Þjóðviljinn - 24.10.1972, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Priðjudagur 24 október 1872.
MOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Úlgcfandi: útgáfufélag Þjóðviljans
Kramkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Kitsljórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson (áb.)
Auglýsingastjóri: lleiinir Ingimarsson
Kitstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Skólav.st. li). Simi 17300 <3 linur).
Askriftarverð kr. 225.00 á mánuði.
Lausasöluverð kr. 15.00.
Prentun: Blaðaprent h.f.
FRUMBURÐARREITDNN EÐA BAUNADISKENN
Nú berast þær fréttir að vaxandi likur
séu á þvi að Bretar sendi herskip á
tslandsmið. Þeir halda fast við þá afstöðu,
að i landhelgisdeilunni leikum við íslend-
ingar hlutverk sjóræningjans, en sjálfir
stundi þeir veiðar á íslandsmiðum i nafni
réttlætisins og mannkærleikans. Vestur--
Þjóðverjar hafa skipað sér þétt við hlið
Breta i þessu striði.
Við erum hér á öðru máli sem kunnugt
er, og þess vegna hafa flestir haldið, að
allir Islendingar fögnuðu siðbúnum til-
mælum islenzku rikisstjórnarinnar til
hafnarstjóra i bæjum og þorpum um að
synja landhelgisbrjótum og verndurum
þeirra um alla þjónustu utan sjúkrahjálp.
En tveim dögum eftir að þessi tilmæli
komu fram hefur einn af fyrrverandi
þingmönnum Sjálfstæðisflokksins upp
raust sina i Morgunblaðinu nú á sunnu-
daginn og segir:
„Mikill áróður er nú gegn þýzkum rann-
sóknarskipum, sem aðstoða togarana, ef
þau þurfa að leita hér hafnar til að fá oliu
og vatn. Ættu menn að fara sér hægt i
þessum efnum, þýzki markaðurinn er
mikilvægur islenzka fiskiskipaflotanum.”
Þetta var tilvitnun i skrif Einars
Sigurðssonar útgerðarmanns i Morgun-
blaðinu, en Einar sat sem kunnugt er á
þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn fyrir fáum
árum og er nú helzti sérfræðingur
Morgunblaðsins og Sjálfstæðisflokksins i
sjá varútvegsmálum.
Vonandi eru þær skoðanir, sem þarna
koma fram, að veita beri flaggskipum
veiðiþjófanna fullkomna þjónustu i is-
lenzkum höfnum, einangrað fyrirbæri,
lika i Sjálfstæðisflokknum.
Efasemdir um að svo sé, hljóta þó að
gera vart við sig, þegar menn hugleiða
viðbrögð borgarstjórnarmeirihluta ihalds-
ins við tillögu minnihlutaflokkanna i
borgarstjórn Reykjavikur um að stöðva
afgreiðslu til brezka og þýzka flotans.
Geir Hallgrimsson borgarstjóri og lið
hans mátti ekki heyra það nefnt, að
Reykjavikurborg, sem á og rekur lang-
ÞJÁNINGARBRÆÐUR
Hér á undan voru kynnt skrif Morgun-
blaðsins varðandi einn þátt landhelgis-
deilunnar, en það er fleira i þessari sömu
grein, sem varpar ljósi inn i skúmaskot
Sjálfstæðisflokksins.
Áhyggjurnar eru sem sagt út af fleiru en
móðgunum við veiðiþjófa. Frá sliku er lika
stutt yfir i það, að finna til með hags-
munum svissneska auðhringsins i
Straumsvik, og gráta það böl, að landið er
ekki að sinni opnað upp á gátt fyrir er-
lendu fjármagni.
Hér kemur sýnishorn:
,,En ýmislegt er, sem getur dregið úr
fjárfestingaráhuga útlendinga hér á landi.
Það er m.a. vantraust á islenzku efna-
hagslifi og stjórnmálum, þar sem mjög
róttækur flokkur hefur 20% af kjörfylginu.
Álfélagið var til að mynda svo tortryggið i
stærstu höfn landsins, tæki af skarið i
þessum efnum, enda þótt einmitt hér hafi
þýzka flaggskipið ,,Poseidon” athafnað
sig i Reykjavikurhöfn fyrir nokkrum
dögum við augljósan fögnuð sérfræðings
Sjálfstæðisflokksins i útgerð og skoðana-
bræðra hans.
Þeir sem lesið hafa Gamla testamenntið
kannast ugglaust við mann, sem seldi
frumburðarréttinn fyrir baunadisk, og má
ætla að áhyggjur Morgunblaðsmannsins
yfir lokun islenzkra hafna fyrir land-
helgisbrjótum hafi rifjað þá gömlu sögu
upp fyrir ófáum lesendum.
þessum efnum, að það samdi sérstaklega
um skattgreiðslu sina, og hlitir meðferð
gerðardóms, að nokkru skipuðum útlend-
ingum, ef til ágreinings kemur i vissum
málum”.
Þannig hljóðuðu skrifin i Morgunblað-
inu nú á sunnudaginn.
Þjóðviljinn hefur reyndar lengi vitað, að
auðhringarnir, sem renna hýru auga til is-
lenzkra auðlinda, óttuðust Alþýðubanda-
lagið og hina róttæku verkalýðshreyfingu
á íslandi, en að þeir væru svona hræddir,
það höfum við tæplega fengið staðfest
áður frá vinum þeirra við Morgunblaðið.
Við vekjum svo athygli á samkvæmn-
inni i skrifum Morgunblaðsins — þegar
það þykist svo halda þvi fram næsta dag,
að iðnþróunarstefna Alþýðubandalagsins
sé stolin frá Jóhanni Hafstein.
Frá flokksráðsfundi Alþýðubandalagsins:
Einhugur -
sigurvissa
Flokksráösfundi Alþýðu-
bandalagsins lauk i Kópa-
vogi á sunnudag. Fundur-
inn samþykkti ýmsar
ályktanir og birtum við þær
i dag og næstu daga. Kjörin
var ný miðstjórn fyrir
Alþýðubandalagiö til eins
árs.
Það duldist engum, að
einhugurog sigurvissa auð-
kenndu þennan fund. Áber-
andi var hversu margir
fulltrúanna voru ungt fólk
og vart.d. meðalaldur full-
trúa frá Reykjavík innan
við 40 ár.
Flokksráðsfundurinn hófst á
föstudagskvöld og hefur áður
verið skýrt frá framsöguræðum
Ragnars Arnalds formanns
Alþýðubandalagsins og Lúðviks
Jósepssonar, sjávarútvegsráð-
herra, er þá voru fluttar.
A laugardag var fundi fram
haldið klukkan 10 árdegis og flutti
þá Ólafur Jónsson framkvæmda-
stjóri Alþýðubandalagsins fram-
söguræðu um flokksstarfið, og
fóru siðan fram umræður um þau
mál.
Eftir hádegi á laugardag flutti
Þröstur Ólafsson hagfræðingur
erindi um viðhorf i efnahgasmál-
um og eru kaflar úr þvi birtir á
öðrum stað i blaðinu i dag.
Að erindi Þrastar loknu var
fundinum skipt upp i 4 umræðu-
hópa. Fjallaði einn um efnahags-
mál, en þar stjórnaði Þröstur
Ólafsson umræðum, annar um
skattamál, en þar stjórnaði Páll
Bergþórsson, veðurfræðingur,
þriðji um utanrikis- og sjálf-
stæðismál, stjórnandi Ólafur R.
Einarson menntaskólakennari,og
sá fjórði um félags- og menning-
armál, undir stjórn öddu Báru
Sigfúsdóttur, en framsögumaður
hópsins var Hjörleifur Guttorms-
son, náttúrufræðingur, Nes-
kaupstað.
I umræðuhópunum fóru fram
miklar og itarlegar umræður um
alla þessa málaflokka og voru þar
mótuð drög að köflum í stjórn-
málaályktun fundarins eða að
sérstökum ályktunum.
Á sunnudag fóru svo fram al-
mennar umræður á sameiginleg-
um fundi.
Fyrst var rætt um menningar-
málaályktun, sem birt verður i
biaðinu á morgun.
Alsherjarnefnd starfaði á fund-
inum og fór hún yfir ýmsár til-
lögur, sem upp komu. Framsögu-
menn hennar voru Erlingur
Viggósson Stykkishólmi og Guð-
mundur Hjartarson. Reykjavik.
Tillögur sem allsherjarnefnd
fjallaði um voru meðal annars
um samvinnuhreyfinguna, stofn-
un náttúruverndarsjóðs, land-
helgisbrot islenzkra fiskiskipa
og sitthvað fleira. Voru gerðar
Frh. á bls. 15
1) Ungir menn í Neskaupstað fyrir nær 50 árum — Neskaupstaður hcfur nú verið rauður bær f 26 ár.
Krá vinstri til liægri: Lúðvik Júscpsson, sjávarútvegsráðherra, Bjarni Þúrðarson, bæjarstjúri, Jú-
hannes Stefansson, forstjúri.
2) Sömu menn á flokksráðsfundi Alþýðubandalagsins 1972. — Frá vinstri: Lúðvfk, Júhannes, Bjarni —
ennþá ungir.