Þjóðviljinn - 24.10.1972, Side 1
Hafnbann á íslenzk skip í
Bretlandi — en við eigum mótleik
Landhelgisdeilan við Breta er að harðna. Eim-
skipafélagi íslands barst i gær tilkynning frá um-
boðsmönnum sinum i Englandi og segir þar, að
hvorki islenzk skip né vörur til eða frá íslandi
verði afgreidd i þeim ensku höfnum, sem islenzk
skip hafa aðallega siglt á.
Bretar virðast halda, að þeir geti brotið niður
landhelgisbaráttu íslendinga með viðskipta-
striði, en svo er ekki. tJtflutningur okkar til Bret-
lands hefur verið miklu minni en innflutningur
þaðan og auðvelt fyrir íslendinga að neita sér um
brezkar vörur.
Það er hægt að kaupa jafn góðar i öðrum lönd-
um. í stjórnmálasamþykkt flokksráðsfundar
Alþýðubandalagsins, sem birt er á 7. siðu
Þjóðviljans i dag, er mörkuð sú afstaða, að við-
skiptabanni af hálfu Breta ber þegar i stað að
svara með þvi að hætta öllum innflutningi frá
Bretlandi.
hafna. Var Dettifoss væntan-
legur til Felixstowe i gær.
Askja er væntanleg til Weston
Point seinni hluta þessarar
viku, sagöi Sigurlaugur Þor-
kelsson hjá Eimskip i gær.
Eru þetta þær tvær aðalhafnir
er Eimskip siglir til i Bret-
landi siðan ferðir Gullfoss
hættu með viðkomu i Leith.
Um helgina fékk Ljósafoss
ekki afgreiðslu i Grimsby. Atti
að losa þar frystan fisk og hélt
skipið áfram til Hamborgar.
Felixstowe er lítil hafnar-
borg i grennd við Lundúni og
gegnir mikilvægu hlutverki i
póstþjónustu Bretlands.
Þangað fer allur póstur til
Bretlands sjóleiðina og þaðan
til fjarlægra heimsálfa eins og
til Astraliu, Al'riku og Asiu.
Bögglapóstur til vina og
ættingja fyrir jól fer i gegnum
Felixstowe til áðurgreindra
heimsálfa.
Er hann einkum sendur með
skipum i nóvember. t gær-
kvöld sagði Rafn Júliusson hjá
pósti og sima að beinast lægi
við að senda sjópóst til Kaup-
mannahafnar og Hamborgar
til dreifingar með skipum út
um heim. Til þeirra borga er
sjópóstur sendur til dreifingar
um meginland Evrópu með
járnbrautarlestum. Ennfrem-
ur sjópóstur til Suður
Ameriku. Hefur heldur færzt i
vöxt að senda sjópóst til
Kaupmannahafnar og Ham-
borgar siðari ár vegna betri
þjónustu viö póstinn i þessum
borgum. Er hægt að álykta af
þessum ummælum Rafns, að
póstur verði þannig sendur I
vaxandi mæli til hafnarborga
Evrópu. Hætt verði við sila-
legri þjónustu við póstinn i
enskum hafnarborgum.
Liggur það orð á Bretum að
þeir veiti verri þjónustu i
þessum efnum.
☆
Samband flutningaverka-
manna i Bretlandi hcfur lýst
yfir afgreiðslubanni á islenzk
skip i brezkum höfnum. Frá-
leitt er aö stjórn þessa verka-
lýðssambands geti snúið sér
til Alþjóðasambands
flutningaverkamanna og farið
fram á afgreiðslubann á
islenzk skip i höfnum Evrópu
og viðar eins og heyrzt hefur i
útvarpsfréttum. Sjómanna-
samband Islands er lika aðili
að þessu Alþjóðasambandi og
er ekki hægt að gera upp á
milli verkalýösfélaga frá
tveim þjóðum i slikum efnum.
Eftirfarandi fréttatilk.
barst blaðinu i gær frá Eim-
skipafélagi tslands h.f.
„Kl. 3 i dag, mánudaginn 23.
október, barst Eimskipa-
félaginu skeyti frá umboðs-
mönnum þess i Felixstowe og
Weston Point, þess efnis, að
vcrkalýðsfélög hafi tilkynnt að
engin Islenzk skip né vörur til
og frá tslandi verði afgreidd i
nefndum höfnum fyrst um
sinn og þar til annað verði til-
kynnt.”
H.F. EIMSKIPAFÉLAG
tSLANDS.
Skip Eimskip halda uppi
vikulegum ferðum til þessara
Tvær freigátur reiðu-
búnar til íhlutunar
LONDON — Fulltrúar útgerðarmanna, sjómanna
og verkalýðsfélaga áttu i dag fund með James
Prior, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra
Breta, og var erindið það að biðja um herskipa-
vernd fyrir brezka togara á íslandsmiðum.
Ráðherrann mun hafa sagt þeim að brezka
stjórnin mundi ekki veita herskipavernd að svo
stöddu, en hins vegar mundu tvær freigátur,
Achilles og Phoebe, verða i nánd við ísland, utan 50
milna.
Hins vegar kvaðst sjávarútvegsráðherrann
mundu hafa i huga þess beiðni um herskipavernd og
ræða málin nánar við brezku rikisstjórnina.
Lúðvík Jósepsson:
Hafnbannið
skaðar Breta fyrst
og fremst
Lúðvik Jósepsson
Þjóðviljinn náði tali af Lúðvik
Jósepssyni, viðskipta- og sjávar-
útvegsráðherra, og spuröi um álit
hans á hafnbanni Breta.
Lúðvik sagði:
„Hafnbann Breta af þessu tagi
mun ekki hafa mikil áhrif á við-
skiptastööu okkar tslendinga eins
og nú standa sakir. Þær vörur,
sem við seljum til Breta getum
við auðveldlega selt til annarra
landa, og þær vörur, sem við höf-
um keypt frá Bretum getum við
lika keypt frá öðrum löndum.
Við hljótum nú að gera ráö-
stafanir til þess að undirbúa
okkur undir þessa viðskipta-
breytingu. Enginn vafi er á þvi,
að hafnbann af þessu tagi, skaðar
Breta miklu meira en okkur. Vilji
Bretar endilega losa sig við viö-
skipti við islendinga geta þeir
auövitað gert það.”
I DAG
Einhugur og
sigurvissa, frásögn af
flokksráðsfundi AB
- 6. siða
Skipan hinnar nýju
miðstjórnar AB
- 15. siða
Stjórnmálaályktun
flokksráðsfundar
Alþýðubandalagsins
- 7. siðu
Ræða
Þrastar Olafssonar
um efnahagsmái
- 12. siða