Þjóðviljinn - 24.12.1972, Síða 1

Þjóðviljinn - 24.12.1972, Síða 1
Þjóðviljinn 32 síður í dag — Blað II (gkÖtlesfól öðrumstilen þeim,sem forfeðrum hans þótti fegurstur og gerði, svo að aftur sé vitnað i formála Kvæðakvers, ,,til- raunir i ljóðrænum vinnubrögðum, rannsóknir á þanþoli ljóðstilsins, eins konar landkannanir, bæði i heimi hins raunhæfa og hins óraunhæfa, hins venjulega og hins ó- venjulega, hins hversdagslega og hins fáránlega, hins hlutkenda og hins óhlutkenda. Ég vona”, segir hann enn- l'remur, ,,að sumstaðar hafi ég fundið nýar leiðir og at- liyglisverðar aðferðir, sem aðrir gætu haft til hliðsjónar, án þess að það þyrfti nokkuð að skerða þeirra eigin frum- leik". En i áðurnefndri afstöðu Halldórs felst einnig það, að endurskoðun hans er bundin vissum sviðum. Hann gerir t.d. öngva teljandi uppreisn gegn bragforminu sjálfu. Hrynjandi. stuðlar og rim eru ekki þau fyrirbæri, sem forð ast ber. 1 annan stað eru viðfangsefnin engan veginn ó- venjuleg: ástin, ættjörðin, guð og menn, svo að nokkuð sé nefnt. Loks eru kvæðin yfirleitt einföld og auðskilin. Hitt er annað mál, að gengið er i berhögg við rikjandi ljóðstil og túlkun kennda. Halldór er hundleiður á hefðbundnu ljóðmáli, hátiðleiki og venjuhelgað orðaprjál i kveðskap er eitur i beinum hans, að ekki sé talað um hinn klökka tón. Árið 1950 kemst hann svo að orði: „Þegar ég var að alast upp voru grátljóð i tisku. Þótti sá mestur maður, sem ámátlegast gat talið tölur sin- ar". Og siðar i sömu grein: ,,Að minsta kosti voru þetta timar, þegar skáld nokkurt orti frægt visuorð, reyndar ekki nema eitt, en þó nógu merkilegt til þess, að höfund- ur þess heíur eignast fastan sess i bókmenlasögu aldarinnar: ,,Mér fannst ég finna til” ”. (Dagur i senn bls. 19—20) í Kvæðakveri er enginn söknuður eða leiði ; heldur ekk- ert háfleygt spekimál. t margnefndum formála þess segir, að ljóðin séu velflest ort i þeim stil, sem nefndur er burlesque. Og orðrétt segir hann: „Byggíng margra þeirra er með hermiljóðabrag, enda sum þeirra beinar hermur, ýmist á eigin kvæðum eða annara, sum óbeinar. Enn mega nokkur þeirra kallast skopstælíngar á skáldlegu sálarástandi eða hugsunar- hætti yfirleitt”. Hér er rétt að staldra litið eitt við. Burleskur 1 jóðstíll var út af fyrirsig engin nýjung, heldur gamalþekkt aðl'erð til að gera virðuleg fyrirbæri spaugileg með þvi að svipta þau hefðbundnum hátiðleik og túlka þau sem hvern annan hversdagsleika. Alls konar hlutir, atvik og persónur sveipast óvæntum hugblæ vegna nýrra tengsla. Halldór á- varpar t.a.m. drottin með eftirfarandi orðum: llimneski Guö á livitum sólskinsskóm með huntlraö þiisund eldspýtur á lofti — Þá eru skopstælingarnar af likum toga spunnar. Kveðið eftir vin minn táknar skopstælingu á skáldlegu sálará- HALLDORS LAXNESS ÚTVARPSERINDI FLUTT 19. NÓVEMBER SL. „Þegar venjulegur maður, sem stundar einhverja aðra atvinnu en ljóðagerð, hefur orðir fyrir þeirri reynslu að skrifa nokkra metra af kvæðum, þá rennur sú stund ó- hjákvæmilega upp i lifi hans, að hann á um tvo kosti að velja, þann fyrri að kasta blöðunum i eldinn, þann sfðari að kasta þeim út i veður og vind. Þetta er sagan um mig og ljóð þau, sem hér koma fyrir almenníngssjónir. Nú er ég orðinn laungu leiður að hafa þetta á flækíngi á skrifborði minumilliannarablaða, sem snerta hið eigin- lega starf mitt, en ástæðan til þess, að ég sendi þau út i veður og vind, er ekki sú, að mér sé óljóst, að þau eru litilvæg, heldur hin, að nokkrir vinir minir gæddir ágætri dómgreind, hafa fyrirboðið mér að brenna þeim, og álita, að mörgum kunni að finnast þau skemtileg, þótt ég sé orðinn leiður á þeim. Nú má það i rauninni einu gilda, hvort kvæðum er brc nt eða þau gefin út, þvi góð kvæði lifa, þótt þeim sé bremt og vond kvæði deyja, þótt þau séu gefin út... Nú veit ég ekki, hvort nokkuð er gott i minum kvæðum, en það getur verið nógu gaman að láta timann prófa það. Þetta eru svona smá-hugleiðingar, sem eiga hvergi beinlinis heima i verkum minum, hafa flest orðið til á strætum úti, þegar ég var að spásséra, sum i bió, önnur á ferðalagi. En öll eiga þau sammerkt iþvi aðhafa orðið til vegna þess, að ekkert, sem ég kunni eftir önnur skáld, fullnægði tjáningarþörf minni i svipinn, svo mér var nauðugur einn kostur að yrkja sjálfur”. Enda þótt þessi formáli sé skrifaður i dálitið kæruleysis- legum tóni, þarf vist enginn, sem þekkir skáldið Halldór Laxenss að draga i efa, að hann hafi i alvöru hugleitt þann 1) f siöari útgáfunni hefur höfundur viða breytt orðalagi, og verður hér miðað við endanlega gerð. vanda að gerast ljóðskáld á islenzka tungu. Um Úngling- inn i skóginum, sem liklega er alvarlegasta tilraun hans til frumlegrar ljóðagerðar, segir hann löngu siðar: „Þetta litla kvæði var vetrarstarf mitt i Reykjavik 1924—25: ég orti það upp æ ofani æ mánuðum saman”. Um likt leyti og hann orti kvæðið ritaði hann stutta grein i Morgunblaðið i tilefni af fyrstu ljóðabók Tómasar Guð- mundssonar, Við sundin blá. Þar vill hann brýna tvennt íyrir bróður sinum i Braga. 1 fyrsta lagi að vanda val á höfundum til samanburðar og i annan stað að yrkja fyrir hina vandlátustu lesendur. Enginn höfundur skyldi sniða stakk sinn að skapi annarra en þeirra, sem vitrastir eru samtímismanna hans, ef hann yrkir fyrir nokkra lesendur á annað borð. Þessum ábendingum fylgir svo m.a. eftir- farandi hugleiðing: „Fyrsta skilyrðið til þess, að nokkur andans maður skari fram úr samtið sinni er það, að hann sé barn sam- tiðar sinnar, markaður hennar æðstu menning eða úthrópuðu ómenning. Skáld, sem er aftur úr, kemur eins og veislugestur eftir dúk og disk”. Þetta merkir þó ekki, að Halldóri þyki nýr skáldskapur endilega betri en gamall. „Ég er”, segir hann i sömu grein „fyrirfram trúlaus á þá siskulistamenn, sem geta ekki kropið fyrir snilld fortiðarinnar, og ég álit sniild nýju list- anna ekki hóti æðri hinni fornu snilld, munurinn ekki á gæðum i minum augum, heldur á viðfangsefnum, aðferð- um og sviðum”. En þetta haggar ekki þeirri staðreynd, að nýr lifsstiH krefst endurnýjaðs ljóðstHs. Að dómi Halldórs eru íslendingar orðnir 20—50 árum á eftir i allri hugsun og hátterni. Þegar þessi viðhorf og stefnumörkun er höfð i huga, get- ur enginn undrazt, þótt Halldór kvæði næstu árin i nokkuð standi. „Ég var” segir höfundur, ,,i of alþýðlegu eða hversdagslegu skapi til þess að geta hugsað á ljóðrænni gollrönsku um burtgeinginn meðbróður”. Þó fer ekki hjá þvi, aö lesandi . finni til samúðar með hinum burtkall- aða: Þú snýlir þér oft* í gardinur meö sigurhros á vör, og spýtir á bak við mublur mcö sigurhros á viir, cn aldrei varstu á þeirra bandi, seni máttu sin meir, meö sigurbros á vör, og þaö er ég ekki hcldur meö sigurbros á vör. Burleskur still er þekktur i Evrópubókmenntum siðan á miðöldum, og kunnur er hann hér á siðustu öld, einkum af ritum Gröndals i óbundnu máli. H. Laxness á þó ekki heið- urinn af að hafa innleitt hann i ljóðlistina fyrstur manna og i þessu efni var Þórbergur Þórðarson honum nærtæk fyrirmynd. 15 árum áður en Kvæðakver kom út hafði Þór- bergur sent frá sér ljóðakverið Hálfa skósóla, en þar mátti sjá, að púki fútúrismans hafði sparkað hinni við- kvæmu Ijóðrænu út i veður og vind, svo noluð séu orð skáldsins. Þannig hélt Þórbergur fram stefnunni i ljoða- gerð sinni, og i Hvitum hröfnum 1922 hæðist hann óspartað kynferðisvoli siðustu ljóðskálda vorra, eins og hann segir sjálfur. Þar er ekki heldur neinn skortur skopstælinga og hermiljóða. En þó að vissa þræði megi finna milli Hvitra hrafna og Kvæðakvers — og raunar fleiri en hér hafa verið raktir, eiga tilraunir Halldórs sér i aðalatriðum erlendar forsendur. Expressionismi og surrealismi voru öldur i Evrópulistum og bókmenntum, sem Halldór hafði borizt á i allmörg ár, áður en Kvæðakver hans kom út. Expressiónisminn, sem H. sjálfur hefur kallað kjarn Allt frá þvi er ljóð Halldórs Laxness tóku að sjást á prenti nálægt miðjum þriðja áratug þessarar aldar, munu flestir hafa litið á þau sem einhvers konar aukagetu i skáldskap hans, lággróður sem sprottið hafi i skugga stórra hlyna — skáldsagna og annarra prósaverka, sem skipa margfalt meira rúm i hinu mikla ritsafni hans. Þar við bætist, að i fyrstu munu kvæðin varla hafa veriö tekin alvarlega, enda eru þau flest — og þar á meðal öll hin nýstárlegustu — frá timanum, áður en þjóðin lærði að meta skáldið,þegar flestir litu á skáldskapartiltektir hans með tortryggni. Af öllu þessu leiðir, að minni styr hefur staðið um ljóð Halldórs en önnur rit hans. Þó væri með ólikindum, ef enginn hefði hrokkið við eða hneykslazt, og raunar eru viðbrögð alþingismanna staðfest dæmi þess: Er þeir sáu Unglinginn i skóginum árið 1925, felldu þeir umbeðna styrkveitingu handa skáldinu til að ferðast til ttaliu og skrifa Vefarann mikla. Halldór Laxness hefur sent frá sér tvær ljóðabækur, hina fyrri árið 1930 undir þvi viðhafnarlausa nafni Kvæða- kver, og hina siðari 1949 með sama nafni, enda tekið fram, að hér sé önnur útgáfa aukin. 1 fyrra kvæðakveri eru 32 kvæði, þegar brot eru reiknuð, en i hinu siðara 41 til við- bótar, flestyngri. Langflest eru frumsamin. Fjögur kvæði mega þó kallast þýðingar, en nokkur að auki stælingar. Og þá er ekki annað ótalið af kveðskap Halldórs en nokkrar stökur, brot og smákvæði, flest felld inn i önnur verk hans og ekki tekin upp i kvæðakverin, enda sumt ort siðar. 1) 1 siðari útgáfunni hefur höfundur viða breytt orðalagi, og verður hér miðað við endanlega gerð. 1 formála Kvæðakvers 1930 leitast Halldór við að skýra fyrir lesendum það tiltæki, sem útgáfa þessi sé; þar má greina afsökunartón og efa, sem tæpast á sér hliðstæðu i öðrum ummælum hans um eigin verk. Hann segir: ÓSKAR HALLDÓRSSON, LEKTOR: LJÓÐA- GERÐ

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.