Þjóðviljinn - 28.06.1973, Page 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJ.INN Fimmtudagur 28. júní 1973.
Fimmtudagur 28. júni 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
FISKVEIÐI-
MÖRK OG
ÚTHAFIÐ
Utdráttur
úr ræðu
Jack
Davis,
sjávarút-
vegs-
ráðherra
Framtiðarhorfurnar í sjávarútvegi Kanada eru
stórkostlegar. Þær eru mun betri en flestir fiski-
menn telja. Eftirspurn er mikil, verðið fer hækk-
andi og likurnar á þvi að við náum stærri hluta af
heimsaflanum eru sannarlega góðar.
Þannig hóf Jack Davis sjávarútvegsráðherra
Kanada ræðu, sem hann hélt á fundi flokksbræðra
sinna sl. laugardag. Hér fer á eftir útdráttur úr máli
hans.
g þarf ekki að fara mörg-
Jjj um orðum um markaði.
Um viða veröld vex eftir-
spurn eftir sjávarafla um 5% á
ári hverju. Það þýöir að hún tvö-
faldast á rúmum 10 árum. Og þar
sem að fiskur e takmarkaöur i
heiminum verður hann eftirsótt-
ari, verðið mun halda áfram að
hækka og eftirspurnin eftir þeim
fiski, sem viö veiöum viö strendur
landsins, veröur sem aldrei fyrr.
En það eru tvær hliðar á þessu
máli. Verðiö sem fiskimenn fá
fyrir aflann er vel viðunandi. Það
hefur meira en tvöfaldazt á sið-
ustu sex árum. En aflamagnið er
annaö mál. Við veiðum ekki jafn
mikið og við gerðum fyrrum.
Aflinn fer minnkandi — sérstak-
lega á grunnmiðum. Þess vegna
verðum við að einbeita okkur
betur að verndun fiskistofna,
endurnýjun þeirra og að þvi aö
færa út fiskveiðimörk okkar til að
tryggja okkur einkarétt á
veiöunum, færa þau lengra og
lengra út.
Meginatriði i máli minu
varðar þvi útfærslu, út-
færslu á haf út, útfærslu
einkaréttar okkar á fiski-
miðunum með þvi að færa
fiskveiðimörkin út að mörkum
landgrunns okkar, langt út á
úthafið.
Við höfum þegar staöið okkur
vel. Kanada hefur nú þegar tólf
milna fiskveiðilögsögu. Rétt er
það, að við þurftum að sýna hug-
rekki þegar við tókum þessar tólf
milur. Andspænis okkur stóðu
Rússar, Bretar, Bandarikjamenn
og Japanir. Reyndar allar úthafs-
fiskveiðiþjóðir heims stóðu gegn
þessari ákvörðun. En við höfðum
okkar fram. Svo til allar þessar
þjóðir viðurkenna núna opin-
berlega fiskveiðimörk okkar.
' , ár munum við enn láta til
skarar skriða. Við munum
gera það á hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna.
Þar munum við ganga til liðs
við önnur strandriki i heiminum.
Við munum berjast með oddi og
egg fyrir þvi að fá fram fiskveiði-
mörk sem nái að útjöðrum land-
grunns okkar.
Margt bendir nú til þess, að
hugmyndin um 200 milna fisk-
veiðimörk muni njóta vinsælda
hjá flestum aðilum. Að sjálfsögöu
styöjum við hana. En við munum
styöja hana með mikilvægum
fyrirvara. Og hann er þessi: Hvar
sem landgrunn okkar nær lengra
út frá ströndinni en tvö hundruð
milur verður það landgrunns-
jaðarinn en ekki tvö hundruð
Kort af Kanada
Kortiö sýnir landgrunniö viö austurströnd Kanada og hin mismunandi fiskveiöi-
mörk. Innst er núverandi tóif inílna landhelgi mörkuö, brotna strikiö sýnir
fimmtiu milna mörkin, og yzt eru tvö hundruö milna mörkin sem Kanadastjórn
stefnir nú aö. Þverstrikin sýna svæöin þar sem landgrunniö er innan vi
hundruö metra dýptarmörk, en köflóttu svæöin hallann út frá landgrunninu
aö 1800 metra dýpi.
milna kenningin sem ákvarðar
fiskveiðimörk okkar.
Þar sem þetta er pólitiskur
fundur get ég ekki á mér
setiö aö taka ofurlitiö i
lurginn á vinum vorum ihalds-
mönnum.
Þegar við börðumst fyrir
setningu grunnlina og tólf mflna
fiskveiðilandhelgi fyrir nokkrum
árum sögðu þeir, aö þetta mundi
okkur aldrei takast. Þeir höfðu
ekki getaö það i sinni stjórnartið
og þvi mundum við ekki geta það
á árinu 1970. En við gerðum það.
Við gerðum þaö fyrir tveim
árum. Og nú erum viö aö fást viö
mun stærra mál, mál sem rai
njóta stuönings að minnsta kos
tveggja þriðju hluta aðildarrík
Sameinuöu þjóðanna — mál se
veröur svo til ábyggilega sar
þykkt á næstu Hafréttarráðstefr
• Eftirspurn eftir sjávarafla vex um 5% á ári
hverju i veröldinni. Það þýðir, að hún mun
tvöfaldast á rúmum 10 árum.
,,Hvar sem landgrunn okkar nær lengra út
frá ströndinni en tvö hundruð milur, verður
það landgrunnsjaðarinn, en ekki tvö hundr-
uð mílna kenningin, sem ákvarðar fiskveiði-
mörk okkar”.
íhaldsmenn tala djarflega um að feta i fót-
spor íslendinga — lengra þora þeir ekki að
fara.
Úthafsveiðiþjóðir munu áreiðanlega berjast
gegn þvi, að tvö hundruð milna fiskveiði-
landhelgi verði viðurkennd af Sameinuðu
þjóðunum — en viðhorf þessara þjóða eru
lika að breytast.
Þær þjóöir sem eiga stóra úthafsveiöiflota munu áreiöanlega bérjast gegn viöurkenn-
ingu á tvö hundruö milna fiskveiöimörkum, en viöhorf þeirra eru aö breytast, segir
Jack Davis, sjávarútvegsmálaráöherra Kanada.
og veita mun Kanadamönnum
alla yfirumsjón með öllum fiski-
miöum undan ströndum okkar.
Og hvar standa vinir vorir
Ihaldsmenn núna? Þeir tala
djarflega um fimmtiu milna
landhelgi. ísland litla tekur sér
fimmtiu milna landhelgi svo aö
Kanada gæti verið svo djarft aö
gera slikt hið sama. Þarna hafið
þið hugsunarhátt ihaldsmanna.
Þeir hugsa aldrei stórt. Gera
aldrei neitt nema einhver annar
hafi ruttbrautina fyrir þá. Breyta
aldrei -rikjandi ástandi, ef
nágrannarnir hafa eitthvað við
það að athuga, jafnvel þó það þýði
að menn láti sér lynda að erlend
skip séu að veiöum i sjónmáli frá
ströndum landsins.
Nú megið þiö ekki fara að
halda að ég sé að kynna
- • einhverja nýja stefnu
Frjálslyndra hér I kvöld. Ég hef
veriö aö leggja til að Kanada tæki
sér vald yfir fiskimiðum sinum
allt út að landgrunnsmörkum allt
frá þvi að ég varð sjávarútvegs-
ráöherra. Ég talaði um það á ár-
inu 1968. En flestir töldu þá að
þetta væru draumórar. En það
hefur margt gerzt siöan — og þaö
þýöingarmesta er að fiskskortur
er kominn I ljós. Sú sannfæring
hefur fariö vaxandi aö rányrkja
eigi sér viðast hvar stað og aö
fiskverndun verði að koma i stað
ofveiði og strandrikin hafi beztar
aðstæður til þess að gæta þess að
heilbrigðari stefnu verði fylgt i
framtiöinni.
egar ég segi að flest van-
þróuð lönd séu strandriki,
og þegar ég segi að þau hafi
sivaxandi áhyggjur af rányrkju á
fiskstofnum þeirra, sem úthafs-
flotar annarra þjóða stunda, og
þegar ég segi að siðarnefndu
þjóöirnar hljóti að lenda i minni-
hluta á Hafréttarráöstefnunni, þá
trúiö þið þvi liklega eins og vera
ber. En þiö vilduð kannski spyrja,
hvaö um þessar þjóðir sem eiga
úthafsveiðiflota? Ekki munu þær
taka þessu meö þegjandi þögn-
inni?
Nei, þær munu áreiðanlega
berjast og nota öll meöul sem i
þeirra valdi standa til að skjóta
þvi á frest að tvö hundruö milna
mörkin, — tvö hundruð mflna
mörkin að viðbættum þeim
mörkum sem sett veröa þar sem
landgrunniö nær út fyrir tvö
hundruö mflur — að þessi mörk
verði viðurkennd af sjálfum
hinum Sameinuðu þjóðum.
En þær eru reyndar lika að
breyta afstöðu sinni. Úthafsveiði-
þjóðirnar eru farnar að sjá, að
þeim er hagur i þvi að fiskistofnar
verði varðveittir svo að þessar
þjóðir geti einnig fengið meiri fisk
— sem þær verða að visu að borga
vei fyrir — um ókomna tíð.
Að lokum vildi ég segja
þetta: Við eigum næstlengs-
tu strandlengju i heimi. Við
eigum stærsta landgrunn I heimi.
A næsta áratug ættum við að
geta aukiö veiðar okkar um 50%
að magni. Og við getum ef til vill
tvöfaldað verömætiö I dollurum.
Sú staðreynd að við sækjum
fram á réttum tima og aö önnur
riki standa með okkur, og það að
viö höfum nú þegar talsverðan
hluta af fiskmarkaði heimsins
fyrir okkar fisk, þetta veitir
okkur öryggi.
K
felVÍÍ'?
liÉljl
fpigp.
Hreinsun Vestmannaeyjakaupstaðar:
Um þriðjungur búinn
af því sem hreinsa á
— Ég hygg að búið sé aö
hreinsa um 30% af því
sem hreinsað verður í
bænum sjálfum, sagði
Páll Zophaniasson bæjar-
verkfræðingur i Vest-
mannaeyjum er við höfð-
um samband við hann í
gær og spurðum hann um
mannlíf og aðra merki-
lega hluti í Eyjum þessa
dagana. Páll sagði enn-
fremur að á næstunni yrði
lagt enn meira kapp á
hreinsunina, því að um
næstu helgi verður komin
á vaktavinna allan sólar-
hringinn við lóða- og
gatnahreinsun.
— Frá og með deginum i dag
veröur vaktavinna komin á við
hluta af hreinsuninni, og um
næstu helgi vonumst við til að
vaktir verði komnar á viö alla
hreinsunina, sagði Páll. Nú sem
stendur er mest unnið aö lóða-
hreinsun, en um næstu helgi
verður svo lagt kapp á aö aka
öskunni burt af lóðunum. Nú
þegar er búið aö hreinsa um 140
lóðir og flestallar götur sem nú
verða hreinsaðar. Þetta er um
30% af þvi magni sem hreinsað
veröur i bænum sjálfum. Það er
Helgafellsbraut sem er markið
viö hreinsunina; austur fyrir
hana er ekki áætlaö að fara sem
stendur.
Fiskvinnsla er aöeins hafin i
Vestmannaeyjum, en þó enn
sem komiö er I litlum mæli,
enda háir rafmagnsleysi henni
mikiö. Páll sagði að vonir stæðu
til aö viðgerö á rafmagnsleiösl-
unni yrði lokiö i endaöan júll og
þá ætti rafmagnskortur ekki að
há mönnum i Eyjum lengur.
Nú sem stendur vinna 140
menn viö hreinsun i bænum, en
alls vinna 240 manns i Eyjum.
Þar af vinna 25 við húsaviögerö-
ir en þær ganga mjög vel aö
sögn Páls. Þá vinna 30 menn viö
hraunkælingu, en henni er hald-
ið áfram, enda þótt gosiö sé nú
litið sem ekkert og hraunrennsli
varla umtalsvert.
Aö sögn Páls hefur enn ekkert
veriö um þaö rætt að reisa við-
lagasjóðshús I Vestmannaeyj-
um, en hinsvegar hefur bæjar-
Stjórnin breytt þvi skipulagi
bæjarins, sem gilda átti til 1992,
þannig að bætt er viö fleiri ein-
býlishúsum en ráð var fyrir
gert, og er þetta gert með hug-
ann við þann mörguleika að fá
viölagasjóðshús til Eyja. Ann-
ars verður reynt að láta þetta
skipulag halda sér sem mest. —
S.dór.
Ríkj asamband
í Kóreu?
HONG KONG 23/6 — Kim II
Sung, forseti Norður-Kóreu, lýsti
sig i dag andvigan þvi að bæöi
kóreönsku rikin sæktu um aðild
að Sameinuðu þjóðunum. Lagði
hann til að I staðinn yrði myndað
rikjasamband sem sendi fulltrúa
til Sþ. Hann kvaö myndun sliks
sambands vel hugsanlega og að
bæöi Suður- og Norður-Kórea
gætu búið við óbreytt stjórnar-
form innan þess.
Áður sama dag hafði Park
Tsjúng Hze, forseti Suður-Kóreu,
lagt til i útvarpsræöu að bæði rik-
in sæktu um aöild að Sþ. Þetta er
stefnubreyting hjá honum þar
sem stefna Suður-Kóreu hefur
hingað til veriö sú að stjórn þess
skyldi ein senda fulltrúa til Sþ