Þjóðviljinn - 29.11.1972, Side 3

Þjóðviljinn - 29.11.1972, Side 3
IMiAvikudagur 29. nóvember 1972 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Frambjóðandi Thors sigraði: Kolumbíumaður fœr stœrstu verðlaunin Gabriel Garcia Marquez, skáld- sagnahöfundur frá Kólumbiu hlaut Books Abroad/Neustadt- bókmenntaverðlaunin i ár, en þau nema 10 þús. dollurum. Dóm- nefnd skipuðu 12 bók- menntamenn frá jafn- mörgum löndum. Thor Vilhjálmsson átti sæti i dómnefnd og hafði hann gert til- lögu um Marquez — en hver dómriefndar- maðyr má stinga upp á einum höfundi. Þegar Tljör geröi grein fyrir tillögu sinni sagði hann á þessa leið: Hér er um höfund v að ræða sem hefur frábæra málgáfu, eflda dýnamisku im y ndunarafli. Gabriel Garcia Marquez er einn þeirra höfunda sem heillar okkur i glimu sinni við þau eilffu öfl sem stjórna lifi okkar og velta ■ okkur sitt á hvað. Hann er einnig fulltrúi fyrir mörg örf- andi fyrirbæri i heimsbók- menntum sem kallað hefur verið suðuramerisk „spreng- ing” i bókmenntum. Mér sýnist að Garcia Mar- quez sameini raunsæi og hlut- lægni einstæðum næmleika .fyrir hinu furðulega og ilm- andi frásagnargáfu, notandi einatt súrrealiska skyggni- 5 gáfu til að draga upp miklar myndir, fullar með siðferði- lega reiði, mótmæli gegn kúg- un, og ofbeldi, hnignun og blekkingu. . . Skáldsagan „Einvera i hundrað ár” gerir Garcia Marquez án vafa að einhverjum merkasta skáld- sagnahöfundi samtiðarinnar. Nú þegar hann hefur sigrað er ég glaður yfir þvi að hafa þar átt nokkurn hlut að máli”. Garcia Marquez er fæddur árið 1928 i litlu þorpi á strönd Kari’bahafs. Hann nam i Bogota, fyrst i jesúitaskóla, siðar i lagaskóla. Hann gerðist blaðamaður 1954 og birti fyrstu sögur sinar i E1 Espectador, sem siðar var bannað af Rojas Pinilla ein- ræðisherra. Árið 1955 brrti hann fyrstu skáldsögu sina, „Laufstormur”. „Einvera i hundrað ár” kom út 1967 og er frægasta verk höíundarins til þessa. Bókmenntaverðlaun þau sem hér um ræðir eru hin stærstu sem veitt eru i Banda- rikjunum. Þorskafliim minnkaði um 25 þús. Á aðalt'undi L.Í.Ú. i gær flutti Kristján llagnarsson, formaður ræðu og kom þetta með- al annars fram i ræðu formanns útvegsmanna. Verðlagsþróun á erlendum markaði var sjávarútveginum mjög hagstæð á árinu 1971. Verð- mætisaukning á útfluttum sjávarafurðum var um 10% og nam heildarútflutiyngur þeirra röskum li miljörðum króna, þrátt fyrir að útflutningur minnk- aði um 13% að magni. Verðhækk- un á einingu varð að meðaltali um 26% i isl. krónum. Aflamagnið var hins vegar mun minna en vonir stóðu til og minnkaði þorskaflinn um 54 þús. lestir frá árinu á undan eða um LL5%, þrátt fyrir um 4% sóknar- aökningu. Eigi að siður var afla- magnið hið þriðja mesta siðan á árinu 1960 og var þorskaflinn ekki meiri, nema á árunum 1969 og 1970. Meðaltekjur háseta á fiski- skipaflotanum voru 454.400.00 krónur á árinu 1971 og voru þá tonn 26%, hærri en meðaltekjur verka- manna. Aætlað er, að á þessu ári verði meðaltekjur háseta kr. 535.000.00 og verði 15% hærri en meðaltekjur verkamanna. Ljóst er, að tekjumismunur þessi má ekki vera minni, og þyrfti að auk- ast til að laða unga menn að sjó- mannsstarfinu. Vegna hluta- skiptasamninga sjómanna eru tekjur þeirra mjög misjafnar eftir aflabrögðum, en þetta launafyrirkomulag gefur sjó- mönnum rika von til mikilla tekna þegar vel aflast. Kaup-, tryggingin tryggir þeim nú hins vegar lágmarkslaun kr. 36.500 á mánuði með orlofi. Talið er, að á árinu 1971 hafi að meðaltali verið 4,760 sjómenn starfandi á fiskiskipaflotanum, þegar sjómenn á opnum vélbát- um eru ekki meðtaldir. Flestir voru sjómennirnir i april 5,740 og fæstir i desember 4.035. Aflaverðmæti fiskiskipaflotans upp úr sjó á árinu 1971 var um 5,7 miljarðar króna og hafði aukizt um 730 miljónir króna frá árinu á undan eða um 14,5%,. Til loka október hafði þorskafli h’rh. á bls. 15 5tw tónleikarnir í kvöld Mozart, Eoulenc og Schumann á efnisskrá í kvöld — fimmtudag — verða 5tu tónleikar SinfóniuhljómíVeit- arinnar á þessu starfsári. Stjórn- andi vcrður Jean-Pierre Jacqu- illat, en einieikarar verða Halldór Haraidsson og Rögnvaldur Sigur- jónsson. A efnisskránni verða verk eftir Mozart, Francis Pou- lenc og Robert Schumann. Stjórnandinn er fæddur i Versölum 1935. Hann hefur i þrjú ár verið einn af stjórnendum Parisarhljómsveitarinnar og hefur meðal annars ferðazt um Bandarikin, Mexikó og Sovétrikin með hljómsveitinni. Halldór Haraldsson og Rögnvaldur Sigurjónsson eru báðir þjóðkunnir pianóleikarar islenzkir og hafa báðir áður komið fram sem einleikarar með Sinfóniuhljómsveit Islands. Jean-Pierre Jacquillat, stjórnandi, er fyrir miöju en honum til vinstri handar Halldór Haraldsson og til hægri er Itögnvaldur Sigurjónsson. Myndina tók Ari Kárason á blaðamannafundi i gær. Náttúruverndarnefnd Reykjavíkur: Ætlar að merkja staði og náttúniminjar í Reykjavík Náttúruverndarnefnd Rvikúr hefur undanfarið unnið að þvi að láta setja upp skilti á ýmsum stöð- um i borgarlandinu, til að vekja athygli borgar- búa á náttúruminjum og merkilegum stöðum/’Nú þegar er búið að setja upp skilti við Háubakka og i öskjuhlið. Á þess um stöðum hefur einnig farið fram lagfæring og staðirhir gerðir að- gengilegri þeim sem vilja skoða þá. 1 Háubökkum við Súðarvog er um 8 m. hátt snið i Elliðaárlögin. Þarna má i bökkunum rekja jarð- lögin undir Reykjavik frá nútima og aftur til blágrýtismyndunar frá tertiertimanum, éða um 200 þúsund ár aftur i timann. Á skilt- inu við Háubakka benda örvar á staðsfetningu laganna. Við hitaveitugeymana i Oskju- hlið hefur verið sett upp skilti með korti af gangstigum i öskju- hliðinni til að leiðbeina og auð- velda fólki, sem vill fara um þennán yndislega útivistarstað. Þarna hefur verið samþykkt skipulag, sem Vilhjálmur Sig- tryggsson gerði að tilhlutan nátt- úruverndarnefndar.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.