Þjóðviljinn - 20.07.1972, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur. 20. júli 1972
bréf til
blaósins
VITSMUNAYERIJRNAR
VIÐ MORGUSBLAÐIÐ
Hér á árunum talaði Árni pró-
fessor Pálsson stundum um vits-
munaverurnar við Morgunblaðið.
Ekki hefur þessum verum farið
fram siðan. Það er ömurlegt að
lesa þetta vesæla blað um þessar
mundir. Þegar öll borgarpressa
Vestur-Evrópu og skárri blöð i
liandarikjunum fordæma viður-
styggilegan hernað Bandarikja-
manna i Viet-Nam, þá ástundar
Morgunblaðið feluleik, slær upp
sem aðalfréttum dæmum um
kúgun og frelsisskerðingu einkum
i Austur-Evrópu, i þeim einum
tilgangi að fela athafnir banda-
riskra þjóðamorðingja i Viet-
Nam, en þeim hefur nu tekizt að
verða ofjarlar jafnvel þeirra
glæpamanna sveita nazista, sem
oft eru kenndar við gasofnana.
Dagana sem bandariskir flug'-
menn dreifa sprengium og eítrí
yfir byggðir og ból i Viet-Nam,
brenna óbreytta borgara i
napalmeldi og eitra gróðurmold-
ina, staglasl þý þjóðarmorð
ingjanna bandarisku á nauðsyn
morðingjahreiðursins á Miðnes-
heiði fyrir lýöræðiselskandi þjóö-
ir og þá einkum fyrir þá aöila,
sem kröftugast eitra og myrða i
nafni frelsis og lýðræðis. Þegar
allur heimurinn mótmælir
gangsterisma bandarikjamanna i
Viet-Nam, stendur Heimdallar-
piipullinn á varðbergi og mót-
mælir löku Eystrasaltsrikjanna
fyrir um tuttugu árum, blönduð
umhyggju fyrir viðkomandi þjóð-
um og tilraun til þess að reyna að
fela þær sviviröingar sem Banda-
rikjamenn standa fyrir i Viet -
Nam.
Meðan fyrirmyndir og
styrktarmenn Morgunblaðsins og
,, Sjálfstæðisflokksins” afhjupa
sig sem andstyggilegustu niðinga
sögunnar, þá vælir þessi lóðatik
um frelsisást og ágæti húsbænd-
anna i Pentagon. Ekkert borg-
arablað i Vestur-Evrópu hefur
nokkru sinni fallið jafndjúpt og
þetta blað, enda á mála hjá þeim
(iflum, sem hafa nú slegið met
,,hanganna” i Niirnberg, sem
dæmdir voru fyrir glæpi gegn
mannkyninu á sinum tima.
Verðstöðvun
°g
niðurgreiðslur
Er verðstiiðvun, eða verðstiiðv-
un ekki?
Þannig spurði maður, sem
hringdi i blaöið i lyrradag, og
sagði okkur jafnlramt. að hann
hefði senl son sinn i verzlun i
Þingholtunum til þess að kaupa
kartiiflur. Kaupmaðurinn lét
drenginn borga sama verð og var
á kartiiflunum l'yrir verðstiiðvun
þá. sem felst i ráðstiifunum rikis-
st jórnarinnar.
Þessu undi maðurinn ekki og
lór á fund kaupmannsins og
spurði hann hvort hann vissi ekki
að byrjað væri að greiða niður
kartiiflur meira en gert hefði ver-
ið, og hann hefði látið drenginn
borga of mikiö.
Kaupmaðurinn brúkaði munn,
og sagðist ekki greiða niður
kartiil'lur, og ef hann vildi fá
þannig kartiiflur, þá skyldi hann
bara íá þær hjá stjórninni, og
drengurinn hefði sko ekki borgað
of mikið.
Þvi spyr maðurinn, og þvi
spyrjum við: Hvenær hófst verð-
stiiðvun, og hvenær jukust niður-
greiðslurnar?
HÓTEL AKRANES
Simi: 93-2020
GISTING
KAFFITERÍA
Veitingahúsið Ós
Fiskiveizlur sunnudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga.
Aðra daga eftir pöntunum.
Blautós opinn alla daga nema miðviku-
daga. Ferðir með Akraborg - B.S.í. eða
Vængjum.
Verið velkomin
l '71.
Nú lefla allir i anda Fischers og Spasskis, og þannig hugsar Arni L. sér ástandið hjá minni spámönnun-
uin: NÚ EK ÞAÐ SPASSK í.BYRJUNIN SEM BLÍFUR!
Emvaldur útnefnir
eftirmenn sína
Spánn á að verða konungsriki á ný
MADRII) 18/7.—
(íeneralíssúmo Franco lýsti þvi
yfir i morgun að ákveðið hefði
verið að Luis Carrero Klanco,
sem verið hefur varaforseti Spán-
ar. taki við völdum að Franco
látnum scm stjórnandi landsins.
Blanco á aö stjórna rikinu i
mest átta daga eða þar til Juan
Carlos prins hefur verið krýndur
konungur. Carlos á þá að velja
sér forseta eða forsætisráðherra.
Carrero Blanco er 69 ára
gamall og hefur verið hægri hönd
Francos um langt skeið og kemur
þvi tilkynning Francos ekki mjög
á óvart. Hins vegar höfðu margir
vonazt til að López Bravo, utan-
rikisráðherra, yrði skipaður
eltirmaður Francos, en hann er
talinn sá frjálslyndasti af
ráðamönnum Spánverja um
þessar mundir. Útnefning
Blancos þykir benda til þess að
250 þúsund
ibúar og
tvö hótel
í Reykjavík
Ekkcrt er algengara en að eitt-
livað sé úr lagi fært þegar erlend-
ir blaðamrnn skrifa um island.
Að öðrum ólöstuðum eru Frakkar
einna skemmtilegastir i þessum
efnum. Litið dæmi má sjá i ágætu
blaði, I.e Nouvel Observateur,
þar sem segir frá skákeinviginu:
..Til aö auka á þetta skelfilega
taugastrið hafa fjörtiu þúsund
áhugamenn frá öllum löndum
heims stormað Reykjavik, hina
litlu höfuðborg íslands (250 þús-
und ibúar og tvö hótel)”.
Svo mörg eru þau orð.
hinn ihaldsami armur
Falangistaflokksins hafi nú
tryggt sér öll völd innan
flokksins, en siðustu ár hefur
mikil valdabarátta verið innan
Falangistaflokksins milli hinna
eldri og ihaldsömu stuðnings-
manna Blancos og yngri og
róttækari — á spænska visu vel að
merkja — stuðningsmanna
Bravos.
Á fundi meö fréttamönn-
um skýröu aðstand-
endur Brekkukotskvik-
myndarinnar frá hlut-
verkaskrá í myndinni og
ýmsu varðandi töku henn-
ar.
Búiö er að fá leikendur í
flest aðalhlutverkin, en
með smærri hlutverkin og
statista er ekki fullákveðið
ennþá.
t hlutverki Alfgrims (eldri) er
ungur menntaskólapiltur, Arni
Árnason, og i hlutverki Frk.
Gudmundsen er ung mennta-
skólastúlka, Sigrún Hjálmtýs-
dóttir. Með önnur aöalhlutverk
fara: Þorsteinn ö. Stephensen,
Regina Þórðardóttir, Jón Laxdal,
Þóra Borg, Árni Tryggvason,
Sveinn Halldórsson og Briet
Héðinsdóttir.
Staðir fyrir öll meiriháttar
atriði hafa verið ákveðnir, t.d.
verður endurbyggð gata i Gufu-
nesi fyrir götuatriðin, en inniat-
riðin verða tekin i skála sem
EBE sektar
einokunar-
starfsemi
LUXEMBURG 14/7 Sérstakur
dómstóll sem starfar á vegum
Efnahagsbandalagsins kvað i dag
upp dóm i máli niu fyrirtækja,
sem sökuð voru um að hafa
myndað i reynd einokunarhring
um verðmyndun i efnaiðnaði
EBE-landanna. Fjögur fyrirtækj-
anna eru vestur-þýzk, tvö frönsk
og eitt italskt.en tvö eru blönduð.
Fyrirtækin voru dæmd i um 40
miljón króna sekt og til að greiða
málskostnað.
komið hefur verið fyrir i Skeif-
unni, svo og i Árbæ, Iðnó og Dóm-
kirkjunni ef leyfi fæst.
Búizt er við að hægt sé að hefj
ast handa viö textalestur i næstu
viku, en áætlaö er að myndinni
verði lokið i september n.k.
Einnig er þvi beint til fólks að
það verði ekki mikið á ferðinni
þar sem taka myndarinnar fer
fram þarsem það gæti haft erfið-
leika i för með sér. Aftur á móti,
vilji fólk losna við eitthvað af
háaloftinu s.s. gamla muni,
myndirföteða þess háttar, er það
vinsamlegast beðið að hafa sam-
band við Brekkukostmenn i sima
36801, en skortur er á þessum
hlutum i hinu nýja Brekkukoti.
Leiðrétting
1 ferðablaðinu um siðustu helgi
láðist okkur að geta þess að lit-
myndin úr Þórsmörk, á forsið-
unni er tekin af Jóhannesi Eiriks-
syni, prentara; einnig, að myndir
og lýsing leiðarinnar upp með
Jökulsá á Fjöllum er eftir Krist-
mund Halldórsson.
1 þeirri lýsingu brengluöust
nokkuð textar með tveim
myndum. Mynd þar sem undir
stóð: „Hér lýkur gljúfri Jökuls-
ár” er frá Hólmatungum, og
myndin efst á næstu siðu er ekki
úr Hljóðaklettum, heldur úr
gljúfri Jökulsár i námunda við
Dettifoss. Þá hefur mynd úr
Hvalfirði efst á bls. 12 snúizt við,
eins og lesendur munu hafa áttað
sig á af myndtextanum. — Eru
lesendur beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
SENDIBÍLASTÖÐIN Hf
MYNDATAKA
AÐ HEFJAST