Þjóðviljinn - 05.08.1972, Qupperneq 1
UÚÐVIUINN
Laugardagur 5. ágúst 1972 — 37. árgangur —173. tölublað
Alþýóubankínn hf
ykkar hagur
okkar metnaöur
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA í KRON
Sólskin
sunnan
fjalla
rigning
fyrir
norðan
Fyrir þá, sem ætla að
fara á eitthvert hinna 6
útimóta sem haldin eru
um verzlunarmanna-
helgina eða þá bara með
fjölskylduna eitthvað úti
buskann, er stóra
spurningin þessi:
Hvernig verður veðrið?
—Það verður sól og bliða hér
sunnan fjalla, eða á Suður- og
Vesturlandi, en fyrir norðan
og austan, og einkum þó á N-
Austurlandi, verður sennilega
rigning um helgina, sagði
Jónas Jakobsson veður-
fræðingur, þegar við höfðum
samband við hann i gær.
bað er norðanáttin
sem veldur þessu. Hún er
mjög sterk núna, sagði Jónas,
og veldur þvi að veður er kalt
og nokkur rigning fyrir
norðan. Þó er ekki vist að hún
nái til Akureyrar, en þar verð-
ur örugglega skýjaö. Hins-
vegar leika veðurguðirnir við
þá sem verða hér sunnan-
fjalla. Ég sé engin teikn á lofti
sem geta breytt veörinu næsta
sólarhringinn og segja mætti
mér að óbreytt veður héldist
hér fram yfir helgi, sagði Jón-
as að lokum.
Það verður þvi ekki ama
legt fyrir þá, sem ætla á Þjóð-
hátiðina i Vestmannaeyjum,
að Laugarvatni að Galtarlæk
eða i Húsafell, eða þá sem fara
eitthvaö úti sveitir eða uppá
fjöll hér sunnan fjalla um
helgina: þeir verða bakaðir i
sól og bliðu. Hinir sem verða
við Atlavik eöa i Vaglaskógi
mega eiga von á verra atlæti
veðurguðanna. Og hætt er við
að veðrið komi i veg fyrir
ánægjulega útivistarhelgi
fyrir norðan og austan.
—S.dór.
Einn sótti
Hinn 1. ágúst s.l. rann út um-
sóknarfrestur um embætti skatt-
stjórans i Vestfjarðarumdæmi.
Einn umsækjandi er um em-
bættið, Hreinn Sveinsson, lög-
fræðingur i Reykjavik.
Tveir sækja
um embætti
orkumólastj ór a
Frestur til umsóknar embættis
orkumálastjóra rann út 1. þessa
mánaðar. Tvær umsóknir bárust:
frá Jakobi Björnssyni, deildar-
verkfræðingi Orkustofnunar, og
Sverri S. Ölafssyni, verkfræðingi
Rafmagnsveitna rikisins.
Embætti orkumálastjóra
verður veitt frá 1. jan. 1973 að
telja.
(Fréttatilkynning frá iðnaðar-
ráðuneytinu)
Brezkir sjóliðsforingjar:
ÓTTAST AÐ YERÐA
AÐHLÁTURSEFNI
Liðsforingjar í brezka sjóhernum eru orðnir áhyggju-
fullir vegna þorskastriðs, sem þeir telja yfirvofandi. —
Frá þessu segir i stuttri en fróðlegri grein í blaðinu
„Scottish Daily Express" frá 24. júli.
Why the Navy
isn’t hooked on
a ‘cod war’
Af hverju sjóhcrinn v«11 ckki láta hanka sig i þorskastrið, er fyrirsögn
grcinarinnar i „Scottish Daily Express”.
I greininni segir meðal annars
að brezkir sjóliðsforingjar vilji
ekki af augljósum ástæðum
einungis forðast skothernað.
„Sjóliðsforingjar muna allt of vel
þann áróöur sem rekinn var i
hliðstæðri deilu við tslendinga
1960-1961. Þessi áróður leiddi til
þess, að brezki sjóherinn fékk á
sig svipmót ofbeldisaðila i
heiminum. Skoðanir urðu
islenzku strandgæzlunni mjög i
vil.”
Þá segir i greininni, að Bretar
geti ekki látið sér nægja að senda
smærri skip til íslands — sem
þeir vildu gjarnan gera vegna
áróðursstöðunnar. Það er ekki
unnt vegna veðurlagsins, þvi i
slæmum veðrum yrðu litil brezk
herskip að hörfa, og þá gætu
islenzku varðskipin tekið brezku
togarana. Bent er á það i
greininni, að það myndi ekki
styrkja stöðu Breta á alþjóða-
vettvangi ef þeir sendu 2500 tonna
herskip til átaka við islenzku
strandbátana.
Þá segir og i greininni að yfir-
menn sjóhersins vilji ekki sjálfir
þurfa að lenda i þvi að taka
ákvarðanir um aðgerðir gegn
islenzku strandgæzlunni, ef til
þorskastriðs kemur. Þá verði á-
kvarðanir að koma frá þeim sem
raunverulega hafa völdin i sinum
höndum.
En helzta áhyggjuefni brezka
sjóhersins er augsýnilega — sam-
kvæmt þessari grein — að brezku
sjóliðsforingjarnir verði i augum
alheims hlægilegir, ef til átaka
kemur á tslandsmiðum i haust.
Fiskveiðiráðstefnan i Þórshöfn:
Norðmenn viljalögsögu
utan 12 mílna marka
Einn af fulltrúum Norömanna á norrænu fiskveiðiráð-
stefnunni í Þórshöfn skýrði frá þvf i gær, að Norðmenn
mundu á væntanlegri hafréttarráðstefnu mæla með þvi,
aðstrandríki fengju lögsögu yfir stærra svæði en 12 mílna
mörkin segja til um og forgangsrétt til veiða þar. Þá kom
það einnigframá ráðstefnunni að flestir búast við, að haf-
réttarráðstefnunni verði frestað vegna ágreinings um
iandhelgismál, og geti hún ekki hafizt 1973 eins og ráðgert
er.
Jörgen
Vogt
er
látinn
OSLÓ 4/8. Látinn er i Osló Jörgen
Vogt, einn af helztu leiðtogum
norskra kommúnista, 72 ára
gamall Jörgen Vogt var ritstjóri
ýmissa blaða flokksins, þ.á.m.
Friheten, allt frá 1923, átti sæti i
miðstjórn hans og var þingmaður
um skeið. Hann var virkur i and-
spyrnuhreyfingunni á striðsár-
unum og sat i þýzkum fanga-
búðum nokkur ár.
Carl Björge, frá fiskimálaráðu-
neyti Noregs, sagði i crindi i gær,
að Norðmenn hefðu lagt á það
áherziu á undirbúningsfundum
hafréttarráðstefnunnar i Genf, að
ekki mundi nást samkomulag um
framtiöarlausn landhelgismála,.
nema að strandriki fengju ein-
hverskonúr lögsögu utan 12 milna
og forgangsrétt til veiða þar.
Björge klvaðst og vera þeirrar
skoðunar;, aö Kanadamenn hefðu
mikiö til sins máls meö tillögu
sem kveður á um, að strandriki
hafi lagalegan yfirráðarétt yfir
þeint fiskistofnum, sem hrygna
eða lifa við strendur viðkomandi
landa.
Aðrir fulltrúar gátu þess, að á
undirbúningsfundum I Genf
hcyrðist sterkar raddir gegn þvi
að halda hafréttarráðstefnuna
1973, vegna þess litt brúanlega
ágrcinings sem uppi er á milli
strandþjóða og rikja sem reka út-
hafsvciöar i stórum stil.
Enn dregur úr atvinnuleysi
t júlilok voru 189 manns á at-
vinnuleysisskrá á landinu öllu, en
mánaðamótin næst á undan voru
306 á þess konar skrá.
1 kaupstööum voru atvinnu-
leysingjar 130, i kauptúnum með
1000 ibúa eða fleiri var enginn at-
vinnulaus, og i öðrum kauptúnum
voru atvinnulausir samtals 59.
Af atvinnuleysingjum eru 122
kvenmenn.
Mest atvinnuleysi er á Siglu-
firði, 61 atvinnulaus og á Sauðár-
króki 42.
Atvinnuleysi er aðeins i þremur
þorpum. 32 eru atvinnulausir á
Hofsósi, 26 á Skagaströnd, en
aðeins ein kona á Raufarhöfn.
FISCHER
VANN ,
BIÐSKAKINA
- og hefur nú
tekið örugga
forustu að loknum
tíu skákum
Sjá siðu 3
Myndirnar, sem Gunnar Steinn
tók í gær, sýna þegar þeir
Fischer og Spasski yfirgáfu
Höllina.