Þjóðviljinn - 09.09.1972, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 09.09.1972, Blaðsíða 12
UÚOVIUINN Laugardagur 9. september 1972 Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar1 eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykjavfkur, simi 18888. Kvöld-, helgi- og sunnu- dagsvarzla i apótekum Reykjavikur vikuna 9. — 15. september er I Garðs- apóteki, Holtsapóteki og Lyfjabúðinni Iöunni. Nætur- varzla i Stórholti 1. Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Simi 81212. Kvöld-, nætur- og helgidaga- vakt á heilsuvernarstöðinni. Simi 21230. Landhelgisgæzlan eignast tvær þyrlur Þyrlurnar geta lent um borð í varðskipunum Aróra gætir y eiðiþ j óf anna i gær var vilað umU0 brezka togara vestur af Kolbeinsey fyrir innan og utan linu. Um 30 togarar voru austur af llvaibak. Kr búizt við að þar fjölgi brezkum togur- um á næstunni. l>ar er brczku frcigátunni Aróru ætlað að gæta veiðiþjófanna næstu daga. k>á voru fimm brezkir og einn vesturþýzkur togari á Halanum innan við iinu og þrir vestur- þýzkir togarar á mörkunum á Vikurál. 13 togarar eru suðvestur af landinu. Einn belgiskur togari er kom- inn á fiskmiðin. Togarinn er i hólfi númer 6 á miðunum. Einsog komið hefur fram i fréttum átti Landhelgis- gæzlan von á 2 litlum þyrlum frá Bandarikjun- um. Komu þessar þyrlurtil landsins i gær meö stórri f iutninga f lugvél, sagöi Hafsteinn Hafsteinsson, blaöafulitrúi gæzlunnarvið Þjóöviljann i gær. Þyrlurnareru af geröinni Bell 47-3 b-2; Eru samskon- ar þyrlur notaöar af banda- riska flughernum og fleiri aðilum, sagði Hafsteinn. Mikil og góð reynsla hefur feng- izt af þessari gerð, og sennilega er hún mest framleidda þyrlu- gerðin. sem til er. sagði Haf- steinn. Lyrlurnar eru af sömu gerð og TK Eir i grunnlinúm. Þó eru þær með annarri útfærslu, sem hentar betur um borð i Varð- skipum. sagði Haísteinn. l>á get- ur þessi gerð af þyrlum lyft meiri þunga. Lyrlurnar eru keyptar notaðar. og verða þvi teknar til skoðunar og eftirlits áður en ha>gt verður að taka þær i notkun. Eftirl. og skoð- un annast flugvirkjar landhelgis- gæzlunnar. en rétt er að taka SAIGON 8/9. — Þjóðfrelsis- hreyfingin i Vietnam hefur gert harðar árásir á Bandarikjamenn og her leppstjórnarinnar viða i Suður-Vietnam i dag, og hafa þessar árásir valdið nýjum ótta um, aö hún kunni að hefja stór- árás i sambandi við kosninga- baráttuna i Bandarikjunum. Hermenn Þjóðfrelsishreyfing- arinnar gerðu árásir á mörgum svæðum frá Quang Tri i norðri til fram. sagði Hatsteinn. að sérstök þjálíun flugvirkja og flugmanna er ekki nauðsynleg. þar sem þjálfunin vegna TF Eir á sinum tima kemur að fullum notum við Framhald á bls. 11. óshólma Mekong-fljótsins i suðri og ollu miklu manntjóni meðal hers leppstjórnarinnar. Mesta sigurinn unnu þeir þó rétt fyrir sunnan Da Nang, þar sem 3000 hermenn þjóðfrelsis- hreyfingarinnar lögðu undir sig borgina Tien Phuoc i gær. Herstjórnin i Saigon sagði, að her leppstjórnarinnar hefði orðið að yfirgefa borgina, sem hefur 30.000 ibúa, seint i gær, fimmtudag. Saigonherinn á undanhaldi Sýning á verkum Stefáns frá Möðru dal í SÚM-sal Stefán V. Jónsson frá Möðrudal fyrir framan eina af elztu myndunum á sýningunni, en hiin ber heitiö sem á hana er ritað mcö skammstöfunum þó, scm i verður að ráða. Hefna morðanna í Múnchen: Israelskar flugvélar gera miklar árásir „Ég er listmálari og tón- listarmaöur þjóöarinnar", sagói Stefón V. Jónsson frá Möörudal, er fréttamaður blaðsins leit viö á Vatnsstig 3, en þar var í gær verið aö koma fyrir sýningu á myndum eftir hann, og veröur sýningin opnuð i dag klukkan 16.00, en þetta er fyrsta sýning Stefáns innan- húss. Blaðberar óskast Þjóðviljinn óskar að ráða blaðbera í eftir- talin hverfi: Kvisthaga Hjarðarhaga Kaplaskjól Skjól Háskólahverfi Drápuhlið Blönduhlíð Móvahliö Hóteigsveg Nökkvavog Grunna Álfheima Laugarnes Leifsgötu Álftamýri Vogahverfi Háaleitisbraut Múlahverfi Laugaveg Miöbæ Þjóðviljinn sími 17500 Stefán er l'æddur árið 1908. Hann naut tilsagnar Geirs Þor- mars myndskurðarmeistara á Akureyri samtimis örlygi Sig- urðssyni listm. og sótti jafnframt tima i málun hjá Hauki Steláns- syni. Stefán hefur haldið margar sýningar á verkum sinum undir berum himni. Eitt sinn stillti hann upp myndum á húsvegg við gatnamót og kallaði Sýnis- horn. Þá hélt hann sýningu fyrir nokkrum árum á La’kjartorgi þar sem lögreglan skarst i leikinn. Á sýningunni i Galerie Súm er m.a. myndin fræga, Vorleikur, sú mynd er lögreglustjórinn vildi skoða í einrúmi.... Sýningin er opin daglega frá kl. 4—10 og stendur út næstu tvær vikur. Listamaðurinn lék á als oddi er við hittum hann i gær og sagði okkur margar sögur af myndun- um og sjálfum sér. Sagðist Ste- fán hafa sugsað sér að vera með harmonikkuna með sér við opn- unina i dag. en sin harmonikka væri bara biluð. og ekki væri vist að sér ta>kist að verða sér úti um aðra. Sýningin tekur yfir myndir sem listamaðurinn hefur málað sið- astliðin 40 ár, og er á engan hallað þótt fullyrt sé, að hér er sú sýn- ing. sem mest er og bezt mál- verkasýninga i landinu það sem af er árinu, og þótt lengra væri til jafnað. —úþ. Fimmtíu biðu bana PIINOM PKNH 8/9 — Að minnsta kosti fimmtiu manns biðu bana. þegar troðfullur áætlunarbill ók út af vegi rétt fyrir utan höfuðborg Kambodiu og lenti þar I stöðuvatni. Allir sem voru i bilnum drukknuðu. TEL AVIV 8/9 — ísraelskar herflugvélar réöust í dag hvaö eftir annað á arabisk þorp i Libanon og Sýrlandi, þar sem israelsmenn telja að Palestinuskæruliðar hafi bækistöðvar sínar. Þetta eru mestu árásir sem israelskar flugvélar hafa gert siðan vopnhlé var samió i ágúst 1970. Frétta- menn i austurlöndum nær eru ekki i neinum efa um aó þessar árásir eru fyrsti þátturinn í hefnd jsraels- manna fyrir drápin á ólympiuförunum ellefu í Mtínchen. Að sögn talsmanna hersins i Tel Aviv voru gerðar árásir á sjö þorp i Sýrlandi og þrjú i Libanon, og náðu þa>r alla leið til flótta- mannabúða i grennd við Tripoli, 80 km. fyrir norðan Beirut. og til þorps sex km. fra Damaskus. Fngar heildarfréttir hafa enn borizt um áhrif þessara aðgerða. en palestinska fréttastofan Wafa telur að 32 manns hafi beðið bana i árásunum og mikill fjöldi særzt. Talsmaður sýrlenzka hersins i Damaskus sagði að mikill fjöldi óbreyttra borgara og hermanna hefðu fallið og særzt, ein kona hefði fallið og fjöldi kvenna og barna særzt. Utanrikisráðherra Israels sagði i Tel Aviv i dag, að mikil- vægasta hlutverk Israelsmanna nú væri að berjast viö skæruliða. Golda Meir. lorsætisráðherra israels, sagði i dag að ísraels- menn myndu krefjast mikilla breytinga á landamærum sem þátt i lausn deilumálanna fyrir botni M iðjarðarhafs. ,,Arabar verða að gefa hluta af sinu landi ef þeir vilja frið", sagði Golda Meir. ,.Við viljum ekki hverfa aftur til landamæranna fyrir sex daga striðið 1967; viö gerum okk- ur heldur ánægð með smávægi- legar landamærabreytingar."

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.