Þjóðviljinn - 18.01.1973, Page 11
Fi 111111 tudagui’ 1S. jamiar 1!>7:í 1>JÓi)VILJINN — SÍÐA 11
Fiskar
Framhald ai ö. siðu.
trúa þér skaltu ekki búast við
neinni hjálp frá mér. Eg ætla ekki
að troða upp i sjónvarpinu eða
einhverju þiumliku. Nei, má ég
þá frekar biðja um Lófótar-
röstina.
Og blaðamaðurinn horfir á eftir
Nautiliusi renna mjúklega út
kanalinn og er allt
annað en hlátur i hug. Ekki nóg
með aö búið sé að loka i Laurits
Betjent heldur stendur maður hér
á hráslagalegum vetrarmorgni
og er þess fullviss að ekki nokkur
maður muni trúa sögunni — ekki
einu sinni þó að maður gæti sann-
að sitt mál með ljósmyndum.
Lesendur spyrja
Framhald af bls. 2.
um, en af þvi leiðir að sjálfsögðu
stór-brunahættu. Þá var óhjá-
kvæmilegt að rifa hann. Þetta var
fyrir 3 árum.
Þá er að þvi komið að bankinn
stendur frammi fyrir þvi að lag-
færa það, sem aflaga hafði farið i
fyrra skiptið, og reyna að ganga
þannig frá hliðinni, Pósthús-
strætismegin og horninu, að þetta
fari sæmilega við gömlu bygging-
una og sé bænum til prýði.
Til þess að bæta fyrir þau spjöll
sem áður höfðu verið unnin, sem
auðvitað verður aldrei gert að
fullu, gerir arkitekt tillögu i þessa
veru, sem felur i sér þennan
italska marmaravegg.
Það eru sem sé umhverfis-
sjónarmið sem mestu hafa ráðið
hér um. Þetta er að sjálfsögðu
mjög dýrt. Kostnaðartölur hef ég
ekki handbærar. Bankaráð og
bankastjórn tekur ákvörðun um
byggingaframkvæmdir bankans.
—Úþ
Opið bréf
Framhald af 4. siðu.
krefst þess, að slikt endurtaki sig
ekki.Nefndin undirstrikar nauð-
syn þess, að hlutlægar upplýsing-
ar um striðið i Vietnam komi
fram i fjölmiðlum rikisins, og
bendir á, að enn hafa frétta- og
fræðsludeildir útvarps aldrei leit-
að til hennar. Nefndin telur rétt-
mætt, að hún fái að koma fram i
fréttaskýringaþáttum Hljóövarps
og Sjónvarps.
Vietnamnefndin á islandi.
Örn
F’ramhald af bls. 7.
— Þessu er dálitið erfitt að
svara, en við erum að gera okkur
vonir um að geta selt hann, i
öðruvisi umbúðum en hingað til
heíur tiðkazt, á Bandarikja-
markaði, en undanfarið hefur
einungis verið markaður fyrir
hann i Tékkóslóvakiu og V-
Þýzkalandf; þar komumst við
ekki inn vegna tollmúra. Við höf-
um ekki getað fullnægt eftirspurn
i Tékkóslóvakiu vegna þess að
sjólaxinn hefur verið framleiddur
i það takmörkuðu magni hér
heima, og reksturinn þvi alltaf
verið óarðbær. Þetta er erfið
framleiðsla og krefst talsvert
mikils vinnuafls.
Þróunarsjóöur
og tilraunir
— Er ekki þarna svið fyrir
uppfinningafólk, matvælasér-
Iræðinga og göða kokka að
spreyta sig á — að þetta fólk geti
fundið upp nýjar aðferðir og nýja
rétti i sambandi við niðursuðuna?
— Jú, vissuiega. Eg get nefnt
þar súpumarkaðinn. en þarna
reiðum við okkur fyrst og fremst
á frumkvæði verksmiðjanna
sjálfra. þvi að þær verða að sjálf-
sögðu ábvrgar fyrir vexti sinum
og þróun. Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins kemur hér inn i
dæmið hún á að fvlgjast með
þróuninni og ge.ra tilraunir. Þá er
gert ráð fyrir tæknideiid innan
ramma okkar stofnunar. Eg hef
persónulega áhuga á þvi að fá til
landsins sérfræðinga sem g;etu
komið með meiri kraft og nýjar
hugmyndir. Við höfum þróunar-
sjóð. sem við fáum nokkuð reglu-
bundiö fé i þannig aö viö ættum að
geta sinnt þessari hlið starfsins á
næstunni. sj
Mótmælafundur
Framhald af bls. 3.
siðan 1. september, að brezk og v-
þýzk veiðiskip hafi ekki þverbrot-
ið islenzk lög um 50 milna fisk-
veiðilögsögu frá ströndum ts-
lands. Þegar viðleitni okkar ts-
lendinga i þá átt að bjarga auð-
æfum hafsins i kringum tsland
stendur sem hæst, eru þessar
miklu fiskveiðar innan islenzks
yfirráðasvæðis (þ.e. fiskveiðilög-
sögunnar) gersamlega óþolandi
og hin ruddalegasta framkoma
gegn íslendingum.
2) Strax fyrstu daga septem-
ber-mánaðar byrjuðu árásir
brezkra togaraáhafna á islenzkar
varðskipsáhafnir, þar sem boltar
og rær dundu yfir þær siðar
nefndu. Nú siðustu vikur helur
málið komizt á alvarlegra stig.
Hafa brezkir togarar siglt á is-
lenzk varðskip i tvigang, svo
miklar skemmdir hafa af hlotizt á
skipum auk þess sem fyrrgreind-
ar aðgeröir stofna lifi og limum
skipverjanna i bráða hætlu.
Eigum við tslendingar virki-
lega að kyngja þvi, að hinir er-
lendu veiðiþjófar hætti ekki þess-
um aðgerðum fyrr en þeir hafa
gerzt morðingjar.
3) Það heíur oftsinnis gerzt, að
yfirgangur hinna erlendu veiði-
þjófa sé slikur, að reynt hefur
veriö að sigla á minni fiskibáta og
veiðarfæri þeirra hafa si og æ
verið ónýtt. Löðurmannlega
leggst fyrir hin miklu ,,stór-
veldi”, þegar islenzkir fiskimenn
eru árásarmark þeirra sem nú er.
Goöir islendingar:
Við vitum fullvel, að tennurnar
eru dottnar úr brezka ljóninu, að
fylgissveinninn er litils megnug-
ur. Sýnum þá hina miklu þraut-
seigju og baráttuhug, sem ein-
kenndi sjálfstæðisbaráttu okkar
fyrr á timum.
Reykjavik, 16. janúar 1973.
Þjóðernishrcyfing islendinga.
Rey k j aví kurhöf n
Framhald af bls. 1
verið tekinn i notkun og það varð
að samkomulagi að hann yröi
reyndur hér i höfninni og það yrðu
þá fyrstu æfingarnar með þessu
tæki.
Það safnast alltaf viss oliubrák
i kringum bátaflotann i höfninni,
en þegar við höfum orðið varir við
að olia hefur lekið i sjóinn höfum
við notað kemisk efni til að
hreinsa hana upp, en þeirri oliu-
brák sem liggur við bátabryggj-
urnar hefur verið ausið upp, sagði
Gunnar.
Þá var Gunnar spurður að þvi
hver greiddi skaðann sem varð af
eldinum i höfninni um dagin og
sagði hann að fyrst þyrfti að
rannsaka til fulls hverjum það
var að kenna að eldurinn kvikn-
aði, en á þessu stigi málsins væri
ekki hægt að segja til um hver
ábyrgðina bæri. — _ s.dór.
Hneyksli
Framhald af bls. 1
endum raforku allverulega frá
1970 til 1971, en gagnvart ÍSAL
var hún bundin af „viðreisnar-
samningnura" alræmda. Þar
mátti ekki hækka.
Orkugjaldið sem tSAL var gert
að greiða á þessum árum nemur
að nafninu til þrem Bandarikja-
millum eða 26,4 aurum á kilóvatt-
stund. En i raun og veru fá
tslendingar aðeins 2 1/2 mill eða
22 aura, þvi að hálft mill til
Landsvirkjunar er tekið af áður
umsömdu framleiöslugjaldi ál-
bræðslunnar til rikissjóðs.
Sé nú samt sem áður reiknað
meö orkugjaldinu 26,4 aurum (og
þaðgengur inn i reikninga Lands-
virkjunar), þá verða allir inn-
len.dir notendur raforku frá
Landsvirkjun að greiða 75,5 aura
fyrir kilóvattstundina i heildsölu-
verð, eða nær 3svar sinnum
meira. Þannig er útlendingunum
hossað á kostnað innlends at-
vinnureksturs og heimila. h—
Varðskip
Framhald af bls. 1
Áhöfn æfö i landi
t viðtali sem Þjóðviljinn átti við
Ólaf Jóhannesson dósmmálaráð-
herra i haust sagði ráðherrann,
að vel gæti komið til greina að
hafa i landi áhöfn, sem ailtal' væri
viðbúin þvi að fara út á varðskip-
unum, svo þau þyrftu ekki að haia
langa viðdvöl i landi hverl sinn.
Vegna þessa sneri blaðið sér til
ráðherrans og spurði hann eftir
þvi hvort þessi hefði orðið raunin
á.
— Það hefur nú ekki orðið úr
þessu, sagði Ólafur. Það er þó
talað um það að reyna að koma
þvi við að hægt sé að hafa að
minnsta kosti æfingasveit ein-
hverja i landi.
— Hvert er álit áhafna varð-
skipanna á þvi að komið verði upp
slikum sveitum?
— Ég veit að þeir eru inn á þvi
að það geti farið fram æfingar i
landi.
— Nokkrar lréttir frá Haag?
— Nei. Ég hef ekkert heyrt
þaðan, né hvenær hann muni
koma þessi úrskurður.
— úþ
Árás
Framhald af bls. 1
og handtók hún manninn þegar,
en honum hafði verið haldið inni
ibiiðinni meðan beðið var eftir
lögreglunni.
Þess má geta að konan hefur
marg ofl orðið fyrir áreitni
mannsins siðan þau skildu að
borði og sæng i haust er leið. Þá
má geta þess að maðurinn hefur
verið undir læknishendi á geð-
deild og hafði hann nýlega verið
látinn laus. —S.dór.
Krafizt
Framhald af u■ siðu.
þeim álökum, sem urðu að
loknum umræddum fundi,
vegna handtökuskipunar lög-
reglunnar.
Hann krefst þvi miskabóta
lyrir ólögmæta handtöku og
fer nú fram á kr. 75.000,-, en
upphaflega krafa hans fyrir
undirrétti var kr. 30.000,-.
Fyrir undirrétti var rikis-
sjóður sýknaður af kröfu
Sigurðar, en úrskurður
Hæstaréttar fellur væntanlega
áður en þessum mánuði lýkur.
Sækjandi málsins íyrir hönd
Sigurðar er Jón E.
Ragnarsson, hrl. en verjandi
af hálfu fjármálaráðherra
Sigurður Ólason, hrl.
Sérstakur þorra
mjöður með
þorramatnum núna
A niorgun er bóndadagur og þá
byrjai' Þorri nieð ölluni sinuiu
óteljandi þorrablótuni og tilheyr-
andi upplyflingu. Að venju riður
Veitingalnisið Naust á vaðið og
býður þorraniat i troguni og að
þessu sinui sérstakan þorramjöð,
sem keppni var lialdin uni milli
þjóna litissins i sl. viku.
Naustið á heiðurinn al' þvi að
hafa endurvakið neyzlu gamla is-
lenzka matarinsá þorranum fyrir
16 árum, en siðan hafa margir
orðið til aö taka upp þennan sið og
eru þorrablót orðin íastur liður i
starfsemi fjölda félagasamtaka
um allt land.
Blaðamenn fengu forsmekk af
þorramat Naustsins i gær, sem
var að venju tilreiddur i eigin eld-
húsi undir yfirstjórn Ib Wess-
mansog skorti þar hvorki hákarl,
selshreifa né aðra hefðbundna
rétti, en nýjung að þessu sinni er
„þorradrykkur Nausts 1973”. Var
efnt til kokkteilkeppni milli þjóna
Nausts í siðustu viku og vann
drykkur Haraldar Sigurðssonar,
með rommi, kahlúa likjör og
appelsinusafa. En auk þorra-
mjaðarins verður áfram boðið
upp á gamalt brennivin og yfir
þorratimabilið mun Ómar
Ragnarsson skemmta gestum
með glensi, grini og visnasöng.
Aðalfundur Dans-
kennarasambands
Aðalfundur Danskennarasam-
bands tslands var haldinn 4. janú-
ar siðastliðinn.
í skýrslu stjórnar kom Iram að
á árinu sem leið hófust merkja-
pról' þau, sem fyrirhuguö voru á
vegum sambandsins. Gerð hafa
verið sérstök bronz- silfur- og
gullmerki, sem teiknuð voru af
Torfa Jónssyni auglýsingateikn-
ara.
Einnig kom fram, að 5 stúlkur
luku á s.l. vori lyrri hluta prófi á
vegum D.S.I., en eins og áður hef-
ur komið fram hefur Dans-
kennarasambandið stefnt að þvi
að útskrifa danskennara.
Ennfremur er ráðgert að hafa
sýningar i ár eins og verið hefur
l'astur liður i starfsemi sam-
bandsins undanfarin 6 ár.
Danskennarasambandið var
stofnað 20. desember 1963 og
verður þvi 10 ára á þessu ári.
Stjórn sambandsins var ein-
róma endurkjörin, en hana skipa:
Ingibjörg Jóhannsdóttir lormað-
ur, Ingibjörg Björnsdóttir ritari,
Guðbjörg Pálsdóttir gjaldkeri og
Unnur Arngrimsdóttir og Iben
Sonne Bjarnason meðstjórnend-
ur. Kosnir endurskoðendur eru
Sigriður Ármann og Edda
Scheving.
(Frá Danskennarasamb. tsl.)
Verðmætt bréf frá íslandi
til dansks vínkaupmanns
Á frimerkjauppboði sem haldið
verður i Kaupmannahöfn 6.
lebrúar n.k. verður m.a. boðið
upp bréf frá tslandi til vinkaup-
manns i Kaupmannahöfn árið
Brandt
Framhald af 12. siðu.
Fulltrúar stjórnarinnar segja,
að nú þegar Ostpólilik kanslarans
sé að mestu til enda leidd, muni
utanrikismálin ekki verða eins
mikið i sviðsljósinu og verið
helur. Samt er búizt við deilum i
þinginu þegar samkomulagið við
A-Þýzkaland verður staðfesl en
þar sem stjórnin helur 46 þing-
sæta meirihluta mun slað-
festingin væntanlega renna i
gegnum þingið án teljandi örðug-
leika.
1B59, eða nokkrum árum áður en
Irimerki voru tekin til nolkunar i
Danmörku. Danska póslsam-
bandið helur lýst yfir að bréfið sé
ekta.
Slik brél'eru orðin vinsæl meðal
salnara og það er búizl við að það
verði boðnar allt að 7 þúsund
krónur danskar i bréfið.
Þá verða seld mjög sjaldgæf is-
lenzk frimerki og dönsk á þessu
uppboði. Búizt er við að þarna
verði seld frimerki fyrir 700
þúsund krónur danskar.
Þrir hafa sótt um starf
byggingarlulltrúa Reykjavikur-
borgar.sem borgarstjórn ræður i.
Eru umsækjendur Gunnar
Sigurðsson verklræðingur, Hall-
grimur Sandholl verkfræðingur
og Óli J. Ásmundsson arkitekt.
Fengu verðlaun fyrir
jólakrossgátu
Skilafrestur vegna verðlauna-
krossgátu Þjóðviljans i jólablað-
inu rann út 10. janúar. Talsvert á
annaö hundrað lausnir bárust.
Lregið var um verðlaunin og
þessir voru hinir heppnu:
1. verðlaun, bækur fyrir 2.000
kr. hlaut Elin Þorbergsdóttir,
llelgavelli Kópavogi.
2. verðlaun, bækur fyrir 1.500
kr. hlaut Þorgils Stefánsson, Hó-
liolti 7, Akranesi.
3. verðlaun, bækur fyrir 1000
kr. hlaut Dóra Magnúsdóttir,
Gul'uskálum, Snæfellsnesi.
Þeir heppnu eru beðnir um að
vitja vinninga sinna á Þjóðviljan-
um i sima 17-500, og verða vinn-
ingar sendir eöa afhentir eftir
samkomulagi.
RYMINGARSALA
STÓRLÆKKAÐ
VERÐ
EINSTAKT TÆKIFÆRI
Vegna breytinga verða seldar
Terylene herrabuxur í stórum númerum.
Jersey dömusíðbuxur í öllum stœrðum.
Telpna- og unglinga hettukópur
RÝMINGARSALAN SKÓLAVÖRÐUSTÍG 15