Þjóðviljinn - 20.09.1972, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 20.09.1972, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 20. september — 37. árg. 211 tbl. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA í KRON k á VIÐRÆÐUM ÞRIGGJA AÐILA VAR HAFNAÐ Sendiherrum Bretlands og Vestur-Þýzkolands afhent svör islenzku rikisstjórnarinnar i gœrdag Einar Ágústson utan- ríkisráðherra afhenti í gær sendiherrum Breta og Vestur-Þjóðverja svör isienzku ríkisstjórnarinnar við boði Vestur-Þjóðverja um þriggja ríkja viðræður í Bonn 28. og 29. september um fiskveiðiréttindi við ísland. i svari rikisstjórnarinnar kemur fram, að hún neitar að taka þátt í fjölþjóð- legum viðræðum um land- helgismálið, en kveðst reiðubúin að ræða við hverja þjóð fyrir sig. Þá eru Bretar minntir á að þeir hafi engu svarað orðsend- ingu íslenzku ríkisstjórnar- innar frá 11. ágúst. Svarið til Vestur Þýzkalands var svohljóðandi: ,,Með tilvisun til munnlegrar orðsendingar yðar varðandi viö- ræður við stjórn yðar og fulltrúa frá rikisstjórn Bretlands i Bonn 28. og 29. september, óskar islenzka rikisstjórnin að taka fram eftirfarandi: Þrátt fyrir þaö, að rikisstjórn Islands metur mikils þetta frum- kvæði yðar, vill hún ekki taka þátt i fjölþjóðaviðræðum varðandi sérstök réttindi erlendra fiski- manna innan 50 milna markanna, en er reiðubúin að eiga viðræður við hverja einstaka þjóð, sem hlut á að máli. Vérerum reiðubúnir til þess að halda áfram viðræðum við Sambandslýðveldið Þýzkaland og leggja fram ákveðnar tillögur varðandi fiskveiðar Þjóðverja innanhinna nýju fiskveiðimarka. Af sérstökum ástæðum er timi sá, sem tiltekinn er, 28. og 29. september, ekki þægilegur og þyrftu báðir aðilar að samþykkja annan tima, sem þægilegur væri fyrir báða”. Svarið til Breta var svohljóð- andi: „Með tilvisun til boðs rikis- stjórnar Sambandsiýðveldisins Þýzkalands um þriggja rikja við- ræður varðandi sérstök réttindi fyrir brezk og þýzk skip innan nýju fiskveiðimarkanna, vil ég tilkynna yður, að islenzka rikis- stjórnin hefur svarað, að hún vilji ekki taka þátt i fjölþjóðavið- ræðum varðandi þetta mál, en er reiðubúin til þess að eiga við- ræður við hverja einstaka þjóð, sem hlut á að máli. Vér erum reiðubúnir til þess að taka á móti fulltrúum frá rikis- stjórn Bretlands þegar i þessari viku eða siðar. Af sérstökum ástæðum eru dagarnir 23.-29. september ekki þægilegir fyrir oss.” Bretinn reyndi að kafsigla Fylki Ben Lui Rœtt við skipstjórann á Fylki í gær gerði brezki togarinn Ben I.ui frá Abcrdeen tvær til- raunir til þess að sigla niður togbátinn Fylki NK 102, 13 til 14 sjómilur suðaustur af Langanesi. Samkvæmt frásögn skip- stjórans á Fylki skeði þetta rctt fyrir hádegi i gær. Fór fyrri tilraunin þannig fram, að togarinn sigldi á fullri ferð framhjá stjórnborðssiðu báts- ins og snarbeygði i bakborða fyrir bátinn. Siðan kom togar- inn á fullri ferð og stefndi beint á bakborðssiðu bátsins, en hann komst undan. Þjóðviljinn náði sambandi við skipstjórann á Fylki NK 102um kl. 17 i gær. Var bátur- inn þá kominn á Héraðsflóann og byrjaður að toga þar. Heitir skipstjórinn Trausti Magnús- son og er frá Seyðisfirði. Hann sagði: —„Þeir voru búnir að vera úti i sólarhring og höfðu byrj- að veiðar á Þistilfjarðardýpi. Fengu þar litinn afla og voru á suöurleið. Rétt fyrir hádegi voru þeir staddir um 14 sjómilur suð- austur af Langanesi. Var þokuslæðingur og vont skyggni á þessum slóðum er brezki togarinn kom allt i einu að norðan og sigldi aðeins 40 til 50 metra fyrir framan stefnið á bát okkar, sagði Trausti. Attum við réttinn enda var togarinn á öfugum bógi við okkur. Við stöðvuðum bátinn til þess að forða árekstri og sett- um siðan á hæga ferð áfram og keyrði togarinn á undan okkur smástund. Allt i einu snarsnýr togarinn i bakborða og stefndi beint á siðu bátsins. Beygðum viö þá undan honum á 10 til 11 milna ferð og tilbúnir að setja á fulla ferð. Sneri þá togarinn frá okkur og var þá með toghlerana hangandi á siðunni. Þykir mér ekki ólik- legt, að hann hafi kastað þarna skömmu siðar, sagði Trausti. Það var heldur óhugguleg tilfinning að verða fyrir þess- um tilraunum togarans til þess að keyra okkur niður. Maður veit aldrei, hvað mikil alvara er á bak við svona til- raunir. Við sáum bát þarna skammt frá okkur. Var það Hólmanes BA 180 frá Patreks- firði”, sagði Trausti. Sex sjómenn eru á Fylki NK 102. Eru þrir frá Neskaupstað, einn frá Seyðisfiröi og tveir frá Reykjavik. Gerðu þeir ráð fyrir að vera allt að viku úti áður en þeir færu inn til Nes- kaupstaðar aö lokinni þessari veiðiferð. — Fylkir er 92 tonna stál- bátur smiðaður i Vélsmiðju Seyðisfjarðar og var sjósettur fyrir aðeins þremur mánuð- um. Hefur Trausti veriö skip- stjóri frá upphafi. — Ben Lui er nýr skuttogari 700 til 800 tonn að stærð og„sá ég togarann við bryggju i Aberdeen" sagði Jónas Arna- son við blaðið i gær. Ég man eftir skipstjóranum á togaran- um, sem heitir Charles Grimmer og kom fram i sjón- varpsþætti okkar Magnúsar i sumar. Þetta var hægur maður og sat framariega i salnum og var heldur friðsamur á þess- um fundi. Þykir mér furðu- legt, ef búið er að æsa svona friðsemdarmann upp og hann farinn að sigla niður islenzka togbáta, sagði Jónas. Jónas sagði að forskeytið Ben þýddi fjall á gelisku og væru allmargir togarar kenndir við fjöll. — Smiðaár togarans er 1971 og er hann 160 fet á lengd. Er Ben Lui fyrsti stóri skuttogari þeirra Aberdeen manna. — g.m. ræða um fiskveiðar við Lúðvík Jósepsson, sjávarútvegsráðherra: Við viljum hvern aðila fyrir sig Þjóöviljinn ræddi i gær viö Lúövík Jósepsson sjávarútvegsráðherra i til- efni þeirra orðsendinga, sem ríkisstjórnin hefur nú sent Bretum og Vestur- Þjóðverjum. — Hvað vilt þú segja um þessi svör rikisstjórnarinnar og um ástæðuna fyrir þvi að rikisstjórn- in neitar að taka þátt i marghliða umræðum? — Við teljum að viðræður um landhelgismálið eigi að fjalla um það(með hverjum hætti sé unnt að leysa þau vandamál sem fiskiskip viðkomandi þjóða verða fyrir, er landhelgin er færð út við ísland. Vandamál hinna ýmsu þjóða, sem hér hafa átt veiðiskip, eru mismunandi og við teljum þvi eðlilegast að tæða við hvern aðila fyrir sig. Við viljum ræða um þessa hlið málsins, en viljum ekki taka upp neinar viðræður um samningsgerðina 1961 né önnur almenn grundvallaratriði á sam- eiginlegum grundvelli. Umræður á marghliða grundvelli þjóna engum hagsmunum. — En hver er þá afstaða ykkar til samninga við Breta? — Viö sendum Bretum tilboö 11. ágúst og við þvi tilboði hefur ekkert svar borizt. Það er þvi eðlilegt að við minnum á það áð- ur en samningar geta hafizt. Við teljum, að ef Bretar vilja i raun og veru efna til samningavið- ræðna, sé i fyrsta lagi eðlilegt, að þeir svari okkar tillögum og i öðru lagi að þeir ræði þá við okkur hér á landi. Við höfum sett fram ákveðnar tillögur við Breta. Þær eru i grundvallaratriðum svipaðar þeim, sem samkomulag náöist um við Belga. Þetta byggist á þvi, að við hefðum með að gera fram- kvæmd og eftirlit með þeim samningum sem gerðir yrðu. Þetta hafa Belgar fallizt á, og veiða hér samkvæmt leyfum og vissum skilyrðum. Og þetta höf- um við lagt áherzlu á við Breta einnig, að veiðar sem við kynnum að heimila þeim hér, yrðu að vera undir okkar eftirliti og umsjá. A þessum grundvelli verða samn- ingar að byggjast. Þar að auki höfum við lagt áherzlu á, að Bret- ar verði að draga verulega úr fiskveiðum sinum hér við land frá þvi sem verið hefur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.