Þjóðviljinn - 29.11.1972, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 29.11.1972, Blaðsíða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 29. nóvember 1972 Hús dagsins: Grettisgata 11 Sum hús eru igildi ljóðs. Þau eru ekki eingöngu byggð sem mannabústaður, heldur tjá þau vissar hugrenningar, ákveðið lifsviðhorf. Þess- vegna eru þau ekki aðeins byggð handa þeim, sem i þeim búa, heldur einnig handa þeim, sem framhjá ganga. Grettisgata 11 er gott dæmi um slikt hús. Þetta hús byggði Jens Eyjólfsson árið 1907 og þó hann hafi tekið mið af ákveðnum evrópskum stilteg- undum, þá ræður sérstæður persónulegur smekkur mestu um útlit hússins, þar fær lifs- gleðin útrás i sérkennilega út- skornu þakskeggi, fuglarnir sem upphaflega sátu á strompinum eru þvi miður fúnaðir og týndir. Og slik hefðu svosem getað orðið ör- lög alls hússins, ef núverandi eigendur og ibúar hefðu ekki kostað miklu fé til að hressa upp á það fyrir fáeinum árum. Hafiði aldrei skoðað þetta skemmtilega ævintýri við Grettisgötuna? Nœr samhljóða samþykkt ASÍ-þings: SKORAÐ Á RÍKISSTJ ÓRN- INA AÐ YIÐURKENNA DDR Á 32. þingi ASÍ var gerð samþykkt um að skora á rikisstjórnina að viðurkenna Þýzka al- þýðulýðveldið DDR. 1 nefnd þeirri er fjallaði um málið var samstaða um tillöguna að öðru leyti en þvi, að einn nefndarmanna, frá VR, sat hjá. Endanleg var samþykkt ASÍ-þingsins á þessa leið — gerð með þorra atkvæða gegn tveimur: ,,32. þing Alþýðusam- bands íslands haldið i Ilvík, 20.—-25. nóv. 1972, samþykkir að beina þeim tilmælum mjög eindregið til rikisstjórn- arinnar, að full og form- leg viðurkenning íslands á Þýzka alþýðulýðveld- inu verði ákveðin og framkvæmd á þessu ári”. Flutningsmenn tillögunnar voru óskar Garibaldason, Bjarn- friður Leósdóttir, Arni bormóðs- son, Stefán ögmundsson, Gisli Hjartarson, Eðvarð Sigurðsson, Pétur Sigurðsson, Isafirði, Herdis WjjýiMíMði HLIÐ VIÐ HLID. Sendinefndir Austur-Þýzkalands (t.v.) og Vestur-Þýzkalands (t.h.) sitja hlið við hlið i mesta bróðerni á öryggismálaráð- stefnu Evrópurikja i Helsinki þessa dagana. Finnland hefur viðurkennt.Austur-Þýzkaland sem fullvalda riki, og eftir samkomulag beggja þýzku rikjanna nýverið hafa Austur-Þjóðverjar byrjað víðtæka þátltöku í alþjóðasamstarfi m.a. i stofnunum Sameinuðu þjóðanna. ólafsdóttir, Guðriður Eliasdóttir, Gunnar G. Hólm og Tryggvi Benediktsson. — Þess skal getið að Einar Agústsson sagði i viðtali við Þjóð- viljann um viðurkenningu Þýzka alþýðulýðveldisins, að rikisstjórnin stefndi að viður- kenningu fyrir áramót. Samið um málsmeðferð í Helsingi HELSINKI 27/11. — Fyrir helgi náðu sendiherrar 32 Evrópu- landa, Bandarikjanna og Kanada, samkomulagi um máls- meðferð á væntanlegri öryggis- ráðstefnu Evrópurikja. Er sagt að bæði fulltrúar Sovétrikjanna og Bandarikjanna hafi mælzt til þess við menn, að þeir eyddu sem minnstum tima i slik formsatriði. Samkomulag þetta var borið undir undirbúningsfund Evrópu- ráðstefnunnar i dag. Taka nú við ræðuhöld fulltrúa hvers rikis um afstöðu þess til helztu mála. Jarðskjálftar á Mið-Ítalíu RÓM 27/11. — Þúsundir manna urðu að hafast við undir berum vetrarhimni eftir að mörg hundr- uð hús hrundu i allt að 12 stiga jarðskjálftum i gær. Gerðist þetta i héraðinu við Acoli Piceno á Miö- Italiu. Hafa mjög margir flúið heimili sin á þessum slóðum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.