Þjóðviljinn - 13.12.1972, Page 15
MiAvikudagur 13. desember 1972 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 15.
HÞ 1972
Þessi hill er uAalvinniiigurinn i HappdraeUi Þjóílviljans.
Allir dagar skiladagar
A Þorláksmessu verður dregið i Happdrætti Þjóðviljans. Þvi eru
allir dagar skiladagar, en tekið er á móti skilum á afgreiðslu
blaðsins Skólavörðustig 19 og á skrifstofu Alþýðubandalagsins
Grettisgötu 3, á báðum stöðum til klukkan 6.
Þá taka umboðsmenn úti á landi við skilum hver á sinum stað.
Umboðsmenn úti á landi eru:
Umboðsmenn happdrættis
Þjóðviljans úti á landi
Ileykjaneskjördæmi:
Kópavogur:
Vesturbær: Ólöf Hraunfjörð, Holtagerði 74.
Austurbær: Lovisa Hannesdóttir, Bræðratungu 19.
Garðahreppur: Mjöll Einarsd. Aratúni 18.
Hafnarfjörður: Helgi Vilhjálmsson, Kaplakrika 1.
Mosfellssveit: Runólfur Jónsson, Reykjalundi.
Keflavik: Gestur Auðunsson, Birkiteigi 18.
Njarðvikur: Oddbergur Eiriksson, Grundarvegi 17A.
Sandgerði: Hjörtur B. Helgason, Uppsalavegi 6.
Gerðahreppur: Sigurður Hallmannsson, Hrauni.
Vesturlandskjördæmi:
Akranes: Guðmundur M. Jónsson, Suðurgötu 102B.
Borgarncs: Halldór Brynjúlfson, Böðvarsgötu 6.
Stykkishólmur: Ólafur Jónsson.
Grundarfjörður: Jóhann Asmundsson, Kverná.
Iiellissandur: Daniel Guðmundsson.
ólafsvik: Sveinbjörn Þórðarson, Grundarbraut 24.
Dalasýsla: Sigurður Lárusson, Tjaldanesi, Saurbæjarhr.
Vestí'jarðakjördæmi:
isafjöröur: Halldór Ólafsson, bókavörður.
Súgandafjörður: Gisli Guðmundsson, Suðureyri.
Dýrafjörður: Guðmundur Friðgeir Magnúss., Þingeyri.
Norðurlandskjördæmi vestra:
Siglufjörður: Kolbeinn Friðbjarnarson, Bifreiðastöðinni.
Sauðárkrókur: Hulda Sigurbjörnsdóttir, Skagfj.br. 37.
Skagaströnd: Friðjón Guðmundsson.
Klönduós: Guðmundur Theódórsson.
Norðurlandskjördæmi eystra:
Ólafsfjörður: Særaundur Ólafsson, Ólafsvegi 2.
Dalvik: Hjörleifur Jóhannsson, Stórhólsv. 3.
Akureyri: Einar Kristjánsson, Þingvallastr. 26.
Húsavik: Snær Karlsson, Uppsalavegi 29.
Austurlandskjördæmi:
Fljótsdalshérað: Sveinn Arnas., Egilsstaðakauptúni.
Seyðisfjörður: Jóhann Sveinbjörnsson, Garðavegi 6.
Neskaupstaður: Bjarni Þórðarson, bæjarstj.
Eskifjörður: Alfreð Guðnason.
Reyðarfjörður: Björn Jónsson, Kaupfélaginu.
Fáskrúösfjörður: Baldur Bjarnason, Kaupvangi.
Austur-Skaftafellssýsla : Benedikt Þorsteinss., Höfn,
Horfnafirði.
Suðuiiandskjördæmi:
Selfoss: Snorri Sigfinnsson, Vallholti 18.
Hveragerði: Sigmundur Guðmundss., Heiðmörk 58.
Stokkseyri: Frimann Sigurðsson, Jaðri.
Vestur-Skaftafellssýsla: Magnús Þórðars., Vik i Mýrdal.
Vestmannacyjar: Tryggvi Gunnarss., Strembugötu 2.
Þökkum innilega auðsýndá samúð og hlýjug við andlát og
útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður, afa og
bróður,
FRÍMANNS HELGASONAR, verkstjóra.
Margrét Stefánsdóttir, *
Ilöskuldur Frimannsson,
Guðrún Frimannsdóttir, Fcrdinand Alfreðsson,
Hanna Frímannsdóttir, Heiðar Astvaldsson,
barnabörn, sýstkini og aðrir aðstandendur hins látna.
Hér kemur
lykilorðið —-
loksins
1 sunnudagsblaði Þjóð-
viljans urðu þau leiðu mistök,
að lykilorðið i krossgátunni
var ekki með og þess vegna
var gátan að sjálfsögðu
óleysanleg. Og þá komumst
við að þvi hversu vinsæl hin
sérstæða gáta er. Fjöldi
manns hefur hringt og borið
fram kvartanir sinar . Þetta
fólk biðjum við afsökunar á
mistökunum og birtum hér
lykilorðið loksins: 1 efstu
reitaröð lengst til vinstri
(reitir 1., 2., 3., 4., 5. og 6) á að
vera orðið „Hvalur” og
samkvæmt þvi á að ver-a unnt
að ráða krossgátuna.
Tunglferðin
Framhald af bls. 16.
staðnum er sennilega stykki, sem
ýtzt hefur upp, af fyrstu tungl-
skorpunni, kannski frá upphafi
tunglsins fyrir 4,6 miljörðum ára.
Auk þessa fjalls eiga tunglfararn-
ir að rannsaka, hvort svarti
massinn, sem þeir lentu á, sé
öskulag eftir eldgos fyrir kannski
aðeins einum miljarði ára.
Cernan og Schmitt áttu að fá
átta tima svefn eftir fyrstu tungl-
gönguna, svo þeir geta ekki lagt
af stað i aðra ferð fyrr en aðfara-
nótt miðvikudagsins að
evrópskum tima. Geimfarinn
Ronald Evans, sem fer nú einn
hringinn i kringum tunglið i
geimfarinu, átti lika að sofa átta
tima i dag.
Skýrslan
Framhald af bls. 1.
skýrslu sinni allýtarlega grein
fyrirþeim valkostum, sem fjallað
er um i skýrslunni, en varðandi
vanda efnahagsmálanna segir
m.a.:
„I þjóðhagsspánni er gert ráð
fyrira.m.k. 7—8% almennri verð-
hækkun og 13—14% hækkun kaup-
taxta að ársmeðaltali 1973” — og
siðar segir: ,,A forsendum þjóð-
hagsspárinnar skortir um
1000—1200 miljónir króna á tekjur
rikissjóðs til þess að ná endum
saman”.
Um vanda útflutningsatvinnu-
vega segir m.a.: ,,A forsendum
þjóðhagsspárinnar má búast við
miklum hallarekstri fyrirtækja i
sjávarútvegi (A öllum greinum
nema fiskmjölsvinnslu og loðnu-
veiðum). Tapið i heild gæti numið
700—950 miljónum króna, en ef
hagnaður fiskmjölsvinnslu er tal-
inn fráy 1000—1200 milj. kr.”. Og
bætt er við, að búast mætti við um
100 miljón króna halla i iðnaði.
Fyrir utan fjármál rikisins og
atvinnuveganna er einnig getið
um fjárskort hinna ýmsu fjárfest-
ingarsjóða.
Bókmennta-
kvöld hjá
SÚM-
félögum
1 vetur hefur SÚM bryddað
upp á þeirri nýbreytni, i sam-
vinnu við unga rithöfunda, að
efna til bókmenntakvölda i
Galleri SÚM við Vatnsstig;
verður seinna bókmennta-
kvöldið á þessu ári i dag, mið-
vikudaginn 13. desember og
hefst klukkan 8,30. Þar munu
þau Arni Larsson, Steinunn
Sigurðardóttir, Vésteinn Lúð-
viksson og Þorsteinn frá
Hamri lesa úr verkum sinum
og lesiö verður úr nýjustu
skáldsögu Þráins Bertelsson-
ar.
Að dagskrá lokinni verður
orðið gefið frjálst til umræðu
um verkin og islenzkar bók-
menntir almennt.
265 létust úr
hungri
og þorsta
LUSAKA 12/12 — Um 265 með-
limir i trúflokknum Vitni Jehóva
liafa látizt i flóttamannabúðum i
Zambiu eftir að þeir urðu að flýja
frá Malawi i september, þar sem
trúflokkurinn var bannaður.
Óháða blaðið „Times of
Zambia” skýrir frá þessu i dag og
segir innanrikisráðherra landsins
i viðtali við blaðið, að dánaror-
sökin sé skortur á drykkjarvatni.
Nokkrir hafa lika dáið úr nær-
ingarskorti, segir hann.
Nú er reiknað með að 19 þúsund
vitni Jehóva séu i Misale flótta-
mannabúðunum og fleiri bætast
við daglega. Búðirnar eru nálægt
bænum Chipata i austurhluta
landsins og er þeirra gætt af lög-
reglu og blaðamönnum ekki
leyfðar heimsóknir.
Vitni Jehova tóku að flýja yfir
landamærin til Zambiu og
Mozambique i september eftir að
yfirvöld i Malawi hófu aðgerðir
gegn einstökum meðlimum trú-
flokksins. Hann var bannaður i
Malawi 1967.
Óska sigurs
Framhald af bls. 1.
margar og itarlegar, og ræddu
einnig við blaðamenn frá Boston,
New Bedford og aðra blaðamenn
sem voru viöstaddir á fundinum.
Margir fundarmenn tóku til
máls og skýrðu sumir frá þvi, að
þeir hefðu skrifað þingmönnum
sinum, ráðuneytum og rikisstjórn
til að spyrjast fyrir um ástæðuna
fyrir þvi, að Bandarikjastjórn
veitti ekki Islandi lið i landhelgis-
málinu og til að hvetja ráðamenn
til að styðja málstað tslands.
lslenzku nefndarmennirnir
leiðréttu ýmsar rangfærslur og
misskilning um landhelgismálið
sem birzt hafa i bandariskum
blöðum frá brezkum fréttaritur-
um og spurt var um á fundinum.
Forseti Samvinnufélags fiski-
manna i Rhode Island, Jacob J.
Dykstra, lýsti yfir stuðningi fé-
lags sins við baráttu tstendinga
og ræddi um leið mismunandi
viðhorf bandariskra fiskimanna,
sem stunda veiðar á heimamið-
um og úthafsmiðum. Forseti fisk-
kaupmanna i New Bedford,
Howard Nickerson, skýrði frá
viðræöum sinum við ráðamenn i
Washington um stuðning við Is-
lendinga i landhelgismálinu.
Fleiri fundarmenn lýstu yfir
stuðningi sinum og félagssam-
taka sinna við málstað Islands og
óskuðu tslendingum sigurs i land-
helgismálinu.
ALLIR VEGIR
FÆRIR Á
Yokohama
SNJÓBÖRÐUM
HJÓLBARÐA”
VIÐGERÐ KÁ
SELFOSSI
ökkiir vantar
fólk til að bera
út biaðið
iBlaðburðarfólk óskast i
eftirtalin hverfi:
Hjaröarhaga
Skjól
Seltjarnarnes 1 og 2
Miðbæ
Sogamýri
Nökkvavog
DWÐVIUINN
Ódýr náttföt
Herra, poplin kr. 395/-
Drengja, poplin kr. 295/-
Telpnanáttföt l'rá kr. 200/-
Lilliskógur
Snoiiabi'aut 22, siini 32612.
5 KG AF EPLUM 200 KR.
5 KG AF APPELSÍNUM 200 KR.
MANDARÍNUR 80 KR. KG.
2 DÓSIR PERUR 210 KR.
:i DÓSIR FERSKJUR 195 KR.
4 PAKKAR TEKEX 100 KR.
IIRÍSGRJÓN FÁST HJÁ OKKUR.
ItÚSÍNUR, 1/2 KG. POKI 45 KR.,
25 KR. 1/4 KG.
JÓLASÆLGÆTI — MIKIÐ ÚRVAL.
Matvörumiðstöðin
Leirubakka, Breiðholti, simi 81290.
Matvörumiðstöðin
á horni Laugalækjar og Rauðalækjar,
simi 35325.