Þjóðviljinn - 13.12.1972, Page 9
Miðvikudagur 13. desember 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Rannsókna-
stofa
undir
dekkinu
Á togaranum Narfa hafa farið fram skipulegar tilraunir með brennslu svartoliu í stað venjulegrar
gasoliu. Takist þær er ekki óliklegt að spara megi um 100 miljónir kr. i oliukostnaði á ári, ef miðað er við
að svartolia verði notuð sem eldsneyti I öllum togurum okkar.
Á síðustu mánuðum hef ur
öðru hverju i blöðum verið
minnzt á þær tilraunir, sem
nú standa yfir með
brennslu svartolíu í
togaranum Narfa. Leidd
hafa verið rök að því að
með því, að nota þessa olíu
i stað gasolíu á togaraflota
okkar, megi árlega spara
um 100 miljónir kr.
Hvernig væri nú að heyra
álit vélstjóra á þessu máli,
manns, sem keyrt hefur
vélarnar í þessu skipi bæði
á gasolíu og svartolíu? Með
þetta i huga héldum við á
fund Ágústs Geirssonar,
sem verið hefur 1. vélstjóri
á Narfanum þann tíma,
sem tilraunirnar hafa stað-
ið, en Ágúst lauk námi frá
Vélskóla íslands fyrir
tveim árum. Þegar við
hittum hann að máli var
hann nýkominn í land, lík-
lega úr siðasta túrnum sín-
um á Narfa, því hann mun
innan tíðar halda til Japan
til að fylgjast með niður-
setningu véla í nýjan skut-
togara, sem gerður verður
út frá Raufarhöfn, en þar
hefur Ágúst átt heima. Það
má vera ibúum Raufar-
hafnar fagnaðarefni, að
heimamaður, sem nú hefur
aflað sér bæði menntunar
og reynslu, skuli ráðast sem
vélstjóri á hinn nýja skut-
togara.
— Nú virðist manni að gætt
hafi vissrar andstöðu gegn þvi að
gera tilraunir i þessa átt. Kannt
þú nokkrar skýringar á þvi,
Ágúst?
— Ég held að þar sé fyrst og
fremst um fullyrðingar að ræba,
sem ekki hafa verið studdar nein-
um rökum eða reynslu. — Menn
hafa sagt sem svo: Svartolia, það
getur aldrei gengið hér, það má
vel vera að það geti blessazt hjá
útlendingum. — En ég spyr sem
svo: Af hverju getum við ekki
verið frumkvöðlar á þessu sviði,
þjóð, sem hefur á að skipa yfir-
leitt mikið betur menntuðum vél-
stjórum um borð i skipum sinum
heldur en almennt gerist erlendis?
— Nú varð á sinum tima vart
við slit i vélarhlutum i Narfanum,
var ekki svo?
— Jú, það er kannski rétt að
rekja svolitið sögu þessara til-
rauna, i þessu sambandi. Ég vil
þó fyrst segja, að útilokað sé að
segja að eitthvert beint samband
sé milli þess sem gerðist og svart-
oliubrennslunnar.
Það var á árunum 1969—'70
sem gerðar voru tilraunir með
svartoliuna, og þá var settur upp
oliuhitari, sem óhjákvæmilegur
er við svartoliubrennsluna.
Þegar þessi tilraun hafði staðið i
14 mánuði fór fram nákvæm
Verður svartolía
eldsneyti allra
togara okkar?
TILRAUNIRNAR í NARFA SPÁ GÓÐU,
SEGIR ÁGUST GEIRSSON, 1. VÉLSTJÓRI
Ágúst Geirsson
skoðum (Loyd’s eftirlit) á vélinni.
Fyrst kom fram bilun i afgas-
túrbinu sem var auðvitað óháð
svartoliunni, en einnig kom i ljós
slit á bullum og strokkum vélar-
innar. Viðgerð á þessu fór fram .
úti i Grimsby og voru „slifarnar”
.á krómhúðaðar að innan.
Ég vil segja, að það slit sem
þarna kom fram hafi fyrst og
fremst verið að kenna ónógri
strokkasmurningu. Við vorum
með minni strokkasmurningu en
jafnvel er viðurkennt að þurfi
fyrir gasoliu. Annars staðar mun
eftir þvi sem ég hef komizt næst,
talið að a.m.k. tvisvar sinnum
meiri smurningu þurfi á strokka
þegar brennt er svartoliu. Þetta
held ég að hafi verið ein meginor-
sökin fyrir þessu sliti á sinum
tima. — Nú, þar við bætist, að
þessar tilraunir voru meira og
minna handahófskenndar, séu
þær bornar saman við þær, sem
verið er að gera i dag.
— Áður en við vikjum að þeim :
Er vélin i Narfa að þinu áliti
heppileg til þessara tilrauna?
— Nei, ég hef alltaf verið þeirr-
ar skoðunar, að hún sé óhentug i
þessu skyni, og sagði það strax og
ég heyrði að þetta stæði til. Þessi
vél er „snarvend” ei'ns og við
segjum á okkar máli, en það þýð-
ir að þegar taka þarf afturábak er
vélin stöðvuð og sett i gang með
öfugri snúningsátt. Þetta orsakar
það að bruninn verður ófullkomn-
ari og sótmyndun meiri i strokk-
unum meðan vélin er að ná eðli-
legum snúningshraða. — Þetta
vandamál er úr sögunni með til-
komu skiptiskrúfunnar. — Hitt vil
ég segja, að ef tilraunirnar i skipi
eins og þessu verða jákvæðar þá
ætti það að verða leikur að brenna
svartoliu i öllum okkar togurum.
— Nú hefur þú verið 1. vélstjóri
þann tima sem núverandi tilraun-
ir hafa staðið. Hvað viltu segja
um þær; hefur borið á óeðlilegu
sliti og hvað um viðhald vélarinn-
ar miðað við gasoliubrennslu?
— Já, þessar tilraunir byrjuðu
1. sept. s.l. og Gunnar Bjarnason
fór með okkur fyrsta túrinn. Nú
er leitazt við að fylgjast sem ná-
kvæmlegast meö áhrifum þessar-
ar oliu á vélarhlutana. Við höfum
með reglulegu millibili tekið upp
bullur, og loka, (dýsur, útblást-
urs- og eldneytisloka).
Eins og ég sagöi áöan tel ég að
slitið hafi fyrst og fremst stafað
af ónógri strokkasmurningu. Hún
hefur nú verið aukin og gerðar
verða tilraunir með mismunandi
magn i þvi sambandi, um leið og
gerðar verða samanburðarmæl-
ingar á sliti. Ég geri ekki ráð fyrir
að endanlegar niðurstöður af
þessum tilraunum muni liggja
fyrir fyrr en eftir 1/2 ár.
— En hvað þá um viðhald?
— Eg tel að það verði sáralitið
meira. Svartoliuna þarf að skilja
og i Narfanum er „eldri gerð” af
skilvindu, sem þarf að hand-
hreinsa. Þessa skilvindu þurfum
við að hreinsa einu sinni á sólar-
hring, ef allt er eðlilegt, og það
verk tekur um 1/2 klst. Þétta er
aukavinna vegna svartoliunnar.
1 nýrri gerðum skilvinda fer
þessi heinsun fram með þvi að
þrýst er á hnapp: sem sagt sjálf-
virk hreinsun.
Sama máli gegnir um óþrifnað,
að hann er ekki meiri, ef skipið er
útbúið fyrir þessa oliu. — Ég vil
taka það fram, að sú svartolia,
sem við höfum verið með nú i
þessa þrjá mánuði, hefur verið
nokkuð misjöfn, og það getur haft
sitt að segja.
Við höfum gert ýmsar tilraunir
með smuroliuna, en of langt mál
yrði sjálfsagt að lýsa þeim i
blaðaviðtali. Ég vil þó aðeins geta
þess að það sem menn óttuðust
var að svartolian myndi orsaka
hærra sýrustig i oliunni. Efna-
greining hefur hins vegar leitt i
ljós, að með réttri oliutegund
virðist ástæðulaust að óttast
þetla. — Einnig voru menn
hræddir um að útblásturslokarnir
myndu „brenna” meira, en með
þeim búnaði sem nú er kominn á
markaðinn og snýr lokanum með-
an hann er að lokast (Rotomat) er
þetta vandamái úr sögunni.
— Þú ert þá nokkuð bjartsýnn á
þessar tilraunir?
— Það má segja að útkoma
þessa ársfjórðungs sé mjög já-
kvæð, og ég er tilraununum al-
gerlega meðmæltur og ekki sizt
þar sem hér á i hlut gömul og
slitin vél. Ef þetta mistekst mun
enginn lita við þessu, en ef það
tekst með góðum árangri að
brenna svartoliu i jafngamalli vél
og þessari þá munu allir vilja
hverfa að svartoliunni. — Um
fjárhagslega ávinninginn gæti
Ólafur Eiriksson tæknifræðingur,
sem átt hefur stærstan þátt i að
koma þessum athugunum af stað,
sjálfsagt veitt þér ýmsar upplýs-
ingar. En ég vil að endingu segja
að það getur kostað óhemju fé að
breyta yfir i svartolíubúnað, og
þess vegna er það svo mikilvægt
að nýju skipin verði frá upphafi
búin þessum búnaði ef niðurstöð-
ur tilraunanna verða jákvæðar.
—gg
AÐILUM FJÖLGAR AÐ
FISKIFÉLAGI
i öndverðum desember var
kallað saman Fiskiþing til aö
fjalla um breytingar á lögum og
skipulagi Fiskifélags islands.
Forseti þingsins var kjörinn Niels
ingvarsson og ritari Margeir
Jónsson.
Félagsleg uppbygging Fiskifé-
lags hefur ekki þótt fylgja kröfum
timans. Hefur félagið svo til ein-
göngu mótazt af mönnum er ifást
aðeins við fiskveiðar.
Samkvæmt hinum nýju lögum
öðlast 11 sérsambönd og félög
starfandi i sjávarútvegi aðild að
Fiskifélaginu.
Þau eru Landssamband is-
lenzkra útvegsmanna, Félag is-
lenzkra botnvörpuskipaeigenda,
Sjómannasamband Islands, Far-
manna- og íiskimannasamband
Islands, Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna, Félag sambands fisk-
framleiðenda, Sölusamband is-
lenzkra fiskframleiðenda, Félag
sildarsaltenda á Norður- og
Austurlandi, Félag sildarsalt-
enda á Suðvesturlandi, Samlag
skreiðarframleiðenda og Félag
islenzkra fiskimjölsframleið-
enda.
Samkvæmt hinum nýju lögum
voru eftirtaldir menn kjörnir i
stjórn Fiskifélagsins: Aðalmenn
Andrés Finnbogason, Eyjólfur ís-
feld, Jón Karlsson og Jón
Sigurðsson. Varamenn þeirra
voru kjörnir Ingólfur Stefánsson,
Jónas Jónsson, Tómas Þorvalds-
son og Karl Auðunsson. Voru
þessir menn kosnir til viðbótar
þeim er fyrir voru i stjórn félags-
ins. Eiga nú sæti i aðalstjórn 11
menn.
Allt til
athugunar
og umræðu
Þjóðhátiðarnefnd 1974 vill, að
gefnu tilefni, taka fram, að hún
telur engar hugmyndir um minn-
ingarathafnir vegna 1100 ára
byggðar i landinu slikar, að ekki
séu athugunarhæfar og umræðu.