Þjóðviljinn - 13.12.1972, Blaðsíða 4
4.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 13. desember 1972
HVERT VERÐUR
FLOGIÐ SÍÐUSTU
DAGA FYRIR JÓL
Verðum kannski
95
að flýja upp í sveit
99
— Þetta eyðileggui
það, að við fáum nægan
tima til að undirbúa
næstu byggingu okkar i
borginni i tæka tið, sagði
Óskar Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Bygg-
ingasamvinnufélags at-
vinnubifreiðastjóra um
þá samþykkt meirihluta
borgarstjórnar Reykja-
vikur að veita BSAB
ekki leyfi til byggingar
fjölbýlishúss við Stóra-
gerði, en eins og kunn-
ugt er, samþykkti meiri-
hlutinn að veita einka-
\M ÍSLín IIL.IÓiVlLISTAIÍMAWA
jj’Jv údvcgar yður hljóðfœraleikara
ih-líl v
°k ðljóvnsveitir við hverskonar lækifa’ri
\insamlnqast hrinyið í ^Ö^SS milli kl. I4-Í7
IÐNÞJÓNUSTAN S.E.
Simi 24911
ALHLIÐA FAGMANNSVINNA
aöilum lóðirnar til að
braska með.
— Við gerðum ráð fyrir þvi að
fá lóð á þessum stað, sagði Óskar
ennfremur, — og þess vegna sótt-
um við ekki um lóð á neinum öðr-
um stað.
Við höfðum vegna þessa ekki
tækifæri til að undirbúa upp-
steypu nýs fjölbýlishúss, en upp-
steypu byggingar okkar við
Asparfell i Breiðholti III lýkur i
júni næsta sumar.
Nú verðum við að leita fyrir
okkur um lóð annars staðar i
bænum, en við höfðum gert okkur
vonir um að verða ekki settir á
hakann við úthlutun að þessu
sinni.
Sú ráðstöfun að synja BSAB um
byggingarlóð við Stóragerði hefur
sætt mikilli undrun meðal
borgarbúa, þar sem félagið hefur
ótvirætt sannað tilverurétt sinn
með þvi að hafa á boðstólum ó-
dýrari ibúðir en nokkur annar
byggingaraðili i borginni.
BSAB hefur nú ákveðið að
byggja 60 einbýlishús og raðhús
við Markholt i Mosfellssveit;, og
sagði Óskar að félagið yrði að
flýja með allar sinar fram-
kvæmdir upp i sveit ef borgin
hefði ekki byggingarlóðir handa
þeim svo þeir geti hafizt handa
við uppsteypun næsta sumar.
— úþ
Lesið ykkur til verðlauna
Teiknið til verðlauna
Sýnið leikni ykkar og
hugmyndaflug
'<Mr'
afi seqíríra
L' * TTNfc * *• *
pegarBjossi
varunaur
Sérstæð barnabók
í hinum stóra flokki
íslenzkra barnabóka
Bókin gefur unglingnum tækifæri til þess að tjá sig og hugmyndir sínar
í myndum tengdum efni bókarinnar. Efni bókarinnar er auðugt
myndaefni svo að það er auðvelt fyrir lesandann að grípa atbúrði frásagnarinnar.
Teikniarkir fylgja með bókinni og auk þess gefur bókin tækifæri til þess að
teikna beint í hana á hinar stóru eyður er til þess voru hugsaðar.
Lesið vandlega bakhlið bókarinnar en hún segir það sem hér vantar.
Lestur þessarar barnabókar verður leikur jafnframt því, sem hann hefur hagrænt
gildi og á að gleðja barnið í eigin starfi.
ÞJÓÐSAGA
BYGGGARÐI SELTJARNARNESI - SIMAR 13510, 26155 OG 17059
Millilandaflug Flugfélags ís-
lands siðustu vikuna fyrir jól
verður sem hér segir:
Laugardaginn 16. desember
verður flogið til Kaupmannahafn-
ar og Frankfurt am Main. Sunnu-
daginn 17. desemberverður flogið
til Oslo og Kaupmannahafnar og
Mánudaginn 18. desember verður
flogið til Glasgow og Kaup-
mannahafnar. Þriðjudaginn 19.
desember til London. Miðviku-
daginn 20. desember til Glasgow
og Kaupmannahafnar. Fimmtu-
daginn 21. desember til Kaup-
mannahafnar og Oslo og
Færeyja. Föstudaginn 22. desem-
ber verður flogið til Glasgow og
Kaupmannahafnar. Laugardag-
inn 23. desember verður flogið til
Kaupmannahafnar og Frankfurt
am Main.
Ekkert millilandaflug verður á
vegum félagsins á aðfangadag,
jóladag og 2. jóladag. Miðviku-
daginn 27. desember verður flogið
til Glasgow og Kaupmannahafnar
Rússnesk nób-
elsskáld eru
og til sömu staða föstudaginn 29.
desember. Frá og með 2. janúar
1973 verður flogið milli landa
samkvæmt áætlun. Siðustu vik-
una fyrir jól verða þotur Flugfé-
lags Islands i millilandaflugi með
fullum sætafjölda, 120 i hvorri
þotu i stað 75 sæta, sem venja er
að hafa i vetraráætlun, og þíf er
hluti farþegarýmis notaður til
vöruflutninga.
enn atyrt
MOSKVU 9/12 t grein i
Kommunist, hugmyndafræði-
legu málgagni sovézkra
kommúnista, er farið hörðum
orðum um Nóbelsskáldin
Pasternak og Solzjenitsin.
Segir þar, að þeir hafi unnið
sér fyrirlitningu samfélagsins
með þvi að senda til útlanda
rit sem notuð voru i and-
sovézkum tilgangi.
Greinarhöfundur heldur þvi
fram , að Bandarikjamenn
hafi staðið á bak við það að
Pasternak fékk Nóbelsverð-
launin fyrir bókina Dr.
Zjivago.
Götuheiti
við
Stóragerði
Nafnanefnd Reykjavikur-
borgar mun vera búin að gefa
upp öndina, og gera þess
vegna tveir menn tillögur um
nöfn á götum i borginni, þeir
Páll Lindal og Gunnlaugur
Pétursson.
Þeir tvimenningarnir hafa
gert tillögur um nöfn i þvi
eftirsótta byggingahverfi við
Stóragerði, en eftir er að
ganga formlega frá nafn-
giftum. Tillaga þeirra hljóðar
upp á 8 nöfn, en göturnar eru
7.
Uppástunga þeirra tvi-
menninga hljóðar svoj
Álmagerði, Birkigerði,
Espigerði, Furugerði, Hlyn-
gerði, Seljugerði, Viðjugerði
og Þallargerði.
Einhver ágreiningur mun
vera vegna ofaukins sérhljóða
i einu nafnanna, en hvað finnst
lesendum?
-úþ
Aukaferðir innan
lands fyrir jólin
Aukaferðir verða hjá Flug-
félagi islands innanlands dagana
fyrir jólin. Hefjast þær 16.
desember og enda á aðfangadag.
Laugardaginn 16. desember
verða farnar 3 ferðir til Akur-
eyrar, 2 ferðir til tsafjarðar, 2
ferðir til Vestmannaeyja og 1
ferð til Hornafjarðar og Norð-
fjarðar.
Sunnudaginn 17. desember
verður flogið samkvæmt áætlun,
þ.e. 3 ferðir til Akureyrar og 1
ferð til Vestmannaeyja, ísa-
fjarðar, Þingeyrar, Egilsstaða og
Hornafjarðar.
Mánudaginn 18. desember
verða farnar 2 ferðir til Raufar-
hafnar, 2 ferðir til Vestmanna-
eyja,2 ferðir til Sauðárkróks og 3
ferðirtil Akureyrar. Ennfremur 1
ferð til Húsavikur, Þórshafnar og
Patreksfjarðar.
Þriðjudaginn 19. desember eru
áætlaðar 2 ferðir til Isaf jarðar, 2
til Egilsstaða, 3 til Akureyrar, 2
til Hafnar i Hornafirði, 2 til Vest-
mannaeyja og 1 ferð til Fagur-
hólsmýrar og Norðfjarðar.
Miðvikudaginn 20. desember
verða 2 ferðir til Húsavikur, 2
ferðir til Isafjarðar, 2 ferðir til
Egilsstaða, 2 ferðir til Sauðár-
króks, 4 ferðir til Akureyrar, og
ennfremur verður flogið til Vest-
mannaeyja, Patreksfjarðar og
Þingeyrar.
Fimmtudaginn 21. desember,
verða 2 ferðir til Vestmanna-
eyja, 3 ferðir til Akureyrar og 2
ferðir til Isafjarðar og ennfremur
1 ferð til Hornafjarðar og Egils-
staða.
Föstudaginn 22. desember
verða 3 ferðir til Akureyrar, 2
ferðir til Húsavikur, 2 ferðir til
Raufarhafnar, 3ferðir til Sauðár-
króks,og ennfremur verður flogið
til Vestmannaeyja, Þórshafnar,
Patreksfjarðar og Egilsstaða.
I.augardaginn 23. desembereru
áætlaðar 2 ferðir til Vestmanna-
eyja, 4 ferðir til Akureyrar, 2
ferðir til Isafjarðar, 2 ferðir til
Hornafjarðar, 1 ferð til Norð-
fjarðar og 1 ferð til Egilsstaða.
Sunnudaginn 24. desember,
aðfangadag, er áætlað að fljúga
til Akureyrar, Vestmannaeyja,
tsafjarðar og Þingeyrar. Annað
flug fellur niður þann dag.
Auk fyrrgreindra ferða til
hinna ymsu staða eru áætlaðar
tvær flugferðir á dag frá Reykja-
vik með vörur eingöngu. Þeim
ferðum verður hagað, eftir þvi,
hvernig vörur berast og til hvaða
staða.
Prentarar ræða
um vinnuskilyrði
Dagana 13,—16. nóvember
1972 var haldinn i ,,Seestern” or-
lofsheimili FDGB i Nienhagen
(Rostock) umræðufundur
stjórnarmanna úr verkalýðsfé-
lögum prentiðnaðarins i Dan-
mörku, Finnlandi, tslandi, Nor-
egi, Sviþjóð og Þýzka alþýðulýð-
veldinu.
Aðalviðfangsefni fundarins var
hlutverk verkalýðsfélaganna á
sviði iðnfræðslu og framhalds-
menntunar, vinnuskilyrði, heilsu-
gæzla og öryggi á vinnústað.