Þjóðviljinn - 07.06.1973, Page 1
UOmiUINN
Fimmtudagurinn7. júni 1973—38. árg. 129. tbl.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA Í KRON
k á
Willy Brandt
kemur til
Israel í dag
Jerúsalem 6/6 — Willy Brandt
forsætisráðherra Vestur-Þýzka-
lands kemur á firnmtudag til
Israel, í fimm daga opinbera
heimsókn. Það er Golda Meir for-
sætisráðherra Israel sem býður
heim. Þetta er i fyrsta skipti sem
æðsti maður V-Þýzkalands kem-
ur til ísrael, og þykir Willy
Brandt mjög velkominn gestur.
Er það bæði vegna baráttu hans
við nazismann á striðsárunum, og
trúlega pkki siður vegna
ástandsins i dag, þegar bæði
Arabalöndin og tsrael keppast við
að ná hylli EB-landa, og virðist
sem Arabalöndin hafi náð vináttu
EB-landanna Englands og
Frakklands.
Kratar sluppu fyrir
horn í Iðnó-málinu
Sœtið autt i Brilssel
1 dag hefst I Brússel
fundur hermálaráð-
herra NATO. Fastafull-
trúi íslands hjá Atlanz-
hafsbandalaginu hefur
jafnan áður tekið þátt i
þessum fundum, en nú
hefur islenzka rikis-
stjórnin ákveðið, að sæti
íslands verði autt á
fundinum.
Samkvæmt fréttastofufregnum
NTB, kom fréttin um að ísland
neitaöi að mæta óvænt i höfuð-
stöðvum Atlanzhafsbandalagsins
I Bríissel, en haft er eftir tals-
mönnum NATO að ætlun hernað-
arbandalagsins hafi verið sú, að
fá íslendinga til að taka upp við-
ræður við Breta um landhelgis-
málið á þessum fundi. Jafnframt
segir aö framkvæmdastjóri
NATO ætli sér að ræða málið við
brezka utanrikisráðherrann á
fundi utanrikisráðherra NATO i
Kaupmannahöfn i næstu viku.
Þá segir einnig i frétt NTB, að
fastafulltrúi Islands muni ekki
taka þátt i fundi skipulagsnefndar
bandalagsins, en sá fundur er
einnig haldinn i dag.
Þjóðviljinn sneri sér til Einars
Agústssonar utanrikisráðherra
og spurði hann, hvað hann vildi
segja um málið. Einar sagði:
Við höfum ákveðið i rikisstjórn-
inni, að Island taki nú ekki þátt i
fundi hermálaráðherra Atlanz-
hafsbandalagsins. Ég vil taka það
fram, að ég tel almennt mjög
hæpið, að við íslendingar tökum
þátt i slikum fundum, þar sem við
höfum engan her, og eigum þar
þvi litið erindi.
Aö sjálfsögðu hafði svo land-
helgisdeilan sin áhrif á það að
þessi ákvörðun var tekin einmitt
nú.
Einar Agústsson
Toppkratarnir i stjórn Al-
þýðuhússins h/f, Iðnó
sluppu fyrir horn, ef svo má
segja, því dómsmálaráð-
herra mun hafa ákveðið að
ekki verði frekar aðhafzt i
svonefndu Iðnómáli.
Eins og fólk rekur minni til reis
deila milli stjórnar húseigendafé-
lagsins, sem i eru toppkratar, og
stjórnar Leikfélags Reykjavikur,
um leigugjald af húsinu, en hús-
stjórnin vildi hækka leiguna þó
svo verðstöðvunarlög væru i gildi.
Var fyrirskipuö rannsókn á mál-
inu, og hefur málið verið að velkj-
ast milli rannsóknaraðila og
dómsmálaráðuneytisins siöan i
fyrrahaust.
Nú mun dómsmálaráðherra
vera búinn að gera upp hug sinn
um endalok þessa máls, og telur
að eins og atvikum háttar, beri
ekki að óska frekari aðgerða i
málinu.
Fremur þykja þetta slöpp
máialok, en lagalegur bakgrunn-
ur til málshöfðunar mun vera
hæpinn, að dómi ráðuneytis-
manna. — úþ.
Enn eitt verndarskip Breta á miðin
Fréttastofur þær sem færa íslendingum
flestar fréttir frá útlöndum, NTB og Reuter,
skýrðu frá þvi i gær að varðskipið Þór hefði
gert misheppnaða tilraun til þess að skera
aftan úr brezkum togara.
Blaðinu tókst að fá upplýst
að ekkert var hæft i þessari
frétt. Engin tilraun til aftan-
úrskurðar var gerð. Hins
vegar kom varðskipið Þór að
brezkum veiðiþjófi innan
50-milna markanna og sigldi
að honum. Dróg þá togarinn
inn vörpuna og sigldi á brott til
annars togara, sem þar var
nálægur, og ekki með veiðar-
færi i sjó. Var talið að togarinn
fyrrnefndi heföi verið að koma
veikum skipverja um borð i
þann siöarnefnda, sem átti
skammt eftir af útivist sinni,
og héldi til heimahafnar ein-
hvers staðar I brezka heims-
veldinu innan skamms.
Hvort sem það er nú rétt eða
ekki, segir i fréttaskeyti frá
NTB-Reuter, að Bretar hafi
ákveðið að senda eitt verndar-
skipið til á Islandsmið. I þetta
skiptið á að senda hrað-
skreiðasta og kraftmesta
dráttarbát heimsveldisins.
Lloydsman. Segir i skeytinu
að hann sé væntanlegur á
Islandsmiö um helgina. —úþ.
Kissinger-
Le Duc Tho
Paris 6/6 (NTB-Reuter) —
Henry Kissinger, ráðgjafi Banda-
rikjaforseta, ræddi við Le Duc
Tho, fulltrúa Norður-Vietnam, i
Paris i dag. Þeir eru þar með að
gera úrslitatilraun til þess að ná
varanlegum friöi i Vietnam, en
það hefur ekki tekizt þótt búið sé
að semja áður.
Fundurinn byrjaði kl. 11 f.h. og
stóð i fimm og hálfan klukkutima.
Var þá ákveðið að halda áfram
umræðunum á morgun.
Ráðgjafarnir vildu þó ekkert
segja um árangur fundarins að
svo stöddu.
Vilja safna
fyrir
varðskipi
Stokkhólmi 6/6 — (ntb-tt) Ef
sænska stjórnin vill ekki verða
við beiðni um að lána eða selja
Islendingum varðskip, þá
ætlar félag það i Sviþjóð sem
héfur stuðning við málstað
íslendinga að markmiði, að
hefja söfnun á Norðurlöndum,
með það fyrir augum að kaupa
eða leigja varðskip.
Þetta var tilkynnt eftir að
Olof Palme forsætisráðherra
Sviþjóðar hafði synjað
nefndinni um að senda slikt
varðskip til tslands til að-
stoðar landhelgisgæzlunni.
Forsætisráðherra útskýrir
synjunina á þann veg, að Sviar
geti ekki séð af neinu varð-
skipa sinna. Nefndin vill ekki
trúa þvi, að á friðartimum sé
ekki mögulegt að láta af hendi
a.m.k. eitt skip. Ef slikt og
þvilikt hefði við rök að
styðjast væru varnir Svia i
molum segja forsvarsmenn
Samtakanna, sem beita sér
fyrir stuðningi við Islendinga.
ísland mætir ekki
r
Eigum lítið erindi á hermálafund segir Einar Agústsson