Þjóðviljinn - 01.07.1973, Page 15
Sunnudagur 1. júli 1973 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Hitler
Framhald af bls. .6.
verið um að villast, frumsýn-
ingardagurinn er ekki nein tilvilj-
un.
Leikur Guinness
bjargar myndinni
Myndin hefur fengið heldur lé-
lega dóma i Þýzkalandi, og ef það
hefði ekki verið fyrir þátttöku
Alecs Guinness hefðu gagnrýn-
endur varla tekið myndina alvar-
lega. Þvi er haldið fram að mynd-
in sýni Hitler eins og venjulegan
óbrotinn mann með vandamál
sem vaxa honum yfir höfuð, i
henni sé hvergi að finna nokkra á-
deilu á nazismann, og engin
pólitisk afstaða sé tekin. Myndin
hefst á 5 minútna löngum kafla i
svart-hvitu og sýnir ytri aðstæð-
ur, eins og nokkurs konar for-
máli; svo er afgangurinn i litum
og gerist allur i neðanjarðarbyrg-
inu sem Hitler dvaldi i siðustu
daga ævinnar. Ahorfandinn fær
að vera viðstaddur afmælisdag
Hitlers, sorg hans þegar Himmler
og Göring svikja hann og að lok-
um brúðkaup hans og Evu Braun
29. april 1955, daginn fyrir sjálfs-
morðið. Ahorfandinn fær að vita
að Rússar eru i nokkur hundruð
metra f jarlægð frá byrginu, en of-
anjarðar. Sumir vilja halda þvi
fram að auðveldara sé að fá að
sjð framan i ásjónu fasismans á
þessum tima með þvi að sjá hina
gömlu mynd Chaplins „Einræðis-
herrann”, sem nú gengur I bió-
húsum hér, en með þvi að sjá
þessa nýju mynd um Hitler.
Chaplin-myndin „Einræðisherr-
ann’ kom ekki fyrr en 1958 til
Þýzkalands. Daily Mail segir um
Hitlers-æðiö núna: „Þetta er
bezta ár Hitlers” og Daily Mirror
segir háðslega: „Adolf hlýtur að
fá óskar”, og það verða örugg-
lega orð að sönnu.
Minjagripir nazismans
Allt sem minnir á Hitler hækk-
ar i verði, gamli Mercedesbillinn
hans sem hann notaði við hátiðleg
tækifæri og i skrúðfylkingar, var
fyrir nokkru seldur i Arizona á ca.
14 miljónir kr. Það er þvi án efa
dýrasti skranbill i heimi. A upp-
boði i Munchen var árituð
Hitlersmynd seld fyrir 800 þúsund
kr. og smáhlutir frá nazistatim-
unum eru lika verðmætir. Það
verður bara að gæta þess að selja
slika hluti eða nokkuð það annað
sem sýnir einkennismerki nazis-
mans. En allt annað sem minnir
á Hitler, svo sem póstkort, bréf,
stálhjálmar, myndir, uppkast að
ræðum, er i tizku að eiga núna.
Heimurinn þarf ekki lengur að -
óttast að Þjóðernislegi Sðsialista-
flokkurinn komist i valdaaðstöðu
i bráð, þvi hann hefur minnkað
svo mjög að erfitt er að koma
auga á hann i stjórnmálabarátt-
unni i dag.
Þýzkir höfundar og sagnfræð-
ingar leggja fram sinn skerf, til
viðhalds Hitler-dýrkuninni. Rit-
höfundurinn Walter Kempowski
spurði fólk hvort það hefði hitt
Hitler, og samdi bók upp úr svör-
unum. Bókin gefur nokkra mynd
af áliti hins almenna borgara á
„foringjanum”, og álitið er mis-
jafnt og jafnframt ógnvekjandi,
þvi margir dáðu þennan harö-
stjóra úr fjarlægð. Þessi bók er
eins og spegill, og getur þýzka
þjóðin ef til vill séð þar bregða
fyrir sumum þeim þjóðarein-
kennum sem hafa ráðið örlögum
hennar og leikið hana grátt.
Sagnfræðingurinn Werner
Maser sem hefur mikið kynnt sér
sögu Hitlers, gaf nýlega út áður
óþekkt bréf og minnisblöö Hitl-
ers. Þaö á einnig að koma út sem
framhaldsefni i „Der Spiegel”. 1
vor kemur svo út bók Garherts
Boldts sem notuð var við gerð
Guinness-myndarinar um siðustu
daga Hitlers, og Englendingurinn
Hugh Trevor-Ropers gefur út bók
sina um þetta sama efni.
Bandariski sálfræðingurinn
Walter Langes hefur skrifað
„Sálarástand Adolfs Hitlers”. I
haust kemur út ný stór bók um
ævi Hitlers eftir sagnfræðinginn
Joachim Fest.
Ekki er allt sem kemur á prent
um Hitler alvarlegs eðlis, þvi
grin- og jafnvel sorpritahöfundar
hafa notfært sér þessar augna-
bliks vinsældir hans og bæði gert
kvikmyndir og skrifað, m.a. þá
um „einkalif Hitlers”, og á mark-
aðinum eru einnig seglumynd-
varp með „Mein Kampf” til að
nota og njóta heima viö. Er það á
8 mm filmu.
Ýmislegt er þvi gert til þess að
fá fólk til þess að horfa á eða lesa
um Hitler. Enski grinleikarinn
Peter Sellers sem hefur þjálfun i
að leika háttsetta hershöfðingja
ætlar að gera kvikmynd um
Hitler, sem á þá að vera orðinn 85
ára gamall og finnast loks i frum-
skógum Suður-Ameriku og vera
dreginn fyrir lög og dóm, og á
dómarinn þar að vera i gervi
skopleikara.
Það sem er sameiginlegt með
þessu öllu er að vitneskjan um, að
Hitler er tizkufyrirbæri i dag,
gerir framleiðendum fært að
koma með til sölu nánast hvað
sem er. Hitler til þess að hlæja að,
til þess að gráta yfir, Hitler sem
vondi maðurinn, sem góði
maðurinn. Hitler sem venjuleg
manneskja, sem ofurmennið. Það
er vitað að allt selst sem kemur á
boðstólana um sögu hans og per-
sónu. Hugmyndin urn hann er
fjarlæg og spennandi rétt eins og
hann væri ný Frankenstein-hetja,
eða endurborinn King Kong.
(Þýtt úr Informafion —
eftir Ann Wolfsberg)
Nató
Framhald af bls. 7.
(en komið var upp um þessar
stöðvar i vitnaleiðslum fyrir
mannréttindanefndinni), og þar
eru lika þjálfunarbúðir fyrir nýja
útsendara.
Meðal nýrra herstöðva Nato er
kjarnorkukafbátahöfnin i Korfu
og flotastöðin i Pireus, sem leið-
ir til þess, að 10.000 Bandarikja-
menn flytja til Aþenu.
Kambódisku herforingjarnir,
sem steyptu stjórn Sihanouks
fursta, voru þjálfaðir i Grikklandi
og liðsforingjar Amins Uganda-
forseta hlutu góða þjálfun á sama
stað.
(<Jr Politisk Revy)
SAM
Framhald af 2 siðu
spurningu til Tage Ammendr-
ups i Lista- og skemmtideild is-
lenzka sjónvarpsins, en eins og
allir vita hafa brezku fram-
haldsþættirnir, sem hér hafa
verið sýndir, yfirleitt notið fá-
dæma vinsælda.
Tage sagði, að þeir á sjón-
varpinu hefðu enn ekkert frétt
af Sam, en auðvitað færu kaup á
sýningarrétti eftir þvi, hvernig
þáttunum yröi tekiö i heima-
landinu svo og, og þá ekki sizt,
eftir þvi hver kostnaðurinn yrði.
— vh.
Kanar
Framhald af 2 siðu
hverja að gruna, hvar fiskur ligg-
ur undir steini?
Ætli það sé alger tilviljun, að
þeir, sem annast rekstur Kefla-
vikursjónvarpsins, hafi valiö
þætti um islenzk málefni einmitt
þann tima, sem islenzka sjón-
varpið byrjar útsendingar sinar,
og jafnframt gætt þess, að sýna
þættina einmitt á þeim dögum,
sem engar útsendingar eru hjá is-
lenzka sjónvarpinu?
Já, þaö er margt tilviljana-
kennt i lifinu, en ef maöur er van-
trúaður á svona lygilega ósenni-
legar tilviljanir, hlýtur maður að
leiða hugann að þvi, hverjum
þessir þættir séu eiginlega ætlað-
ir. Eru þættirnir fræðsluþættir
fyrir Amerikana á vellinum, eða
eru Kanar að hlaupa i skarðiö
fyrir islenzka sjónvarpið?
Ef ameriski herinn vill stuöla
að auknum samskiptum Islend-
inga og ameriskra hermanna og
láta hersetuna seytla inn i þjóðar-
meðvitundina sem sjálfsagðan
hlut, þá getur hann ekki rekiö á-
róður fyrir þvi á heppilegri hátt,
en sýna samskipti Islendinga og
ameriskra hermanna i verki i
sjónvarpi kl. 8 á fimmtudögum.
Nú er vitaö mál, að forsvars-
' menn ameriska herveldisins vilja
einmitt allt þetta. „Við munum
gera allt til að halda herstööinni i
Keflavik”, segja þeir núna.
Það er þvi lævislegt bragð af
hálfu Amerlkana, að beita sterk-
asta áróðurstæki, sem til er, sjón-
varpssendingum, til aö koma þvi
inn hjá Islendingum, að sambýli
við herinn sé sjálfsagt. Þaö er
lúalegt bragð að nota til þessarar
iðju einmitt þann tima, er engrar
samkeppni er að vænta frá Is-
lenzka sjónvarpinu. Það er út-
hugsað bragð, aö notfæra sér
þann vana manna, að setjast nið-
ur við sjónvarpið að loknum
kvöldverði kl. átta, og hafa þá á
boðstólnum þátt um islenzk mál-
efni með þátttöku Islendinga i
stað einhvers innihaldslauss
skemmtiprógramms, sem þessi
sjónvarpsstöð er vön að sýna aðra
daga.
Við slikum læöupokaáróðri er
ekki til nema eitt svar. Það verð-
ur að framfylgja islenzkum lög-
um og loka kanasjónvarpinu. Það
er óverjandi, að islenzkir ráða-
menn loki augunum fyrir lögbrot-
um sem framin eru á Miðnes-
heiði.
óp.
Húsavík
Framhald af bls. 10.
Ingimar Hjálmarsson læknir
kr. 250.200.-, Pétur Stefánsson
skipstjóri kr. 195.000.-, Arni
Arsælsson læknir kr. 181,100.-,
Kristbjörn Arnason skipstjóri kr.
176.200.-, Ölafur Ölafsson lyfsali
kr. 170.800.-, Sigurður Sigurðsson
skipstjóri kr. 133,200,- Sr. Björn
H. Jónsson sóknarprestur kr.
119,700,—.
Viðlagasjóðsgjöld af útsvari
greiða 735 gjaldendur samtals kr.
3.680.300,00.
Viðlagasjóðsgjald kr. 10.000.00
og yfir greiöa 23 gjaldendur, og
eru þessir hæstir:
Ingimar Hjálmarsson læknir
kr. 25.900,-, Pétur Stefánsson
skipstjóri kr. 20.000.-, Arni
Arsælsson læknir kr. 18.900.-,
Kristbjörn Árnason skipstjóri
kr. 18.500,-, Ólafur Ólafsson
lyfsali kr. 17.900,-,
240 býli
Framhald af 1
Austurlandi, en Austurland er
nokkuð i sérflokki á þessu sviði,
og veldur virkjun Lagarfoss án
efa nokkru þar um. Svipaða sögu
er að segja um Vestfirði.
Á áðurnefndu timabili jókst
orkusala til húshitunar i bæjum
og þorpum a öllu landinu um 38%
en i sveitum um 33%. Raforkan
kemur þvi i siauknum mæli I stað
oliu til hitunar ibúðarhúsa.
Suðurland
Aætlað er aö leggja 85,3 km
langa linu vegna
sveitarafvæðingar á Suðurlandi,
og er kostnaðurinn við það verk
um 26 miljónir króna. Við þessa
raflögn munu 53 býli, tvær kirkjur
og eitt félagsheimili komast i
samband við samveitu.
Auk þessa verða lagðar
stofnlinur um fjórðunginn, komið
þar upp ileiri disilstöövum og
gerðar lagfæringar á dreifikerfi
bæjanna. Samtals mun varið á
þssu ári nær 55 miljónum til
rafvæðingar Suöurlands.
Austurland
Heildarfjárfesting
Rafmagnsveitnanna á Austur-
landi verður á þessu ári um 144
miljónir króna. Einn stærsti
liðurinn i framkvæmdunum þar
erLagarfossvirkjun. 78 miljónum
kr. mun varið til hennar og
fjölgun disilstööva og stofnlina.
Til sveitarafvæðingar verður
þar varið 52 miljónum króna. 84
býli, 3 kirkjur og 2 samkomuhús
munu tengjast samveitu, og
verður heildarlinulögn i þvi
sambandi um 175 kilómetrar.
Raforkuframleiðsla mun væntan-
lega hefjast I Lagarfossvirkjun
um áramótin 1974 — 75.
Vestfirðir
Aætluð fjárfesting Rafmagns-
veitnanna á Vestfjörðum 1973 er
128 miljónir króna. Stærsti
liðurinn er annar áfangi Mjólkár-
virkjunar, sem nú er byrjað aö
vinna við, en til hans verður i ár
veitt 96 miljónum króna.
Raforkuframleiðsla á Vest-
fjörðum er nú um 16 milj.
kWstunda, en viðbótarvirkjun
Mjólkár mun geta framleitt ár-
lega 35 milj. kWstunda.
Samtals verða 107 km. af raf-
linum lagðir i sumar til að tengja
býli samveitu, og er kostnaðurinn
við það 29. milj. króna. 35 býli og
átta aðilar aörir munu þannig
tengjast samveitunni i ár. Flestir
eru þessir bæir i Barðastrandar-
sýslu eða 24 býli.
Vesturland
34 býli verða tengd samveitu á
Vesturlandi i ár, og er kostnaður
við það verk áætlaður um 27
miljónir króna. Allmiklu fé eða 25
miljónum króna verður variö til
lagfærðingar á stofnlinum á
Snæfellsnesi. Þetta er þó aðeins
bráðabirgðalausn, en þó miðuð
við, að á næsta ári tengist
Snæfellsnes orkusvæði Lands-
virkjunar við Andakil. Heildar-
kostnaður við rafvæðingu á
Vesturlandi verður i ár 59 milj.
kr.
Norðurland eystra
Á Norðurlandi munu Raf-
magnsveiturnar fjárfesta nærri
34 milj. kr. á þessu ári. Mestur
kostnaður eða um 19 miljónir
hlýzt af tengingu Þórshafnar við
Laxárkerfi. Verður lögð há-
spennulina frá Kópaskeri til
Þórshafnar. 8 miljónum mun
verða varið til rafvæðingar 13
býla, einnar kirkju og eins sam-
komuhúss, þarf að leggja linu um
samtals 32 km langa leið.
Norðurland vestra
Brýnasta vandamálið i raf-
orkumálum i Norðurlandi vestra
er orkuframleiðsla. Enn hefur
ekki verið tekin ákvörðun um,
hvort auka eigi orkuframleiðslu
innan héraðs eða tengja héraðiö
orkusvæði Landsvirkjunar. Ef
um samtengingu verður að ræöa,
kemur tvennt til. Annaö hvort aö
leggja háspennulinu yfir hálendið
eða leggja svokallaða byggða-
linu, sem i stórum dráttum lægi á
sömu slóöum og þjóðvegurinn til
Norðurlands. I sumar verður lok-
ið við tengingu milli Akureyrar og
Sauðárkróks, og verður sú lina
132 þús. kilóv. Mun hún geta flutt
rafmagn á þessari leið, þó svo að
sá kostur verði valinn að leggja
byggðalinu suður. Alls veröur
varið 68 miljónum kr. til rafvæð-
ingar kjördæmisins. 19 býli verða
tengd samveitu og er kostnaður
viö það um 14 miljónir króna.
Rikisfyrirtæki
Framhald af 1., siðu.
rekenda i samræmi við
tilmæli rikisstjórnarinn-
ar og ákvæði málefna-
samnings stjórnarflokk-
anna.
Þau fyrirtæki rikisins, sem hér
er um að ræða, og látin voru
greiða vænar fúlgur i herkostnað
atvinnurekenda á dögum við-
reisnarstjórnarinnar, en nú hafa
ýmist sagt sig úr VI, eða sam-
þykkt úrsögn úr þvi, eru
Sementsverksmiðja rikisins,
Sildarverksmiðjur rikisins og
Aburðarverksmiðja rikisins, og
auk þess Kisilgúrverksmiðjan og
Landsvirkjun, sem rikið er
meðeigandi að ásamt öðrum aðil-
um.
Eitt fyrirtæki hefur ekki orðið
við tilmælum rikisstjórnarinnar
um úrsögn úr VI. Er það Tunnu-
verksmiðja rikisins, en meirihluti
stjórnar hennar mun hafa fellt að
segja sig úr Vinnuveitendasam-
bandinu. Starfsemi Tunnuverk-
smiðjunnar er hverfandi litil, og
hefur hún leigt húsnæðisaðstöðu
sina á Siglufirði öðru fyrirtæki
þar á staðnum.
Þá hefur Þjóðviljinn fregnað,
að i ráði sé að einhvers konar
samstarfi verði komið á milli
fyrirtækja rikisins við gerð kjara-
samninga. — úþ
Breyting á
humar.
veiðisvæðum
I frétt frá sjávarútvegsráðu-
neytinu segir:
Hinn 1. júli n.k. ganga i gildi ný
ákvæði humarveiðileyfa um lok-
un veiðisvæða, sem fela i sér
breytingar á bannsvæðinu út af
Reykjanesi og ber humarveiði-
mönnum að kynna sér þau.
Trúnaðarmenn Fiskifélags Is-
lands i öllum verstöðum frá Þor-
lákshöfn til Akraness láta i té
uppdrátt af svæðinu.
Þing Chile
leyst upp?
Eftir uppreisnartilraunina i
Chile i fyrradag hefur Allende
forseti nú heitið þvi að efnt skuli
til þjóðaratkvæðagreiðslu um
það, hvort þing landsins skuli
leyst upp.
Eins og kunnugt er hafa and-
stæðingar Allende og rikis-
stjórnarinnar meirihluta á
þinginu i Chile, og hafa þeir
óspart beitt þessu valdi til að
setja stjórninni stólinn fyrir
dyrnar i öllum málum, sem hún
vill koma fram.
Þá hafa margir herforingjar i
chileiska hernum verið hand-
teknir eftir uppreisnartilraunina.
Willy Brandt
kemur til Islands
Dr. Apel, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Vestur-Þýzkalands,
hefur skýrt frá þvi, að Willy
Brandt kanslari ætli að koma við
á tslandi til að kynna sér land-
helgismálið af eigin raun og eiga
viðræður við islenzka ráðamenn.
Willy Brandt ætlar á laxveiðar i
Grænlandi i sumarleyfi sinu i
ágúst, og á leiðinni þangað mun
hann koma hér við og staldra við i
einn dag.
Afgreiða ekki
franskar vörur
Brezkir hafnarverkamenn og
póstmenn hafa ákveðið að af-
greiða engar franskar vörur né
franskan póst i eina viku frá og
með niðnætti i gærkvöldi.
Þetta er gert til að mótmæla
fyrirhuguðum kjarnorkutilraun-
um Frakka á Kyrrahafi.
Sölumiðstöð bifreiða
Frainboð — Eftirspurn
Simatimi kl. 20—22.
Simi 22767
Minningarspjöld
Liknarsjóðs Dómkirkjunnar
eru afgreidd hjá Bókabúð
Æskunnar, Kirkjuhvoli, Verzl.
Emma, Skólavörðustig 5,
verzl. Oldugötu 29 og hjá
prestskonunum.
l Eosteignasaiai
1 Laugavegi 18a
“1 simi 17374
Höfum kaupendur að einbýlishúsum i
smáibúðahverfi, útborgun 2—3 millj., og
ibúðum viðsvegar um borgina.
Kvöldsimi 42618.