Þjóðviljinn - 01.07.1973, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. júli 1973
Skozk sj álfstæðishreyfing
vex óðfluea fpjaUafvid áttræða
” torystukonu
Wendy Wood heitir skozk kona
sem hingað er komin gagngert til
að lýsa yfir stuðningi Skota við
aðgerðir Islendinga i landhelgis-
málinu.
I stuttu viðtali við VÞjóöviljann
sagði Wendy Wood að hún væri
fulltrúi 18 skozkra samtaka sem
sameinuð eru i svonefndri þjóð-
legu sjálfstæðishreyfingunni, sem
stefnir að fullu og óskoruðu sjálf-
stæði Skotlands.
Frú Wood er nú áttræð en hefur
starfað i sjálfstæðisbaráttu Skota
frá átjáni ára aldri. „Baráttan
hefur verið aðalatriöið i lifi
minu”.
Þrisvar sinnum hefur hún verið
sett i fangelsi fyrir borgaralega
óhlýðni, en hún leggur áherzlu á
að samtökin sem hún stjórnar,
Skozkir fööurlandsvinir séu sam-
til sjálfstæðis — og þeir höfðu
marglofað að gera eitthvað i mál-
inu en ævinlega skotið þvi á frest.
Svo ég sá mig tilneydda að gripa
til róttækra ráðstafana.
Já fástan hafði mikil áhrif, —
ég fékk ótrúlega mikinn stuðning
frá fólki i öllum stéttum, strætis-
vagnastjórum, smábændum og
jafnvel greifum.
Þegar læknar sögðu að ég ætti
þrjá daga eftir ólifaða létu Eng-
lendingar undan og gáfu ákveðið
loforð um málsmeöferð á þing-
málinu.
Það var ekki erfitt að fasta,
maður fann bara hvernig fjörið
smám saman dofnaði, það var
verst að ég þurfti að vinna mikið
meðan á föstunni stóð — skrifa
bréf, standa i stöðugu sambandi
við dagblöð, útvarp og sjónvarp,
— en ég hafði lika mikla hjálp,
það var fjöldi manns sem aðstoð-
aði mig.”
Frú Wood segir að tal Englend-
inga um Breta og það sem brezkt
sé — sé aðeins yfirvarp til að und-
iroka Skota.
„Við borgum sömu skatta og
aðrir landsmenn, en hvergi i
landinu er jafn mikið atvinnuleysi
og i Skotlandi, hvergi meiri
slömmhverfi, og kaupgjald er
lægra en i Englandi. Og svo flytja
auðugir Englendingar i stórhóp-
um yfir til Skotlands, með meng-
un eru þeir búnir að gera ólift
heima hjá sér — og koma þá og
kaupa upp jarðir og hús hjá okkur
til að njóta náttúrugæðanna —
hreina loftsins o.s.frv. En Skotar
eru upp á siðkastiö farnir að am-
ast við þessum ensku „flótta-
mönnum” sem þeir svo kalla,
enda kunna þir ensku ekkert að
meta okkar sérstöku menningu.
Englendingar eru nú að ræna
okkur oliunni sem þeir dæla upp
undan ströndum landsins og
flytja siöan til Englands til full-
vinnslu. Ef þeir gætu ekki tekið
oliuna okkar, værum við auðug-
asta þjóð i Evrópu.”
Wendy Wood er mjög bjartsýn
á framtiðarhorfur i sjálfstæðis-
baráttu Skota. „Oliumálin opn-
uðu augu margra”, segir hún. „Æ
fleiri bisnissmenn koma nú til liðs
við föðurlandsvini i sjálfstæðis-
baráttunni og hreyfingin vex
mjög ört. Það verður ekki langt
þangað til við búum í sjálfstæðu
Jandi.”
En það eru fleiri en íslendingar
sem reka sjónvarpsstöð hér. Suð-
ur á Rosmhvalanesi er nokkur
þúsunda sálna bæjarfélag, sem
rekur eigin sjónvarpsstöð.
Reyndar eru ibúarnir ekki einir
við þessa iðju, þvi að stöðin er
angi af áróðursvél stærsta her-
veldis heimsins.
Eftir að ameriski sjóherinn tók
við rekstri herstöðvarinnar I
Keflavik, var hafin sú stefna, að
leyfa hermönnunum I auknum
mæli að hafa hjá sér fjölskyldu
sina. Stöðin hefur þvi misst mikiö
af herbúðasvipnum og yfirbragð
hennar orðið með meiri amerisk-
ur smábæjarbrag en áður, þótt
hið sanna eðli herstöðvar komi
alla tið i ljós. Þessara breytinga
hefur einnig séð merki i dagskrá
hermannasjónvarpsins. Inni-
haldslausir skemmtiþættir hafa i
nokkrum mæli þurft að vikja fyrir
heimatilbúnu efni.
Einn þessara heimatilbúnu
Wendy Wood.
þátta, nefnist „Northern Curr-
ents”, sem við gætum á vorri
tungu kallaö „Efst á baugi á
norðurhjara”. Þar er meðal ann-
ars fjallað um sambandið við
hina innfæddu og sagt frá lífshátt-
um þeirra og atvinnulifi.
I siðasta þætti var t.d. Einar
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
frystihússins Sjöstjarnan i Ytri-
Njarðvik, fenginn til að fræða
Amerikana um fiskveiðar og fisk-
vinnslu Islendinga. Sýndar voru
kvikmyndir frá fiskvinnslu i Sjö-
stjörnunni og rabbað vitt og breitt
um sjávarútveg. Þó var aldrei
minnzt á það mál, sem efst er á
baugi i islenzkum sjávarútvegi,
landhelgismálið.
Aðan var látið að þvi liggja, að
umræddur þáttur væri fræðslu-
þáttur fyrir Kana. En bíðum við,
athugum sýningartimann. Jú viti
menn, þátturinn hefst kl. átta á
fimmtudögum. Fer nú ekki ein-
Framhald á bls. 15.
Kanar hlaupa
í skarðið
Hersjónvarpið miðar dagskrá sína
við íslenzka
áhorfendur á finuntudögum
tök sem ekki vilji ofbeldi heldur
leggi þau áherzlu á borgaralega
óhlýðni I baráttunni við Englend-
inga.
„Samtökin eru ekki pólitískur
flokkur og bjóða ekki fram, höf-
uðmarkmið þéirra er áróðurs-
starf — og þetta er létt i vöfum
hjá okkar”, segir Wendy Wood,
„þar sem við höfum einföld fé-
lagsform, en forðumst nefndir og
ráð — enda getum við tekið til
okkar ráða og hafið aðgerðir hve-
nær sem okkur sýnist með litlum
sem engum fyrirvara.”
I nóvember sl. fastaöi frú Wood
i eilefu daga, eða þar til hún hafði
knúið fram loforð enskra yfir-
valda um að taka á dagskrá það
mál, að koma á stofn sérstöku
þingi fyrir Skota.
„Auðvitað ætla þeir þvi ekki
mik.il völd, en það er skref i áttina
Eins og alþjóð er kunnugt eru
engar útsendingar hjá islenzka
sjónvarpinu á fimmtudögum. A-
stæðan til þess mun vera mann-
fæð og fjárskortur. Þótt margir
séu ekki ánægðir með dagskrá is-
lenzka sjónvarpsins viðurkenna
I þó flestir, að þar sé marg vel gert,
og kunnugir menn segja að það sé
fyrir margra hluta sakir aðdáun-
arvert, að jafnfámenn þjóð og Is-
lendingar skuli reka þó þetta góða
sjónvarpsstöð.
Ef þetta er haft i huga ætti sjón-
varpsleysið á fimmtudögum að
vera mönnum léttbærara.
Eftir millistéttalýsingu í Ashton hyggst Finch lýsa verkalýðsstéttinni og uppvexti sínum
Sam (Kervin Moreton) með móður sinni og vini hennar (Bar
bara Ewing og John Price) I einum af fyrstu framhaldsþáttun
um.
Með undanfarandi
lúðrablæstri hefur verka-
mannssonurinn Sam
haldið innreið sína f
brezka sjónvarpið og á að
þroskast úr 10 ára strák f
fullorðinn mann í 26 þátt-
um. Höfundurinn, John
Finch, sá sami og samdi
framhaldsþættina um
Ashtonf jölsky Iduna er
áttu sem mestum vin-
sældum að fagna bæði hér
og annars staðar, er ekki
vanur að fara fljótt yfir
sögu. Honum lætur að
lýsa í löngu máli og ýtar-
lega ólíkum örlögum
fjölda fólks, eins og hann
sýndi bezt i þáttunum um
Ashton.
Hálfri miljón punda hefur
veriðráðstafað til upptöku þess-
ara 26 þátta, sem hver um sig á
að taka um klukkutima, en John
Finch hefur reyndar þegar lýst
yfir, að fái Sam ekki að lifa
þrettán þætti til viðbótar sé
þetta nánast til einskis. Hann
vill fá að safna saman lausu
þráðunum og fá yfirsýn yfir ævi
sina. Þvi hér er um að ræða
sjlfsævisögu að nokkru leyti.
Strákurinn Sam er Finch sjálfur
sem barn. Eins og Finch elst
Sam upp i námubæ i Yorkshire,
bernska hans mótast af krepp-
unni, hungur og atvinnuleysi er
rikjandi.
andi.
Segja má, að Finch hafi gert
það að sérgrein sinni að lýsa
timabili með þvi að sýna hvaða
afleiðingar stóru atburðirnir
hafa fyrir einstaklingana. Ash-
tonfjölskyldan var úr millistétt,
en nú þegar hann lýsir eigin ævi
snýr hann sér að verkalýðsstétt-
inni og hennar umhverfi. Flest-
ar persónurnar eiga sér raun-
verulegar fyrirmyndir. Þarna
er t.d. móðirin, sem eiginmað-
urinn yfirgefur, — Finch missti
allt samband við föður sinn þeg-
ar hann var niu ára. Hann veit
ekki núna, hvort faðir hans er
lifandi eða dáinn. — Kannski
fylgist hann með þáttunum i
sjónvarpinu, segir hann.
Fjórði áratugurinn
endurvakinn.
Fyrsti þátturinn hefur fengið
misjafna dóma I Englandi og er
helzt kvartað yfir, að menn hafi
búizt við einhverju meira lifandi
og minna samkvæmt viðteknum
venjum i mannlýsingunum.
Þarna er móðurafinn, beizkur
og harður eftir margra ára at-
vinnuleysi, þarna eru konurnar,
sem rifast og þræla, þarna er
góðhjartaði móðurbróðirinn,
sem reynir I leyni aö vera föður-
leysingjanum vænn. Engin
persónanna er djúpstæð, segir
einn gagnrýnendanna, og engin
kemur manni sérstaklega mikið
við eftir þessi fyrstu kynni, hvað
sem siðar verður.
Umhverfissköpuninni er hins-
vegar almennt hrósað og þvi
hve mikið hefur verið gert til að
gera timabilið lifandi. Enginn
nógu heppilegur upptökustaður
fannst i Yorkshire, en sjón-
varpsmönnum tókst eftir mikla
leit að finna bæ með tveim
gömlum kolanámum i Lar.cas-
hire og þar var fjórði áratugur-
inn endurvakinn. Framhliðar
húsa i daufum litum, gamal-
dags farartæki, sorphaugar, allt
er i réttum stil.
Sam sjálfur þykir mjög aðlað-
andi persóna án þess að vera
uppáþrengjandi. Strákurinn
sem leikur hann er auðvitað frá
Yorkshire og talar með réttum
hreim. Hinsvegar hafa full-
orðnu leikararnir orðið að
leggja á sig ærna fyrirhöfn til að
ná Yorkshire mállýzkunni og
segja sumir, að þeir séu orðnir
svo færir, að Englendingar úr
öðrum héruðum eigi fullt i fangi
með að fylgjast með. Margir
þekktir sjónvarpsleikarar eru
með I þáttunum, þ.á.m. má
nefnda Barböru Ewing, sem
leikur móður Sams, og John
Price, sem fer með hlutverk
elskhuga hennar. 14 ára skóla-
drengur leikur Sam, Kevin
Moreton frá Yorkshire.
Fáum við að sjá Sam?
Þjóðviljinn sneri sér með þá
Framhald á bls. 15.