Þjóðviljinn - 28.06.1973, Page 1
SENDIBÍLASTÖÐIN Hf
BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA
Nýtt
musteri
Mammons
skal risa við
Arnarhól!
ÞÓR SKAR Á HJÁ
VEIÐIÞJOF
Um miðjan dag i gær
skar varðskipiði Þór á
báða togvira brezks
veiðiþjófs, sem var að
hinni ólöglegu iðju sinni
um 36 sjómilur innan
landhelgismarkanna á
Reykjafjarðarál undir
vernd herskips. Skip-
herra á Þór er Þröstur
Sigtryggsson.
Nánar tiltekið varð at-
burðurinn klukkan hálf-
fimm i gærdag norður af
Húnaflóa, þar sem heitir
Reykjafjarðaráll. Tog-
arinn brezki heitir Arc -
tic Vandal H-344. Togar-
inn var að veiðum 36 sjó-
milur innan fiskveiði-
landhelginnar undir
vernd herskipsins,
Charybbis F-75.
Áður hefur verið skor-
ið á báða togvira þessa
sama togara, en það var
5. marz siðastliðinn.
Þetta er i annað sinn
sem skorið er á togvira
brezks þjófs eftir innrás
herskipanna 19. mai s.l.,
en þá var að verki Ár-
vakur, sem átti við það i
höggi við brezku her-
skipin, sem reyndu að
sigla hann niður. —úþ
Fundur á Sauðárkróki á morgun um stofnun
Þing
Uruguay
rofið
Þó svo mannfólkinu i land-
inu hafi veriö sagt af þvi aö
byggingu Seðlabankahúss á
Arnarhóli hafi veriö frestaö
um óákveöinn tima, og óvist
hvort af yröi, hefur nú veriö
hafizt handa viö byggingu
þessa nýja musteris til handa
Mammoni á þeim staö I höfuö-
borginni sem lengi hefur veriö
talinn hin mesta prýöi borgar-
hjartans.
Mynd þessa tók Gunnar
Steinn á Arnarhóli i gær, þar
sem starfsmenn voru mættir
til aö rifa burtu stööumæla, og
afgiröa svæöi þaö sem á aö
grafa upp fyrir sökkla þessa
nýja musteris. Ætla þeir sem
aö þessarri byggingu standa
aö ljúka viö frágang aö grunni
musterisins i október i haust.
Þær fáu gróöurvinjar sem
eftir eru i miöbænum i
Heykjavik og ekki hafa ýmist
lent undir stórhýsi eöa mal-
bik fyrir blikkbeljur mega
undir engum kringumstæöum
missa sig, og þegar svo er aö
þvi stefnt aö þær geri þaö
samt sem áöur, er kominn
timi fyrir hinn almenna mann
aö láta til sin taka;og hvaö get-
ur ekki hinn mikli fjöldi af þvi
sem hann 'ætlar sér, ef hann
virkilega leggur sig fram?
— úþ.
Kosið
á
Norður
sérsambands sveitarfélaga í Norðurlandskjördæmi vestra
Klofnar Fjórðungs-
samb. Norðurlands?
Prentfrelsi
Irlandi
í dag
BELFAST 27/6 — Herskáar
hreyfingar mótmælenda og
kaþólikka hafa skoraö á fólk aö
eyðileggja kosningar þær til norö-
ur-irska þingsins, sem fram eiga
að fara á morgun, fimmtudag, sin
með hvorum hætti þó.
Herskárri armur írska lýðveld-
isins, The Provisionals, hefur
skorað á fólk að eyðileggja kjör-
seðlana en hreyfing mótmælenda
hefur beðið fólk að kjósa þá fram-
bjóðenedur, sem lýst hafa yfir að
þeir hyggist eyðileggja hið nýja
þing.
Þrátt fyrir þetta er álitið að úr-
slit kosninganna verði þeim
flokkum i hag sem lýst hafa yfir
að þeir vilji gera þingið starfhæft.
Þessa siðustu viku fyrir kosn-
ingarnar hafa sjö manns verið
drepnir á Norður-lrlandi og er þvi
tala fallinna siðastliðin fjögur ár
komin upp i 838. Talsmaður IRA
hélt þvi fram að það hefðu ekki
verið öfgasinnaðir mótmælendur
sem drápu Paddy Wilson heldur
hafi það verið brezki herinn sem
drap hann af pólitiskum ástæð-
um. Lögreglan og brezki herinn
hafa gert miklar öryggisráðstaf-
anir til að koma i veg fyrir óeirðir
á kosningadaginn.
— Það má strika yfir
öll æsiorð i fréttum af
þeim hugmyndum sem
upp hafa komið um að
skipta fjórðungssam-
bandi Norðurlands i tvö
félagasvæði sveitarfé-
laga, sagði Kolbeinn
Friðbjarnarson bæjar-
fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins á Siglufirði, er
við bárum undir hann
fréttir blaða hér syðra i
gær um að „Norðurland
logaði i fjórðungsdeil-
um”.
— Sannleikurinn er sá, sagði
Kolbeinn ennfremur, að sveita-
stjórnarsambönd eru til dæmis
fyrir Vestfirði og Austfirði, en að-
eins eitt hér fyrir allt Norðurland,
þó svo ibúafjöldi hér sé tvöfalt
meiri en á Austfjörðum. Sveita-
Kolbeinn Friöbjarnarson
stjórnarsamböndin njóta ákveð-
inna hlunninda hjá rikisvaldinu
samkvæmt lögum, og það skiptir
ekki máli hversu stór þau eru né
heldur hve fjölmenn. Þannig nýt-
ur sveitastjórnarsamband Aust-
fjarða til að mynda sömu fyrir-
greiðslu af hálfu hins opinbera og
sveitastjórnarsamband alls
Norðurlands.
Ef sveitastjórnarsambönd hér
yrðu tvö, myndu þau hvort um sig
njóta sömu hlunninda og sömu
fjármálalegu fyrirgreiðslu og þau
njóta nú i heilu lagi. Vangaveltur
hafa verið uppi um það i tvö ár
eöa svo hvort ekki væri bæði hag-
kvæmt og rétt fyrir Norðlendinga
aö hafa tvö sveitastjórnarsam-
bönd, þvi þá mundu þeir einfald-
lega hljóta tvöfalda fyrirgreiðslu
miöað við það sem nú er. Fyrir-
greiöslan nemur miljónum króna
árlega. Þetta er fyrst og fremst
ástæðan fyrir þvi, að hugmyndin
um tvö sveitastjórnarsambönd
hefur komiö upp.
Hinu er svo ekki að leyna, að
ýmsum okkar hér i smærri
byggðum á vestursvæðinu þykir
Akureyri vera anzi yfirgripsmik-
ill faktor i öllu sem snýr að Norð-
urlandi, og það mundi ef til vill
hafa áhrif til að breyta þessu ef
vestursvæðið fengi sinar eigin
höfuðmiðstöðvar.
Framhald á bls. 10.
afnumið —
skólum lokað
MONTEVIDEO 27/6 — Forseti
Uruguay, Juan Maria Korda-
berry, leysti i dag upp þing lands-
ins i samráöi við vfirmenn hers-
ins. i stað þingsins skipaöi hann
ráð. Samtimis fyrirskipaöi hann
ritskoðun á dagblööum.
Alit stjórnmálamanna i Uru-
guay á þessum aðgerðum forset-
ans er það að með þeim sé stjórn-
arskránni kippt úr sambandi.
Uruguay hefur lengi haft þann
orðstir að þar standi lýðræðið
hvað traustustum fótum i rikjum
Suður-Ameriku,en nú virðist það
vera fyrir bi.
Aðgerðir forsetans fela i sér að
allar blaðagreinar, sem likja
þeim við einveldi eru bannaðar og
öllum skólum landsins verður
lokað fram til 20. júli til að forðast
mótmæli stúdenta. Ráðið nýja
fær sömu völd og þingið.
Aðgerðir Bordaberrys virðast
vera til komnar fyrir þrýsting frá
yfirmönnum hersins. Eru þeir óá-
nægðir með að stjórnin hefur ekki
framkvæmt umbætur þær sem
lofað var þegar herinn gerði
stjórnarbyltingu i febrúar i ár.
Eitt af þvi sem forsetinn á að hafa
gert er að veita öllum launþegum
50% launahækkun, en verkalýðs-
félög hafa sett fram harðar kröf-
ur um launauppbætur vegna mik-
illa verðhækkana undanfarið.