Þjóðviljinn - 20.09.1972, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 20.09.1972, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — bJÓÐVILJINN Miðvikudagur 20. september 1972 Dauðsföll í Frakklandi af völdum barnapúðurs bannig litur franskur teiknari á máiið. óþörf og hættuleg efni notuð eftirlitslaust í neyzluvarningi Faul Berty, forstjóri franska fyrirtækisins „Morhangc" Aö undanförnu hefur talsvert verið rætt um dauðsföll ungbarna í Frakklandi af völdum tal- kúms/ sem innihélt sótt- hreinsandi efnið hexa- kiórófen. Vmis blöð hér á landi vildu að vísu efast um þessar fréttir og töldu að þær væru ýktar, þar eð hexaklórófen hefði verið notað lengi og ekkert hefði komið fram, sem benti til þess að það væri skaðlegt. En þetta var rangt, þvi að vandleg opinber rannsókn hafði sýnt fram á dauða meira en 30 ungbarna af völdum þessa efnis og þar sem það er næsta óliklegt, að frönsk yfirvöld hafi viljað hræða almenning með æsifréttum, má búast við því að sú tala sé fremur of lág, en of há. Nú er verið að rannsaka málið til að reyna að komast að þvi hver beri ábyrgðina á þessum mistök- um i framleiðslu talkumsins, og má búast við þvi að rannsóknin taki mjög langan tima. En þetta mál beinir huganum óhjákvæmi- lega að viðtækara vandamáli; efnanotkun og efnaneyzlu i nú- timaþjóðfélagi og mistökum, sem áður hafa orðið af þessu tagi. Sá siður færist stöðugt i vöxt að blanda alls kyns efnasulli i neyzluvarning. Mikið hefur verið rætt um efni, sem sett eru i mat- vörur til þess að bæta bragðið, auka geymsluþolið eða jafnvel aðeins til þess að fegra litinn. Nú er búið að sýna svo rækilega fram á skaðsemi margra efna, sem þannig voru sett i matvæli (eða komust i þau vegna mengunar) að fjölmargar þjóðir m.a. Norðurlandaþjóðirnar, hafa sett mjög strangar reglur um þetta, og banna á heimamarkaði sölu matvæla, sem hafa slik efni að geyma. Það kemur þó reyndar ekki i veg fyrir, að þau séu fram- leidd — og flutt til landa, sem hafa ekki sett eins strangar öryggisreglur! Þannig er hægt að kaupa i Suður-Evrópu niðursuðu- dósir með reyktri þorskalifur frá Danmörku, sem fyrir löngu er búið að banna sölu á i Danmörku sjálfri. Hins vegar mun fáum vera það ljóst, að alls konar efnasulli er blandað i sápur, fegrunarlyf og viðlika vörur. Ástandið er þó mun verra á þessu sviði, þvi að ekkert opinbert eftirlit er haft með þvi. Auk þess er framleiðslan á þess- um vörum ein sú allra gróðavæn- legasta i „hreinlætisþjóðfélagi” nútimans og ekkert er sparað til þess að fá neytandann til þess að kaupa sem allra mest af sem allra dýrustum (og óþörfustum) vörum: sápa er góð, en þvi meira af „undraefnum” sem i henni er, þvi betra. Sagan um hexaklórófen er góð dæmisaga um þetta. Árið 1941 fékkst ungur visinda- maður. William S. Gump, sem vann á Givaudan rannsóknar- stofnununum i Sviss, við það að framleiða ýmis gerfiefni til að sótthreinsa húðina. Givaudan fyrirtækið framleiddi ilmvötn, en leitaðist þá við að ná undir sig markaðinum fyrir sótthreinsandi lyf og lykteyðandi efni. Það fól Gump þvi að finna upp sótt- hreinsandi efni, sem væri lyktar- laust og unnt væri að setja i sápur. Hann rannsakaði mörg gerfiefni og valdi eitt, sem virtist uppfylla allar kröfur: hexa- klórófen. Þetta nýja efni varð siðan mjög útbreitt á markaðin- um eftir heimsstyrjöldina undir nafninu g-ll. En meðan efnið breiddist út um markaðinn voru gerðar ýmsar tilraunir um áhrif þess á nagdýr, og kom þá i ljós að það hafði mjög skaðleg áhrif á taugakerfið: þriðjungur tilraunadýranna drapst úr taugaskemmdum. Þótt undarlegt megi virðast voru skýrslur um þessar tilraunir ekki gefnar út fyrr en 1968 - árið sem einkaleyfi Givaudan-fyrirtækis- ins á efninu rann út. Allan þann tima, sem Givaudan hafði einkarétt á efninu, hafði það reynt að takmarka notkun þess við vörur. þar sem engin hætta var á ferðum. Þó urðu nokkur siys i sambandi við skordýra- eitur, sem innihélt efnið, og lyf, sem einnig innihélt það, og var notað til að sótthreinsa brunasár. Það kom þá i ljós, að hexa- klórófen var a.m.k. sex sinnum eitraðra en D.D.T. Þegar einkaleyfið rann út, fóru önnur fyrirtæki að nota hexa- klórófen. Givaudan vildi ekki missa markaðinn og gerðist þá óvarkárara i notkun þess. A árun- um rétt fyrir 1970, greip hreint æði um sig, og hexaklórófen og önnur skyld sótthreinsandi efni voru sett i næstum þvi öll fegrunarlyf og einkum þó i lykt- eyðandi lyf. Ekkert eftirlit hefur verið haft með þessum lyfjum, og má segja að menn séu notaðir sem til- raunadýr. P’yrir þremur árum vildu umboðsmenn bandarisks fyrirtækis gera könnun á markaði fyrir barnaáburð, sem hexa- klórófen var i. Þeir sem gerðu könnunina fóru i hús og gáfu mæðrum þrjár flöskur. án merki- miða með mismunandi litum áburði i. Nokkrum vikum siðar komu þeir aftur i húsin og spurðu mæðurnar um áburðinn. En þegar hexaklórófen var orðið svona útbreitt tóku banda- risku neytendasamtökin að hafa nokkrar áhyggjur, og komu þvi til leiðar að gerðar voru nýjar til- raunir. Þær sýndu að þrir af hundraði þess hexaklórófens, sem snertir húðina, siast þegar inn i hana, og breiðist fyrst út um likamann með blóðinu en sezt siðan i taugakerfið. Þar eyðist efnið ekki, heldur getur safnast saman, og valdið mjög alvarleg- um heilaskemmdum. Niðurstöður tilraunanna þóttu svo alvarlegar að bandariska stofnunin, sem hefur eftirlit með matvælum i landinu (Food and drug administration) fór fram á það i febrúar i vetur, að notkun hexaklórófens i fegrunarlyfjum yrði bönnuð. En það kom fyrir ekki. enda er fegrunarlyfja- iðnaöurinn einn allra arðvæn- legasti iðnaður kapitaliskra landa. Og meðan óþörf sótt- hreinsunarefni eru sett i vörur eins og talkúm, geta alltaf komið fyrir mistök eins og urðu með tal- kúmið Morhange, i Frakklandi. Slikir atburðir hafa orðið áður. Árið 1952 sýktust 290 börn og 70 dóu i Frakklandi af völdum barnapúðurs að nafni Baumol: það höfðu orðið mistök i fram- leiðslu þess. Rannsóknin tók sjö ár, og að henni lokinni fengu fjöl- skyldur barnanna skaðabætur, en framleiðandinn var aðeins dæmdur i átján mánaða fangelsi, skilorðsbundið. Tveimur árum siðar létust 102 menn og 150 lömuðust i Frakk- landi af völdum húðsjúkdóma- lyfs, sem var nefnt hinu furðuiega nafni „Stalinon”. Það hafði ekki verið reynt nógu vandlega áður en það var sett á markaðinn og var skaðlegt. Sá, sem hafði fundið lyfið upp, var dæmdur i tveggja ára fangelsi, en forstjóri fyrir- tækisins, sem hafði framleitt það, var hins vegar sýknaður. Loks mun thalidomid — málið vera öllum i fersku minni. Höfðað var mál á hendur fyrirtækinu, sem hafði framleitt það og var ekki talinn nokkur vafi á þvi, að fyrirtækið fengi þungan dóm. En skyndilega voru réttarhöldin stöðvuð.Fyrirtækiðgaf hins vegar. 110 miljónir marka til uppeldis hinna vansköpuðu thalidomid- barna (þau eru sennilega nálægt 20000). Þjóðverjar sögðu „hinir seku borguðu 110 miljónir til að sleppa undan dómi”. Ef litið er á dómana virðist sem svo, að mistök i lyfjaframleiðslu og brot á reglugerðum, sem leiða til dauða fjölmargra manna, séu talin litið afbrot i kapitaliskum löndum, enda myndi það kannske skaða hagvöxtinn að taka strangt á þeim. (að nokkru eftir „Le Nouvel Observateur”)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.