Þjóðviljinn - 29.10.1972, Qupperneq 12
12.S1DA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 29. októbcr 1972.
r(§)tring
teiknipennar
viðurkenndir úrvals pennar fyrir
atvinnumenn, kennara og námsfólk.
Rotring téiknipennar og teikniáhöld
fást í þægilegum einingum fyrir
skóla og teiknistofur.
PENNAVIÐGE RÐIN
Ingólfsstræti 2 Sími 13271
=,Cánon
m
Kaupendur rafeinda-reiknivéla, kynnið yður nokkrar
staðreyndir um Canon, og berið saman við önnur merki,
áður en þér kaupið, það getur borgað sig:
1. Canon cr stærsti framleiðandi rafeinda-reiknivéia I
heiminum, með lang-fjölbreyttasta úrvalið, alls 18
gcrðir, þannig að ætfð er hægt aö velja rétta gerð, hvort
sem verkefnin eru smá eða stór.
2. Flestar gerðir ætið fyrirliggjandi á lager.
3. Veröið er hvergi hagstæðara.
4. Allir varahlutir fyrirliggjandi, ef svo ólfklega vildi til að
Canon bilaði.
Fjöldi Canon-véla á tslandi er það mikill, að þjónustan
við þær er trygg i framtíðinni.
5. Canon eru yfirleitt fyrstir með tæknilegar nýjungar.
Canon-umboðið
SKRIFVÉLIN,
Suðurlandsbraut 12, Reykjavik.
Símar: 19651 og 19210.
Pósthólf 1232.
Heilsurœktin flytur í
Félagið Heilsuræktin boöaði
blaðamenn á sinn fund i fyrradag
i tilefni þess að félagiö, sem eins
og nafniö bendir til, hefur heilsu-
rækt á stefnuskrá,sinni hefur opn-
að i nýju húsnæði i Glæsibæ.
Ætlar samt að hefja byggingu
nýs húss sem finnski arkitektinn
Alvar Aalto mun teikna
Tilgangur þessa félags, sem er
sjálfseignafélag að sögn, er að
stuðla að aukinni heilsurækt með-
al almennings.
Kjartan L. l'álsson blaðamaöur á Timanum reynir hér að ná af sér
aukakilóum i megrunarbeltinu.
Við rekstur stöðvar Heilsurækt-
arinnar starfa tómir sjálfboða-
liðar og eru þeir um 50 talsins.
Þeim er ætlað að kynna sér og
breyta samkvæmt fræðilegum
kenningum Yoga og júdó.
h'ormaður félagsstjórnar, Jó-
hanna Tryggvadóttir, sagði, að
nú stunduðu um 700 manns æf-
ingar hjá félaginu, 600 konur og
100 karlar. Sagði Jóhanna að
mest áherzla væri lögð á af-
slöppun og eins að viðhalda
likamsþrekinu með hvers konar
likamsæfingum, auk þrekæfinga i
hvers konar tækjum. bar fyrir
utan er svo mikil áherzla lögð á
saunaböð og heitar kerlaugar
sem fylltareru hveravatni hituðu
upp með hitaveituvatni.
Þetta nýja húsnæði Heilsu-
ræktarinnar i Glæsibæ hefur kost-
að félagið um 7 milj. kr. og hefur
rekstur stöðvarinnar gengið svo
vel á undanförnum árum, að sögn
Jóhönnu, að félagið skuldar ekki
nema 2 milj. kr. og nýtur þó engra
opinberra styrkja. Þótt þetta hús-
næði sé glæsilegt, þá á félagið von
á öðru enn glæsilegra innan tiðar,
en það er hús sem félagið ætlar að
byggja i Reykjavik og mun hinn
heimsfrægi arkitekt Alvar Aalto
teikna það fyrir félagið.
Eins og er kostar það 3000 kr.
fyrir 3 mánuði að stunda æfingar
og böð i Heilsuræktinni og er þá
miðað við tvo tima i viku. Eins er
hægtað fá einn og einn tima en þá
kostar timinn 200 kr. Innifalið i
verðinu eru öll tæki stöðvarinnar
auk tilsagnar i likamsrækt og svo
að sjálfsögðu böð á eftir. —S.dór.
10%
afsláttarkort
Afhending afsláttarkorta, sem gilda til 16. desember, hefst
mánudaginn 30. október.
Kortin eru afhent í skrifstofu KRON, Laugavegi 91, DDMUS.
Félagsmenn og nýir félagsmenn eru hvattir til aö sækja kortin
sem fyrst.
Afsláttarkortin eru ókeypis.
KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR 0G NÁGRENNIS