Þjóðviljinn - 01.07.1973, Síða 12

Þjóðviljinn - 01.07.1973, Síða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. júli 1973 Nixons og Samnmgur Brézhnéfs Undirstöðuatriöi samninga um frekari takmörkun árásarvopna- búnaðar Washington 21. júni. — Aöalrit- ari miðstjórnar Kommúnista- flokks Sovétrikjanna, Leonid Brézjnéf, og forseti Bandarikja Noröur-Ameriku, Richard Nixon, undirrituðu skjal um grundvall- aratriði samninga um frekari takmörkun árásarvopnabúnaðar. Hér á eftir fer texti skjalsins ó- sty ttur: „Aðalritari miðstjórnar Kommúnistaflokks Sovétrikj- anna, L.I. Brézjnéf, og forseti Bandarikja Norður-Ameriku, Richard Nixon, hafa Ihugað vandlega frekari takmörkun árásarvopnabúnaðar og þann árangur, sem þegar hef- ur náðst með núverandi samning- um, þeir itreka þá sannfæringu sina, að skjótar frekari aðgerðir mundu stuðla mjög að þvi að minnka hættuna á þvi, að út brjótist kjarnorkustyrjöld, og verða til eflingar alþjóðlegum friði og öryggi. Hafa þeir orðið sammála um eftirfarandi: I fyrsta lagi: Báðir aðilar munu halda áfram virkum samninga- viðræðum i þvi skyni að gera var- anlegan samning um fullkomnari ráöstafanir til þess að takmarka árásarvopnabúnað, svo og minnkun hans siðar, á grundvelli undirstöðuatriða sambúðar Sovétrikjanna og Bandarikjanna, er undirrituð voru i Moskvu 29. mai 1972, og bráðabirgðasamn- ings milli Sovétrikjanna og Bandarikjanna frá 26. mai 1972 um ákveðnar ráðstafanir með til- liti til takmörkunar árásarvoðna- búnaðar. A næsta ári munu báðir aðilar gera ákveðnar tilraunir til að gera varanlegan samning um fullkomnari ráðstafanir til tak- mörkunar árásarvopnabúnaðar er verði undirritaður árið 1974. 1 öðru lagi: Nýir samningar um takmörkun árásarvopnabúnaðar skulu grundvallaðir á ákvæðum sovézk-bandariska samkomu- lagsins, er gert var i Moskvu i mai 1972, og samningum er gerðir voru I Washington I júni 1973, og alveg sérstaklega munu báðir aðilar hafa i huga viðurkenningu á jöfnu öryggi hvors annars og viðurkenningu þess, að tilraunir til þess aö ná einhliða ávinningi, beint eða óbeint, væru I ósam- ræmi við bætta friðsamlega sam- búð Sovétrfkjanna og Bandarikj- anna. I þriðja lagi: Takmarkanir, sem settar verða á árásarvopna- búnað skulu ná bæði til fjölda vopnanna og til gerðar. 1 fjórða lagi: Takmarkanir árásarvopnabúnaðar skulu háðar nægilegu tæknilegu eftirliti þjóð- anna sjálfra. 1 fimmta lagi: Endurbætur og endurnýjun árásarvopna skulu háðar skilyrðum, sem sett verða i samninginn sem gera skal. 1 sjötta lagi: Meðan unnið er að gerð varanlegs samnings um full- komnari ráðstafanir til takmark- ana árásarvopna, eru báðir aðilar reiöubúnir til að gera samnínga um einstakar ráðstafanir til við- bótar gildandi samningi frá 26. mai 1972. 1 sjöunda lagi: Hvor aðili um sig mun halda áfram að gera nauðsynlegar skipulagslegar og tæknilegar ráðstafanir til að koma I veg fyrir slys eða óleyfi- lega notkun kjarnorkuvopna, sem þeir bera ábyrgð á i samræmi við samninginn frá 30. september 1971 milli Bandarikjanna og Sovétrikjanna. Washington, 21. júni 1973 F.h. Sovétrikjanna: L.I. Brézjnéf, aðalritari miðstjórnar Kommúnistaflokks Sovétrikjanna f.h. Bandarikja N-Ameriku: Richard M. Nixon, forseti Bandarikjanna. Samningur milli Sovétrikjanna og Bandaríkjanna um hindranir kjarnorkustyrjaldar. Washington 22. júni. — Hér á eftir fer texti samnings milli Sovétrikjanna og Bandarikjanna um ráðstafanir til að koma i veg fyrir kjarnorkustyrjöld: „Sovétrikin og Bandarikin, sem hér á eftir er visað til sem samn- ingsaðila, i þvi skyni að efla heimsfriðinn og alþjóðlegt ör- yggi, meðvitandi um að kjarn- orkustyjöld gæti haft i för með sér gereyðingu mannkynsins, i sam- ræmi við skuldbindingar þeirra samkvæmt stofnskrá Sameinuðu þjóðanna um að viðhalda friði, beita ekki ógnunum um valdbeit- ingu og að forðast strið, og i sam- ræmi við samninga, sem hvor aðili um sig hefur undirritað. og samkvæmt grundvallarákvæðum sambúðar Sovétrikjanna og Bandarikjanna, er undirrituð voru i Moskvu 29. mai 1972, stað- festa enn, að þróun samskipta milli Sovétrikjanna og Banda- rikjanna beinist ekki gegn öðrum rikjum né hagsmunum þeirra, hafa orðið sammála um eftirfar- andi: 1. grein. Sovétrikin og Bandarikin eru sammála um, að markmið stefnu þeirra er að koma i veg fyrir hættu á kjarnorkustyrjöld og notkun kjarnavopna. Samkvæmt þvi eru aðilar sam- mála um, að vinna að þvi að koma i veg fyrir að það ástand skapist, er hugsanlega gæti or- sakað að sambúð þeirra spillist, svo og að forðast hernaðarlegt andspæni og að koma i veg fyrir að kjarnorkustyrjöld brjóstist út milli þeirra og milli annars hvors samningsaðilans og annarra rikja. 2. grein Aðilar samþykkja, i samræmi við 1. grein og til þess að fram- kvæma markmið hennar, að ganga út frá þvi fyrst og fremst, að hvor aðili um sig muni forðast ógnun valdbeitingar gegn hinum aðilanum, gegn bandamönnum hins aðilans og gegn öðrum löndum, við aðstæður, er gætu verið hættulegar alþjóðlegum friði og öryggi. Aðilar eru sam- mála um, að þeir skuli gæta þessa við mótun utanrikisstefnu sinnar og i aðgerðum sinum á sviði alþjóðlegra samskipta. 3. grcin Aðilar hyggjast þróa samskipti sin innbyrðis og við önnur lönd i samræmi við markmið þessa samnings. 4. grein Ef svo kynni að fara, að sam- skipti milli samningsaðila eða milli annars aðilans og annars lands, virtust geta haft i för með sér hættu á kjarnorkuátökum, eða ef samskipti lands, sem ekki eru aðilar að þessum samningi, virðast geta haft i för með sér hættu á kjarnorkustyrjöld milli Sovétrikjanna og Bandarikjanna eða milli annars aðilans og annars lands, skulu Sovétrikin og Bandarikin i samræmi við ákvæði þessa samnings tafarlaust taka upp áriðandi viðræður sin á milli og gera allt sem þau geta til að afstýra þessari hættu. 5. grein Hvor aðili um sig skal hafa leyfi til að skýra öryggisráði Samein- uðu þjóðanna, aðalritara Samein- uðu þjóðanna og stjórnum banda- lagsrikja eða annarra rikja frá gangi og niðurstöðum viðræðna, sem stofnað er til i samræmi við 4. grein þessa samnings. 6. grein Ekkert i þessum samningi skal hafa áhrif á eða skerða íslandsmótið I. DEILD Keflavikurvöllur Keflavík — Fram leika i kvöld klukkan 20. Allir á völlinn. KNATTSPYRNURÁÐ a) óskoraðan rétt til einstak- lingsbundinnar eða sameigin- legrar sjálfsvarnar, samkvæmt ákvæðum 51. greinar stofnskrár Sámeinuðu þjóðanna. b) ákvæði stofnskrár Sam- einuðu þjóðanna, m.a. þau er fjalla um viðhald eða stofnun alþjóðlegs friðar og öryggis og c) skuldbindingar, er annar hvor aðila hefur tekizt á hendur gagnvart bandamanni eða öðru landi með samningi, samkomu- lagi eða öðru jafngildu skjali. 7. grein Þessi samningur hefur ótak- markaðan gildistima. 8. grein Þessi samningur tekur gildi við undirskrift. Gert i Washington 22. júni 1973, i tveim eintökum, öðru á enskri tungu og hinu á rússneskri tungu, báðir textar eru jafngildir. F.h. Sovétrikjanna: L.I. Brézjnéf, aðalritari miðstjórnar Kommúnistaflokks Sovét- rikjanna. F.h. Bandarikjanna: Richard M. Nixon, forseti Bandarikja Norður -'Ameriku. 5 daga kennslu- vika gaf góða raun Ilagaskóla var slitið miðviku- daginn 30. mai siðastliðinn og lauk þarmeð 1. starfsári skólans eftir að 6 daga kennsluvika var lögð niöur. Veröur ekki annaö sagt en að 5 daga kennsluvika hafi gefið góða raun i vetur og reynzt öllum aðilum hagkvæm og eðlileg, og námsárangur virðist með sama hætti og fyrr. • 11. bekk voru að þessu sinni 9 bekkjadeildir og luku 239 nemendur prófi. Hæstu einkunn hlaut Guðmundur Pálsson, 9,19, en alls hlutu 10 nemendur ágætis- einkunn i 1. bekk. • 12. bekk voru 8 deildir og gengu 219 nemendur til unglingaprófsj prófið stóðust 217. Hæstu einkunn hlaut að þessu sinni Finnur Svein- björnsson, 9,53, en alls hlutu 6 nemendur ágætiseinkunn i 2. bekk. • 1 3. bekk voru alls 118 nemendur i almennri bóknámsdeild, verzlunardeild og framhaldsdeild (5 bekkjadeildir) og náðu 102 nemendur framhaldseinkunn upp i 4. bekk. Hæstu einkunn I þessum deildum hlaut Svanborg Guðjónsdóttir, 8,08. í landsprófs- deildum voru að þessu sinni 127 nemendur i 5 bekkjadeildum og luku 126 prófi. Framhaldseinkunn hlutu 92 nemendur, en 16 að auki hafa heimild til að endurtaka hluta af prófum sinum i haust. Hæstu einkunn hlaut Ragnar Hauksson, 8,9. • 1 4. bekk luku 95 nemendur gagnfræðaprófi úr almennri bók- námsdeild (4 bekkjadeildir) og stóðust 90 prófið. Hæstu einkunn hlaut Ólafia Sigurjónsdóttir, 8,42. 1 verzlunardeild luku 32 nem- endur gagnfræðaprófi og stóðust það allir. Hæstu einkunn þar hlaut Jónina Jónsdóttir, 7,85 • Allmargir nemendur hlutu bókaverðlaun fyrir góðan náms- árangur og vel unnin störf. 60 kennarar störfuðu við Hagaskóla siðastliðinn vetur. ÞEGAR DÝRIN™KNARI: HÖFÐU MÁL EFFEL — Skammastu þín ekki að drulla þig svona út eins og ...eins og... eins og bölvaður sóði? Ostrur: Nú er kominn september. Nú fáum við aftur sí- trónur að éta.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.