Þjóðviljinn - 29.11.1972, Qupperneq 16
DlOÐVIUINN
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar1
■eru gefnar i simsvara>
Læknafélags Reykjavikur,
simi 18888.
Mióvikudagur 29. nóvember 1972
Kvöldvarzla iyfjabúöanna
vikuna 25. nóv. -1. des. verður
i Ilolts Apóteki og Laugavegs
Apóteki.
Nætur- og helgidagavarzla
er i Borgar Apóteki.
Slysavarðstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
í kjölfar kosningasigurs Verkamannaflokksins:
Stefnubreyting utan-
ríkismála N-Sjálands
— Búizt við áhrifum á kosningarnar í Ástralíu
Gough Whitlam
Eftir hinn mikla og
óvænta sigur Verka-
mannaflokksins og Nor-
mans Kirks i kosningun-
um á Nýja Sjálandi á
laugardaginn var, er
þess nú beðið með eftir-
væntingu, hver áhrif
kosninga-úrslitin hafi á
kosningarnar hinumeg-
in Tasmanska hafsins á
laugardaginn kemur.
Bendir margt til að
sigur Kirks auki likurn-
ar á að Verkamanna-
flokkur Ástraliu undir
forystu Gough Whitlams
komist einnig i stjórnar-
aðstöðu.
Eins og á Nýja Sjálandi mundi
verkamannaflokksstjórn i
Ástraliu þýða miklar breytingar
á utanrikisstefnu landsins. Utan-
rikisstefna verkamannaflokka
beggja landanna er mjög ólik
utanrikisstefnu þeirra ihalds-
flokka, sem verið hafa við stjórn
fram að þessu, Þjóðernisflokks-
ins i Nýja Sjálandi og samsteypu
Frjálslyndra og Bændaflokksins i
Astraliu, en þeir hafa verið við
völd i 12 ár (Nýja Sjáiandi) og 20
ár (Ástraliu).
20 flokkar bjóða
fram í Hollandi
HAAG 28/11. — HoIIendingar
ganga til kosninga á miðvikudag
og kjósa fulltrúa i neðri deild
þingsins. Eru kosningar haldnar
nú af þvi að ríkisstjórnin, sem
mynduð var af fimm flokkum i
fyrra, sagði af sér i sumar.
20 stjórnmálafiokkar keppa um
150 þingsæti neðri deildarinnar og
hefur kosningaaldurinn verið
færður úr 21 árs niður i 18 ára,
sem þýðir að um ein og hálf
miljón ungra borgara geta nú
kosið i fyrsta sinn. Rikir mikil
óvissa um, hve margir hinna
ungu muni nota kosningaréttinn
og þá hverja þeir kjósi.
Ef taka á mark á skoðana
könnunum mætti ætla að Verka-
mannaflokkurinn ætti góða
möguleika á aukningu þingsæta,
en flokkurinn var i stjórnarand-
stöðu siðasta þingtimabil þótt
hann hafi verið sterkasti einstaki
flokkurinn, með 39 sæti. Með hlið-
sjón af flokkamergðinni i Hol-
landi þykir óliklegt að Verka-
mannaflokkurinn geti einn mynd-
að stjórn, en liklegt þykir, að
hann nái samvinnu við aðra ef
hann eykur fylgi sitt.
„Mistök”
SAIGON 28/11 — „Fyrir mis-
tök” gerðu 6 bandariskar
sprengjuþotur i morgun árás á
þorpið Vinh Tho rétt fyrir
sunnan Da Nang i Suður-Viet-
nam með þeim afleiðingum,
að 19 manns, allt óbreyttir
borgarar dóu og 29 slösuðust
alvarlega, að þvi er fulltrúi
bandariska hersins skýrði frá.
Bandarisku þotuflugmenn-
irnir áttu að styðja úr lofti að-
gerðir Saigonhersins i grennd
við Hoi An, borg, sem er 25 km
fyrir sunnan Da Nang. Ekki er
ljóst, hvers vegna þeir réðust
á þorpið Vinh Tho, segir i
fréttum hersins.
Orslit kosninganna á Nýja Sjá-
landi, sem kom nærri öllum
stjórnmálafréttariturum og -spá-
mönnum á óvart, sýnir kannski
fyrst og fremst, að gamla kenn-
ingin um að almenningur þar og i
Astraliu sé allt að þvi króniskt
afturhaldssamur og hræddur við
allar breytingar, stenzt ekki
lengur. Sjálfsagt eiga kynslóða-
skipti i báðum löndum sinn þátt i
þessum breytingum.
Norman Kirk hefur þegar boð-
Frh. á bls. 15
Það er almenningur, sem mest llður við átökin i trlandi, sunnan og
norðan landamæranna. Hér sjást lögrcglumenn i Dublin hjálpa ungri
stúlku, sem slasaðist i prengjuárás á kvikmyndahús á sunnudaginn.
IRA fœrir átökin suður á bóginn
Nánast stríðsástand á
landamærunum í gær
Pachman snúið við
á landamærunum
SCHIERNDING 28/11. — Tékk-
neski stórmeistarinn i skák, Lud-
ek Pachman, var i dag fluttur
burt frá landamærunum i grennd
við vestur-þýzka þorpið Schiernd-
ing, þar sem hann hefur beðið
eftir að fá að fara yfir i nokkra
daga, að sögn vinar Pachmans,
sem hafði samband við hann sið-
ar i dag.
Hafði Pachman verið sagt, að
hann fengi að fara úr landi um
hádegið, en var visað til baka er
hann kom að landamærunum
ásamt konu sinni og tengdamóð-
ur. Fjölskyldan hefur öll gild
vegabréf. Hefur Pachman hótað
hungurverkfaili fái hann ekki
ferðafrelsi.
Miðstjómarfmidur
Miðstjórn Alþýðubandalagsins,
heldur fund, fimmtudaginn 30.
nóv. 1972 kl. 20.30 að Grettisgötu
3.
Dagskrá:
1. Kosning starfsnefnda mið-
stjórnar.
2. Efnahagsmálin.
Ragnar Arnalds.
DUBLIN 28/11. — Nánast var
rikjandi striðsástand á landa-
mæruni Norður-trlands og trska
lýðveldisins i dag og var skotið
bæði eldflaugum og venjulegum
byssuskotum yfir landamærin.
Voru þessar aðgerðir greinilega
ætlaðar sem mótmæli skæruliða
gegn hertum lögum trska lýð-
vcldisins, sem fyrst og fremst
beinast gegn þeim.
Tveir ungir menn voru drepnir i
sprengjuárás á hús i kaþólska
jogside-hverfinu i Londonderry i
dag. Vildi lögreglan ekkert segja
um árásina, en sagt er, að i hús-
inu hafi IRA hermenn framleitt
sprengjur. Hafa nú alls fallið 643
á þeim þrem árum, sem deilurn-
ar hafa staðið i N-trlandi.
Lögreglumaður féll fyrir eld-
flaug við landamærin.
Irska stjórnin kom saman i
Dublin i dag til að ræða, hvort
gripa skuli til frekari öryggisráð-
stafana i landinu af ótta við að
IRA flytji aðgerðir sinar suður á
bóginn. óttast stjórnin hefndar-
aðgerðir bæði vegna aukinna ráð-
stafana gegn IRA, sem heftir
ferðafrelsi þeirra innan lýð-
veldisins og vegna fangelsunar
pólitisks foringja IRA, MacStiof-
Oryggissérfræðingar eru
hræddir um að IRA félagar muni
gripa til flugvélarráns til að
neyða stjórnina til að láta
MacStiofain lausan og hafa þvi
öryggisráðstafanir á þremur
aðalflugvöllum landsins, i Shann-
on, Dublin og Cork, verið auknar
allverulega. Þar að auki hefur
lögreglan styrkt vörð um stjórn-
armeðlimi, erlenda sendiráðs-
menn og æðstu embættismenn
dómstólanna.
Liðan MacStiofains var óbreytt
i dag, en hann hefur nú verið i
hungurverkfalli i tiu daga. Að
sögn læknanna á hersjúkrahús-
inu, þangað sem hann var fluttur,
eru likamskraftar hans á þrotum,
en hann hefur enn fulla meðvit-
und og getur talað.
Siðustu fréttir:
MacStiofain hætti hungurverk-
fallinu i gærkvöldi, að beiðni konu
sinnar og kaþólsks prests, sem
heimsóttu hann á sjúkrahúsið, og
drakk strax talsvert af vatni. —
Samtimis var itrekað af stjórnar-
völdum, að dómurinn yfir honum
væri réttlátur og honum yrði ekki
sleppt.
Nýr bankastjóri
A fundi bankaráðs Utvegs-
banka tslands 3. þ.m. var Finn-
boga Rút Valdimarssyni, að eigin
ósk, veitt lausn frá bankastjóra-
starfi af heilsufarsástæðum.
Á fundi bankaráðsins i dag var
Armann Jakobsson lögfræðingur,
ráðinn bankastjóri við Utvegs-
bankann frá 1. desember n.k.
Ármann Jakobsson er fæddur 2.
ágúst 1914. Hann lauk kandidats-
prófi i lögfræði frá Háskóla Is-
lands 1938 og stundaði fyrst á eftir
lögfræðistörf en gerðist siðan
starfsmaður Útvegsbankans 1942
og hefur verið það siðan, fyrst við
útibúið á Akureyri, siðan við úti-
búið á Siglufirði og stundaði jafn-
framt málflutningsstörf og nú um
nokkurra ára skeið i aðalbankan-
um i Reykjavik, sem trúnaðar-
maður bankastjórnarinnar sem
eftirlitsmaður með útibúum
bankans.
(Fréttatilkynning)
Olían lónar enn með
landi á Norðfirði
Hjörlcifur Guttormsson,
fréttaritari Þjóðviljans á Nes-
kaupstað. sagði i gær, að þá
um daginu liefði verið aflands-
vindur og nokkur sjógangur á
firðinum og hcfði olian ekki
verið cins áberandi og i logn-
inu daginn áður. Þó væri enn
mikil olia á firðinum og hefði
hún lónað með landi i allan
gærdag.
Til Neskaupstaðar eru nú
komnir menn frá Siglinga-
málastofnun rikisins og frá
BP til að rannsaka málið og
sjá hvort eitthvað væri hægt
að gera. Hefði fulltrúi Sigl-
ingamálastofnunarinnar
Stefán Bjarnason sagt að
hugsanlegt væri, að hreinsa
oliuleðjuna af fjörum með efni
sem sundraði oliunni og flýtti
þannig fyrir eyðingu hennar.
Þetta efni er mjög dýrt og
þótt það séu oliufélögin sjálf
sem framleiða það, eiga deild-
ir þeirra hér á landi ekki til
þetta efni. Þau eiga hins vegar
önnur efni til að eyða oliu, en
þau eru einhvers konar eitur-
efni, hættuleg gróðri og öðru
lifi.
Eins og skýrt var frá I Þjóð-
viljanum i gær var olia komin
á fjörur við Dalatanga og fugl
þegar farinn að drepast þar á
fjörum. En vegna aflands-
vindar i gærdag hefur oliuna
ekki rekið enn inn á nærliggj-
andi firði. Um leið og vindur
snýst i hafátt er hætta á hana
beri inn á firði.
Þá náðum við tali af Stefáni
Bjarnasyni frá Siglingar-
málastofnuninni i gærkvelldi.
og sagði hann allmikla oliu
meðfram ströndinni, einkum
norðanmegin fjarðarins. Væri
og oliuleðja viða á fjörum, en
hún hefði þó minnkað. Sagði
Stefán að i dag yrði reynt að
eyða oliu í fjörum með þeim
efnum sem til væru, þótt þau
væru talin skaðleg þörungum
og öðrum sjávargróðri. Þetta
yrði gert þar sem minnst
hætta væri á að efnið færi i sjó-
inn.
Þá sagðist Stefán hafa feng-
ið þær fréttir frá Dalatanga,
þar sem allmikið æðarvarp er,
að þar væri fugl farinn að
veslast ’ upp i oliu er rekið
hefur þar að landi.
—S.dór