Þjóðviljinn - 20.09.1972, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 20.09.1972, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 20. september 1972>jöðVILJINN — SÍÐA 9. Tekst IBV að sigra Frammistaða þeirra í Noregi var framar vonum Um næstu helgi leika Vestmannaeyingar siöari leik sinn við Víking frá Stavangri, en fyrri leikur- inn fór fram i Noregi og sigruðu þá heimamenn með einu marki gegn engu. Sá árangur Vestmannaey- inga er mjög góður og sam- kvæmt skeytum frá Noregi voru þeir sízt lakari í þeim leik. Þaö er því ekki fjar- stæðukennt að reikna með íslenzkum sigri um helgina og ef leikurinn vinnst með meira en einu marki eru Vestmannaeyingar komnir i 2. umferð UEFA- keppninnar. Nk. sunnudag leika Vest- mannaeyingar siðari leik sinn i fyrstu umferð UEFA-keppninnar. Leikurinn fer væntanlega fram á Laugardalsvellinum. Andstæð- ingar Vestmannaeyinga i fyrstu umferð eru Vikingar frá Stav- angri i Noregi. mjög sterkt lið og skemmtilega leikandi. Fyrri leikur liðanna fór fram fyrir stuttu i Noregi og lauk með sigri heimamanna, 1-0. Takizt Vestmannaeyingum að sigra með meira en eins marks mun eru þeir komnir i 2. umferð keppninnar. Samkvæmt blaðaskrifum norskra blaða og skeytum frá Noregi virð- ast þó nokkrar likur á að is- lenzkur sigur fáist úr þessum leik þvi liðin voru mjög jöfn að styrk- leika i fyrri leiknum. Okkur hafa nú borizt upplýs- ingar um liðin og hér er stutt ágrip um þau bæði: íþróttaféiagið VIKING: iþróttafélagið Viking var stofn- að i Stavangri 10. ágúst 1899. A vegum þess eru æfðar allar greinar iþrótta en knattspyrnan er þó langvinsælust og getur liðið státað af mörgum fræknum sigr- um. Áhugi á knattspyrnu i Stav- angri hefur margfaldast eftir að Viking tók svo geysilegum fram- förum á stuttu timabili að engu lagi er likt. Þeir hafa sýnt stór- kostlega leiki i sumar og hafa nú 3 stig fram yfir næstefsta liðið i 1. deildinni norsku. Þó á Viking eftir Þessi mynd er tekin af liði tBV áður en það hélt til Noregs. Ef grannt er skoðað má sjá.að myndin er tekin af þaki Hótel Esju. Þessi mynd er af liði Vikinga frá Stavangri. Hægfara leikaðferð þeirra varö þeim næstum að falli gegn hraða ÍBV og sennilegt er aö þeir hafi nú breytt keppnisstil sinum i samræmi við hraða IBV. Að minnsta kosti gerir iþróttafréttaritari hjá Arbeiderbladet sér vel ijóst hvaö olli hinum nauma sigri Vikinga úti i Noregi þegar hann skrifar: „islandsk hurtighet ble nesten Vikings bane” að leika fjóra leiki og alla á heimavelli Leikvangur félagsins er einn glæsilegasti félagsvöllur i Noregi. Hann rúmar 16.000 áhorfendur og nýlega var sett upp fullkomin flóðlýsing á völlinn. Ljósin voru vigð i leik Vestmannaeyinga þar ytra. Meðalaldur leikmanna Vikings er tæp 25 ár og er leikreynsla þeirra i samræmi við það. Þetta þykir nokkuð hár meðalaldur hér á Islandi en Norðmennirnir eru mjög friskir og einmitt leik- reynslan hefur fært Viking mörg stig undanfarið. Olav Nilsen, miðjuleikmaður, hefur flesta leiki að baki. Hann hefur leikið 325 leiki með liðinu og 62 landsleiki. Þó hann sé tengi- liður hefur hann skorað flest mörk af núverandi leikmönnum liðsins eða 96, en Arvid Knutsen fylgir fast á eftir með 94 mörk. Olaf Nilsen hel'ur einnig leikið flesta landsl. liðsmanna, eða 62. Samtals hafa leikmennirnir leikið 102 landsleiki, 37 unglingalands- leiki. 5 b-landsleiki og 18 sinnum hefur einhver leikmanna liðsins leikið með héraðsúrvali. Leikmenn Víkings Erik Johannesson, mark- vörður, nemi, hefur leikið 11 ung- lingalandsliðsleiki og 49 leiki með aðalliði Vikings, sýndi frábæran Olga Korbut: Hef eignast marga vmi Eftir leikana, þegar ég hef loks- ins haft ráðrúm til að hugsa mig um. hef ég oft lagt fyrir mig spurninguna: Hvað var það, sem stuðlaði að sigri minum? Til þess liggja margar ástæður: Mikil og erfið þjálfun. hjálp og aðstoð sér- menntaðra þjálfara, góður andi innan liðsins og svo auðvitað löngunin til að sigra. sem er eiginleg hverjum iþróttamanni. En það er ein ástæða ennogþað er sambandið við áhorfendur. Lófa- tak áhorfenda hvatti mig á erfið- ustu minútum. Margir i Miinchen voru að- dáendur minir og fyrir það er ég þeim þakklát, en það kom svo á daginn. að ég átti ekki eingöngu -aðdáendur i Múnchen, þvi að ég fékk bréf og skeyti frá þúsundum sjónvarpsáhorfenda i ýmsum borgum Vestur-Þýzkalands. Á Olympiuleikunum eignaðist ég ótal nýja vini og slikt hefur alltaf dásamleg áhrif. APN. leik móti Vestmannaeyingum um daginn. Arvid Knudsen, útherji, 28 ára kennari sem hefur leikið 5 ung- lingalandsliðsleiki. 5 leiki með héraðsúrvali og 260 leiki með að- alliði Vikings. Svein Kvia, miðjuleikmaður, 25 ára reikningssörfræðingur, hefur leikið 10 a-landsleiki og 214 leiki með aðalliði Vikings. Kvia skor- aði markið i leiknum gegn Vest- mannaeyingum. iþróttabandalag Vestmannaeyja: iþróttabandalag Vestmanna- eyja var stofnuð árið 1946 af iþróttaíélaginu Þór, Knatt- spyrnufélaginu Tý og Golfklúbbi Vestmannaeyja. Siðar gengu i bandalagið Tennis- og bad- mintonfélag Vestmannaeyja og Iþróttafélag Vestmannaeyja. IBV var fyrst tslandsmeistari i 4. flokki árið 1964. Meistaraflokkur lék fyrst i 1. deild 1968, en þá var liðið búið að vera mörg ár i úrslitum i 2. deild. Sama ár varð liðið bikarmeistari og 1969 keppti liðið við búlgörsku meistarana Leski — Sparta. Siðan hefur liðið verið i fremstu röð i deildinni og 1971 lék það úr- slitaleikinn um islandsmeistara- titilinn, en varð að lúta lægra haldi fyrir ÍBK, 4-0. ÍBV er létt leikandi lið og skemmtilegt fyrir það,að varnar- leikur sézt aldrei heldur er sókni'n þeirra bezta vörn. Leikmenn iBV: Páll Pálmason markvörður 27 ára verkstjóri. mjög leikreyndur og hefur verið meistaraflokks- maður siðan 1962, en hann helur leikið einn landsleik. Ársadl Sveinsson markvörður. 17 ára nemi. Markvörður ung- lingalandsliðsins. Ólafur Sigurvinsson bakvörður nr. 2, 21 árs pipulagningamaður. Fyrirliði iBV liðsins og hefur leikið 10 landsleiki og 3 unglinga- landsleiki. M jiig fljótur og leikinn varnarleikmaður. Einar Friðþjófsson bakvörður nr. 3 22 ára lögfræðincmi. Hefur leikið með mcistaraflokki ÍBV siðan 1968. ilarður varnarleik- maður. Þórður Hallgrimsson mið- F'rh. á bls. 15 Hola í höggi Sá fágæti atburður gerðist fyrir skömmu að slegin var hola i höggi, en það er draumur sem allir kylf- ingar eiga sér. Það var Bert Hanson, stórkaupmaöur, sem sló holu i höggi á 3. braut vallarins, sem er um 150 m að lengd, par 3, sem er ein af erfið- ustu par 3 holum á landinu. Bert notaði járn nr. 6 og voru 3 meðlimir klúbbsins viðstaddir þennan atburð. Handknattleiks- mót Gróttu Hið árlega handknattleiksmót Gróttu i meistaraflokki kvenna fer fram dagana 23. 24. og, 28. sept. n.k. i iþróttahúsinu Sel- tjarnarnesi. Nánari upplýsingar i sima 43723.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.