Þjóðviljinn - 14.01.1973, Page 1
Kjurii Tríöui* Baldur
Ráðstefnu
herstöðva-
andstœð-
Kjaramálaráðstefna ASÍ
Vill niðurfellingu skatta
vegna „tekna” af íbúðum
Fylgjandi að tannlœknaþjónusta verði niðurgreidd -
hagur þeirra lœgstlaunuðu verði ekki skertur
inga lýkur
í dag
Helgarráðstefna Samtaka
hernámsandstæðinga um
skipulagsmál og næstu verk-
efni var sett i Félagsheimili
stúdcnta við Hringbraut i gær.
í dag verður sameiginlcgur
fundur allra þátttakenda kl.
14-18 i félagsheimilinu.
Fundarstjórar i dag eru
Bjarnfriður Leósdóttir og
Baldur óskarsson.
Danir viður-
kenna DDR
HOFN 13/1. — Danmörk og
Austur-Þýzkaland hafa undir-
ritað samkomulag um að taka
upp gagnkvæm stjórnmálaleg
tengsl. Tekur samkomulagið gildi
þegar i stað. Þá ákváðu löndin að
skiptast á sendiherrum. Þannig
fjölgar hratt þeim Natórikjum
sem bætt hafa Austur-Þýzkaland
inn á sitt pólitiska landakort.
Kjaramálaráöstefnu ASí
lauk um tvö leytið í
fyrrinótt og uröu talsvert
miklar umræöur um efna-
hagsmálin, en
skoöanir manna nokkuð
samhljóða. Raðstefnan
geröi eftirfarandi ályktun:
Vegna þeirra hugmynda sem
fram hafa komið af hálfu rikis-
stjórnarinnar um atriði hugsan-
legra aðgerða til þess að draga úr
vixlahækkunum verðlags og
kaupgjalds á þessu ári — ályktar
ráðstefna ASÍ um kjaramál,
haldin 12. janúar 1973, eftirfar-
andi:
I. Varðandi lækkun tekjuskatts og
aðrar skattabreytingar.
Rdðstefnan lýsir stuðningi við
þær hugmyndir sem fram eru
settar i minnisgrein rikis-
stjórnarinnar um lækkun tekju-
skatts og skatta þeirra, sem búa i
leiguhúsnæði. Þá telur ráðstefnan
hertskatteftirlit mjög jákvætt, en
bendir jafnframt á nauðsyn þess
að sérstakar ráðstafanir séu
gerðar tilað hefta skattsvik
þeirra aðila, sem geta i raun
ákveðið skatta sina sjálfir. Enn-
fremur telur ráðstefnan æskilegt
Frh. á bls. 15
Olof Palme um Víetnam:
Hikum ekki
við að segja
skoðun okkar
Fjölsóttur
umrœðufundur
Sá fyrsti af 18 vikuleg-
um umræöufundum
Alþýðubandalagsins í
Reykjavík var haldinn i
fyrradag. Fundurinn var
mjög vel sóttur, og var
salurinn að Grettisgötu 3
troðfullur. Fundarefnið
var ,,Baráttan gegn her-
stöðvum á íslandi fyrr
og nú" — og var Kjartan
Olafsson, ritstjóri, máls-
hef jandi.
Mikill áhugi rikti á fundin-
um lyrir eflingu baráttunnar
fyrir brottför hersins.
Næsti umræðufundur af
þessu tagi á vegum Alþýðu-
bandalagsins i Reykjavik
verður næstkomandi fimmtu-
dagskvöld að Gre'ttisgötu 3.
Fundarefnið verður „tslenzk
iðnvæðing, islenzkur sósial-
ismi”. Málshefjandi verður
Magnús Kjartansson, rdð-
herra.
Myndirnar sýna hluta
fundarmanna á fundinum i
fyrra dag.
Við ræðum við Ferdinand Ferdin-
andsson. elzta starfandi skósmið
landsins. um starfið fyrr og nú.
SJÁ OPNU
PARíS 13/1 — Olof
Palme lýsti þvi yfir í dag
aö ekki væri grundvöllur
fyrir sameiginlegum aö-
geröum Noröurlanda i
Vietnammálinu. ,,En ef
máliö snýst á verri veg
megum viö ekki hika við aö
segja skoðun okkar hátt og
snjallt" sagöi Palme á
blaöamannafundi stuttu
eftir komu sina til Parisar
þar sem hann tekur þátt i
fundi alþjóðasamtaka
sósíaldemókrata.
F’undur þessi hefur valdið mik-
illi taugaspennu i Paris. Lögregl-
an hefur viggirt fundarstaöinn
rammlega og allar mótmælaað-
gerðir hafa verið bannaðar.
Mestum áhyggjum veldur þátt-
taka Goldu Meir forsætisráð-
herra Israel. Hefur lögreglan
fengið fjölda sprengjuhótana i til-
efni komu hennar til Parisar.
Frh. á bls. 15
Friðvœnlegra í Vietnam?
Betri samninga-
horfur í París?
PARiS 13/1 — Margt
bendir til að höfuöágrein-
ingsefni Bandaríkjamanna
og Noröur-Vietnama séu aö
leysast og aö þeir séu reiðu-
búnir aö undirrita friðar-
samninga. Þetta er haft
eftir bandariskri sjón-
varpsstöð,en hvorki Banda-
rikjamenn sé Norður-Viet-
namar hafa tjáö sig um
málið.
Þeir Kissinger og Le Duc Tho
hófu fund i morgun og hafa við-
ræðurnar nú staðið i sex daga i
röð. 1 gær sátu þeir á fundi i 6
tima.
Bandarikjamenn sýna þó enga
linkind i sprengjukasti sinu. 1 gær
fóru hundr. sprengju- og árásar-
flugvéla i árásarferðir yfir Suður-
Vietnam og suðurhluta Norður-
Vietnams og köstuðu þær meðal
annars um 1200 tonnum af
sprengjum á svæði sem er um 60
kilómetra norðvestan við Saigon.
Yfirvöld i Saigon óttast að ÞFF
og Norður-Vietnamar séu að
draga saman liðssafnað á þessu
svæði og að þeir hafi i hyggju að
gera áhlaup á höfuðborgina.
1 Kambodju hertóku skæruliðar
niu stöðvar stjórnarhersins með-
fram Mekongánni og hafa þeir nú
stöðvað alla birgða- og vopna-
flutninga til höfuöborgarinnar
Pnom Penh, eftir ánni^en hún er
mjög mikilvæg samgönguæð á
þessum slóðum.