Þjóðviljinn - 20.07.1972, Page 5
Fimmtudagur 20. júli 1972 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5.
Viðar
Toreid
skrifar
frá
Noretji:
NR. 161 MANDAÖ W. JUU 1972 74. ARG.
KOFFERTEf
REISEBAGE
% ’^jábuK'yitrJtn^i
~ rr.bv.rm fnm
uOgsa Norge bor vurdere
utvidelse av fiskerigrensa»
hlandsk 50-mils grense skjerper appetitten pa vare farvann
Norskir fiskimenn vilja
50 milna landhelgi — en
hræddir við EBE-aðild
LAUSAR STÖÐUR
Við Bændaskólann á Hólum i Hjaltadal
eru lausar til umsóknar tvær kennara-
stöður:
1. Staða kennara i búfjárfræði og
skyldum greinum.
2. Staða kennara i vélfræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfs-
manna rikisins.
Umsóknir, með upplýsingum um
menntun og fyrri störf, skuíu sendar land-
búnaðarráðuneytinu fyrir 15. ágúst 1972.
Norskir fiskimenn
styöja tvímælalaust rétt
Islendinga til útfærslu á
landhelgi sinni í 50 mílur.
Samt sem áður óttast þeir
aukinn ágang á norsku
miðin eftir 1. september
og hefðu þess vegna óskað
þess, að íslandog Noregur
hefðu fært landhelgi sína
út samtímis.
Formaður norska sjómanna-
sambandsins, Johan J. Toft,
sagði i blaðaviðtali hér i Tromsö
s.l. mánudag, að þróunin væri
Islendingum i hag og að sam-
bandið hefði fullan skilning á
fyrirætlunum tslendinga, þó að
meiri samningatilraunir hefðu
mátt fara fram áður.
Noregur mun án efa komast
fljótlega i þá aðstöðu að út-
færsla fiskveiðilögsögunnar
verði nauðsynleg. Aðild Noregs
að EBE mundi hins vegar úti-
loka raunverulega útfærslu, þar
sem EBE-löndin fengju hvort
sem er fullan rétt til að veiða á-
fram innan 50 milna markanna.
Og þegar lengra er litið fáum
við ekki einu sinni að vera i friði
með 12 milna landhelgina^segir
formaður norska sjómanna-
sambandsins.
Það atriði i samningum Nor-
egs við EBE, að en'durskoðun
fari fram á landhelgismálum
Noregs eftir 1972, er aðalástæð-
an fyrir þvi að andstaðan gegn
aðildinni aö Efnahagsbandalag-
inu er orðin mjög mikil hér i
Norður-Noregi. Skoðanakann-
anir sýna allt að 80% móti aðild,
en aðeins 40% gegn aðild i Osló
og 55% meðal landsmanna
allra.
1 sjómannafélögunum i Norð-
ur-Noregi er næstum samhljóða
andstaða gegn aðild að EBE.
Nató: sakleysið
og klærnar
Fyrir skömmu mátti
lesa í blaðinu Austurland
eftirfarandi hugleiðingar
eftir Sigurð Blöndal um
herinn á Miðnesheiðinni
og ýmsar tilraunir til að
gera hann vinsælan —
sem og um fróðlega Iffs-
reynslu fyrrverandi
Bandaríkjavinar í öðru
Natólandi:
1 vor hafa aðdáendur hersins
á Miðnesheiði haft mikla til-
burði uppi til þess að afla honum
og herstöðinni vinsælda og gera
veru hans á íslandi sem sak-
leysislegasta.
Flogið hefur verið með hópa
fólks austan af Hornafirði og
vestan af Isafirði til Keflavikur-
flugvallar til þess að sýna þvi
dýrðina og innprenta þvi, hve
þetta sé allt saklaust.
Kvikmynd sú, sem Sjónvarpið
lét gera og sýnd var i vetur um
herstöðina og fólkið þar, var i-
smeygileg viðleitni til þess að
sýna hve okkur væri mikil nauð-
syn að hafa herstöðina, svo að
Rússar hremmdu okkur ekki, en
einnig var þar drjúgum tima
varið til þess að sýna Islending-
um saklausar hermannakonur
— og láta okkur kenna i brjósti
um þær — og svo blessuð börnin,
sem gengu þarna i skóla og voru
bara eins og okkar eigin börn.
Sjónvarpið eyddi ekki svona
tima að sýna mannlifiðá Seyð-
isfirði, þegar mynd var sýnd
þaðan sem næstum engin lifandi
vera sást nema bæjarstjórinn.
Nýbúið er að fljúga með al-
þingismenn allra flokka nema
Alþýðubandalagsins til Noregs
til þess að sýna þeim herstöðvar
NATO þar.
Við ótrúlegustu tækifæri eru
hinar stórkostlegustu sögur
sagðar af auknum flotaumsvif-
um Rússa við Islandsstrendur
— sosum eins og siglingar her-
flota um Atlantshaf væru ein-
hver dularfull teikn á lofti.
Gegn þessum NATO-áróðri
hafa nú hernámsandstæðingar
snúizt af verulegum myndar-
skap. Sú sókn hófst með glæsi-
legum fundi i Reykjavik i mai
og nú seinast með herstöðva-
göngunni og hinum glæsilega
útifundi i lok hennar.
Sjónvarpsviðtal við tvo kunna
hernámsandstæðinga nýlega
var verulega áhrifamikið.
Einkanlega var frammistaða
hins gamla forystumanns úr
röðum hernámsandstæðinga,
Einars Braga skálds, með glæsi
brag. Hann dró þar skýrt fram
það meginatriði, að spurningin
um herstöð hér er ekki her-
fræðilegt atriði heldur siðferði-
legt. Hann afhjúpaði þarna
,,varna”-kjaftæðið betur en ég
hef áður séð gert. Það var gam-
an að sjá hve kindarlegur Eiður
Guðnason varð gagnvart hinum
áhrifamiklu og afdráttarlausu
svörum Einars Braga — og gat
ekki dulið, hve haldinn hann var
hinni fáránlegu hugmynd um
„varnir” Islands.
Nato sýnir klærnar, þar
sem það þorir
Maður er nefndur Andreas
Papandreou. Hann er sonur Ge-
orgs Papandreou, hins kunna
foringja sósialdemókrata i
Grikklandi, sem núverandi her-
foringjastjórn rak frá völdum,
en Papandreou sigraði glæsi-
lega i kosningum 1964.
Andreas var ráðherra i sið-
ustu stjórn föður sins, og m.a.
heyrðu innanrikismál undir
hann. Nú dvelst hann landflótta
i Sviþjóð sem prófessor og er
foringi andspyrnuhreyfingar
gegn herforingjastjórninni.
Framhald á bls. 11.
Stjórn sjómannafélagsins i
Tromsöfylki (fyrir sunnan
Finnmörk) lét það nýlega frá
sér fara, að það væri enginn vafi
með það, að Noregur ætti að
færa út landhelgina, ekki sizt
vegna hættu á ofveiði.
Tromsö 17. júli 1972.
MOLD - MOLD
Mold verður mokað á bila að Funahöfða 12
laugardag og sunnudag n.k.
Upplýsingar i sima 33545.
Sfór sending d
kynningarverÖi!
Kr. 1.590
stærð 560-13/4
Kr. 1.775- Kr.
stærð 560 - 15/4
Höfum fengið stóra sendingu
af BARUM hjólbörðum í
flestum stærðum
á ótrúlega hagstæðu verði,
eins og þessi verðdæmi sanna.
BARUM KOSTAR MINNA
— EN KEMST LENGRA
2.970-
stærð 650 - l]6/6
BARUM
BREGZT
EKKI.
TEKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ A ISLANDI H.F.
SOLUSTAÐIR:
GARÐAHREPPI SÍMI 50606
(áður Hjólbarðaverkstæði Garðahrepps
Sunnan við lækinn, gengt benzínstöð BP)
SHODfí
BÚÐIN
AUÐBREKKU 44-46,
KÓPAVOGI — SÍMI 42606