Þjóðviljinn - 13.12.1972, Page 3
Miftvikudagur 13. desembcr 1972 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Einleikur á sembal og fiðlu
' .. :
Einleikararnir Konstantin
Krechler, Helga Ingólfsdóttir og
Páll P. Pálsson eru hér á mynd-
inni, sem tekin var á blaða-
mannafundi sem haldinn var i
gær.
6. reglulegu tónleikar Sinfóniu-
hljómsveitar tslands verða
haldnir i Háskólabiói annað kvöld
kl. 8,30. Stjórnandi verður Páll P.
Pálsson og einleikarar Helga
Ingólfsdóttir á sembal og
Konstantin Krechlerá fiðlu. Flutt
verða tónverk eftir Bach:
Sembalkonsert i E-dúr og Fiðlu-
konsert nr. 2 i E-dúr og konsert
fyrir hljómsveit eftir Béla Bar-
tok.
Þurrkví í Reykjavík:
Endanlegar tillögur
til umsagnar
Ekki er annað sýnilegt en þurrkvi verði byggð hér
i Reykjavik á næstunni. Er þá miðað við að hægt sé
að taka upp allt að 4 þúsund tonna skip til viðgerðar.
Verkfall lam-
ar starf EBE
BIIUSSEL 12/12 — Verkfall
0000 starfsmanna við aðalstöðvar
Efnahagsbandalags Evrópu I
Brussel hélt áfram i dag og var
rétt með naumindum hægt að
halda tvo ráðherrafundi EB.
Likur eru á að verkfallinu ljúki
fyrr en áætlað var, þar sem stjórn
EB hefur beðið EB-dómstólinn að
skera úr launadeilunni með
gerðardómi. Starfsfólkið hafði
boðað niu daga verkfall. þ.e. til
19. desember. en það hófst i gær.
1 dag varð að fresta vegna
verkfallsins fundi i Euroatom,
þar sem visindaráðherrar EB
landa ætluðu að ræða fimm ára
áætlun kjarneðlisrannsókna. Var
fundurinn settur, en frestað eftir
fimm minútur, þar sem engir
túlkar voru við vinnu. Siðar i dag
mættu hinsvegar hærra settir
starfsmenn og gerðust verkfalls-
brjótar og bráðabirgðatúlkar og
var þá fundi Euroatom haldið
áfram. A fundi landbúnaðarráð-
herra gerðust tungumálastúdent-
ar i túlkadeild við háskólann i
Brussel verkfallsbrjótar.
Starfsfólk EB hélt fund i dag til
að ræða möguleika á gerðardómi.
I Luxemburg héldu starfsmenn
Evrópuþingsins áfram samúðar-
verkfallinu með EB-starfs-
fólkinu, svo hætta varð fjögurra
daga fundi þingsins um hádegið.
Þetta er viðtækasta og bezt
heppnaða verkfall starfsfólks EB
til þessa, en það hefur nokkrum
sinnum áður farið i verkfall
undanfarin tvö ár til að mótmæla
kjörum og starfsaðstöðu.
DAGSKRA HELGUÐ
NORDAHL GRIEG
I tilefni af þvi, að i ár eru liðin
70 ár frá fæðingu Nordahls
Griegs, efnir Norræna húsið til
dagskrár um skáldið kl. 20.30 á
föstudagskvöld þar sem meðal
annars verða flutt ljóð eftir hann i
þyðingu Magnúsar Asgeirssonar
(flytjandi Andrés Björnsson),
minningarorð um hann eftir
Magnús Asgeirsson (flytjandi
Brynjólfur Jóhannesson) kveðja
frá Halldóri Laxness (flytjandi
Arni Kristjánsson) auk þess sem
sungin verða lög við texta
Nordahls Griegs af Svölu Nielsen
og Einsöngvarakórnum við
undirleik Guðrúnar Kristins-
dóttur.
Norska skáldið NORDAHL
GRIEG (1902—1943) er islending-
íbúð seld á
5,5 miljónir
A dögunum seldist 5 herbergja
ibúð i vesturbænum á 5,5 miljón
kr. Er þetta 100 fermetra ibúð i 15
ára gömlu húsi.
um að góðu kunnur, bæði fyrir
snilldarþýðingar Magnúsar
Ásgeirssonar á allmörgum ljóð-
um hans og vegna dvalar hans
hér á striðsárunum (1942). Á
Þingvöllum orti hann eitt af ljóð-
um sinum, ,,Den menneskelige
natur” (sept. 1942), sem ekki
birtist fyrr en að striði loknu, að
hans eigin ósk.
Ljóðið ,,A Þingvöllum”, sem
Magnús Asgeirsson þýddi á
islenzku,orti Grieg i október 1943,
tæpum tveimur mánuðum áður
en hann fórst með flugvél, sem
skotin var niður yfir Berlin 2.
desember 1943.
Kona Griegs, Gerd, mun verða
viðstödd dagskrárflutninginn.
Samtimis dagskránni á föstu-
dagskvöld verða sýnd verk
Griegs, sem til eru i Landsbóka
safninu, auk þess sem Norræna
húsið sýnir það sem það á af bók-
um eftir hann.
Þess má geta að ein frumútgáfa
af bók Griegs var prentuð hér,
ljóðabókin Friheten, en Ragnar i
Smára gekkst fyrir þvi á sinum
tima. —úþ.
Siðastliðið haust skilaði
sænskur skipasmiðaforstjóri frá
Helsingborg John Helmerson að
nafni ákveðnum tillögum að
byggingu þurrkviar við Gelgju-
tanga, sagði Gunnar B. Guð-
mundsson, hafnarstjóri i gær.
Eru þetta endanlegar tillögur
og eru nú til umsagnar i iðnaðar-
ráðuneytinu. Ekki hefur verið
fjallað til fulls um þessar tillögur
i hafnarnefnd Reykjavikur.
I iðnaðarráðuneytinu er i
undirbúningi frumvarp að lögum
varðandi þessa þurrkvi
Lítið miðar í
samkomulag
Kjarasamingar hjá tiu verka-
lýðsfélögum runnu út um siðustu
mánaðarmót við tslenzka
álfélagið og hafa samningavið-
ræður verið heldur stirðar og litið
gengið saman.
1 fyrradag var haldinn
samningafundur með deiluaðil-
um og náðist þá samkomulag um
flokkaskiptingu i heild á kaupi
starfsmanna byggt á eldra starfs-
mati, sagði Hermann Guðmunds-
son formaður Hlifar.
NÝJAR ÚTGÁFUR
Á RITUM
HÖFUÐSKÁLDA
Þórbergur Þóröarson
FRÁSAGNIR
Hinar styttri frásagnir
meistarans.
Verð ib. kr. 850.-, skb. kr. 1.050.-,
ób.kr. 650. + sölusk.
Jóhannes úr Kötlum
LJÓÐASAFN
Tvöfyrstu bindin komin út.
Verð hvors bindis ib. kr. 650.-, ób.
kr. 480.- + sölusk.
Magnús Stefánsson
(Örn Arnarson)
BREF TIL
TVEGGJA VINA
Verð ib. kr. 580.- ób. kr. 420.-, +
sölusk.
MAL OG MENNING
HEIMSKRINGLA
Gildran er nýjasta bók Des-
mond Bagleys. í henni greinir
írá því, er bófinn Slade, sem
við kynntumst í bókinni ÚT í
ÓVISSUNA, slapp úr hönd-
um réttvísinnar og var eltur
frá Englandi, um írland og
suður í Miðjarðarhaf. Þessi
saga stendur öðrum bókum
Bagleys ekki að baki í spennu
og átökum. — Kvikmyndun
hennar er þegar hafin. Aðal-
hlutverkin leika Paul New-
man og Candice Bergen.
Desmond
suðri BagleyiMÉÉeS
GILDRAN