Þjóðviljinn - 24.10.1972, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 24 október 1972.
Mj ól k u rd agu ri n n 1972
Skyrið mun gera
yður heilbrigða
Nefnd, sem sett var á
laggirnar að tilhlutan
Mjólkurtæknifélags fs-
lands, í þeim tilgangi að
vekja athygli landsmanna
á hollustu mjólkur og
m jólkuraf urða, boðaði
fréttamenn á sinn fund í
gær til að kynna starfsemi
sína. Hlutverk nefndar-
innar, sem hóf starf s.l.
vetur, varað undirbúa svo-
nefndan Mjólkurdag sem
gerður yrði að sérstökum
kynningardegi fyrir mjólk
og mjólkurafurðir, svo sem
tíðkast meðal alþjóðlegra
samtaka mjólkuriðn-
aðarins. Hefur nefndin
valið daginn í dag, 24. októ-
ber; í þessu skyni, og að-
spurðirsögðu nefndarmenn
að tilviljun ráði því að
dagur Sameinuðu þjóðanna
varð fyrir valinu.
1 nefndinni, sem að þessari
kynningu stendur, eiga sæti full-
trúar fra eftirtöldum aðilum:
Mjólkurtæknifélagi tslands,
Framleiðsluráði landbúnaðarins,
Osta- og smjörsölunni s.f.,
Mjólkursamsölunni i Reykjavik
og Upplýsingaþjónustu landbún-
aðarins.
Ingi Tryggvason, blaðafulltrúi
Stéttasambands bænda, skýrði
fréttamönnum fyrst frá starfi
nefndarinnar og hvernig hún
hygðist haga kynningarstarfi
sinu.
Hefur nefndin ákveðið að beita
sér aðall. að tveim verkefnum, 1)
gerð kvikmyndar um fram-
leiðslu, vinnslu og dreifingu
mjólkur og mjólkurvara, og 2)
kynningu á hinum forna þjóðar-
rétti okkar, skyrinu.
Er að mestu lokið við gerð 30
min. kvikmyndar, og gefinn hefur
verið út bæklingur um gerð
skyrs, efnainnihald þess og
notkun. Þá hefur verið ákveðið að
efna til verðlaunasamkeppni um
uppskriftir að skyrréttum eða
notkun skyrs i matargerð. Sögðu
nefndarmenn að fyrir 5 beztu
uppskriftirnar yrðu veitt verð-
laun. Fyrstu verðlaun væri ferð
til Kanarieyja, að verðmæti 60
þúsund kr. — Verður skyrbækl-
ingnum dreift á mjólkursölu-
stöðum og fylgir honum eyðublað
til útfyllingar vegna keppninnar.
Til gamans má geta þess, að
skyrgerð er ævaforn á Islandi, en
verulegar breytingar hafa auð-
vitað orðið á framleiðsluháttum
og aðferðum við skyrgerðina.
T.d. eru nú notaðir hitamælar til
að fylgjast með hitastigi mjólk-
urinnar þegar verið er að hleypa
hana, en áður þjónaði litliputti
eða olnboginn þessu hlutverki.
t dag kemur á markaðinn blá-
berjaskyr í tilefni dagsins. Þá
mun Baldur Johnsen forstöðu-
maður Heilbrigðiseftirlitsins
flytja erindi um skyr og skyrgerð
i rikisutvarpinu i kvöld.
Það kom fram á fundinum, að
mjólkurvörur þær. sem fram-
leiddar eru hjá mjólkursamsölum
hér, eru liðlega 60 talsins.
f ljósi þess að tslendingar munu
eiga heimsmet i neyzlu mjólkur,
(hver maður drekkur um 270 litra
ísbrjótar
í tilefni af flutningsbanni Breta:
á Sunda-
Yöruskiptin við þá
óhagstæð um 550 milj
það sem af er árinu
höfn
Isbrjótarnir þrir sem festu
sig i fs i Norður-tshafinu fyrir
nokkrum dögum komu allir
inn á Sundahöfn um hálf tvö-
leytið i gær. Tveir isbrjótanna
lentu i árekstri i isnum og
löskuðust nokkuð. Skemmdir
á skipunum verða kannaðar
hér, en ennþá hefur ekki verið
tekin ákvörðun um það hvort
viðgerð á þeim fer fram hér-
lendis, eða hvort þeir haldi til
sins heima án viðgeröar.
Að sögn yfirlóðsins i Sunda-
höfn eru isbrjótarnir allir
bandarískir. (Ljósm. AK).
77,500
króna
vinningar
Alls seldust 35.500 veðmiðar
vegna ensku deildarkeppninnar
hérlendis siðustu viku.
4 miðar voru með 10 réttum og
varð vinningur á hvern 77.500
krónur. 56 seðlar voru hins vegar
með 9 rétta og fást á hvern þeirra
2300 krónur.
Þar sem Bretar hafa nú
sett afgreiðslubann á vörur
til og frá Bretlandi, er ekki
úrvegi að rifja upp hvernig
viðskiptum okkar við Breta
er háttað.
Ur skýrsu frá Félagi isl. stór-
kaupmanna i septemberhefti
Hagtiðinda má finna eftirfarandi
upplýsingar:
Helztu vörur frá Bretlandi:
Vélar, verkfæri, bifreiðar, jarð-
oliuafurðir, fatnaður, lyfja- og
læknavörur, plastefni, sykur og
hunang, te og fjöldi annarra vara.
Til Bretlands: Fiskur- og fiskaf-
urðir, landbúnaðarvörur og ál og
kisilgúr.
Næststærsti liður útflutnings til
Bretlands er útflutningur á ál og
álmálmi fyrir 531 miljón króna
það sem af er þessu ári, en mest
er flutt út þangað af sjávarfangi,
eða fyrir 859,7 miljónir, en sam-
tals gera þessir liðir, það sem af
er árinu, 1391 miljón af 1456 mil-
I jóna heildarútflutningi til Bret-
i lands.
A sama tima flytjum við inn
vörur fyrir 2005 miljónir en það
þýðir að vöruskiptajöfnuður er
óhagstæður um 550 miljónir það
sem af er árinu.
Þar sem aðallega er um aö
ræða innflutning hingað frá Bret-
landi á unnum iðnaðarvörum, og
óhagstæð vöruskipti fyrir okkur i
ofanálag, en Bretar kaupa hins
vegar héðan matvöru og hráefni
til iðnaðar, hlýtur afgreiðslubann
að koma þeim verr en okkur og
þægilegar hlýtur að vera fyrir
okkur að vera án Ford Cortinu og
Melrósartes en fyrir þá án fisks.
— úþ
Athugasemd
Af marggefnu tilefni vil ég taka
fram, að ég gegni ekki embætti
fréttastjóra á Þjóðviljanum og
hef aldrei gert forml'ega. Frétta-
stjórn sem og önnur ritstjórn er á
ábyrgð ritstjóra blaðsins.
Sigurjón Jóhannsson.
að meðaltali á ári) þá munu e.t.v.
einhverjir hugsa sem svo að sér-
stakt átak sé ónauðsynlegt til að
auka þessa neyzlu. En verði þetta
átak til þess að menn t.d. taki að
drekka mysu i stað hins ofboðs-
lega kókþambs og skyrsýru i stað
brennivins, þá er vissulega
ástæða til að lofa þetta framtak.
A fundinum spunnust umræður
um ýmsar mjólkurafurðir, þ.á.m.
hið svonefnda youghurt. Urðu
fréttamenn og nefndarmenn
ásáttir um að meðan ekki fyndist
islenzkulegra orð yfir þessa af-
urð, þá bæri að nota ritháttinn
jóghurt.
gg —
Eftir þing Alþýðuflokksins:
Nýr flokkur ekki
á næsta leiti-
fremur kosninga
bandalag
34. þing Aiþýðuflokksins var
haldið um helgina og var þar
samþykkt að leyfa fjölmiðium
að fylgjast með gangi mála á
þinginu.
Akveðið var fyrirfram að
ræða einkum þrjá málaflokka
á þessu þingi: sameiningar-
málið, utanríkismál og stjórn-
málaviðhorfið. Mjög miklar
umræður urðu um samein-
ingarmálið og voru flestir á
þvi að halda viðræðum áfram,
en fáir þvi fylgjandi að leggja
Alþýðuflokkinn niður fyrr en
sýnt þætti aðsameining myndi
takast að fullu. Má þvi einna
heizt búast við að i næstu
kosningum verði um kosn-
ingabandalag að ræða milli
Alþýðuflokksins og SFV, 'og
yrði sennilega boðið fram
undir nafninu Jafnaðar-
mannaflokkur tslands.
Þegar það lægi fyrir hvernig
slikum samtökum vegnaði i
kosningum væri hægt að
hugsa sér að leggja flokkinn
niður. Jón Þorsteinsson og
fleiri komu fram með tillögu i
sa meiningar m á linu, þar
sem kveðið var á um ákveðinn
frest I viðræðum.^og að til sliks
bandalags yrði ekki stofnað af
hálfu Alþýðuflokksins nema
með samþykki 2/3 hluta
greiddra atkvæða á fundi
flokksstjórnar, enda hafi áður
verið leitað álits Alþýðu-
flokksfélaganna um land
allt.” Þessi hluti tillögu Jóns
og fylgismanna var skeyttur
inn i hina almennu ályktun um
sameiningarmálið.
Kosin var sjö manna nefnd
til að halda áfram viðræðum
viðSFV og þrir til vara. Þessir
eiga sæti i nefndinni:
Gýlfi Þ. Gislason, Benedikt
Gröndal, Björgvin Guðmunds-
son, Kjartan Jóhannsson,
Orlygur Geirsson, Eggert
Þorsteinsson og Bragi Sigur-
jónsson,
Varamenn eru þeir Reynir
Guðsteinsson, Cesil Haralds-
son og Skúli Þórðarson. Sex
aðrir fengu atkvæði i þessum
kosningum, en talsvert færri
en aðalmenn.
Formaður flokksins var
endurkjörinn Gylfi Þ. Gisla-
son með 95 atkvæðum, en
auðir seðlar voru 33. Varafor-
maður var kjörinn Benedikt
Gröndal með 100 atkvæðum,
auðir seðlar 26 og ritari
Eggert G. Þorsteinsson með
101 atkvæði, auðir seðlar 24.
Þá var kosin flokksstjórn og
eiga i henni sæti þrir ofan-
nefndir, auk 50 manna, sem
kjördæmin velja sjálf, og 20
sem kosnir eru án tillits til bú-
setu. Almennt má segja að
yngri mönnum hafi fjölgað i
flokksstjórninni.
Þá urðu talsvert miklar um-
ræður um utanrikismál. Til-
lagan sem lá fyrir fundinum i
upphafi var allmikið endur-
skoðuð i nefnd og kom tillagan
þaðan róttækari og skýrari, en
ungu mennirnir sóttu mjög
ákveðið að fá fram ákveðnari
fordæmingu á framferði
Bandarikjamanna i Indó-Kina
og þátt Nato i að viöhalda
ólýðræðislegu stjórnarfari I
Evrópu. Þá komu ungu menn-
irnir inn I tillöguna yfirlýsingu
þess efnis að Alþýðuflokkur-
inn styddi að íslendingar
viðurkenndu Austur-Þýzka-
land sem sjálfstætt riki.
Þá ber að geta þess að
Alþýðuflokkurinn boðar milli-
leið i spursmálinu um herinn
og Nato og segir m.a. svo i
ályktun um öryggismál Is-
lands:
„Rannsaka verður, hvort
íslendingar geti með fjár-
hagslegri þátttöku bandalags-
ins komið upp sveit fullkom-
inna en óvopnaðra eftirlits-
flugvéla, svo og nauðsynleg-
um björgunarflugvélum, og
tekið við þessum þýðingar-
mesta hluta af verkefni
varnarliðsins og stjórn
varnarsvæðanna.
Slik lausn væri skynsamleg
miðlun milli þeirra sjónar-
miða, að varnarliðið geti
horfið úr landinu án þess að
eitthvaö komi i þess stað, og
hins, að varnarliðið hljóti að
dveljast I landinu um ófyrir-
sjáanlega framtið.”
Að þvi er margir fundar-
menn sögðu þá var þetta þing
mun málefnalegra og fjörugra
en verið hefur lengi. sj.