Þjóðviljinn - 28.06.1973, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 28. júni 1973.
Hátt í hundrað handrit koma fró Kaupmannahöfn
á næstu mánuðum
Átta komu í gær
1 gær komu með Múlafossi átta handrit úr
Árnasafni i Kaupmannahöfn, og verða þau geymd i
Árnagarði i Reykjavik. Tvö handritanna eru skinn-
handrit frá 14. öld, en ásamt þeim koma 6 pappirs-
handrit frá 17. öld, eða siðari uppskriftir af 17. aldar
ritum.
Skiptanefnd handrita hefur hvergi nærri lokið
störfum, en nú i vor afhenti hún menntamálaráð-
herra Dana fyrsta listann yfir handrit, sem fara
eiga til íslands. Af þessum lista hafa svo verið valin
þau handrit, sem búið er að mynda og ekki er verið
að notaiKaupmannahöfn, og eru þau væntanleg til
Islands innan tiðar.
í Árnagarði er unnið af kappi að útgáfu fornra
texta. Eitt meginverkefni stofnunarinnar nú er
útgáfa islenzkra rimna, og er fyrst að vænta rimna
frá þvi fyrir aldamótin 1600.
Hluti símamanna-
deilunnar leystur
Deila sú sem Þjóöviljinn skýröi
frá á dögunum aö risin væri milli
tæknimanna Landssimans og
túlkunarmanna f jármálaráöu-
neytisins um greiöslur vegna
uppihalds kostnaöar tæknimanna
úti á landi, hefur nú veriö leyst aö
hluta, aö frumkvæöi félagsmála-
ráöherra, llannibals Valdimars-
sonar.
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá,
spannst deilan af þvi, að tækni-
menn töldu sig ekki fá næga
peninga til uppihalds úti á landi
samkvæmt túlkun þeirri, sem
fjármálaráðuneytiö lagði i reglu-
gerð, sem gefin var út um greiðsl-
ur af ferðakostnaði tæknimanna
Landssimans.
Nú hefur félagsmálaráðherra,
Hannibal Valdimarsson, gefiö út
heimild, þar sem sniðganga má
túlkun fjármálaráðuneytisins i
málinu, þannig, að ef um
neyöarástand er að ræða, eöa
talið er aö neyðarástand geti
skapazt, megi greiða reikninga
tæknimanna eins og þeir verða
fram lagðir, en ekki bundið við
ákveðna upphæð, eins og i túlkun
fjármálaráðuneytisins segir.
Simamenn hafa ekki fengið
túlkun fjármálaráðuneytisins
skriflega enn sem komið er,—úþ
Rafmagnsveitumenn
ræða rafhitun húsa
W f % —
& «.niuat «£- Úv «£>
M* e*M**vfíÍ<u>*i4r<a«l*'V#CW
WíW *£. «4 W5«.«S».
MR - ** *
-w- íBitt-W
. f r«*- M
Blaöpartur úr Rcykjafjaröarbók. Jakkasniö frá 17. öld.
Aðalfundur Sambands
islenzkra rafveitna verður
haldinn að Hótel Sögu dag-
ana 28. — 29. júní n.k. 30.
júní fara þátttakendur í
skoðunarferð að Sogs-
stöðvunum.
Aðalmál þingsins eru
rafhitunarmál. Fyrirlestur yfir
rafmagnsveitumönnum flytur
norskur prófessor við tækni-
háskólann i Þrándheimi, og mun
hann tala um rafhitun húsa og
uppbyggingu rafhitakerfa.
Þá mun og Jakob Björnsson,
orkumálastjóri, flytja skýrslu
nefndar, sem kannað hefur
kostnaðarmun af oliukyndingu,
heitavatnskyndingu og raf-
kyndingu húsa, en rannsókn og
samanburður nefndarinnar á
kostnaði við þessar kyndingarað-
ferðir er nú langt á veg kominn.
Fundirnir verða haldrprá Hótel
Sögu. — úþ
Skinnhandritin
Annað skinnhandritanna, sem
væntanleg eru i dag, er Reykja-
fjarðarbók, annað aðalhandrit
Sturlungu. Handrit þetta er frá
14. öld. A 17. öld var bókin rifin
sundur og blöðin notuð til þess er
bezt þótti henta; nokkur blöö hafa
til dæmis verið notum sem
saumasnið. Aður hafði þó bókin
verið skrifuð upp. Arni
Magnússon reyndi svo að safna
bókinni saman á ný, en tókst ekki
að ná i nema 30 blöð og blaðparta,
en bókin var upphaflega 180 blöð.
Hitt skinnhandritið er einnig
frá-14. öld, og er á það skráð
Guðmundar saga góða.
Pappírshandritin
Pappirshandritin, sem koma
með Múlafossi, eru frá 17. öld eða
siðari tima uppskriftir af 17.
aldarritum.
Eitt þeirra er söguhandrit, og
eru á þvi aðallega Austfirðinga-
sögur, Hrafnkels saga Freysgoða
og fleiri sögur. Er það með hendi
séra Jóns Erlendssonar, en hann
skrifaði mikið fyrir Brynjólf
biskup.
A einu pappirshandritinu, sem
einnig er frá 17. öld, er uppskrift
lögbóka, Grágásar og Járnsiðu.
Ekki er þetta handrit neitt sér-
stakt, þvi að forn lög fslendinga
eru til á allmörgum handritum.
Fjögur handritin eru upp-
skriftir af ritum Guðmundar
Andréssonar, sem uppi var á
fyrri hluta 17. aldar. Hann átti
meðal annars i útistöðum við
Þorlák biskup og skrifaði á móti
Stóra dómi. Jakob Benediktsson
gaf út rit Guðmundar Andrés-
sonar i Kaupmannahöfn skömmu
eftir strið.
Afhending handrita
t dönsku lögunum um afhend-
ingu handritanna er aðeins getið
tveggja rita; Flateyjarbókar og
Konungsbókar Sæmundar-Eddu,
enda eru þær báðar komnar i
Arnagarð. Skiptanefnd handrita,
sem ákveður hvaða önnur handrit
skuli fara til tslands, hefur enn
hvergi nærri lokið störfum, en i
vor skilaði hún lista
til ráðherra i Danmörku, og eru á
þeim lista um 400 handrit. Eftir
að ráðherra hefur samþykkt list-
ann, er það undir Stofnun Arna
Magnússonar i Kaupmannahöfn
komið, hversu greiðlega gengur
aö skila handritunum.
Þegar hafa verið valin um 80 til
100 handrit, sem búið er að ljós-
mynda og gera við, og ekki er
verið að nota i Kaupmannahöfn,
en þau eru væntanleg á næstu
mánuðum.
Verkefnin i Reykjavik
Til þess að vinna við handrit
þarf óhemju bókakost. Vegna
þessa hafa menn nokkuð brotið
heilann um staðsetningu Þjóðar-
bókklöðu og geymslustað hand-
ritanna. Þetta vandamál má þó
heita leyst.
Stofnun Arna Magnússonar i
Reykjavik (Handritastofnunin)
er nú ágætlega sett, hvað inn-
lendan bókakost varðar. Stofn-
unin hefur keypt allmikið af
bókum, og það sem meira er um
vert, margir aðilar hafa gefið
stofnuninni bókasöfn, sem voru i
einkaeign. Þannig eignaðist
stofnunin bókasöfn Steins Dofra,
Jóns Asbjörnssonar og Þorsteins
M. Jónssonar.
Aðalverkefni stofnunarinnar
er að vinna að textaútgáfu. Ný-
lega kom út á vegum stofnunar-
innar Arna biskupssaga. Unnið er
að æðimörgum útgáfum, en af
þeim verkefnum, sem lengst eru
komin, má nefna þrjú fyrstu
bindin af rimnasafni, sem lengi er
búiö að vera i undirbúningi; veröa
þar i rimur, sem kveðnar voru
fyrir 1600, fyrst og fremst þær,
sem ekki eru i riimnasafni Finns
Jónssonar.
Handritasýning
Sfðustu fréttir i gær hermdu, að
Stofnun Arna Magnússonar á Is-
landi heföi fengið i sinar hendur
handritin, sem komu með Múla-
fossi.
í næstu viku er von á annarri
sendingu. Þá koma niu handrit,
og þeirra á meðal er sá hluti
Hauksbókar sem hefur að geyma
Landnámugerð Hauks Erlends-
sonar lögmanns (d. 1332) og
Kristni sögu með hendi Hauks
sjálfs.
Sum þessara handrita verða á
handritasýningu i Arnagarði
ásamt þeim skinnbókum sem
Arnastofnun hafði fyrir i sinni
vörzlu. Sýningin er opin þriðju-
daga, fimmtudaga og laugardaga
mmniii) nmi n mm mni
Frá félagi rafverktaka
Fyrirtæki geta orðið
aðilar að félaginu
Nýlega var haldinn aðalfundur
Félags lögg. rafverktaka i
Reykjavik, og kom þar fram
m.a.:
Tala félagsmanna er nú 115.
Nýlega var gerð sú breyting á
lögum félagsins, að fyrirtæki geta
orðið aðilar að félaginu.
Á fundinum var m.a. rætt um
tryggingamál rafverktaka, og
greint frá þvi, aö samið heföi
verið við tryggingafélag um hóp-
tryggingu rafverktaka.
Er um að ræða persónulega
tryggingu þeirra, er fyrirtækin
reka, en þeir munu nú vera verr
tryggðir en starfsmenn þeirra. I
h óp t r y g g i n g u n n i felst:
Liftrygging, sjúkra-örorku-
trygging, slysaörorkutrygging og
sjúkra- og slysapeningar.
Þá var greint frá þvi, að stjórn
félagsins hefði látið gera könnun
á áreiðanleika áætlana, sem
gerðar eru fyrir verkkaupa, er
bjóða út verk og kom i ljós, að
mjög mikið misræmi var á milli
áætlana, sem benti til þess, að
varhugavert væri að treysta svo
handahófskenndum vinnubrögð-
um sem misræmið benti til að
viðhöfö væru.
Greint var frá þvi, að
Innkaupastofnun rikisins hefði
verið gerð grein fyrir niðurstöð-
um þessarar könnunar, svo og
ráðuneyti þvi, er stofnunin heyrir
undir.
Or stjórn félagsins gengu að
þessu sinni Finnur B. Kristjáns-
son, sem verið hefur formaður
félagsins siðastliðin tvö ár, og úr
varastjórn Hjörleifur Þórlinds-
son.
1 þeirra stað voru kjörnir Gunn-
ar Guðmundsson og Hannes
Sigurðsson.
Stjórn félagsins skipa nú:
Formaður Páll Þorláksson.
Ritari Gunnar Guðmundsson.
Gjaldkeri Hannes Sigurðsson.
Varastjórn: Eirikur Ellertsson,
Friðgeir Guömundsson og
Hannes Vigfússor..
Framkvæmdastjóri er Arni
Brynjólfsson. (Fréttatilkynn-
ing).
■ -
« V<VÍ
v»*»c*f4l.***S
'<*:**-*m*»*l
-
■
Skógræktarstöö Reykjavíkur, fórnarlamb blikkbeljunnar. Ofar á myndinni sést Kringlumýrarbrautin
cn nýi vegurinn mun tengjast henni og fara þvf i gcgnum stöðina.