Þjóðviljinn - 20.07.1972, Síða 7
Fimmtudagur. 20. júli 1972 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7.
WALESBUAR BERJAST
GEGN
SUMARHÚSAFARGANINU
Á dögunum voru um 400
ríkismenn mættir i
Caernarvonkasta la í
Wales til að taka þátt í
uppboði á sveitasetrum í
Wales.
Þá gengu inn um
hundrað ungir menn úr
félagi til verndar velskri
tungu. Talsmaður þeirra
ávarpaði söfnuðinn og
sagði, að uppboðið væri
haldið til að ,,seðja fíkn
Englendinga og manna
frá öðrum löndum i annað
eða þriðja hús". Hann
sagði að ekkert gæti orðið
af þessu uppboði þvi að
Walesbúar sjálfir væru
margir hverjir heimilis-
lausir i eigin landi vegna
þess að eftirspurn eftir
sumarhýsum sprengdi
upp verð á húsum. Tunga
okkar og menning er í
hættu, sagði hann.
Síðan tóku mótmælend-
urað rifa niður auglýsing-
ar, velta borðum og kasta
fýlusprengjum. Væntan-
legir húseigendur voru
frekar stilltir, nema að
hópur tók að skandera:
,,Djöfuls írar, djöfuls
Velsarar". Uppboðið
leystist upp.
Walos er ekki lil sölu, stendur á
mólmælaspjöldunum.
Háskólabíó hefur
sýnt mynd um Saceo og Vanzetti
A myndinni til vinstri cr bandariski kommúnistinn Elisabet G. Flynn, sem var einn aöal-skipuleggjan
mótmælanna gegn dómsmorðinu. ilin myndin sýnir Sacco og Vanzetti.
Rifj að upp dómsmorð
á stjórnleysingjunum
S. I. tvo mánudaga hef-
ur Háskólabíó sýnt hina á-
gætu mynd um Sacco og
Vanzetti, stjórnleysingj-
ana sem bandarískir
dómstólar frömdu réttar-
morð á árið 1927. Þessi á-
gæta mynd, sem hvar-
vetna hefur hlotið góða
dóma og mikla að-
sókn verður vonandi sýnd
aftur næsta mánudag.
Jafnvel ætti stjórn kvik-
myndahússins að taka til
athugunar að sýna hana á
almennum sýningum um
helgina. Margir hafa snú-
ið sér til blaðsins og beðið
okkur að koma þeirri ósk
á framfæri.
I Ijórða hefti timaritsins Rétt-
ar skrifar ritstjóri þess, Einar
Olgeirsson, athyglisveröa grein
i tilefni málaferlanna gegn
Angelu Davis, þar sem hann
rifjar upp dómsmorð ameriskr-
ar aldar. 1 greininni segir hann
m.a. frá málaferlunum gegn
Sacco og Vanzetti og baráttunni
fyrir frelsi þeirra, sem einnig
var háð hér á landi. Hér fer á
eftir kaflinn úr greininni sem
fjallar um þá tvo.
Sacco og Varvzetti
..Dómsmorðið á þessum
tveim itölsku innflytjendum er
vafalaust alræmdasta dóms-
morð ameriskrar sögu og mót-
mælin gegn þessum réttarglæp
viðtækari og alþjóðlegri en
nokkur önnur.
Áriö 1920 var framið rán og
morð i bæ i Massachusetts.
Tveir italskir verkalýðssinnar,
stjórnleysingjar að skoðun,
N'icola Sacco og Bartólómeó
Vanzetti voru kærðir fyrir
morð. Og þó 28 vitni sönnuðu
sakleysi þeirra voru þeir dæmd-
ir til dauða. Bak við dómarann
Thayer stóð FBI, hin alræmda
leynilögregla Bandarikjanna,
og forstjóri hennar Edgar Hoov-
er, sem haldið hefur áfram alla
þessa áratugi ofsóknum sinum
og réttarglæpum.
Nú hófst mótmælabarátta,
sem sifellt reis hærra og hærra.
Hún hófst með fámennum fundi,
25 manna, i litlum sal i New
York og hafði Elisabet Flynn
skipulagt hann og talaði þar. Óx
nú mótmælahreyfingin og
breiddist smám saman til
flestra landa heims. t sjö ár stóö
þetta strið, — i sjö ár sátu Sacco
og Vanzetti dauðadæmdir i klef-
um sinum. Fleiri og fleiri af
þekktustu mönnum heims börð-
ust fyrir frelsi þeirra: Maria
Curie, Romain Rolland, Anatolc
France, Bcrnard Shaw, Sinclair
Lewis, Martin Andersen Nexö,
Albert Einstein Thomas Mann,
Lion Feuchtwanger, Max Rcin-
hardtog fleiri og fleiri. Eugene
Debs og Tom Mooney tóku og
þátt i baráttunni. Þeir þekktu
réttarfariö ameriska af eigin
raun. — 1925 játaði ungur
glæpamaöur Madeiro aö hafa
framið morö það, sem Sacco og
Vanzetti voru saklausir ákærðir
fyrir. — En allt kom fyrir ekki.
Ameriskt „réttarfar” var á-
kveðið i að fá sina blóðfórn, sak-
lausir menn skyldu láta lifið svo
blóðþorsta yfirstéttarinnar og
hatri á ,,rauðliðum” yrði full-
nægt.
Aida mótmælanna óx. Aftök-
unni, sem átti að fara fram 10.
júli 1927 var enn frestað til 10. á-
gúst. Þann dag biðu Sacco og
Vanzetti dauðans i rafmagns-
stólnum. Enn var aftökunni
frestað til 23. ágúst, undir þunga
mótmælanna um viða veröld.
Hundruð þúsunda höfðu mót-
mælt i Paris og stöðvað öll sam-
göngutæki i tiu minútur. Barizt
var i Hyde Park i London.
Kröfugöngur i Hamborg, Leip-
zig og Berlin. Verkföll og mót-
mælafundir i Genf, Melbourne,
Pretoria, Amsterdam, Kaup-
mannahöfn og viðar. 1 Póllandi,
Japan italiu og annars staðar
harðnaði baráttan i sifellu.
En ekkert hreyfði steinhjarta
amerisku yfirstéttarinnar né
ógnaði svo valdi hennar að hún
óttaðist um það. 23. ágúst létu
Sacco og Vanzetti lifið i raf-
magnsstólnum. Enn einu
sinni biossaði reiði fólksins upp
yfir biiðulsherrum Bandarikj-
anna, i Paris var barizt á götu-
vigum, i öðrum borgum flykkt-
ust hundruð þúsunda til mót-
mæla- og sorgarfunda.
Ég minnist enn vel hins fjöl-
menna mótmælafundar i iþróta-
höll á Austurbrú. Ég flutti þar
mina fyrstu ræðu á fjöldafundi á
erlendri grund. — Máske hefur
rauða alþjóðahjálpin gengizt
fyrir þeim fundi, þau samtök
gerðu það viðar. — 1 „Rétt”
skrifaði Stcinþór Guðiiiiiiidssoii
þá ýtarlega grein um Sacco og
Vanzetti og birti m.a. umsiign
hins kunna sænska löglræðings
Georgs Branlings um málið, en
hann hal'ði rannsakað það sér-
staklega, einnig i Bandarikjun-
um þar sem hann heimsótli
Saceo og Vanzetti i fangelsinu,
og gel'ið okkur leyfi til birtingar
a niðurstöðum sinum. (Sjá Rétt
1927, bls. 185 189).
llm réttarmorðin á Sacco og
Vanzelti hel'ur siðan verið ritað
ákaflega mikið. IJpton Sinclair
skrifaði m.a. um þá félaga skáld
sögu sina „Boston”.
En það er ekki aðeins
Sacco og Vanzetti dómsmorðin
sem kvikmynd helur veriö gerð
um. Nýlega var gerð mynd um
hinn fræga Joe Hill. Vonandi fá
islenz.kir kvikmyndahúsgestir
fljótlega að sjá þá mynd Bos
Widerbergs, þess sama og gerði
hina fra>gu mynd frá slcttaálök-
unum i 'Adálen.
Af
erlendum
bókamarkaði
Religion and Society in the Age
of Saint Augustine. Peter Brown.
Faber and Faber 1972.
Peter Brown er höfundur:
Augustine of Hippo, sem er
talin með betri fræðiritum um
kirkjuföðurinn og tíð hans. í
þessari bók er safnað saman
greinum höfundar um svipuð
tímabil og Augustine of Hippo
fjalkr um. Fjórða öldin var
mikið breytingatímabil, eink-
um síðari hlutinn. Hér eru
greinar um Ágústínus, turnun
rómverska aðalsins til kristinna
trúarbragða, greinar um menn-
ingarástandið í Afríku um
daga Ágústusar og eftir hans
daga og grein um fjölkynngi
á þessum tímum, auk þess eru
ritgerðir um bækur varðandi
þessi efni. Bók þessi er ágæt
viðbót við fyrra rit höfundar
og eykur þekkingu manna á
tímabilinu.