Þjóðviljinn - 13.12.1972, Side 8
8 SIÐA — ÞJóÐVILJINN Miðvikudagur 13- desember 1972
Gísli
Guömundsson
skrifar
fréttabréf
frá
Súgandafiröi
M.b. Stefnir 1S 150. Gæöaskip, sem byggt er árift 1954.
Gisli Guftmundsson, fréttamaftur blaðsins, treffilegur náungi þótt
gamall sé.
Dýrt aö búa í krummavíkum
Tiöarfar i nóvember var frekar
óblitt og róörar þvi af þeim sök-
um oft erfiðir. Veöurhæð suma
róðrardaga var um 8-10 vindstig
með snjókomu, en frostalitið. Frá
4.-13. var farið aðeins einn dag á
sjó þann 8. Þann dag var lika
Botnsheiði opnuö fyrir bila. Eftir
eina klukkustund var hún lokuð
aftur og hefur verið það siðan.
Það fennti hér mjög mikið, og
elztu menn muna ekki jafn mik-
inn snjó á þeim tima árs. Póstbát-
urinn Fagranes kemur nú hingað
tvisvar i viku með hinar lifsnauð-
synlegu þarfir t.d. mjólk, brauð
og brennivin. Snjóbiliinn hefur
lika verið i förum eftir að hann
komst i lag eftir sumarhvildina.
Ekki er hann þó fyrir alla og er
það undir duttlungum sveitar-
stjórans komið hverju sinni,
hvort hann fæst. Sennilega hefur
billinn i upphafi ekkert verið
styrktur af almannafé. Er þá
neitun vel skiljanleg, ekki sizt ef
satt er, að hann sé rekinn með
bullandi tapi. Privatferðir kosta
nú 3.500.- kr. hver ferð, en sætið i
áætlunarferðum kr. 350.-. Bil-
stjórinn fær kr. 1500.- íyrir ferð-
ina. Það getur verið dýrt og erfitt
að búa & svona krummavikum
þegar vegir lokast og tið er vond.
Læknir kemur hér tvisvar i viku
ef veður leyfa.
Gjöfulu miðin hafa smá-
þornað
Sjósókn Súgfirðinga hefur verið
frá upphafi vega mjög góð. Nú á
siðustu timum hefur hún harnað
mjög, enda skipin stór og vel út-
búin. Súgandafjörður var i upp-
hafi vel staðsettur á landabréfinu
og þægilegur til sjósóknar. Yfir-
leitt var hér góð höfn, og nú siðan
nýja höfnin kom, ágæt. Það er 15
til 20 minútna sigling frá þvi farið
er úr höfn og þar til komið er út
fyrir á opið haf. Aður fyrr var hér
lika mjög stutt á miðin, en undan-
farin ár hafa þessi gjöfulu mið
verið að smáþorna. Það verður
Þá er þaö nóvemberafli bát-
anna nú og i fyrra:
þvi að sækja á fjarlægari mið og
stundum og iðulega i 45-80 sjó-
milna fjarlægð héðan og þá
venjulegá vestur á við,suður fyrir
Vikurál, sem kallað er og suður á
Breiðubugt. Ég tel nú sem gamall
og reyndur aðfluttur vestfirzkur
sjósóknari, að það séu Patreks-
fjörður og Tálknafjörður, sem séu
nú og verði i framtið bezt fallnir
staðir til sjósóknar hér á Vest-
fjörðum. Ekki sizt þegar norðan-
áttin haslar sér völl hér á norð-
vesturslóðum. Skv. ofanskráðum
atriðum hafa þvi stórhuga menn
hér á Suðureyri selt smærri báta
sfna og keypt aðra stærri. Ég þarf
ekki að lýsa þeim frekar ég gerði
það i siðasta fréttabrefi.
Aflinn og loftsins fítons-
kraftur
Samanlagður nóvember-afli
skv. framanskraðu er þvi 668.0
tonn. óvenju mikið af þessum
afla var tindabikkja eða 38.7 tonn.
Hæsti bátur var með 9,8 tonn
af tindabikkju og fór hún öll
eins og að venju- i mjölvinnslu
Úm 90 tonn af aflanum miðað við
óslægðan fisk voru flutt til tsa-
fjarðar og Hnifsdals með bilum
eða Fagranesinu. Vonin h.f. tók
lika af sinum bát Ólafi 34.6 tonn af
þorski, ýsu og lúöu og fór það allt
i herzlu. Ekki eru þeir félagar nú
háðir veðráttunni með þurrkinn,
þeir nota nú tæknina. Loftið er
sótt út i himingeiminn og þvi er
dælt með fitonskrafti um
herzlustöðina, og fiskurinn
þornar mjög fljótt að sagt er.
Vinnan, rúsinuverð
og ástralskar dömur.
1968. Talið var þá, að útgerðin
stæði höllum fæti og þvi talið
nauðsynlegt af stjórnvöldum að
ráðast á sjómannastéttina. Kaup-
máttur þeirra hækkaði ekki við
þessar ráðstafanir og var þvi lika
mjög illa liðinn sem von var. 1/1
1970 var verðið ákveðið kr. 6.30 og
uppbót kr. 0.66 skiptaverðið kr.
6.96. 1. júni sama ár hækkaði það
svo um kr. 0.05 pr. kg. fór i kr. 6.35
og uppbót kr. 0.66, skiptaverðið
kr. 70.1 1. janúar árið 1971, árið
sem átti að kjósa til þings/var
verðið ákveðið kr. 8.40 uppbót kr.
0.83 skiptaverð kr. 9.23. Nú nái*
aðist kosningar, og 1. júni þetta
ár fór verðið i kr. 8.85 uppbót kr.
0.88 skiptaverð kr. 9,73. Sjómenn
hoppuðu af gleðir sjáiði hvað Við-
reisnin er vinveitt sjómönnum,
Húrra! Hver andskotinn, Við-
reisnin féll. Já, að talið er á
snjöllu klofbragði kappans
Hannibals Valdimarssonar. Eftir
þetta fór að koma skriður á fisk-
verðshækkanirnar. 1. ágúst 1971
hækkaði það i kr. 10.05 pr. kg upp-
bót 0.88 kr. skiptaverð kr. 11.38.
1/1 1972 var það kr. 12.20 og þá
lika 100 aurar i uppbót kr. 13.20
skiptaverð. 1/10 sama ár hækkaði
það i kr. 14.05 uppbót kr. 1.00
skiptaverð kr. 15.05 og það er það
nú. Það kann að vera að rikis-
stjórn hafi engin áhrif á fiskverð;
þó efast ég um það.
Good-bye to Brynjar
Skeljabáturinn Brynjar, sem
keyptur var hingað i júli 1969 og
hét þá Guðmundur frá Bæ er nú
allur. Hann fór i sumar til við-
gerðar i Hafnarfirði ofan þilfars.
Við nánari athugun og viðtæka
skoðun kom i ljós að i honum var
þurrafúi og honum þvi banað að
fullu og segjum þvi nú með réttu
Good-bye. Stefnir 1S, sem keyptur
var hingað 1954 (Landsmiðjubát-
ur) er nú fyrir nokkru kominn á
söluskrá og mun eiga að seljast ef
kaupandi fæst. Búið er að segja
öllum upp sem á honum eru
nú; uppsögnin er miðuð við ára-
mót. Hörð norðanátt hefur verið
hér enn það sem af er desember.
Tveir bátar voru á sjó i fyrradag,
mánudag, og þrir bátar á sjó i
gær. Afli var tregur og erfiðir
róðrar. Stórstraumur er nú yfir-
standandi sem ekki bætir úr skák.
Og að lokum er hér afli skel-
veiðibátanna. Afli Kóps i mánuð
inum var 30.0 tonn, Gullfaxi var
með 20.8. Hörpudiskurinn er unn-
inn jöfnum höndum, og þar starfa
nú um 25 manns. Nýverið kom að
sunnan eftirlitsmaður frá fersk-
fiskmatinu, að likindum vegna
kvartana einhvers aðila hér að
heiman. Hann tók méð sér suður
þrjárprufur af siðast unnum afla
bátanna og skv. athugun þar
syðra reyndist útkoman ágæt . Ef
ferskfiskmatið hugsaði jafn vel
um meöferð ferskfisks bæði við
slægingu og annað, eins og það
virðist gera við skelfisk, þá væri
vel farið.
Trausti
Kristján Guðmundsson
ölafur Friö’bertsson
Sigurvon
Guðrún Guðleifsdóttir
Stefnir
1972
141.2 tonn 20 r.
139.2 tonn 20 r.
135.3 tonn 20 r.
126.8 tonn 19 r.
95.9 tonn 17 r.
29.6 tonn 13 r.
1971
139.2 tonn 20 r.
sigldi með aflann
142.6 tonn 19 r.
122.0 tonn 18 r.
ekki hér i fyrra.
54.6 tonn 15 r.
JÓN SKAGAN
ÍÓN SkAQAN
AXLASkÍpCÍ
A 'CUNQLÍNU
MÍNNÍNGAROQ MyNÖÍK
AXLASKIPTI
A
TUNGLINU
Ævi manna er samslunginn vefur atvika, orsaka og afleiðinga. Ráðgáta lífsins
verður því oftast torskilin og yfir henni hvílir hula óræðis og óskiljanleika.
Oft verður manni ljóst hvernig lítil atvik verða aflgjafi
stórra atburða í lífi einstaklinga og stórra hópa manna.
Við lestur þessarar bókar séra Jóns Skagans verður manni þetta ljósara
en áður. Frásögnin er öll lifandi og skemmtileg í einfaldleik
hins frásagnarglaða sögumanns.
Þessi bók er skemmtileg myndasýning úr hinu daglega lífi.
ÞJÓÐSAGA
BYGGGARÐI SELTJARNARNESI - SÍMAR 13510, 26155 OG 17059
Mikil vinna var hér i frystihús-
inu allan mánuðinn. Unnið var
stanzlaust 25 daga og stundum til
kl. 11 á kvöidin og tekjur fólks þar
af leiðandi mjög góðar. Háseta-
hlutir sjómanna urðu lika mjög
góðir. Talið er af skiptaráðunaut-
um bátanna að um 440- kr. hlutur
sé úr hverju aflatonni og er þá or-
lof meðtalið. Xaupmáttur launa
er hér breytilegur , eftir þvi hvar
er verzlað. Rúsinur kosta nú i
annarri verzluninni kr. 162,- pr.
kg. en i hinni kr. 116.- að likindum
mun vera svipaður verðmunur á
ýmsum hlutum öðrum. Tæpir 7
metrar eru á milli búða.
Gott útlit virðist nú vera með
fjölgun á kvenfólki, þvi brátt
koma hingað 5 og ef ekki fleiri
ástralskar dömur til frystihúss-
ins. Heimildin er frá verkalýðs-
foringjanum, sem veitir þeim
landvistarleyfi ásamt tilheyrandi
ráðuneytum.
Féll á klofbragði Hanni-
bals.
Það er oft minnzt á Viðreisnar-
timabilið ogþá hvað þá hafi verið
blómlegt og kaupmáttur launa
glæsilegur. Eðlilega eru það þá
stjórnarandstæðingar sem um
það skrifa og tala. Hann var það
ekki hjá sjómönnum, að minnsta
kosti ekki alltaf. Ég hef hér hjá
mér fiskverð frá árinu 1968 til og
með þessa dags. Það er aðeins
verð á einni tegund fisks, sem ég
greini hér frá og er það þorskur
yfir 57 cm. stór óslægður með
haus og fyrsta flokks. Með tilvis-
un til laga nr 97/1961 hefur verð-
lagsráð sjávarútvegsins ákveðið
eftirfarandi lágmarksverð á
ferskfiski árið 1968. Svona eða
þessu likt hljóða verðskrár verð-
lagsráðs sjávarútvegsins. Allt
árið 1968 var verðið hæst kr. 5.-
pr. kg. og uppbót frá riki og
kaupanda 0,85 kr. pr. kg. skipta
verð þvi kr. 5.85. Allt árið 1969
var það kr. 5.47 og uppbótin þá
aðeins kr. 0.60 skiptaverð kr. 6.07.
Það ár fengu útvegsmenn 27%
viðbót við kr. 5.47 frá fiskkaup-
anda, skv. lögum frá haustinu
Gisli.