Þjóðviljinn - 05.08.1972, Page 8
8. SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. ágúst 1972
23
EVA RAAAM:
AAANNFALL
OG
AAEYJAVAL
þær allar saman, sagði Mikalsen
kennari með hneykslanlegu al-
vöruleysi, þegar tekið var tillit til
þess hve alvarlegt málið var. —
Að minnsta kosti þessar fjórar
sem mest ber á. Þá félli allt um
sjálft sig.
Hermann Henriksen barði
hnefanum i borðið, svo að glösin
dönsuðu.
- Mér þykir vænt um konuna
mina, sagði hann þrjózkulega. —
()g ég kann ekki að meta fyndni af
þessu tagi. Það eina sem ég vil er
að hún haldi sig heima við!
— Það væri mikil úrbót, sagði
Sivert Kroken. — Og með ykkar
leyfi langar mig til að bera fram
tillógu mina. — Þakk fyrir. Jú, ég
lit þannig á, að i þessu máli verð-
um við einfaldlega að hætta að
lita á konurnar sem konur og lita
á þær sem pólitiska andsta'ðinga
— og haga okkur i samræmi við
það!
Þeir slörðu fvrst agndofa
á hann, en svo var eins og smám
saman kviknaði Ijós i æ fleiri aug-
um.
— Stórkostlegt, sagði Jens
Storhaug og leil viðurkenningar-
augum á Sivert Kroken.
— Jákva>tl, sagði bnakastjór-
inn. — Mjög jákvælt.
Hermann einn sýndist á báðum
áttum.
- Sverta þær og baktala áttu
við?
Jens Storhaug ætlaði að sparka
hrausllega i skiiflunginn á honum
til að vekja athygli hans á að hann
v;rri ekki á flokksfundi, en tók
leggjafeil og hitti bankastjórann i
staðinn. Dagur Torén bötvaði af
háttvisi. neri fótlegginn og sagði
kuldalega:
Ilann sagði ekkert sem við
vissum ekki fyrir!
Mér er sama hvað hver
segir, hin virðulega islenzka
stjórnarandstaða hefur verið
mér og minum til mikillar
ánægju s.l. ár. f fyrsta sinn i
fjöldamörg ár standa sjálfir
landsfeðurnir, sem börnin
lærðu að elska i vöggu. utan
við öll völdin, sem voru þeim
svo kær. Og hver urðu fyrstu
viðbrögð þeirra i stjórnarand-
stöðu?
Einsog finasti sirkus, Þeir
voru búnir að vera svo lengi
við völd, að þeir litu á siðustu
kosningar sem hreina
ókurteisi við sig. Og með sliku
hugarfari lögðu þeir i bar-
áttuna. Ekki bætti svo úr skák,
að þeir, sem berjast skyldu
með þeim i stjórnarandstöðu,
voru óhæfir sakir æsku sinnar
og algers reynsluleysis i þeim
efnum.
En einhverntima hljóta þeir
að kyrrast, einsog blessaðar
kýrnar, sem alltaf eru svolitið
kjánalegar fyrst eftir að þeim
er hleypt út á vorin.
— Nei, heyrðu nú, sagði Stor-
haug af móði, — eins og þið séuð
nokkuð betri? Hverjir komu af
stað orðrómnum um —
Siverl Kroken ræskti sig af al-
vöruþrunga.
— I þessu máli er aðalatriðið
að við stöndum saman, sagði
hann festulega. —
Og það sem ég vildi segja er þaö,
að við eigum að berjast eins og
karlmenn gegn karlmönnunum.
Auðvitað er ekki um það að ræöa
að sverta einhverja eða baktala,
við eigum bara að segja það
sem við vitum um þessar konur,
við eigum að vara fólkið við, svo
að það glæpist ekki á að kjósa
neina þeirra i bæjarstjórn. En
þegar við tölum um þær á opin-
berum fundum, tölum við aðeins
vel um þær, mjög vel!
Hann hló lágt og neri saman
hiindum, eins og bandóður morð-
ingi sem horfir á hinn myrta
hverla niður i sýrubaðið.
Við segjum áheyrendum
okkar hve ágætar konurnar eru —
við að hugsa um heimili og baka
kökur og ala biirn! Við tölum við
þá unz þeir verða gráti nær! Og
kjósa okkur!
Bravó! sagði Jens Storhaug
hrifinn, og bankastjórinn kinkaði
kolli til samþykkis:
— Jákva'tt, mjög jákvætt.
En bæði Hermann og Tallak
Langevann úr Kristilega þjóðar-
flokknum sýndust dálitið efa-
blandnir, eins og þeir væru ekki
alveg sannfærðir um að þeir
stæðu með englunum.
Tja , el' þið segið eitthvað
ljótt um konuna mina — sagði
Hermann þungum rómi og
kreppti hnefann.
Sivert Kroken klappaði honum
föðuriega á axlirnar.
Nei, nei, Hermann, ekkert
Ijótt, það veiztu. Við i Verka-
mannaflokknum erum ekki vanir
að tala illa um lólk, eða hvað?
Ilermann sýndist ekki sann-
færður.
Mér er ekki um þetta, taut-
aði hann hikandi. — En ef til vill
er það nauðsynlegt — Flokksins
vegna.
Tallak Langevann bóndi tók til
máls i fyrsta skipti þetta kvöld,
hann horfði á þá góðlegum augum
og sagði ihugandi:
Ég get ekki sagt að ég sé
lyllilega ánægður með aðferð-
irnar sem við hölum samþykkt
hér i kvöld. En ég verð lika að
taka undir með þeim mikla
manni sem sagði að stundum
helgaði tilgangurinn meðalið.
Konurnar hafa smeygt sér inn á
vettvang mannsins á alltof mörg-
um sviðum nú þegar. ! dag
megum við til að mynda horfa
upp á þá andstyggð að kven-
prestur þjóni i norskri kirkju. Og i
grannlöndum okkar er vist enn
meira af þeim. Og þær eru ekki
eins og hér i Noregi af gömlu geð-
þekku tegundinni, giftar og með
stóran barnahóp — sem gert hef-
ur kroppinn feitlaginn og sið-
legan — nei. vinir! þetta eru
næstum kynbombur. sem geta
fengið áhril'agjarna karlmenn til
að hugsa um allt annað en vera
ber i kirkju!
Hann otaði að þeim visifingri og
hristi hann með alvöruþunga.
— Og rétti maður fjandanum
litla fingurinn. tekur hann skjótt
alla höndina. Fái konurnar of
mikið svigrúm. getur farið svo að
Noregi verði einn góðan veðurdag
stjórnað af kvenlegum forsætis-
ráðherra! Guð forði okkur frá
þvilikri ógn og skelfingu. Og hver
veit nema að þvi komi að kon-
urnar vilji gera guð almáttugan
kvenkyns lika!
Hin sterka og hrifandi ræða
Tallaks varð hin siðasta á fund-
inum, á eftir fór hver til sins
heima að loknu uppgjöri á öli og
öðrum munaði. Þeir fóru ekki i
hóp til að forðast að vekja athygli,
heldur laumuöust út af veitinga,-
húsinu einn og einn með uppbrett-
an frakkakraga og hattinn niður i
augu, svo að engan grunaði að
hinir visu stjórnmálamenn i Totta
hefðu átt með sér óformlegan
leynifund.
XIV
Sivert Kroken var önnum kaf-
inn næstu daga. Hann hafði sér-
staka hæfileika til að standa i
stjórnmálabaráttu; það var eins
og hann geymdi einhvern leyni-
kompás einhvers staðar i höfðinu
sem visaði honum stöðugt rétta
veginn i kosningabaráttunni. Nú
vissi hann örugglega að honum
yrði ekkert ágengt án aðstoðar
kvenna. Þær voru ómissandi þeg-
ar einhverju þurfti að koma á
framfæri, og þvi lá leið hans fyrst
af öllu til Rigmor Hammerheim
hjá vinstri flokknum, sem hafði
áður sýnt að hún var til viðtals
um samvinnu, svo framarlega
sem vinstri flokkurinn gat haft
einhvern ávinning af.
Hann náði i hana fyrir utan
skólahliðið eftir siðustu kennslu-
stund. Þau áttu samleið. Það var
ekki þrautalaust að fylgjast með
henni fyrir roskinn mann eins og
hann, sem farinn var að stirðna i
gangi, en málið var svo þýðingar-
mikið að hann lét sig hafa það.
Rigmor Hammerheim var mjög
önnum kafin; nú þurfti hún að
kennslu lokinni að gera innkaup,
þjóta siðan heim til að skræla
kartöflur og elda mat, þvo smá-
þvott og bæta föt, borga aðstoðar-
stúlkunni og leika við börnin, og
hún mátti ómögulega vera að þvi
að stanza til að hlusta á hann. En
Sivert Kroken var búinn að segja
eitt og annað áður en þau komu að
bakariinu.
— Þetta verður mikið áfall fyr-
ir Totta, byrjaði hann dapur i
bragði.
— Hvaö þá? spurði Rigmor
Hammerheim viðutan, hún rifj-
aði minnisblaðið upp i huganum :
brauð, sykur, hveiti, kaffi — Já,
kaffi og rjóma Ég má ekki
gleyma rjómanum.
— Að Kvennaflokkurinn — fyr-
irgefið — kerlingaflokkurinn —
skuli fá fulltrua i bæjarstjórn!
— Kemur það til greina?
(Hveiti, sykur, brauð og smjör.-.j
— Það er óhugsandi, sagði
Kroken og kinkaði kolli þungbú-
inn á svip. — Eins og þær láta
mætti ætla að Totta væri að
drukkna i klóakrennsli. Auðvitað
láta margir slikan áróður hafa á-
hrif á sig. Jú, kerlingaflokkurinn
fær fulltrua — ef við spyrnum
ekki við fótum og vinnum ötullega
að þvi að stöðva þær!
— Klóak! Ég verð að kaupa
salernirpappir, sagði Rigmor
Hammerheim upphátt.
— Ekki svo að skilja, að ég hafi
neitt við það að athuga að konur
taki þátt i stjórnmálum, hélt Si-
vert Kroken ótrauður áfram, —
en það verða að vera konur sem
kunna eitthvað og vita eitthvað,
já konur eins og þér. Þessi Gunda
Henriksen er bara kona með bila-
dellu, hreint ekkert annað. Og ef
hún verður kosin, tekur hún sæti
einhvers annars, já, hver veit
nema þér hefðuð verið kosnar, ef
þessi kerlingaflokkur hefði ekki
komið til. Eins og nú standa sak-
ir, er ekkert liklegra en vinstri
flokkurinn missi sæti sitt —
— Hvað eigum við þá að gera,
Sivert Kroken? spurði Rigmor
Hammerheim, komin hálfa leið
inn til bakarans. Varaforsetinn
teygði sig inn fyrir á eftir henni og
hvislaði:
— Mér finnst þetta svo alvar-
legt mál, að við verðum að koma
þvi á framfæri viö fólk sem við
vitum um hana —
— Tvö kornbrauð frá i gær og
súrbrauð. sagði Rigmor
Hammerheim. — Hvað vitum
við?
— Að hún drekkur! hvislaði
Sivert Kroken. — t leyni. Flösku á
dag. Við getum ekki haft fólk sem
drekkur i bæjarstjórninni!
Rigmor Hammerehim horfði
hugsandi á hann meðan hún tók
við brauðunum og borgaði þau.
Hún sagði ekkert fyrr en þau
komu út fyrir aftur.
LAUGARDAGUR 5. ágúst
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9.00 og
10.00 Morgunbæn kl. 7.45
Morgunleikfimi kl. 7.50
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Magnea Matthíasdóttir
heldur áfram að lesa sögu
sina ,,Babú og bleika lestin”
(6) Tilkynningar kl. 9.30.
Létt lög milli liða. Laugar-
dagslögin kl. 10.25. Stanz
kl. 11.00. Jón Gauti Jónsson
og Arni Ólafur Lárusson sjá
um þáttinn.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Óskalög sjúklinga
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
14.30 1 hágir.Jökull Jakobsson
sér um þáttinn.
15.00 Fréttir
15.15 Skemmtitónlist fyrir
ferðafólk með upplýsingum
um umferðarmál.
16.15 Veðurfregnir. A nótum
æskunnar. Pétur Stein-
grimsson og Andrea Jóns-
dóttir kynna nýjustu dægur-
lögin.
17.00 F'réttir. Heimsmeistara-
einvigið i skák.
17.30 Ferðabókarlestur:
„Stödd i Kina”. Rannveig
Tómasdóttir les úr bók sinni
„Lönd i Ijósaskiptum” (2)
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Söngvar i léttum dúr
Banjoliers syngja og leika.
18.30 Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar
19.30 Þjóðþrif. Gunnlaugur
Ástgeirsson sér um þáttinn.
19.55 Hljómplöturabb
Þorsteins Hannessonar.
20.40 Heyannir.
Miðsumarþáttur með
blönduðu efni. Umsjón: Jón
B. Gunnlaugsson.
21.25 Gömlu dansarnir
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55. Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR 5. ágúst 1972
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 llve glöö er vor æska
Brezkur gamanmyndafl.
Skólakvikmyndin. Þýð;
Jón Thor Haraldsson.
20.50 Evrópukeppni i dansi.
Sjónvarpsupptaka frá
Evrópukeppni i suður-
ameriskum dönsum, sem
háð var i Berlin i vor.
(Evróvision — Þýzka sjón-
varpið) Þýðandi Briet
Héðinsdóttir.
22.10 Konan, sem hvarf (Lady
in the Lake) Bandarisk bió-
mynd frá árinu 1947. Leik-
stjóri Robert Montgomery.
Aðalhlutverk Robert Mont-
gomery, Audrey Totter og
Lloyd Nolan. Þýðandi: Dóra
Hafsteinsdóttir. Spæjari
nokkur skrifar leynilög-
reglusögu og sendir hana til
útgáfufyrirtækis. Fyrir-
tækið býðst til að gefa hana
út gegn þvi, að hann hafi
upp á konu forstjórans, en
hennar hefur verið saknað i
nokkrar vikur.
23.50 Dagskrárlok.
Höfum ávallt fyrirliggjandi allar stærðir skraut-
hringja á hjólbarða, bæði alhvíta og hvíta með
svartri rönd.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
GÚMMfVINNUSTOFAN H.F.
Sklpholti 35 — Reykjavík — Sfmi 30688
I lúffcnpir rcllir
ni’ l'rúgumii'öur
'rj 1 r.imrcili fr.t
?! kl I MO 1 s oo
,,,! og kl |K 2< K)
;i| Bnröpuntanir h|á
'j yfirfranireiöilumannr
!Í:í Sínn 11 322
VEITINGAHUSIÐ
VID AUSTURVOLL