Þjóðviljinn - 28.06.1973, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 28.06.1973, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 28. júní 1973. Nýskipaður sendiherra Frakklands hr. Jacques Fradelles de Latour Dejean afhenti forseta íslands trúnaðarhréf sitt þann 22. júnl s.l. að viðstöddum utanríkisráðherra Einari Agústssyni. Slðdegis þá sendi- herrann heimboð forsetahjónanna aö Bessastöðum ásamt nokkrum fleiri gestum. (Fréttatilkynning frá skrifstofu forseta Islands). Simrad-bíllinn leggur í langferð Simrad-sýningarbillinn er kominn til Reykjavikur. t þessum bll eru öll nýjustu fiskileitartæki sem eru framleidd hjá Simrad— verksmiðjunum I Noregi, bæöi fyrir lóðrétta og lárétta fiskileit, Verðmæti þessara tækja ásamt bilnum mun vera nærri 15 miljónir króna. Þarna eru til sýnis tæki fyrir minnstu gerð af fiskibátum og upp til stærstu skut- og siðutogara og einnig fyrir stærstu gerð af vöruflutninga- og farþegaskipum. Tækin verða sýnd I gangi fyrir þá sem áhuga hafa á frekari skil- greiningu hverra einstakra tækja. Simrad-billinn leggur upp i þessa auglýsingar- og sýninga- ferð nú i dag, og áætlað er að ferðin taki um 1 mánuð. Verk- smiðjurnar hafa nú kostað ferð bílsins um alla Evrópu og viðar. Það eru þeir Friðrik A. Jónsson, umboðsmaður Simradá Islandi, og Jan Boye Woll frá Noregi sem munu ferðast með bilinn um landið. TRÉSMIÐIR Ármannsfell óskar að ráða nokkra trésmiði til úti- og innivinnu, framtiðarstarf, ef báðum likar. Upplýsingar hjá fyrirtækinu, i sima 13428, og hjá T.R. i sima 14689 og 15429. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður Staða LYFJAFRÆÐINGS við rikis- spitalana er laus til umsóknar og veitist frá 1. ágúst nk. Umsóknarfrestur er til 15. júli nk. Staða SKRIFSTOFUMANNS/ karls eða konu, við skrifstofu rikisspitalanna er laus til umsóknar nú þegar. Æskilegt er að umsækjendur hafi stú- dentspróf eða sambærilega menntun. Staða LÆKNARITARA við LAND- SPÍTALANN er laus til umsóknar nú þegar. Staðan er hálft starf. UMSÓKNUM er greini aldur, menntun og fyrri störf ber að skila til stjórnar- nefndar rikisspitalanna, Eiriksgötu 5. Umsóknareyðublöð fyrirliggjandi á sama stað. Reykjavik 27. júni 1973. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 11765 Nýtt stórveldi í flugmálum? Flugstööin hefur nú opnað af- greiðslu sina i nýju húsnæöi á Keykjavikurflugvelli þar sem áður var fiugþjönusta Björns •heitins Pálssonar flugmanns. Flugstöðin fékk sina tiundu flugvél á fimmtudaginn og er nú þaö flugfélag sem á flestar flug- vélar á islandi. Elztu vélar félagsins eru frá ár- inu 1962, en þær eru jafnframt þær beztu. Stofninn af vélum félagsins er þó ekki eldri en frá árinu 1968. Af þessum vélum eru fjórar sem taka 5 farþega, það eru tveggja hreyfla vélar. En for- ráðamenn Flugstöðvarinnar kvarta nokkuð undan þvi, að hafa ekki 10 manna vélar til taks þegar á þarf að halda, en það mun vera nokkuð oftar en ^firleitt er talið af þeim sem farþegaflug stunda. Helztu verkefni Flugstöðvar- innar eru varðandi leiguflug (útlendinga) kennsluflug og sjúkraflug, og nefndi forstjóri félagsins Eliser Jónsson, það sem dæmi að félagið hefði flogið fjögur sjúkraflug sólarhringinn fyrir blaðamannafundinn. Segið nei, Grikkir AÞENU 25/6 — Stefanos Stephanopoulos, sem var forsætis- ráðherra i Grikklandi 1965—66, skoraði I dag á alla landsmenn að greiða atkvæði gegn stjórnar- skrárbreytingum þeim sem kjósa á um þann 29. iúli nk. oo eiga endi á konungsveldi i land- inu. 1 bréfi sem hann ásamt 13 fyrr- verandi ráðherrum sinum undir- rita segir að markmiðið með breytingunum sé að styrkja stöðu herforingjastjórnarinnar. Þetta er I fyrsta sinn i griskri sögu að forseta eru veitt svo mikil völd án þess að hann sé ábyrgur fyrir ein- um né neinum. Þess vegna heit- um við á alla Grikki að greiða at- kvæði gegn fyrirhuguðum stjórn- arskrárbreytingum segir i bréf- inu. Samtimis atkvæðagreiðslunni um afnám konungsveldis eiga Grikkir að velja sér forseta. Einn frambjóðandi er i kjöri: George Papadopolos, núverandi forsætis- ráðherra og æðsti maður herfor- ingjastjórnarinnar. Skinfaxi kominn út Nýlega er útkomið fyrsta hefti þessa árs af timariti Ungmenna- félags Islands, Skinfaxa. Meðal efnis i ritinu má nefna leiðara um byggðaþróun og byggðastefnu eftir Hafstein Þorvaldsson, for- mann UMFÍ, greinargerð um Félagsmálaskóla UMFl, viðtal við Albert H. N. Valdimarsson, formann Blaksambands Islands, Samtið og framtið nefnist grein eftir ritstjórann, Eystein Þor- valdsson, og fjallar hún um ferða- mannastraum og landnámshátið, kennsluþáttur um spretthlaup eftir Guðmund Þórarinsson, og birt er yfirlit um getraunastarf- semi ungmennasambandanna. Ritið er 32 siður. Ný flugvél, sem hefur tvo hreyfla, kostar um það bil 110 þúsund dollara, eða um 10 - 11 miljónir islenzkra króna. Hins vegar kosta nýjar kennsluvélar, tveggjasæta, 15- 16 þúsund dollara, eða tæplega 1,4 miljónir króna. Hver kennsluflugvél þarf að fljúga um það bil 1000 flugtima á ári til þess að standa undir sér og gefa einhvern arð. Afskriftar- timi hverrar vélar af þeirri gerð sem Flugstöðin á, er 5 ár. Elieser kvað dýrast i rekstri félagsins vextina og tryggingaiðgjöldin, en samtimis kvaðst Elieser vera Skólaslit í Prófum er nú lokið við Armúla- skóla i Reykjavík. Sjúkraprófum lauk 9. júni og siðustu einkunnir voru afhentar 15. júni. I skólanum voru að þessu sinni 762 nemendur, 275 tóku gagnfræðapróf og 135 gengu undir landspróf. Hæstu einkunnir hlutu: i 3. bekk, Gerður Hafsteinsdóttir aðaleinkunn 8.70 við gagnfræðapróf, Salóme Þóris- dóttir aðaleinkunn 8,21 og við landspróf, Sveinn Guðmundsson aðaleinkunn 9.80 bæði framkvæmdastjóri og sendill fyrirtækisins. Tiu fastir starfsmenn eru nú hjá Flugstöðinni, og þeim til lið- sinnisnokkuð af skæruliðum, eins og Elieser orðaði það, það er að segja mönnum, sem hringt er i á hvaða tima sólarhringsins sem er til alls kyns verka, þó aðallega menn sem kenndu flug. Flugstöðin sem slik var stofnuð 1962, en nafninu breytt 1965 i það sem nú er. Flugstöðin býður upp á samtals 32 farþegasæti og flaug sl. ár um það bil 7— 8 þúsund flugtíma-úp Armúla Gagnfræðingum voru afhent skirteini 30. mai. Tuttugu ár eru liðin siðan skólinn (sem þá hét Gagnfræðaskóli verknáms) brautskráði fyrstu gagnfræöing- ana. Margir þeirra voru nú við- staddir, þeir færðu skólastjóran- um veglega gjöf, ávörpuðu nýju gagnfræðingana og færðu gömlu kennurum sínum þakkir og kveðjur. Thorlacius Fréttatilkynning frá mennta- málaráðuneytinu: Samkvæmt lögum um Stofnun Árna Magnússonar á Islandi, eiga sæti i stjórninni rektor Háskóla tslands, sem jafnframt er for- Klofnar Framhald af bls. 1. Þetta er annar þátturinn i þvi að menn hafa verið að velta fyrir sér stofnun sérsamband fyrir vestursvæðið. Um þetta hafa verið skiptar skoðanir hér fyrir vestan, en i eystri hluta Norðurlands reikna ég með að ekki sé neinn ágrein- ingur um að halda þeirri skip- an sem nú er á málum. En að þetta sér meira hitamál en ýmis þau dægurmál sem upp koma, er ekki rétt. — Hvað um það, að sýslunefnd- ir Skagafjarðar- og Húnavatns- sýslna hafi tjáð sig andviga skipt- ingu sambandsins? — Linurnar í þessu máli munu liggja i stórum dráttum þannig, að sveitahrepparnir og sýslu- nefndirnar hafa gert I þessu sam- þykktir, að minnsta kosti sýslu- nefnd Skagafjarðar, sem hefur lýst sig andviga þvi, að annað sveitastjórnarsamband verði stofnað. Um Húnvetninga veit ég ekki, en mér finnst það trúlegt að þeir séu sama sinnis og sýslu- nefnd Skagafjarðar. Aftur á móti held ég, án þess þó að ég viti það til fulls, að það sé almenn skoðun sveitarstjórnar- manna i öllum bæjum og þorpum hér vestantil, að það sé rétt að stofna slikt sérsamband og þá vegna þessara tveggja röksemda, sem ég taldi upp áðan. Til fundar hefur verið boðað á Sauðárkróki á morgun, föstu- dag, og þar munu þessi mál verða rædd, og hugsanlega tekin ákvörðun um hvort af stofnun sérsambands verði. í stjórn maður hennar, forstöðumaður stofnunarinnar og einn sem menntamálaráðherra skipar, án tilnefningar, til sex ára I senn. Menntamálaráðherra hefur hinn 21. þ.m. skipað Birgi Thorlacius, ráðuneytisstjóra, i stjórn stofn- unarinnar. Alit framkvæmdastjóra Fjórð- ungssambands Norðurlands. Þá náðum við tali af Askeli Einarsyni, framkvæmdastjóra Fjórðungssambands Norður- lands, en sambandið hefur aðset- ur á Akureyri. Fyrst spurðum við Askel hvort Norðurland fengi helmingi meiri fyrirgreiðslu af hálfu hins opinbera, ef nýtt fjórð- ungssamband sveitarfélaga yrði stofnað. Askell svaraði þannig: —- Ég get ekkert fullyrt um það. Ég hef ekki kynnt mér það og er ekki viðbúinn að svara þessu undirbúningslaust. — Er eitthvað hæft i þeirri full- yrðingu sveitarstjórnarmanna i Noröurlandskjördæmi vestra, að Akureyri sé mjög afgerandi og ráðandi aðili innan fjórðungs- sambandsins? — Nei, það held ég að ekki sé hægt að segja. — En er rétt að uppi séu sterk- ^r raddir i bæjum og þorpum i Norðurlandskjördæmi vestra að stofna sér-sveitarstjórnarsam- band fyrir vestursvæðið? — Ég hef hvergi orðið var við þetta. Ég veit þó að þetta er vilji á Sauðárkróki, og þeir hafa boðað til fundar um þetta, en ég hef ekki orðið var við að þetta væri meiri- hlutavilji annars staðar. Hins vegar liggur það á borðinu að sveitahrepparnir virðast ekki vera inni á þessari linu. En það er rangt að einhverjar erjur séu hér vegna þessa. Menn hafa þó eðli- lega skiptar skoðanir á þessu málj. —úþ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.