Þjóðviljinn - 14.01.1973, Page 16

Þjóðviljinn - 14.01.1973, Page 16
DlOBVIUINN Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykjavíkur, simi 18888. Sunnudagur 14. janúar 1973 N'æt'ur- kvöld- og helgar- þjónusta apótekanna 12.—18. janúar er i Lyfjabúðinni Ið- unni og Garðs Apóteki. Slysavaröstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Kvöld-, nætur og helgjdaga- vakl a heilsuvernarstöfiinni. Simi 21230. *)•) S0gu vit ætla at siga í kv^ld:” Eins og frá hefur verið skýrt hér i Þjóðviljanum er nú verið að sýna leikrit Jónasar Árnasonar, Þið munið hann Jörund, i Færeyjum undir stjórn Flosa Ólafssonar, i færeyskri þýðingu Jóhanns Hendriks W. Poulsen. Húsið sem sýningarnar fara fram i er álika að stærð og Iðnó, og þær sex sýningar, sem farið hafa fram á þeirri rúmri viku sem þær hafa verið i gangi, hefur húsið verið troðfullt og hrifning leikhúsgesta mikil. Aridu — ariduradey En hvernig litur Jörundur út upp á færeysku? Til þess að lesendur geti áttað sig á þvi birt- um við hér íæreysku þýðingu texta, sem var á allra vörum þegar Jörundur var sýndur hér- lendis, og er reyndar enn, — Aridu-ariduradey —. Og þá er það færeyskan: Sjígu vit ætla al siga i kv0ld iiin sjófaran Jprund hin knáa, sum kongur rikli hann við sóma og sann eitt summar á landinum bláa. Aridu — ariduradey arid uaridáa, suin kongur rikti hann við sóma og sann eilt summar á landinum hláa. í Danmork IVddist og ólsl hann upp, men frami ei har var at fáa. Tann knæhóndaljóö við sitt skurriljóð og kúbelj var lionuiu at hága. A hriggskipi ungur tii Onglands hann helt á aliluna vælhýrdur steig hann. li veiggj hans var nógv, og i saltan sjógv við serstókum hugnaði mcig hann. A skúturnar mangar hann mynstraði seg og niong vórð hans ævintýri. Ilann skil fekk brátt á, ollum torvur var á: kumpass og segl og stýri. ()g loks varð hannkapteyn'við koröuoghatt á keyplari av teimum friðu. Um lipvin stór og brcið nú lá hans leið Irá Lonilon til Australiu. Ja. almikið vann hann til Irægdar sær, mesl frægd var tó Jorundi lagaö tá liann kom á norðurslóö i hóslag við tjóð sum har antli við skraltómum maga. Samsæti til heiðurs Skúla á Ljótunnar- stöðum I’annig segir Flosi Ólafsson leikstjóri sinu fólki fyrir verkum. Þarna leggur hann aðstoðarleikstjóranum, eða hjálparleikstjóra eins og það á myndinni cr óli Kurt Hansen, Skúli Guðjónsson bóndi og rit- höfundur á Ljótunnarstöðum veröur 70 ára þann 30. þ.m. t tilefni þess hafa nokkrir vinir hans hug á að gangast fyrir sam- sæti honum til heiðurs i Atthaga- sal Hótel Sögu þann sama dag. Þeir sem vildu taka þátt i hófi þessu, eru vinsamlega beönir að hafa samband viö einhvern eftir- farandi: Blindrafélagið Hamrahliö 17, simi 38180 Pétur Sumarliöason simi 41522 Rósu Þorsteinsdóttur simi 36433, Torfa Jónsson simi 36363, Þórunni Magnúsdóttur simi 17952 heitir á færeysku, reglurnar. Næstur sem leikur Trampe greifa. Hvað segja svo Færeyingar sjálfir? Okkur langaði til að heyra færeyska rödd um leikritið. Við spurðum þvi Erlend Patursson, lögþingsmann um þetta um leið og við ræddum við hann i fyrra- dag. Erlendur sagði: — Eg segi allt gott um þetta. Menn skemmta sér vel og sumir sjá eitt og annað aktúelt út úr þessu. Að mörgu leyti á þetta vel við um Færeyjar i dag. Þjóðviljinn hefur fregnað að Klakksvikingar hafi boðið leikur- um Sjónleikarahússins að sýna Jörund i Klakksvik. Segjast Klakksvikurbúar munu tryggja 1000 manna aðsókn og vilja borga allan ferðakostnað leikaranna. Það má skjóta þvi að hér, að ibúar Klakksvikur eru 3400 talsins. Listin fyrir listina^ Kyrralifsmvnd árið 1972 hvað er nú það? i gær opnaöi Guðmundur Armann Sigurjónsson sýningu i Galleri Súm og verður sýningin opin til 28. janúar frá kl. 16 til 22 á degi hverjum. Myndir Guðmundar eru flestar gerðar á s.l. þremur til ljórum árum, og er forvitni- legt að sjá þróunina frá lands- lagsmálverkum yfir i raunsæ verk, þar sem teflt er saman bilum og landslagi, heræfing- um á Þingvöllum, þyrlu og krumma gamla. Þá má lita tvær sérkennilegar myndir, eins og Rósin á ströndinni, sem er gerð vegna skáld- legra áhrifa og Það ungur iiemur. sér gamall tcmur, en sú mynd var sýnd i Sviþjóð og lögðu menn ýmsan skilning i myndina. Á sýningunni er griðarstórt verk. sem var sýnt i Osló 1970 á sýningu þar sem listamenn fjölluðu um umferð og mengun. 1 siðustu myndum Guðmundar breytir allmjög um tón, en þær myndir eru i kommúnistiskum anda. Um þær segir Guðmundur: Ég fór að starfa með kommúnista- samtökum i Sviþjóð og stúdera sósialisma og lagði fram þekkingu mina til að gera plaköt fyrir samtök kommúnista i Sviþjóð og grafik myndir. Á sýningunni eru tiu verk af þvi tagi. Mig langaði að koma hugmvndum minum á framfæri i málverk- um og þar varð ég fyrir álirif- G u ð m u n d u r A r m a n n Sigurjónsson um sænsks listamanns, sem heitir Albin Amelin, og ég kynnti mér einnig rækilega verk öreigalistamanna á borð við Daumier og fleiri. Á undan þessum myndum gerði Guðmundur stóra mynd þar sem hann lýsir frati á Picasso og kúbisma hans og heitir myndin Listin fyrir listina, hvað er nú það? Guðmundur kennir nú á Akureyri en þar er nú mikill myndlistaráhugi og vonast hann til að hann og fleiri áhugamenn nyrðra geti stofnað þar skóla. sj.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.