Þjóðviljinn - 13.12.1972, Qupperneq 11
Miðvikudagur 13. desember 1972 JjJóÐVILJINN — SÍÐA 11
GKTRAtlNASPÁ
/«v
Þá erum við komin að siðasta
seðlinum á þessu ári.
Getraunastarfsemin hefst svo
aftur 6. janúar, cn hún liggur
alveg niðri yfir hátiðirnar.
Knn gekk okkur afieitlega á
siðasta seðli, aðeins 4 réttir.
Maður fer nú að verða
langeygur eftir þvi að ná i svona
7 til 8 rétta, það kom þó fyrir i
fyrra en virðist alveg brunnið
fyrir að slikt geti gerzt nú. En
úrslitin á siðasta seðli uröu
þessi:
X Birmingh,—Leicester 1-1
1 Chelsea—Norwich 3-1
1 Derby—Coventry 2-0
2 Everton—Wolves 0-1
1 Ipswich—C.Palace 2-1
1 Leeds—West Ham 1-0
2 Manch. Utd.— Stoke 0-2
X Newcastle—Southampt. 0-0
X Sheff. Utd.—Manch. City 1-1
2Tottenh,—Arsenal 1-2
X WBA—Liverpool 1-1
2Preston—Blackp. 0-3
Og þá er staðan i 1. deild og 2.
deild þessi:
Liverpool 21 13 5 3 42 25 31
Arsenal 22 12 5 5 29 22 29
Leeds 21 11 6 4 39 24 28
Ipswich 21 9 8 4 29 22 26
Chelsea 21 8 8 5 32 25 24
Tottenh. 21 9 5 7 28 23 23
Derby 21 10 3 8 27 30 23
Newcastle 20 9 4 7 33 28 22
West Ham 21 8 5 8 37 29 21
Southampt. 21 6 9 6 22 21 21
Wolves 21 8 5 8 33 34 21
Coventry 21 8 5 8 21 22 21
Norwich 21 8 5 8 22 30 21
Manch. City 21 8 4 9 30 32 20
Everton 21 7 4 10 21 22 18
Birmingh. 22 5 7 10 28 35 17
Sheff. Utd. 20 6 5 9 20 29 17
Stoke 21 5 6 10 31 34 16
WBA. 21 5 6 10 21 30 16
Manch. Utd. 21 5 6 10 20 29 16
Leicester 20 4 7 9 22 28 15
C. Palace 20 3 8 9 16 29 14
Burnley 20 10 9 1 34 19 29
Blackp. 21 10 7 4 35 21 27
QPR 21 9 9 3 37 26 27
Aston Villa 20 9 6 5 21 18 24
Luton 20 9 5 6 28 23 23
Preston 21 9 5 7 20 18 23
Middlesb. 21 8 7 6 20 23 23
Oxford 21 9 4 8 26 22 22
Sheff. Wed. 22 8 5 9 36 34 21
Bristol C. 21 7 7 7 25 26 21
Nott. For. 21 7 7 7 22 26 21
Fulham 20 6 8 6 26 24 20
Swindon 21 6 8 7 29 31 20
Carlisle 20 7 5 8 27 26 19
Hull 21 6 7 8 28 27 19
Huddersf. 21 5 9 7 19 24 19
Millwall 21 7 4 10 27 26 18
Orient 21 5 8 8 20 26 18
Sunderl. 20 5 7 8 26 32 17
Cardiff 20 7 3 10 26 33 17
Pourtsm. 21 5 5 11 22 31 15
Brighton 21 2 9 10 23 41 13
Snúum okkur þá að næsta
seðli, sem er eins og áður segir
siðasti seðillinn fyrir jól.
Arsenal — WBA 1
Arsenal virðist vera búið að
jafna sig eftir stóra áfallið gegn
Derby á dögunum 9:5 tapið og
vinnur nú hvern leikinn á fætur
öðrum. Það gétur þvi varla
talizt goðgá að spá þvi sigri
gegn WBA og það á heimavelli.
Coventry — Norwich 1.
Coventry hafði ekki tapað leik
i margar vikur er það tapaði
næstsiðasta leik sinum,og svo
aftur á laugardaginn tapaði það
fyrir Derby, sem siglir hraðbyri
upp stigatöfluna. Þrátt fyrir
þessi tvö töp i röð spáum viö
Coventry sigri á heimavelli
gegn Norwich.
C. Palace — Man. Utd. 2.
Þarna mætast neðsta og 3ja
neðsta liðið i 1. deild, og þótt
Manchester-liðið leiki á útivelli
spáum við þvi sigri. Ég hef ekki
nokkra trú að að Man.Utd. verði
i fallbaráttu, þótt illa hafi
gengið hjá liðinu til þessa.
Derby — Newcastle 1
Um þennan leik þarf ekki að
fara mörgum orðum. Derby á
heimavelli og maður hlýtur að
spá þvi sigri.
Everton — Tottenham 2
Tottenham tapaði á
heimavelli gegn Arsenal um
siðustu helgi, en Everton er
ekkert Arsenal-lið og við spáum
Tottenham sigri þótt á útivelli
sé.
Ipswich — Liverpool 1
Djörf spá að visu,en þess ber
að geta að Ipswich hefur ekki
tapað leik i einar 8 vikur og er
nú komið i 4 sæti. Ég spái þvi
sigri á heimavelli gegn
Liverpool.
Leeds — Birmingham 1
Um þennan leik þarf ekki
miklar vangaveltur, Leeds á
heimavelli gegn Birmingham,
dettur nokkrum i hug að spá
öðru en heimasigri?
Man. City — South’pton 1
Að visu leikur City án Francis
Lee i þessum leik, þar eð hann
var rekinn af leikvelli um sið-
ustu helgi. En eigi að siður hef
ég ekki trú á að Southampton
nái stigi útúr þessari viðureign.
Shcff. Utd. — Leicester X
Þetta er leikur sem mjög
erfitt er að spá um. Manni finnst
að jafnt útisigur sem heima-
sigur komi til greina, en við
skulum láta exið standa.
West Ham — Stoke 1
Stoke vann óvæntan sigur á
útivelli á laugardaginn gegn
Man. Utd. Ég hef ekki trú á að
liðið leiki það eftir gegn West
Ham að þessu sinni.
Wolves — Chelsea 1
Úlfarnir virðast vera farnir
að rétta úr kútnum aftur eftir
mjög slæman kafla um tíma
undanfarið. Það er ef til vill
dálitið djarft að spá þeim sigri
að þessu sinni; jafntefli kæmi
sjálfsagt vel til greina, en við
látum heimasigur standa.
Bristol City — Burnley 2
Jafnvel á útivelli ætti Burnley
ekki að vera i minnstu taphættu
gegn Bristol. og þvi setjum við
hiklaust 2 fyrir aftan þennan
leik.
Francis Lee,
Man. City, var
rekinn af leik-
velli á laugar-
daginn var og
lcndir þvi i leik-
banni og leikur
ekki meö City
um næstu helgi.
Iþróttafólk ársins
Shanc Gould er ótvirætt mcsta
sundkona heiins i dag þótt hún
sé ekki jafn mikil afrckskona i
iþróttinni og Mark Spitz er i
karlagreinunum. Ilún er nú
eins og hann viða kjörin
iþróttakona ársins.
Um allan heim er nú
verið að velja íþrót+a-
*mann ársins og eru það
iþróttafréttamenn hinna
ýmsu f réttastof nana
sem gera það eða þá að
þessar stofnanir láta
almenning gera það
fyrir sig.
Bandaríski sund-
maðurinn AAark Spitz
hefur sigrað í þessum
kosningum svo til
undantekningalaust
hvarsem er i veröldinni.
Nú siðast sigraði hann i
kosningu hjá UPI-frétta-
stofunni bandarísku, en
íþróttakona ársins var
kosin Shane Gould,
sundkonan ástralska.
Þetta er i f yrsta sinn sem
fólk úr sömu iþrótta-
grein vinnur i kosningu
hjá þessari stóru frétta-
stofu.
Mark Spitz hinn ókrýndi kon-
ungur sundmanna er nú hvar-
vetna valinn iþróttamaður
ársins og er það að vonum.
l.-deildarkeppnin i handknatt-
lcik heldur áfram i kvöld og leika
þá l'yrst Armann og Fram, en
siðan Vikingur — KK.
Allt útlit er fyrir að fyrri leik-
urinn veröi ójafn. Fram ætti ekki
að vera i nokkrum vandræðum
með að sigra Ármann, sem ekki
hefur hlotið stig úr 4 leikjum sin-
um i mótinu. F'ram sýndi mjög
góðan leik á móti Vfkingi um
siöustu helgi og vann þá léttan
sigur. Þó skulum við gera okkur
grein fyrir þvi að það hefur oftar
en einu sinni eða tvisvar gerzt i
boltaleikjum að það liðið sem
enginn átti von á að myndi sigra
hefur komið öllum á óvart og
unnið leikinn. Allt getur gerzt i
iþróttum.
Siðari leikurinn milli Vikings og
KR verður áreiðanlega jafn og
skemmtilegur. Þessi lið eru
nokkuð áþekk að styrkleika.
Víkingarnir leika skemmtilegan
sóknarleik en eru algerlega
varnarlausir og markvarzlan er
afar slök. Hins vegar er mark-
varzla KR góð og vörnin getur
leikið ágætlega. Þá hefur KR
skemmtilegum sóknarleikmönn-
um á að skipa, sem áreiðanlega
eiga eftir að ylja Vikingsvörninni
undir uggum.
r
Isl. bók um
Olympíu-
leikana
Bókaútgáfan örn og Örlygur
h/f hcfur gefið út bók um
Óly mpiuleikana i Miinchen og
Sapporo á þessu ári i samantekt
Steinars J. Lúðvikssonar iþrótta-
fréttamanns.
Þarna er um nokkuö stóra bók
að ræða, 221 bls. og er hún skreytt
mörgum myndum frá keppni,
sorg og gleði leikanna. Scm upp-
sláttarrit er bókin mjög góö og
hún er skrifuö þannig að þcir sem
áhuga hafa á iþróttum lesa hana
áreiðanlcga með mikilli ánægju.
Nokkuð er af áberandi villum i
bókinni scm lýta hana og eins cru
myndirnar ekki nógu góðar. En
bókin er vcl skrifuö og mikill
fengur fyrir alla scm unna iþrótt-
1 um.