Þjóðviljinn - 24.10.1972, Qupperneq 7
Þriðjudagur 24 október 1972. ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 7
St j órnmálaály ktun
flokksráðsfundar
Alþýðubandalagsins
Rikisstjórn sú sem mynduð
var 14. júli 1971 er samsteypu-
stjórn flokka með ólik sjónarmið
og stefnuskrá hennar ber vott um
málamiðlun af hálfu allra stjórn-
málaflokkanna. Astæðurnar fyrir
þvi að Alþýðubandalagið tók þátt
i rikisstjórninni og styður hana af
alhug eru þau ákvæði málefna-
samningsins, sem tryggja ein-
arða sókn að auknu stjórnarfars-
legu og efnahagslegu sjálfstæði
islendinga og vaxandi jöfnuði á
sviði efnahagsmála og félags-
legra réttinda.
Þar ber þessi mál hæst:
i fyrsta lagi:
Stækkun landhelginnar i 50 mil-
ur, en hún er risavaxinn áfangi i
baráttu islendinga fyrir fullum
yfirráðum yfir landinu og hafinu
umhverfis það og jafnframt
mikilvægt framlag til þeirrar
umhverfisverndunar, sem nU er
brýnasta nauðsyn mannkynsins.
i öðru lagi:
Ákvæðin um brottför banda-
riska hernámsliðsins á kjörtima-
bilinu, en þvi aðeins ráða
Islendingar þjóðfélagi sinu og
utanrikisstefnu, að þeir bUi einir
og frjálsir i landi sinu
i fjórða !agi:
Akvæðin um bætt kjör lág-
launafólks, aldraðs íólks og
öryrkja, um aukna félagslega
forustu rikisvaldsins og vaxandi
jafnrétti þegnanna.
Flokksráðsfundur AB telur, að
rikisstjórnin hafi nU þegar
hrundið i framkvæmd mjög
veigamiklum atriðum Ur
málefnasamningnum. Skorar
fundirinn á alla landsmenn að
veita rikisstjórninni sem
öflugastan stuðning og hvetja
hana til frekari sóknar fyrir efna-
hagslegu og stjórnarfarslegu full-
veldi og félagslegu jafnrétti.
Efnahagsmál.
Flokksráðsfundurinn minnir á,
að viðreisnarstjórnin skildi eftir
mikinn óleystan efnahagsvanda.
1 stjórnartið hennar óx verð-
bólgan með meiri hraða heldur en
i nokkru nálægu landi. Frá árs-
byrjun 1968 til nóvembermánaðar
1970 hækkaði framfærsluvisitala
um 18,6% á ársgrundvelli. Verð-
stöðvunin sem þá gekk i gildi var
engin lækning vandans heldur
aðeins frestun fram yfir alþingis-
kosningar. Auk verðbólgu-
vandans lét viðreisnin eftir sig
fjölmörg önnur erfið Urlausnar-
efni i málefnum rikissjóðs og
launamálum, atvinnuleysi i viss-
um landshlutum og þýðingar-
mikla þætti atvinnulifsins i
mikilli niðurlæingu.
Vinstri stjórnin fékk þvi i sinn
hlut margvisleg vandamál.
Stjórnin hefur þegar gert
myndarlegt átak i atvinnumálum
með endurnýjun togaraflotans,
skipabyggingum innanlands,
nýrri stefnu i lagmetisiðnaði
Mikilvægur og jafnframt vin-
sæll þáttur i starfi Sinfóniuhljóm-
sveitar islands er að flytja tónlist
fyriryngstu hlustendurna, börn á
aldrinum 6 til 12 ára. Hafa þessir
tónleikar gefizt mjög vel og ávallt
verið fjölsóttir, en á þessa tón-
leika koma börn i fylgd með for-
eidrum sinum.
A þessu starfsári mun hljóm-
sveitin halda þrenna fjölskyldu-
tónleika, sunnudaginn 29. október
1972, sunnudaginn 11. febrUar
1973 og sunnudaginn 25. marz
Fyrsti snjórinn féll hér sunnan-
lands i gær og á sunnudag. Einnig
snjóaði á Vestfjörðum og á
Norðurlandi.
Talsverð hálka varð á götum
bæja, til að mynda á Akureyri,
ísafirði og i Keflavik.
Mikil liálka var á götum
Reykjavikur, og margir bílar í
umferð, sem voru ei undir hálk-
una búnir.
sjávarUtvegsins og i uppbyggingu
iðnaðar i höndum landsmanna
sjáifra. ' Atvinnuleysi er nU Ur
sögunni en skortur á vinnuafli i
sumum greinum.
Launakjör verkamanna, sjó-
manna og bænda hafa verið bætt
til muna og lög samþykkt um 40
stunda vinnuviku og 4 vikna orlof.
Siðast en ekki sizt miðár stækkun
landhelginnar i 50 milur að þvi að
treysta sjálfan grundvöll efna-
hagslifsins.
1 verðlags- og dýrtiðarmálum
blasir við mikill vandi. Fram-
færsluvisitalan hefur i tið nU-
verandi rikisstjórnar hækkað um
9,7% á ársgrundvelli. Verðlags-
hækkanir hafa þannig orðið
helmingi minni en áður. En eigi
að siður er hér um miklar
hækkanir að ræða og þó er vitað
um mikinn geymdan vanda i
þessum efnum. Þennan vanda
verður að leysa fyrir næstu ára-
mót. Minnkandi þorskafli eykur
vandann i efnahagsmálum en
aflarýrnunin sýnir gleggst hvilik
nauðsyn var á Utfærslu land-
helginnar.
Flokksráðsfundurinn leggur
áherzlu á, að efnahagsvandamál
af svipuðu tagi og þau, sem nU er
við að fást, og sifellt endurtaka
sig i islenzku efnahagslifi verða
ekki leyst nema á ófullkominn
hátt, án þess að gerðar verði
ýmsar grundvallar breytingar á
efnahagskerfi þjóðarinnar.
Stefna ber að stórlega auknum
áhrifum almennings á stjórn-
mála- og efnahagssviðinu, draga
að sama skapi Ur áhrifavaldi
milliliða og koma i veg fyrir
gróðamöguleika ýmissa aðila á
verðbólgu.
Framkvæma þarf einföldun og
sparnað t.d. i bankakerfi og
verzlun landsmanna, og koma
oliusölu og vátryggingarrekstri
undir félagslega stjórn.
Minnka þarf með öðrum orðum
yfirbygginguna i þjóðfélaginu og
taka jafnframt upp vel skipu-
lagðan áætlunarbUskap
Flokksráðsfundur Alþýðu-
bandalagsins telur, að þær ráð-
stafanir, sem nU verða gerðar i
efnahagsmálum, þurfi m.a. að
miðast við eftirfarandi:
1. að full atvinna verði tryggð i
öllum landshlutum.
1973, og hefjast allir tónleikarnir
kl. 15 (kl. 3).
Á fyrstu tónleikunum, sem
verða næstkomandi sunnudag 29.
október kl. 15 verður flutt tónlist
eftir Bach, Mozart, Grieg,
Britten, Pál isólfsson og Kauhlau.
Hljómsveitarstjóri verður Sverre
Bruland frá Noregi. Aðgöngumið-
ar, sem gilda að þrennum fjöl-
skyldutónleikum, eru til sölu i
barnaskólum Reykjavikur,
Hafnarfjarðar og Garðahrepps.
Er mönnuni ráðlegast að drifa
sig og láta negla undir bila sina,
en þeir scm cru ekki þegar búnir
að þvi verða að bita i það súra
epli, að hjólbarðaverkstæði geti
ekki sinnt þeim á stundinni þvi
þangað flykkjast nú seinhuga
ökumenn. Er þeim ekki annað ráð
vænna en skilja bfla sina óhreyfða
þar til naglarnir eru komnir undir
dekkin.
2. að sU hækkun á kaupgetu lág-
launafólks, sem fengizt hefir i tið
nUverandi rikisstjórnar verði
tryggð.
3. að ráðstafanir i efnahags-
málum verði gerðar i samráði við
verkalýðshreyfinguna i landinu.
Skattamál.
Alþýðubandalagið átelur harð-
lega það ranglæti og þau augljósu
skattsvik, sem enn hefur ekki
tekizt að uppræta og felur þing-
flokki og framkvæmdastjórn að
vinna að þvi að koma i veg fyrir
það misrétti, sem af skattsvikum
stafar, með breytingum á lögum,
stórauknu eftirliti og harðari
viðurlögum við skattsvikum.
Flokkurinn telur að afnema
beri tekjuskatt af lágtekjum og að
milda þurfi skaUstíg i meðaltekj-
um.
Alþýðubandalagið telur, að
breytingar þær, sem ger'ðar voru
á skattalögunum á siðasta þingi
hafi i meginatriðum stefnt i rétta
átt og fagnar sérstaklega afnámi
nefskattanna.
Trygginga- og félagsmál.
Alþýðubandalagið fagnar þvi,
að tryggingabætur gamalmenna
og öryrkja eru ekki lengur
smánarblettur á islenzku þjóð-
félagi. NU er þó fyrir þvi séð, að
enginn elli- eða örorkulifeyrisþegi
hafi minna en 57% af almennum
verkamannalaunum sér til fram-
færis.
Enn er þó óunnið það nauð-
synjaverk að skapa öllum lands-
mönnum réttarstöðu i lifeyris-
sjóðskerfi. Einföldun trygginga-
kerfis og Utvikkun almenns bóta-
réttar eru einnig verkefni, sem
vinna þarf ötullega að jafnhliða
bættri heilbrigðisþjónustu og
gagngerðri endurbót á vinnuum-
hverfi verkafólks.
Fundurinn telur mikilvægt, að
stjórnarfrumvörp um rikisstyrk
við byggingu elliheimila og dag-
vistunarstofnana fyrir börn verði
afgreidd nU i haust, þannig að
hægt verði að hefjast handa um
brýn Urlausnarefni á þessum
sviðum á næsta ári.
Alþýðubandalagið gerir kröfu
til þess að unnið verði á félags-
legan hátt að umbótum á
hUsnæðismálum og fólki þannig
gefinn kostur á hUsnæði, sem ekki
er háð lögmálum hins óhefta
braskmarkaðar.
Menningarmál.
Alþýðubandalagið bendir á, að
þrátt fyrir nýja lagasetningu um
jöfnun námsaðstöðu, er
menntunaraðstaða i dreifbýli enn
óviðunandi. Skapa þarf raunveru-
leg't jafnrétti til mienntunar og
,gera átak til þess að tryggja
vaxandi þátt nemenda i stjórnun
og störfum skóla. Skólana ber
jafnframt að gera að aðlaðandi
vinnu^tað, þar sem nemendur og
kennarar geta lokið dagsverki
sinu. ^ Útiloka þarf TTverskonar
mismlmun kynja i uppeldi og
fræðslu.
Alþýðubandalagið telur eitt
brýpasta verkefnið i skólamálum
nU að. endurskipuleggja verk- og
tæknimenntun og hefja hana til
vegs, ekki sizt með tilliti til
þeirrar iðnþróunar, sem nU er
stefnt að. Iðnskólarnir verði
rikisskólar og meistarakerfið af-
numið svo skjótt sem verða má.
Gera verður fullorðnu fólki
kleift að afla sér menntunar eða
viðbótarmenntunar i verklegu og
bóklegu námi. Endurmenntun
; skal skipuleggja miðað við at-
! vinnuhætti og koma á fót nám-
! skeiðum til endurhæfingar og
þjálfunar þeim sem verða að
skipta um starf eða vera frá starfi
um tima.
Rannsóknir þarf að efla til
muna bæði á sviði raun- og hug- í
visinda. Með endurheimt hinna
fornu handrita er á íslendinga,
lögð sU skylda að tryggja hér að-
stöðu til rannsókna i norrænum
fræðum. i raunvisindum þarf
bæði að auka grundvallar-
rannsóknir og rannsóknir i þágu
atvinnulifsins og samræma starf-
semi þeirra stofnana er við þær
fást.
Alþýðubandalagið telur um-
hverfisvernd eitt þýðingarmesta
hagsmunamál þjóðarinnar, sér-
staklega ber að forðast um-
hverfisröskun og mengun við
^uppbyggingu iðnaðar og aðrar
f|ramkvæmdir i landinu.
, Umhverfisvernd má ekki
einungis beinast að dreifbýli og
óbyggðum, heldur verður einnig
að gefa gaum að umhverfi i þétt-
býli og gera það eins mennskt og
friðsælt og unnt er.
Efla ber siónvarpið til þess að
það geti sinnt þvi verkefni ao gera
innlenda þætti um félagsleg og
menningarleg efni og stuðla um
leið að innlendri kvikmynda^erð
og listrænni sköpun.
Alþýðubandalagið krefst þess,
að stjórnvöld láti ekki lengur
undir höfuð leggjast að stöðva Ut-
sendingar fjölmiðla hernáms-
liðsins á Keflavikurflugvelli.
Utanríkis- og sjálfstæðis-
mál.
Um leið og flokksráðsfundur
AB fagnar þeim árangri, sem
þegar hefur náðst á starfstima
nUverandi rikisstjórnar um
mótun og framkvæmd sjálf-
stæðrar islenzkrar utanrikis-
stefnu leggur hann þunga áherzlu
á mikilvægi þess ákvæðis
stjórnarsáttmálans að hinn svo-
nefndin varnarsamningur við
Bandarikin verði tekinn til endur-
skoðunar eða uppsagnar og að þvi
stefnt, að brottför hersins eigi sér
stað á kjörtimabilinu. Viðræður
hafa nU loks verið timasettar.
Treystir fundurinn þvi, að staðið
verði við gefin fyrirheit og felur
þingflokki Alþýðubandalagsins
að ganga einarðlega eftir að svo
verði gert. Jafnframt hvetur
Alþýðubandalagið alla lands-
menn til að taka sem fyllstan þátt
i baráttunni fyrir þvi, að landið
verði laust við herstöðvar fyrir
þjóðhátið 1974. Fundurinn itrekar
þá margyfirlýstu stefnu
flokksins, að segja beri ísland Ur
Atlanzhafsbandalaginu.
Flokksráðsfundur Alþýðu-
bandalagsins telur, aðóeðlilegt sé
að standa i viðræðum við Breta
um fiskveiðar innan islenzkrar
fiskveiðilögsögu, meðan brezkir
togarar brjóta islenzk lög og
Færeyingar eru beittir refsiað-
gerðum i Bretlandi vegna
stuðnings við isierizkan iilálstað.
Beiti Bretar islendinga við-
skiptabanni ber þegar að gera
ráðstafanir til að hætta öllum inn-
flutningi frá Bretlandi.
R AFEEND AYIRKJ AR
Óskum eftir að ráða rafeindavirkja til
starfa á mæla- og rafeindaverkstæði voru
i Straumsvik.
Til greina koma útvarpsvirkjar, radio-
simvirkjar eða aðrir með tilsvarandi
menntun. Æskileg er, að viðkomandi hafi
sem viðtækasta reynslu á sviði nútima
rafeindatækni.
Ráðning nú þegar eða eftir samkomulagi.
Þeim, sem eiga eldri umsóknir hjá fyrirtækinu, er bent á
að hafa samband við starfsmannastjóra.
Umsóknareyðublöð fást hjá bókaverzlun SigfUsar
Eymundssonar, Austurstræti, Reykjavik, og bókabUð Oli
vers Steins, Hafnarfirði.
Umsóknir óskast sendar til tslenzka Álfélagsins h.f. sem
fyrst og eigi siðar en 31. október 1972 i pósthólf 244,
Hafnarfirði.
ÍSLENZKA ÁLFÉLAGIÐ H.F.
STRAUMSVÍK
Tilboð óskast i jarðvinnu i grunni og á lóð
ásamt hluta af lögnum fyrir sjúkrahús á
Selfossi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri, Borgartúni 7, Rvik, frá 25. þ.m.
gegn 1000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað miðviku-
daginn 1. nóv. 1972, kl. 11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
F j ölsky ldutónleikar
Sinf óníuhlj óms veitar
Hálka á vegum