Þjóðviljinn - 14.01.1973, Síða 3

Þjóðviljinn - 14.01.1973, Síða 3
Sunnudagur 14. janúar 1973 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 3 Frá Grindavík Um líf eða dauða er að tefla Glugginn í beitingaskúrnum eins og lítið málverk eftir Scheving Enn erum við á ferð i gamla Járngerðarstaðahverfinu inn- an um gamla beitingaskúra, sem eru að sligast niður af elli og fúa. Við litum inn i þröng húsasundin full af lífi og sál, — glittir i rauða lóðabelgi fyrir enda þeirra og hvitt brimið við ströndina. Gasljós týrir i einum glugg- anum, og við göngum inn i einnbeitingaskúrinn og hittum þar fyrir formanninn á Vörðu- nesinu GK. Hann er að stokka upp linu og hagræða lóðaböl- um fyrir vertiðina. VörðunesiðeröOtonna bátur og er nýkominn úr vélahreins- un. Formaðurinn Sigurpáll Aðalsteinsson er einn af þrem- ur eigendum bátsins. Sigurpáll hefur róið á hverri vertið frá þvi hann var f jórtán ára og gerþekkir miðin þarna fyrir utan bæði fyrr og nú. Fiskigengdin hefur minnkað með árunum og einkum sið- ustu árin vegna rányrkju. Aður fyrr var mikill fiskur hér "GÓÐA VEIZLU GERA SKAL" BRÚÐKAUP, fermingarveizlur, afmælishóf, átthagafélagssamkomur eða annar mannfagnaður standa fyrir dyrum hjá einhverjum dag hvern. Þá vaknar spurningin: hvar skal halda hófið? Ef aðstæður leyfa ekki að hafa veizluna heima fyrir, þá er næst að hringja í Hótel Loftleiðir. Þar eru salarkynni fyrir hvers konar samkvæmi. Allar upplýsingar í síma 22322. Peir salta Hér er Sigurpáll Aðalgeirsson, skipstjóri á Vörðunesi GK 45, að huga að línunni. á grynnmgum. Nú þarf yfir- leitt að fara tvo og hálfan tima út á Selvogsbanka til þess að leggja linuna. Það hefur verið tregt á linu undanfarið vegna beitunnar. Við beitum sild úr Norðursjónum og veiðist illa á þessa beitu. Okkur vantar is- lenzka sild eða smokkfisk núna i byrjun vertiðar. Fiskurinn hefur þorrið hér á miðunum undanfarin ár, og hef ég merkt það betur sið- ustu árin. Fiskverð hefur hækkað til muna, en minni afli fæst ár frá ári. Við fengum 600 tonn á siðustu vertið. Var það i góðu meðallagi miðað við báta hér. Alvarlegir hlutir eru að ger- ast úti á miðunum. Fólk gerir sér ekki grein fyrir, hvað út- færsla landhelginnar i 50 mil- ur er mikilsverð fyrir aflahlut sjómanna og þjóðarbúskap- inn. Stundum finnst mér lagt undir lif eða dauði. Þá þarf að friða hrygningar- svæðin hér fyrir utan. f skúrnum er litill gluggi með hvitri umgerð, og sér út á æðandi brimið i rennunni, — nær, uppi á klöppinni, liggur rauð linubauja. Otsýnið um gluggann er eins og litið mál- verk eftir Gunnlaug Scheving. Það er stundum erfitt að komast á bátum gegnum rennuna inn i Grindavikur- höfn. Fyrir utan er endalaus Suðurströndin með hvitfext- um brimsköflunum. A þessari öld hafa nær tuttugu sjómenn týnt lifinu við að sigla inn i Grindavikurhöfn. Þetta sagði formaðurinn mér æðrulaus og tók i nefið. g.m. Viö litum inn i saltfisk- verkunarstöð Þorbjörns h.f. í Grindavík. Þeir voru nýbúnir að fletja nokkur tonn af ufsa og ætla síðan að salta hann og þurrka fyrir markað í S -Ameríku. Netabátar fá ekki annað en ufsa i netin, og leggja hér upp bátar eins og Hrafn Svein- bjarnarson, Hrafn Svein- bjarnarson II og Hrafn Svein- bjarnarson III. Fara tveir þeir fyrrnefndu á loðnu siðar á ver- tiðinni, en sá þriðji verður á netum alla vertiðina frá Grindavik. Þá leggur Alfta- nesið upp hjá þeim og verður á netum i vetur og ennfremur Ársæll Sigurðsson er vitjaði neta á mánudag. Ógæftir hafa verið siðustu daga, sagði Jón Árnason verk- stjóri. Ufsinn er bæði flakaður og saltaður og llka hertur. Um 15 manns starfar nú hjá Þor- birni h.f. i saltfiskverkunar- stöðinni. Þaö á eftir að fjölga upp i 30 menn er skarpasta hrotan gengur yfir á vertið- inni. Við höfum ágætan húsa- kost fyrir aðkomumenn er vinna hjá okkur. Þetta var rekið sem hótelbygging i Hjá Þorbirni h.f. unnu þeir við að pakka inn saltfiski. Talið frá vinstri: Evelyn Adólfsdóttir, Viggó Einarsson frá Vík i Mýrdal, Eyjólfur Eiriksson, matsmaöur, Pálus Vikraberg og Lena Poulsen. sumar fyrir stangveiðimenn. Stöðug vinna er hér i salt- fiskverkunarstöðinni frá kl. 8 á morgnana til kl. 18 á kvöldin Á vertiðinni i fyrra verk- uðum við 12 hundruð tonn af fiski upp úr salti. Þetta voru um 3600 tonn af fiski upp úr sjó, — netafiskur.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.