á bak við legið sú hugsun, að
slikt málskyldi sigra allar aðrar
tungur smátt og smátt. En vegna
margs konar óreglu i málfræði-
legri byggingu þjóðtungnanna
yfirleitt, þá hafa menn komið
auga á hina geigvænlegu hættu
sem ávallt fylgir útþenslu einnar
þjóðtungu inn á yfirráðasvæði
annarrar tungu, sem er i þvi
fólgin að slik stórtunga klofni i æ
fleiri mállýzkur og loks mál, eins
og reyndin er þegar með ensku og
aðrar stórþjóðatungur.
Þessi hætta er alveg útilokuð að
þvi er snertir Esperanto, þvi á
vegum þess er starfandi föst
nefnd, svo kölluð „Lingva
Komitato” ( Mál-ncfndin,
skammst.: L.K.), sem fylgist
með þróun Esperantos og
útþurrkar jafnan alla tilhneigð til
klofnings. Þessi starfsemi Lingva
Komitato byggir á hugsjón sjálfs
höfundar Esperantos um að þró-
un þess eigi að haldast i föstum
tengslum við uppruna þess og
byggjastá hinum föstu lögmálum
þess.
Fyrir höfundi Esperantos vakti
heldur ekki sá tilgangur með
sköpun málsins, að það ætti að út-
rýma þjóðtungunum, heldur ætti
það einungis, að vera alþjóðlegt
hjálparmál, sem hægt væri að
þýða yfir á allar hugsanir á sér
hverri þjóðtungu, -einskonar al-
þjóðlegt mál, sem sérhver maður
ætti að kunna auk sins móður-
máls.
Það má benda á það, að
kunnátta i sliku máli sem
Esperanto er, hefur allt önnur
áhrif á þjóðtungurnar, heldur en
þjóðtungurnar hafa hver á aðra.
Hin rökfasta bygging Esperantos
og undanbragðalausi túlkunar-
máttur hvetur einmitt sérhvern
mann, sem hefur það á valdi
sinu, til þess að gefa betur gaum
að hæfni og eigindum sins eigin
móðurmáls.
Allt örðuvisi er þvi varið með
þjóðtungurnar. Má benda á i þvi
sambandi hversu hið aukna hálf-
nám enskrar tungu hér á landi á
seinustu árum hefur skapað geig-
væna hættu fyrir islenzkt mál
vegna slanguryrða af enskri rót,
sem margir bera sér i munn
meira og meira i ræðu og riti.
Sérstaklega er þó hin enska
setningaskipun islenzkunni
hættuleg, þvi um leið og næmleiki
manna fyrir islenzkri setning-
askipun brestur vegna enskunn-
ar, þá er brostinn sá grundvöllur
sem tilvera islenzkrar tungu
byggist á.
Þótt ég nefni enskuna sérstak-
lega i þessu skyni, þá er það
vegna þess að eins og nú horfir
stöndum við þar andspænis mestu
hættunni af þeim usla, sem erlend
tunga getur gert á islenzku mál-
sviði, og það er einmitt vegna
hins nána skyldleika islenzkunn-
ar við frumrót enskunnar. Er þar
á ferðinni sama hættan og af
völdum dönskunnar fyrrum.
Allt önnur áhrif eru það, sem
Esperanto hefur að þessu leyti.
Bæði er það, að stofn þess er fjar-
skyldari voru máli, og eins eru
málreglur þess mótaðar á annan
veg en þær islenzku. Og siðast en
ekki sizt vil ég benda á höfuðkost
Esperantos, fyrir utan það hve
auðvelt er að læra það, en hann er
sá, að gagnvart Esperanto
standa alíir menn jafnir, þvi það
er ekki móðurmál neins. Tökum
til dæmis: Danir segja, að vér Is-
lendingar getum aldrei talað
dönsku rétt, og sama segjum vér
vist um Dani gagnvart islenzku.
Þegar þvi danskur maður ætlar
að reyna að tala islenzku við ís-
lending er hann i minnimáttarað-
stöðu gagnvart tslendingnum, þvi
hann veit aö fslendingurinn kann
mörgum sinnum betur skil á máli
Sögueyjarinnar en Daninn. Vér
tslendingar hljótum vist alltaf að
finna til hins sama gagnvart út-
lendingum, þegar vér reynum að
tala mál þeirra sem vér ekki höf-
um alizt upp við. Þessi tilfinning
nær aldrei tökum á Esperantist-
um, þvi þeir vita ósköp vel, að á
þvi máli, er aldrei um að ræða
neinn vegg, sem hlaðinn sé upp af
séreigindum einhverrar þjóð-
tungu, og á þvi máli standa allir
eins jafnir og hverjir tveir bil-
stjórar sem kunna jafnt að aka
sama bilnum, þótt sinn af hvoru
þjóðerni séu.
Engum er þó kunnátta i
Esperanto jafn hagkvæm eins og
smáþjóðunum sökum þess hversu
þær standa þá betur að vigi á
alþjóðavettvangi með kunnáttu i
þvi máli, sem gerir öllum mönn1
um jafnt undir höfði.
Ég læt fylgja hér með þessari
grein alla málfræði Esperantos á
einu spjaldi. Sá, sem hefur hana i
hendi ásamt undirstöðuorðabók
málsins: „Plena Vortaro” (Fullt
orðasafn), á að geta kennt sér
sjálfum að læra málið til þess að
beita þvi i ræðu og riti á fullkom-
inn máta.
Árið 1965 gaf Samband
islenzkra esperantista
(Federacio de islandaj
Esperantistoj, skamst.: F.I.E.)
út fslenzk-esperantiska orðabók,
sem auðveldar mjög nám þessa
auðlærða máls; ennfremur stend-
ur svo Bréfaskóli S.f.S. og A.S.f.
fyrir námskeiðum i Esperanto,
sem haldin eru á hverjum vetri i
útvarpinu.
En vitanlega er sú aðferð ein,
sem beztum árangri gæti skilað,
að Esperanto væri gert að skyldu-
námsgrein i skólum landsins eins
og enska og danska. Kennarar
mundu verða undrandi á þvi,
hvað nám og kunnátta i
Esperanto mundi gera nemendur
opnari fyrir námi annarra tungna
sem og að þeir næðu betra valdi á
eigin móðurmáli. Það gerir hin
hreina bygging alþjóðamálsins.
Hagnar V. Sturluson.
íþróttir
Framhald af bls. 9.
Þarna hefði hiklaust átt aö dæma
vitaspyrnu.
A 25. min. á Guðgeir skot fram-
hjá i sæmilegu færi.
Á 27. min. á Eirikur gott skot,
en markvörður Breiðabliks varði
vel.
Á 31. min. myndaðist þvaga við
Vikingsmarkið og var skotið
lúmsku skoti á markið. Diörik var
vel á verði og varði.
a 39. min. skeði leiðinlegur at-
burður. Eirikur Þorsteinss. er
með knöttinn rétt við vitateigs-
linu Breiðabliks, þegar Guð-
mundur Þórðarson kemur aftan
að honum. Krækir Guðmundur
fætinum fyrir lappir Eiriks og ýt-
ir um leiö á bak hans. Við þessa
óvæntu og lúalegu árás skellur
Eirikur i mölina. Brákaðist hann
á nefi og komu einnig þrir djúpir
skurðir i það. Varð hann að fara
út af, en Guðmundur fékk ekki
Samþykkir
Framhald af bls. 4
ins og Framleiðsluráðs að vinna
að þvi að ullarverð hækki svo að
bændur telji svara kostnaði að
vinna að betri meðferð hennar.
En til þess yrði ullarverð að vera
sem næst kjötverði pr. kg.
Einnig að athugað verði hver
eru séreinkenni islenzkrar ullar
miðað við erlenda og hvers virði
þau séreinkenni eru fyrir ullar-
iðnaðinn.
Utflutningur hrossa.
Fundurinn beinir þvi til
Sambands tsl. Samvinnufélaga
að athuga i samvinnu við félags-
samtök bænda, hversu hægt
verði að bæta skipulag á útflutn-
ingi hesta og koma i veg fyrir að
hestar séu seldir á óeðlilega lágu
verði. 1 þvi skyni verði athugað,
hvort ekki þyrfti að breyta lögum
um útflutning hrossa til þess að
bæta aðstöðu seljenda til þess að
ná eðlilegu verði fyrir hesta.
Um varahlutaþjónustu.
Fundurinn telur aðkallandi að
koma á fót þjónustustofnun við
bændur er hafi þvi hlutverki að
gegna að bæta véla- og varahluta-
þjónustuna þannig, að bændur
geti snúið sér til hennar þegar
eðlileg fyrirgreiðsla búvélainn-
flytjenda bregzt.
Þvi felur fundurinn stjórn
Stéttarsambandsins að beita sér
fyrir að slikri þjónustu verði
komið á fót innan Stéttarsam-
bandsins eða Búnaðarfélags fs-
lands.
14 borga yfir
Framhald af bls. 1.
Laugarásvegi 73, tekjusk. 1.021
þús. samt. 1.529 þús. (568 þús.)
Þetta er listi yfir þá 14 sem fara
yfir 1 miljón i tekjuskatti, en alls
eru 94 einstaklingar sem greiða
yfir 800 þús. i opinber gjöld.
Sú tala sem hér er yfir gjöld
samtals hjá hverjum einstakling
er um: tekjuskatt, slysatrygg-
ingagjald, eignaskatt , lifeyr-
istr., kirkjugjald, kirkjugarðs-
gjald, iðnaðargjald, atvinnuleys-
istr.gj. útsvar og aðstöðugjald.
Nánari upplýsingar birtum við i
blaðinu á morgun.
einu sinni áminningu. í stað Ei-
riks kom Jón Karlsson inná.
Á 42. min. eiga Vikingar mikla
pressu að marki Breiðabliks.
Endaði pressan með skoti sem
Breiðabliksmenn björguðu á
marklinu.
í seinni hálfleik áleit maöur að
stundin væri komin sem Vikingar
myndu skora mark, en þvi var
ekki að heilsa.
A 3. min. átti Jón Karlsson skot
á mark Breiðabliks, en framhjá.
A 6. min. komst Þór Hreiðars-
son einn innfyrir og skaut yfir
Diðrik, sem kom á móti honum.
Hafnaði knötturinn i markinu, og
höfðu Breiðabliksmenn þar með
tekið forystu. Staöan 1-0.
Á 12. min. komst Karl Stein-
grimsson einn innfyrir, en skaut
framhjá opnu marki Vikings.
Á 29. min á Jón Karlsson skot
framhjá Breiðabliksmarkinu.
Þegar 15 min. voru eftir af leik-
timanum kom Hafliði Pétursson
inná fyrir nr. 8 i Vikingsliðinu. Og
þegar 10 min. voru eftir varð Þór
Hreiðarsson að yfirgefa völlinn,
en inná kom Heiðar Breiðfjörð.
Á 39. min. á Hafliði gott skot, en
markvörður Breiðabliks varði
vel.
Þannig endaði þessi leikur með
sigri Breiðabliks 1-0. Eftir að þeir
höfðu skorað markið drógu þeir
sig nokkuð aftur og hugsuðu um
það eitt að halda báðum stigun-
um. Þó komu við og við snögg
upphlaup hjá þeim. Þvi miður
gátu Vikingarnir ekki jafnað
þrátt fyrir góða tilburði til þess.
Beztu menn Breiðabliks voru
markvörðurinn Ólafur Hákonar-
son, Þór Hreiðarsson og Haraldur
Erlendsson, sem var ætið rólegur
og sterkur hvað sem á gekk.
Hjá Viking voru beztir þeir
Guðgeir Leifsson, Eirikur Þor-
steinsson meðan hans nau- við,
Jón Karlsson og Gunnar Gunn-
arsson. Einnig átti Diðrik Ólafs-
son i markinu sæmilegan leik
Ábyrgðar- og
slysatryggingar.
Fundurinn beinir þeirri áskor-
un til Búnaðarfélags Islands, að
það birti sem fyrst niðurstöður
tilboðs tryggingarfélaga i
ábyrgðar- og slysatryggingar i
landbúnaði og þær veröi siðan
kynntar bændum ýtarlega.
Um vinnuaðstoð í
veikindatilfellum.
Fundurinn samþykkir að fela
stjórn sambandsins að kanna á
hvern hátt hagkvæmast væri að
koma á vinnuaðstoð að bændur i
veikinda og slysatilfellum.
Stjórnin leiti samvinnu við
Búnaðarfélag Islands um málið.
Skálatún
í Mosfellssveit
Vistheimiíið Skálatún i Mosfellssveit
óskar að ráða konu, ekki yngri en 25 ára,
til að sjá um þvottahús heimilsins.
Fæði og húsnæði á staðnum.
Skilyrði er að umsækjendur séu reglu-
samir og geti unnið sjálfstætt.
Umsóknir er greini frá aidri, menntun og
fyrri störfum, ásamt nafni, heimilisfangi
og simanúmeri, leggist inn á afgreiðslu
blaðsins, merkt 16016, fyrir 1. ágúst n.k..
Laugardalsvöllur
1. deild
KR — Fram
Leika i kvöld kl. 20,00.
Tekst KR að stöðva
sigurgöngu Fram.
KR
LOKAÐ
vegna sumarleyfa
23. júlí til 10. ágúst
ÖRNINN
Spitalastig 8
LOKAÐ VEGNA
JARÐARFARAR
Vegna jarðarfarar Vilhjálms Þórs fyrver-
andi forstjóra Sambandsins verða skrif-
stofur Sambandsins lokaðar fimmtudag
20. júli frá kl. 13.30 - 15.30.
Samband isl. samvinnufélaga
Unnur Kjartansdóttir fyrrverandi
kennslukona frá Hruna lézt á Borgar-
spitalanum að kvöldi 17. þessa mánaðar.
Jarðarförin verður tilkynnt siðar.
Fyrir hönd aðstandenda
Kr. Guðmundur Guðmundsson
Við þökkum innilega sýnda samúð og vin-
áttu við andlát og jarðarför eiginmanns
mins, föður okkar, tengdaföður og afa
Jóhanns S. Jóhannssonar, Akurgerði 22,
Akranesi.
Ólöf Bjarnadóttir
Nanna Jóhannsdóttir Gestur Friðjónsson
Hlif Jóhannsdóttir Sigmar Jónsson
Ester Jóh. Rasmussen Leif Rasmussen
Sigrún Jóhannsdóttir Magnús V. Vilhjálmsson
Rúnar Bj. Jóhannsson Sigurlaug Jóhannsdóttir
og barnabörn.