Þjóðviljinn - 28.06.1973, Page 7

Þjóðviljinn - 28.06.1973, Page 7
Niðurstaða Félagsdóms Fimmtudagur 28. júni 1973. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 Þjóðviljinn skýrði frá þvi i siðustu viku, að dómur hefði fallið i Fé- lagsdómi, þar sem dæmdar voru algerlega lögmætar aðgerðir Fé- lags járniðnaðarmanna, að fella niður vinnu hjá fyrirtæki, sem hafði i þjónustu sinni járniðn- aöarmann, er neitaði að ganga i stéttarfélagið eða greiða til þess nokk- ur gjöld. Einnig neitaði fyrir- tækið, sem maðurinn vann hjá, að greiða til Félags járniðnaðar- manna af vinnu þessa manns þau gjöld til sjóða verkalýðsfélags- ins, sem atvinnurekend- um ber samkvæmt samningum að greiða af launum félagsmanna verkalýðsfélagsins. Það var Vinnuveit- endasambandið, sem höfðaði málið og vildi fá aðgerðir Félags járniðn- aðarmanna dæmdar sem ólöglegt verkfall, en niðurstaða allra dóm- enda i Félagsdómi varð sú, að réttur verkalýðs- félagsins til að krefjast gjalda af hverjum þeim, sem vinnur á félags- svæði og i starfsgrein viðkomandi félags, væri skýlaus. Þar sem dómur þessi hefur ekki aðeins þýð- ingu i þessu einstaka máli, en sker úr um grundvallarréttindi verkalýðsfélaganna, tel- ur Þjóðviljinn ástæðu til að birta hann i heild (Millifyrirsagnir eru Þjóðviljans), en þar segir: „Ariö 1973, miövikudaginn 20. júni, var i Félagsdómi i málinu nr. 6/1973 Vinnuveitendasamband Islands f.h. Meistarafélags járniönaöar- manna vegna Vélsmiðju Jens Arnasonar h.f. gegn Alþýöusambandi tslands f.h. Fé- lags járniðnaðarmanna kveöinn upp svohljóöandi dómur: Mál þetta er höfðað fyrir Fé- lagsdómi með stefnu dags. 9. f.m., af Vinnuveitendasambandi tslands f.h. Meistarafélags járn- iönaðarmanna vegna Vélsmiðju Jens Arnasonar h.f. gegn Alþýðu- sambandi tslands f.h. Félags járniðnaðarmanna. Kröfur Vinnuveitenda- sambandsins voru Stefnandi gerir þessar dóm- kröfur i málinu: 1. aðdæmt verði, að verkfall, sem hófst i Vélsmiðju Jens Árna- sonar h.f. 2. mai og enn stendur yfir, sé ólögmætt, 2. að stefnda verði dæmt að greiða sekt vegna þessa ólög- mæta verkfails, 3. að dæmt verði að stefndi beri bótaábyrgð á tjóni, sem hlýzt af hinu ólögmæta verkfalli og 4. að stefnda verði dæmt að greiða stefnanda málskostnað að skaðlausu eftir mati dóms- ins. VERKALÝÐSFÉLAGIÐ ÁTTI RÉTTINN — enginn sem vinnur a félagssvæði og í starfsgrein eins verkalýðsfélags getur neitað greiðslum til þess Stefndi krefst sýknu af öllum kröfum stefnanda og málskostn- aðar úr hendi hans eftir mati dómsins. Málavextir eru þessir: Undanfariö. eöa nánar tiltekið frá þvi i júnimánuði 1971 hefur járniðnaðarsveinninn Jens G. Friðriksson starfað hjá Vél- smiöju Jens Arnasonar h.f. Er Jens hluthafi i nefndu hlutafélagi. lagsmenn sina, sem starfað hafi með Jens Friðrikssyni „hætta störfum hjá fyrirtæki yðar”. 112. gr. félagslaganna, sem vis- að er til segir svo: ”Án samþykkis fé- lagsins er félags- mönnum óheimilt að ekki áður tekizt samkomulag um það ágreiningsefni sem fram kemur i bréfi voru frá 9. april s.l. betta tilkynnist yður hér með”. Vinnuveitenda- sambandið lýsti verkfallið ólöglegt Þessu svaraði Vinnuveitenda- samband tslands með svohljóð- andi bréfi dags. 27. april: „Oss hefir fyrir milligöngu Meistarafélags járniðnaðar- manna borizt heiðrað bréf yðar til Vélsmiðju Jens Arnasonar h.f., Súðavogi 14, Reykjavik.dags. 18.4 s.l., þar sem þér tilkynnið fyrir- tækinu vinnustöðvun frá og með 30. april n.k. hafi ekki áður tekizt samkomulag um það ágreinings- efni, er fram kemur i bréfi yðar til sama aðila dags. 9. april s.l. Þar sem þau atriði, er þér til- greinið i bréfi yðar frá 9. april eru ekki þess eðíis, að gera megi 1 12. gr. kjarasamnings milli Félags járniðnaðarmanna og Meistarafélags járniðnaðar- manna, en málsaðilar eiga báðir aðild að þeim samningi, er svo um samið, að atvinnurekendur skuli greiða 1% af útborguðu kaupi sveina i sjúkrasjóð Félags járniðnaðarmanna og ennfremur 0,25% af sama kaupi i orlofssjóð stéttarfélagsins. 1 bréfi er stefndi (þ.e. Félag járniðnaðarmanna) skrifar vél- smiðjunni 9. april s.l. , visar stefndi til þess, að hann hafi oft- sinnis óskað þess við Jens Frið- riksson, að hann gerðist félags- maður og greiddi félagsgjöld til stefnda, en hann hafi hafnað þvi. Þá visar stefndi i bréfi þessu einnig til þess, að vélsmiðjan hafi einnig hafnað þvi, að greiða sjúkrasjóðs- og orlofsgjald til stefndavegna Jens.samkvæmt 12. gr. kjarasamningsins. Er i bréfi þessu visað til þess, að stefndi hafi itrekað og nú siðast 5. april þ.á. reynt að ná samkomulagi við vélsmiðjuna um framangreindar greiðslur, en hún hafnað öllum tilmælum stefnda i þá átt. Félag járniðnaðar- manna lét félagsmenn sina leggja niður vinnu Samkvæmt þessu segist stefndi þvi tilneyddur i samræmi við 12. gr. félagslaga sinna að láta þá fé- vinna með utanfélags- mönnum að járniðn- aði”. Bréfi sinu lýkur stefndi á þessa leið: „Vegna þess sem að framan er rakið tilkynnist yður hér með að félagsmönnum i Félagi járniðn- aðarmanna er óheimilt að starfa hjá Vélsm. Jens Árnasonar h.f., frá og með 30. april hafi ekki áður tekizt samkomulag um félags- gjaldagreiðslur frá Jens G. Frið- rikssyni og sjúkrasjóðsgjald og orlofsgjaldagreiðslur vegna hans, til Félags járniðnaðarmanna”. Vélsmiðja Jens Arnasonar h.f. sinnti ekki þessari kröfu stefnda og ritaöi stefndi vélsmiðjunni þvi næst hinn 18. april s.l. svohljóð- •andi bréf: „Á fundi trúnaðarmanriaráðs Félags járniðnaðarmanna i gær 17. april var gerð grein fyrir bréfi frá Félagi járniðnaðarmanna til fyrirtækis yðar dags. 9. april s.l. Trúnaðarmannaráð félags vors samþykkti ákvörðun stjórn- ar félagsins, sem tilkynnt var yð- ur i bréfi dags. 9. april 1973 og byggð er á 12. gr. laga Félags járniðnaðarmanna. Vér tilkynnum þvi Vélsm. Jens Arnasonar vinnustöðvun félags- manna vorra frá 30. april n.k. hafi verkfall i þeim tilgangi að knýja þau fram.sbr. II. kafla 1. nr. 80 frá 11. júni I938,mótmælum vér téðu verkfalli, ef til framkvæmda kemur, sem algerlega ólöglegu og áskiljum umbj. vorum rétt til skaðabóta vegna alls þess tjóns sem af þvi kann að leiða”. Samkomulag náðist ekki milli málsaðila um framangreint deiluatriði. Hættu félagsmenn stefnda vinnu hjá Vélsmiðju Jens Arnasonar h.f. 2. mai s.l. og 9. þ.m. höfðaði stefnandi mál þetta, eins og áður er rakið. Hélt fram eignaraðild að fyrirtækinu Dómkröfur stefnanda i máli þessu eru byggðar á þeim grund- velli, að Jens G. Friðriksson hafi vegna eignaraðildar sinnar að Vélsmiðju Jens Arnasonar ekki taliðrétt, að gerast félagsmaður i Félagi járniðnaðarmanna og hafi hann þvi neitað að greiöa félags- gjöld til þess. Hafi vélsmiðjan af þessari ástæðu ekki getað orðið við ósk stefnda um að draga fé- lagsgjöld til Félags járniðnaðar- manna af kaupi hans eða að greiða gjöld hans vegna til sjúkrasjóðs og orlofssjóðs félags- ins, og þar sem svona stóð á, hafi sér heldur ekki verið skylt sam- kvæmt 12. gr. kjarasamnings aðila, að greiða nefnd gjöld, þar sem greiðsluskylda skv. nefndu ákvæði sé bundin þvi skilyrði, að sveinn sé félagsbundinn i Félagi járniðnaðarmanna. En hvernig sem litið sé á þetta ágreiningsefni, hafi stefnda verið óheimilt vegna ákvæða 17. gr. laga nr. 80/1938 að hefja verkfall til þess að knýja fram sinn skiln- ing á málinu. Milli aðila sé gildur kjarasamningur. Eigi Félags- dómur þvi úrskurðarvald um þann ágreinirig, sem hér sé um að tefla og verkfall af þeim sökum ó- lögmætt og refsivert. Þá telur stefnandi, að stefndi hafi með ó- lögmætu verkfalli fellt á sig bóta- skyldu á öllu þvi tjóni, sem af þvi hljótist og visar i þvi efni til 8. gr. laga nr. 80/1938. Hins vegar sé ekki i máli þessu unnt að gera kröfu til ákveðinnar bótafjárhæð- ar, þar sem verkfallið standi enn og ekki verði séð, hvert tjón verði af völdum þess fyrr en þvi lýkur. Afstaða stefnda andstæð venju og beinum ákvæð- um kjarasamninga. Sýknukrafa stefnda er studd þeim rökum, að samkvæmt gild- andi kjarasamningi skuli félags- menn stefnda sitja fyrir allri vinnu, sem heyrir undir iðn- greinar járniðnaðar. Jafnframt sé um það samið að vinnuveitandi skuli halda eftir af kaupi hvers félagsbundins sveins þvi viku- gjaldi.sem hverjum félagsmanni beri að greiða tiil Félags járniðn- aðarmanna. Þá sé svo kveðið á i 12. gr. kjarasamningsins, að atvinnurekandi greiði tiltekinn hundraðshluta af útborguðu kaupi sveina i sjúkra- og orlofs- sjóði sveinafélagsins. Um þessi atriði hafi á undanförnum árum skapazt fastar venjur á þá lund, að vinnuveitendur greiði félags- gjöld og nefnd sjóðsgjöld vegna starfsmanna sinna, án tillits til þess, hvort þeir hafi öðlazt full félagsréttindi i stéttarfelagi þvi, sem hlut á að máli. Hafi aldrei komið til nokkurs ágreinings út af þessum atriðum milli vinnu- veitenda og Félags járniðnaðar- manna fyrr en nú, að járn- iðnaðarsveinninn Jens Gunnar Friðriksson.sem lokið hafi prófi i vélvirkjun árið 1971 og frá þeim tima unnið hjá stefnanda, hafi ekki fengizt til þess að ganga i Félag járniðnaðarmanna og stefnandi, Vélsmiðja Jens Árna- sonar h.f. ekki heldur fengizt til að greiða framangreind gjöld hans vegna til félagsins. Þessi afstaða stefnanda sé andstæð b- einum ákvæðum gildandi kjara- samninga og áratuga venju og skipti það engu máli i þessu sambandi, þótt Jens Gunnar sé hluthafi i vélsmiðjunni, þvi um hann gildi þrátt fyrir það sömu reglur og aðra starfsmenn þar. Hann njóti góðs af kaup- og kjara- samningum stefnda, og sé það reyndar ekki óalgengt, einkum i byggingavinnu, að sveinar séu hluthafar i byggingafélögum, og hafi enginn af þeirri ástæðu gert tilraun til að koma sér undan greiðslu samningsbundinna gjalda. Heimilt að ganga fyrir- varalaust út af vinnu- stað Þar sem vélsmiðjan hafi nú ekki viljað fylgja viðteknum reglum um greiðslu þessara gjalda, en stefndi ekki átt þess kost að fá Jens Gunnar dæmdan inn i Félag járniðnaðarmanna, hafi stefndi ekki átt annars úrkosti, þegar félagsmenn stefnda neituðu að vinna með utanfélagsmanni, en að beita ákvæðum 12. gr. félagslaga sinna. Hafi ákvörðun um það verið tekin á trúnaðarráðsmannafundi i félaginu 17. april s.l. og tilkynnt stefnanda með riflegum fyrir- Framhald á bls. 15.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.