Þjóðviljinn - 05.05.1973, Page 3
Laugardagur 5. mal 1972. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Einar Olgeirsson, Brynjólfur Bjarnason, Asgeir Blöndal
Magnússon og Gunnar Benediktsson á útifundum á krcppuárun-
um. Rauði fáninn blaktir.
Sögusýning
verkalýðs-
samtakanna
A baráttudegi verkalýðsins,
þann 1. mai s.l., var opnuð I
Reykjavlk á vegum Menning-
ar- og fræðslusambands al-
þýðu sögusýning islenzkrar
verkalýðshreyfingar. Sýning-
in er að Laugavegi 18 I sal Al-
þýðusambandsins, á 3ju hæð,
og er opin daglega frá kl. 2-10
siðdegis. En sýningunni lýkur
annað kvöld, þann 6. mai.
A sýningu þessari gefst
kostur á að skoða fjölmargar
myndir, muni og minjar allt
frá fyrstu dögum verkalýðs-
hreyfingarinnar. Þó er enginn
vafi á þvi, að með góðum und-
irbúningi og stærri húsakynn-
um mætti efna til mun stærri
sýningar úr atburðarikri sögu
verkalýðssamtakanna á Is-
landi. Það framtak sem hér
hefur verið sýnt er þó ákaflega
lofsvert, og verður vonandi
upphaf þess, að Alþýðusam-
bandið og verkalýðsfélögin
taki að sýna sögu sinni fullan
sóma.
Meðal elztu sýningarmuna
er „Kveldstjarnan,” hand-
skrifað blað elztu prentara-
samtakanna, og er frá árinu
1886. Þarna er lika stofnskrá
Verkamannafélagsins Dags-
brúnar frá árinu 1906 undirrit-
uð af 384 verkamönnum, einn-
ig stofnfundargerð Hins is-
lenzka prentarafélags, sem er
elzta verkalýðsfélagið, sem nú
starfar, stofnað 1897, og stofn-
fundargerð Verkakvennafé-
lagsins Framsóknar frá árinu
1914. Ræða Hallgrims Jóns-
sonar kennara, frá 1. mai 1923
eftir fyrstu kröfugönguna, er
þarna i handriti. Af prentuð-
um blöðum má nefha gamla
Alþýðublaðið frá 1906, Verka-
mannablað mai 1913 útgefið af
Dagsbrún, blaðið „Dagsbrún
— blað Jafnaðarmanna” frá
árinu 1915, útgefandi nokkur
iðnaðar- og verkamannafélög.
Bæklingar
Af bæklingum má nefna:
„Alþýðuflokkurinn” og undir-
titill — „Nýr stjórnmálaflokk-
ur. Hvað hann er og hvað hann
vill. Kvenfólkið þarf að lesa
þennan bækling engu siður en
karlmenn,” útgefinn 1917.
Aðrir bæklingar m.a.: „Sam-
fylkingartilboð Kommúnista-
flokksins til Alþýðusambands
Islands.” — „Hvers vegna var
Héðinn Valdimarsson rekinn
úr Alþýðuflokknum,” útkomu-
ár 1938. — „Vörusvikin og
þjóðfélagið,” eftir Vilmund
Jónsson. — „Fasisminn,” eftir
Einar Olgeirsson, útkomuár
1933. — „Faðirvorið og fleiri
sögur úr þriðja rikinu,” útgef-
andi baráttunefndin gegn fas-
isma og striði. — „Refsivönd-
ur fátækralaganna,” eftir
Hauk Þorleifsson. —
„Fátækralögin” með yfir-
prentaðri forsiðu með orðun-
um „Vér ákærum.” „Jafnað-
arstefna á Islandi,” eftir ólaf
Friðriksson, útkomuár 1919. —
„Lifæð þjóðfélagsins,” eftir
Jón Rafnsson, og þannig
mætti lengi telja.
Flugrit
Eitt af þvi, sem setur svip á
sýninguna, eru flugritin frá
fyrri dögum. Þegar mikið var
um að vera, en blaðakostur
takmarkaður, hvað þá aðrir
fjölmiðlar, var oft gripið til
þess ráðs að útbúa flugrit i
snarheitum og ganga með það
fyrir hvern mann eða þvi sem
næst. Meðal flugritanna á sýn-
ingunni má nefna: Fregnmiði
frá miðstjórn Sósialistaflokks-
ins, þegar „Þjóðviljinn” hafði
verið bannaður af Bretum
26.4. 1941, — Fregnmiði
„Verkamannsins” á Akureyri
frá 25. 10. 1938 um stofnþing
Sameiningarflokks alþýðu —
Sósialistaflokksins, — Fregn-
miði „Verkamannsins” á
Akureyri frá 20.6. 1936 um
verkfall i Reykjadal, — þá má
einnig lita flugrit, sem dreift
var af Sósialistaflokknum fyr-
ir útifundinn i Lækjargötu við
komu bandariska hersins vor-
ið 1951.
Myndir
Myndir eru margar bæði af
forystumönnum og einstökum
atburðum úr stéttabaráttunni,
svo og myndir frá vinnustöð-
um á fyrri tið.
Við fáum að sjá mynd frá
Eldborgardeilunni i Vest-
mannaeyjum 1936, þar sem
verið er að skipuleggja verk-
fallssveitirnar, — Myndir eru
nokkrar frá fyrstu kröfugöng-
unni i Reykjavik, þann 1. mai
1923. Myndir frá Novuslagn-
um á Akureyri 1933, á einni
talar Jón Rafnsson til mann-
fjöldans af vörubilspalli, en á
annarri má sjá kunna góð-
borgara Akureyrár i handa-
lögmálum við verkamenn.
Myndir frá átökunum i
Reykjavik 7. júli 1932, þegar
atvinnuleysisbaráttan stóð
sem hæst. Og á einni myndinni
er Karlakór verkamanna að
syngja á útifundi Kommún-
istaflokksins á Stokkseyri ein-
hvern tima á kreppuárunum,
og má meðal söngvaranna
þekkja Stefán Ogmundsson
prentara, Adolf Petersen hjá
Vegagerðinni og Guðjón Bene-
diktsson, en önnur mynd
skammt frá sýnir Guðmund
Vigfússon og fleiri þramma
um götur, sem Varnarlið
verkalýðsins — og mega heita
i öllum herklæðum, þvi að oft
kom til átaka við nazista og
annan skril.
Lausnargjaldið frumflutt
Lögreglukylfur og nazistamerkið, — herfang úr götubardögum
kreppuáranna.
1 gær var frumflutt I Þjóðleikhúsinu nýtt leikrit eftir Agnar Þórðarson
sem nefnist Lausnargjaldið, og er það fjórða leikritið eftir Agnar sem
húsið flytur. Efni leiksins eru átök milli kynslóða — þeirrar eldri sem
trúir á tækniframfarir og hagvöxt og fleira I þeim dúr, og hinnar yngri
sem hafnar kapphlaupinu um efnaleg gæði og reynir aö stunda á nátt-
úrulegt lif. Myndin sýnir Valgarö (Valur Glslason) sem er ein aðal-
persóna leiksins henda út æsifréttamanni (Erlingur Gisiason) sem ger-
ir honum lífið leitt. Næsta sýning er á morgun, sunnudag.
Unnar kjöt-
vörur og
brauð lækka
Aö þvi er verölagsstjóri tjáði
Þjóðviljanum I gær eiga unnar
kjötvörur og brauð að lækka frá
og með deginum I dag um 2%
kjötvörurnar og 2—3% brauðin.
Þá hefur kaffi og smjörliki lækk-
að um 2%. Von er á lækkun á öli
og gosdrykkjum, en hún veröur
auglýst næstu daga.
Aðspurður um hvernig verð-
lagseftirliti verði nú háttað, þeg-
ar vörulækkun kemur til fram-
kvæmda sagði verðlagsstjóri að
það yrði með sama hætti og verið
hefur. Verðlagseftirlitið hefur 10
manna starfsliði á að skipa til
framkvæmda i Reykjavik. Þá
sagði verðlagsstjóri að treysta
yrði á heiðarleik viðkomandi
aðila varðandi verölækkanirnar,
og eins á almenningur að láta
vita, verði hann var við að svikizt
sé um að lækka vöruverð. Verð-
lagsstjóri sagði, aö sem fyrr væri
almenningur bezta verðlagseftir-
litið ef hann léti sig þessi mál ein-
hverju varða. —S.dór
Frá skrifstofu borgarlæknis
berst blaðinu eftirfarandi skýrsla
um farsóttir i borginni vikuna
8,—14. april en hún er gerð sam-
kvæmt skýrslum 12 lækna.
Iðrakvef 15 (8) Hlaupabóla 1 (1)
Skarlatssótt 3 (4) Ristill 1 (0)
Mislingar 15 (17) Rauðir hundar 6
(7) Hálsbólga 32 (41) Kvefsótt 149
(116) Lungnakvef 13 (6) Inflúenza
8 (1) Kveflungnabólga 7 (4)
Þorlákshöfn:
Fyrsti netabáturinn hættur
Senn liður að vertíðarlok-
um i Þorlákshöfn. Hætti
fyrsti netabáturinn i gær og
landaði þá 3 tonnum, Þor-
lákur 4T 5, og hætta fleiri
bátar næstu daga að sögn
vigtarmannsins i Þorláks-
höfn.
Aflasælli vertíð er nú að
Ijúka þareystra, Hafa þeg-
arkomiðá land 25,7 þúsund
tonn af þorskfiski á móti 16
þúsund tonnum í fyrra, —
þá miðað við allt árið.
Þarna munar mikið um Eyja-
báta, og hefur þessi vertið verið
mun betri en undanfarnar vertiö-
ir. Svo er lika um Þorlákshafnar-
báta. Hafa bátarnir sótt aðallega
á miðin kringum Eyjar.
Af Þorlákshafnarbátum er
Brynjólfur AR hæstur á vertið-
inni. Var hann búinn að fá 820
tonn um siðustu mánaðamót. Af
Eyjabátum var Þórunn Sveins-
dóttir hæst i aprillok. Var þá búin
að fá 790 tonn.
1 april lönduðu 111 bátar sam-
tals 16,5 þúsund tonnum.
A vertiðinni komu 21,5 þúsund
tonn af loðnu. Samanlagt hafa
komið á land 47,3 þúsund tonn af
loðnu og þorskfiski.
Islands-
glíman háð
í dag
tslandsgliman verður háö i
Fimleikasal Vogaskóla
Reykjavik á morgun, 6. mai,
kl. 2.00 e.h.
Hvað skeður i Islandsglim-
unni?
Nú mun fara fram ein tvi-
sýnasta keppni i tslandsglím-
unni um árabil, þar sem þátt-
takendur verða m.a. Jón Unn-
dórsson KR glimukóngur frá
1972, Sigurður Jónsson Vik-
verja skjaldarhafi úr Skjaldar-
glimu Armanns, og hinn ný-
bakaði tslandsmeistari úr
Landsflokkaglimunni 1973
Ingi Yngvason HSÞ. Auk þess-
ara kappa má búast við að
Pétur Yngvason Vikverja,
bróðir Inga, blandi sér hressi-
lega I keppnina, þar sem hann
hefur ætið veitt bróður sinum
einna harðasta keppni. Þá
mun Omar Úlfarsson KR og
Hjálmur Sigurðsson Vikv.
blanda sér i keppnina um efstu
sætin.
1 ár mun vera einna mest
breidd i glimunni.eins og sjá
má á þvi, að nú skipar ekki
sami maðurinn efsta sætið i
öllum glimunum eins og
undanfarandi ár.