Þjóðviljinn - 13.12.1972, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 13. desember 1972
MOÐVIUINN
MALGAGN sósíalisma,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Ctgefandi: Otgáfufélag Þjóöviljans
Kramkvæmdastj’óri: Eiöur Bergmann
Kitstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson (011.)
Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson
Ritstjórn, afgrciösla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur).
Askriftarverð kr. 225.00 á mánuöi.
Lausasöluverð kr. 15.00.
Prentun: Blaöaprent h.f.
MEÐ EINBEITTUM VILJA
Lengi hefur verið glimt við verðbólguna
á Islandi, og svo er enn. Núverandi rikis-
stjórn setti sér það mark að koma i veg
fyrir að verðbólga yxi hér hraðar en i
helztu viðskiptalöndum okkar. Segja má,
að þetta hafi tekizt hingað til, sé mið tekið
t.d. af Bretlandi, þar sem verðbólga hefur
vaxið örar en hér siðasta eitt og hálft árið.
Vissulega er þetta ákaflega merkilegur
árangur, þegar haft er i huga, að ísland
hafði fram að siðustu stjórnarskiptum
verið um áratugi i algerum sérflokki með-
al nálægra rikja, hvað snerti óða verð-,
bólguþróun.
í þessu sambandi er vert að minna enn á
þá staðreynd, að siðustu ár viðreisnarinn-
ar frá ársbyrjun 1%8 og fram að kosn-
ingaverðstöðvun siðla árs 1970 var verð-
bólguvöxturinn samkvæmt framfærslu-
vfsitölu um 18,6% árlega, en frá stjórnar-
skiptum hefur tekizt að draga úr þessum
ofboðslega vexti verðbólgunnar um hvorki
meira né ininna en helming, þvi að fram-
færsluvisitala hefur nú hækkað um innan
við 10% á ári.
Þetta er ekki sizt athyglisvert vegna
þess, að á löngum valdaferli viðreisnar-
stjórnarinnar óx verðbólgan jafnan örast
á fyrri hluta kjörtimabils, en frekar var
reynt, þegar kosningar nálguðust, að
hægja á óðavexti með verðstöðvun stuttan
tíma eða öðrum ráðstöfunum. Það er þvi
algerlega einstakt hér um áratugaskeið,
að stjórnvöld hafa nú haft bæði vilja og
getu til að draga svo mjög úr verðbólgu-
vextinum sem raun ber vitni, og það á
fyrstu 18 mánuðum nýs kjörtimabils.
Þetta er lika þeim mun merkilegra, ef
jafnframt er höfð i huga sú staðreynd, að á
sama tima hefur kaupmáttur launatekna
vaxið örar en nokkru sinni fyrr, þvi að
auðvitað er að öðru jöfnu erfiðara að
hindra örar verðhækkanir, ef launa-
greiðslur og kaupmáttur rauntekna vaxa
með auknum hraða.
Hér er þvi eitt af þeim mörgu dæmum,
sem votta um stór umskipti við fall við-
reisnarst jórnarinnar.
Að sjálfsögðu hefur ekki verið auðvelt
að hemja verðbólguna, þvert á móti hefur
það eingöngu gerzt fyrir mjög einbeittan
vilja stjórnvalda. Og skylt er að viður-
HÚSNÆÐISMÁLIN I ÓLESTRI
Á einu sviði hafa núverandi stjórnvöld
ekki haldið fullum sóma i erfiðri baráttu
við verðbólguna. Þjóðviljinn á hér við hús-
næðismálin. Þrátt fyrir bann við hækkun
húsaleigu hefur hún vafalaust hækkað
verulega undanfarið mjög viða, og ýms
dæmi hafa komið fram um hreint leigu-
okur. Verð ibúða á sölumarkaði hefur
einnig haldið áfram að hækka með risa-
skrefum.
Hér er mikil nauðsyn á, að gripið verði
til róttækra ráðstafana, þvi að nú þegar er
aðstöðumunur allt of mikill milli annars
vegar þess fólks, sem býr i eigin húsnæði
án stórskulda, og hins vegar hinna, sem
þurfa að leigja eða hafa nýlega eignazt
ibúð með skuldasöfnun.
1 byggingamálum erum við langt á eftir
flestum nágrannalöndum, hvað hag-
kvæmni snertir og allt sem heitir að gera
ungu fólki auðveldara að leysa húsnæðis-
vandamálin.
Einkabraskið mótar enn alla þróun hús-
næðismála okkar en hvers konar félagsleg
kenna, að mörgum aðilum hefur verið
synjað um verðhækkanir, þó að sterk rök
hafi út af fyrir sig mælt með hækkun, ef
einstök mál eru ekki skoðuð i stærra sam-
hengi.
Það hefur vissulega ekki staðið á tals-
mönnum Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu-
flokksins að krefjast mjög mikilla hækk-
ana á öllum mögulegum sviðum, þó að
þeir i hinu orðinu saki núverandi rikis-
stjórn um ábyrgð á óðaverðbólgu, svo að
halda mætti að eigin fortið væri þeim að
fullu gleymd og grafin.
Nýjasta dæmið um verðhækkunarkröf-
ur stjórnarandstöðunnar er frá meirihlut-
anum i borgarstjórn Reykjavikur, þar
sem farið er fram á að fargjöld með
Strætisvögnum Reykjavikur hækki um
hvorki meira né minna en 44%, auk fjöl-
margra annarra krafna um stórhækkanir
á gjaldskrá borgarfyrirtækja.
Hvernig halda menn, að verðlagsþróun
hefði orðið á íslandi siðustu 18 mánuði, ef
ihald og kratar hefðu haldið völdum?
sjónarmið sett til hliðar. Skýrt dæmi um
þetta ástand og afleiðingar þess er af-
greiðsla ihaldsmeirihlutans i borgarstjórn
Reykjavikur fyrir fáum dögum, þegar þvi
byggingasamvinnufélagi, sem ódýrast
hefur byggt hér i Reykjavik að undan-
förnu, var synjað um lóð við Stóragerði til
byggingar fjölbýlishúss, en einkaaðilum
fengið verkið i hendur.
Það er timabært að vinstri stjórnin hafi
forgöngu um mótun nýrrar félagslegrar
stefnu i húsnæðismálum.
Jafnan leitað álits Haf
rannsóknarstofnunnar
þingsjá þjóðviljans
— sagði sjávar-
útvegsráðherra
Lúðvik Jósepsson
sjávarútvegsráóherra svaraði i
gær fyrirspurn frá Steingrimi
llermannssyni þess efnis,
livernig sjávarútvegsráðuneytið
tæki ákvarðanir um leyfis-
veitingar og veiðitakmarkanir.
Var i fyrirspurninni einkum
óskað upplýsinga um eftirtalin
atriði: 1) Er ávallt leitað
umsagnar Ha f ra nnsók nar-
stofnunarinnar? 2) Er leitað um-
sagnar annarra aðila? 3) Hefur
ráðuneytið almennt farið eftir
slikum umsögnum, einkum
Hafrannsóknarstofnunarinnar?
1 svari Lúðviks kom m.a. fram
að þegar sótt væri um leyfi til
rækju- humar- og skelfiskveiða,
væru slikar umsóknir jafnan
sendar til umsagnar
Hafrannsóknarstofnunarinnar og
Fiskifélagsins, og einnig sæti
fulltrúi ráðuneytisins fundi með
fulltrúum þessara stofnana.
Sagði Lúðvik, að það heyrði til
hreinna undantekninga ef ekki
væri farið eftir umsögnum
þessara stofnana.
Lúðvík kvað það vandkvæðum
bundið að setja fastar reglur um
veiðileyfi, þar sýndist sitt hverj-
um. Um bannið við skelfisk-
veiðunum á Breiðafirði, sagði
Lúðvik, að þar hafi i einu og öllu
verið farið eftir tillögum
Hafrannsóknarstofnunarinnar,
Magnús Torfi ólafsson
menntamálaráðherra sagði við
umræöur á alþingi i gær að til-
lögur um framkvæmd á ályktun
alþingis frá i fyrra þess efnis að
fjárhæð^er nemi sem næst sölu-
skatti af bókum, renni til rit-
höfunda, myndu liggja fyrir i
þessari viku, og unnt myndi að
leyfi heföi verið veitt fyrir 5000
tonna magni og það tilkynnt með
löngum fyrirvara.
Það sem þarna hefði gerzt væri,
að þessi afli hefði veiðst á
skemmri tima en menn gerðu ráð
fyrir.
taka tillit til þeirra viö loka-
afgreiðslu fjárlaga. Þetta sagði
ráðherrann i tilefni af fyrirspurn,
sem Gunnar Thoroddsen bar
fram um þetta efni.
Svava Jakobsdóttirsem sæti á i
nefnd á vegum fjármálaráðun.
sem kannar fjárhagslegan grund-
völl fyrir framkvæmd þings-
Lúðvik kvað það kjarna máls-
ins, að það heyri til algerra
undantekninga að ekki væri farið
að ráðum fiskifræðinga, og kvað
ráðuneytið mundu fylgja þeirri
stefnu þegar um fiskifræðileg
atriði væri að ræða.
ályktunartillögunnar. sagði við
umræðurnar, að hún fagnaði
áhuga þingmanna á þessu máli.
Hún sagði að fullt samkomulag
hafði verið i nefndinni um að skila
tillögum fyrir afgreiðslu fjárlaga,
en dregizt hefði að leggja þær
fram vegna fjarveru eins
nefndarmannsins.
EFNAHAGSMÁLIN
OG AFBROT
Afbrot unglinga eru dæmi
um sjúkleg einkenni á þjóðfé-
lagi okkar, og það mun ekki
takast að lækna þann vanda
með þvi að fjölga geðsjúkra-
húsum. Ég er þvi ckki sam-
mála þeim viöhorfum aö þetta
eigi ekkert skylt við efnahags-
mál okkar.
Á þessa leið komst Magnús
Kjartansson að orði við þær
umræður sem i gær spunnust
upp utan dagskrár á alþingi,
um afbrot unglinga.
Umræðurnar stóðu á aðra
klukkustund og voru i rauninni
ágætt dæmi um það hve mis-
jafnlega þingmönnum tekst að
setja hlutina i rétt samhengi.
Þessa gætti ekki sizt i ræðum
Guðlaugs Gislasonar og
Halldórs Blöndals, en sá
siðarnefndi kallaði það þröng-
sýni að Magnús skyldi leyfa
sér að leita orsaka afbrota-
hneigðar unglinga i þróun
islenzks þjóðfélags frá
bændaþjóðfélagi til neyzlu-
þjóðfélags.
Magnús sagði, að það sem
einkenndi neyzluþjóðfélagið
væri kapphlaupið eftir hlutum
eða efnislegum gæðum. I
þessu kapphlaupi vissi fólk
naumast hvernig það ætti að
standa og við hvað það ætti að
miða i hegðunum sinum.
Þetta væru þau áhrif sem
unglingarnir yrðu fyrir. Það
sem á skorti væri að gefa
neyzluþjóðfélaginu eitthverl
siðferðilegt markmið, og þetta
vandamál væri þvi í nánum
tengslum við efnahagsvanda
þjóðfélagsins.
Söluskattur af bókum:
Tillögur munu liggja fyrir
yiö lokaafgreiðslu fjárlaga