Þjóðviljinn - 14.01.1973, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 14.01.1973, Blaðsíða 5
Sunnudagur 14. janúar 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Er samhengi milli kaffidrykkju og kransœðastíflu? Það er gamalt máltæki að allt sem ánægjulegt er sé annaðhvort ósiðlegt eða heilsuspillandi. Nú telst hópi bandarískra lækna svo til, að kaffi, þjóðardrykkur islendinga, auki líkur á kransæðastfilu. Hópur fræðimanna við Læknaháskólann í Boston hefur á grundvelli athug- ana á 1380 sjúklingum komizt að þeirri niðurstöðu að þeim sem drekki meira en fimm bolla af kaffi á dag sé helmingi hættar við kransæðastíflu en þeim sem ekki drekkur kaffi. Einkum var konum hætt — ef þær drekka 12 bolla eða meira er þeim fjórum sinnum hættar við krans- æðastíflu en bindindisfólki á kaffi. Og þegar miklar sígarettureykingar bætast við, þá versna horfur kaffi- drykkjufólks enn meir. Ekki er vitað enn í hverju þetta samhengi milli kaffis og hjartasjúkdóma er fólgið. Sumir telja að í kaf f i sé ef ni sem haf i skað- leg áhrif á fitubúskap líkamans og þá kholester- innihald blóðsins. Aðrir Frh. á bls. 15 ODAL £©kur .meiifi/wíipiim Undanfarin ár hefur öðal við Austur- völl gert sér far um að bjóða gestum sínum aðeins úrvals mat og dýrar veigar, þegar þeir vildu gera sér dagamun. Nú hefur öðal ákveðið að breyta um stefnu. Maturinn verður jafngóður, ef ekki betri. Þjónustan verður vonandi óaðfinnanleg. Það eina, sem breytist verulega eru verðin. Þau breytast til hins betra. Stefnubreytingin felst í því, að þér eigið að geta heimsótt öðal og snætt góðan hádegis- eða kvöldverð án þess endilega að þér séuð að halda upp á afmæli eða sérstakt tilefni sé fyrir borð- haldinu. Þess vegna tekur öðal ofan sparisvipinn, breytir til, og býður yður réttan mat á góðu verði. Tökum til dæmis: Pönnusteikt smálúðuflök með sítrónu og smjöri kr. 195.00 Marineruð síld og kryddsíld með brauði og smjöri kr. 185.00 Lambahryggsneiðar með rauðvínssósu kr. 375.00 Grillsteiktar grísakótelettur með rís og karrý og steiktum hpetum kr. 375.00 Nautasteik öðals með bakaðri kartöflu og salati kr. 575.00 öðalskakan með jarðarberjum og hlaupi kr. 75.00 Meira þarf ekki að taka fram. Það er yðar að reyna og dæma eftir reynslunni. Gjörið svo vel. Góður matur á réttu verði OÐA V/ AUSTURVÖLL L»

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.