Þjóðviljinn - 31.08.1973, Side 1
Þjóðin harmi lostin eftir ofbeldisverk Breta:
Yélstjórinn á
Ægi lézt
I fyrradag gerðist sá
hörmulegi atburður að véi-
stjórinn á Ægi lézt, er hann
var að gera við skemmdir
sem urðu á skipi hans við
ásiglingu brezku freigát-
unnar Appolió. Reyndu
dráttarbátar að sigla á Ægi
innan 12 milnanna, en Ægir
sigldi undan og þá varð
þessi atburður, að vélstjór-
inn lézt.
Ilalldór Hallfreðsson vélstjóri á
Ægi var aðeins 33 ára, er hann
lézt. Hann lætur eftir sig eigin-
konu, Júliönu Heigadóttur og son
á öðru ári.
Halldór hafði aflað sér fyllstu
vélstjóraréttinda. Að lokinni
skólagöngu var hann fyrst I stað
Viðbrögð
almennings:
RETÐI
ALDA
Siöustu atburöir á miðunum
hafa vakið gifurlega reiðiöldu
meðal þjóðarinnar, réttlát og
heiftúðug reiði i garö brezka
herveldisins, sem valdið hefur
dauða eins af löggæzlumönn-
um okkar Islendinga.
Þeir, sem haft hafa sam-
band viö ritstjórn Þjóðviljans
hafa allir verið sammála um '
aö við þyrftum að herða þær
aðgerðir sem okkur er fært að
beita Breta.
Meðal þess sem krafizt er að
gert veröi nú er að stjórn-
málasambandi við Breta verði
algjörlega slitiö, og sendiráöii:
þeirra hér i Reykjavik lok-
aö.
Þá eru og uppi kröfur um að
Island segi sig þegar úr þvi
„varnarbandalagi” sem lýtur
að meira eða minna leyti
forystu Breta, og bandalags-
þjóö þeirra i Miðnesheiði verði
þegar gert að flytja herlið sitt
héðan.
Brezkum herþotum, eða
herflugvélum af annarri gerð,
verði heimilað aö lenda hér
þegar þeim sjálfum sýnist, en
allar'slikar vélar veröi tafar-
laust kyrrsettar og þeim ekki
hleypt héðan fyrr en endir ér
bundinn á ofbeldi Breta á ts-
landsmiðum.
Margir hafa bent á það
hrikalega ósamræmi sem i þvi
felst að þjónusta sú sem brezk
herflugvél fékk hér á landi á
dögunum og unnin var á her-
stöðvarsvæðinu i Keflavik,
hafi verið mun hraðvirkari en
sú viðgerðarþjónusta sem Is-
lendingar sjálfir veita varð-
skipum þeim, sem Bretar
leggja höfuðáherzlu á aö
ónýta. Þá hefur þess verið
krafizt að látiö verði af hvers
Framhald á 11. siðu.
vélstjóri á togara, en 14. október
1969 hóf hann störf hjá Land-
helgisgæzlunni á Ægi.
Lengst af hefur hann verið vél-
stjóri um borð I Ægi, en einnig
verið um tima á Óðni, Árvakri og
Þór.
Þjóðin er öll harmi slegin eftir
þann atburð sem varð á miðunum
i fyrrakvöld. Um þctta mál er
itarlega fjallað I Þjóðviljanum i
dag, en atburðunum sjálfum
lýsir Þröstur Sigtryggsson skip-
herra i viðtali sem birtist hér á
siðunni.
Harðorð mótmæli
Þjóðviljinn hafði i gær sam-
band við Ólaf Jóhannesson
forsætisráöherra vegna þeirra
hörmulegu atburða, er áttu
sér stað um borð I Ægi I fyrra-
dag.
Ólafur sagði, að gerzt hefði
hörmulegt slys, sem ætti
óbeint rætur að rekja til að-
geröa Breta, bæði herskipsins
og dráttarbátsins, sem kom
við sögu.
Þessum ásiglingum og að-
gerðum Breta yrði auðvitað
harðlega mótmælt.
Menn hefðu vitaskuld alltaf
verið hræddir um, að einhver
slys gætu komiö fyrir við vörn
Landhelginnar.
Ólafur sagðist vilja votta
konu og syni Halldórs og öllum
aöstandendum dýpstu samúð
’sina.
Halldór Hallfreðsson
Þröstur Sigtryggsson á Ægi um framkomu Breta:
Hef aldrei séð jafn
fólskulegar aðfarir
Frá fréttamanni Þjóðvilj-
ans á Akureyri, óttari
Proppé.
Varðskipið Ægir liggur nú
í höfn á Akureyri og hefjast
sjópróf vegna ásiglingar
herskipsins Appolló og láts
Halldórs Hallfreðssonar
klukkan hálf níu í dag.
Blaðamaður hafði sam-
band við Þröst Sigtryggs-
son skipherra um borð í
Ægi í gær, og bað hann
skýra nánar frá atvikum af
miðunum i fyrradag.
Eftir ásiglingu Appollo fórum
við aö gera við skemmdir. Við
vorum búnir aö sigla upp i vind-
inn á um þaö bil 8 sjómilna hraða
i nokkurn tima þegar viö sáum
Statesman á radar. Freigátan
hafði sagt honum að koma á þetta
svæði. Þannig stefndum við i átt
að Kolbeinsey i 25-30 minútur.
Var þá sjáanlegt aö hraðinn var
ekki nógu mikill. Ég bjóst ekki við
að dráttarbáturinn færi inn fyrir
12 milur frá Kolbeinsey. Ég vil
ekkertsegja hvort hann gerði það
af ásetningi eða vissi ekki hvar
hann var staddur.
Við létum vita niður að ferðin
yrði nú aukin bráðum. Halldór
heitinn var hættur viðgerðar-
störfum og var að ganga með log-
suðuklemmu aftur, þegar skyndi-
lega kom alda i ganginn og Hall-
dór féll við það. Var þar hnédjúp-
ur sjór. Hlupu menn til og ætluðu
að taka Halldór strax inn, en það
var ekki hægt fyrr en búið var að
rjúfa strauminn.
Ég tilkynnti stýrimanni sam-
stundis hvaö heföi gerzt, fór niöur
og hóf lifgunartilraunir. En þær
reyndust þvi miður árangurs-
lausar.
Veðrið var gott þegar þessi at-
burðir áttu sér stað, tvö vindstig
af norð-norð-austri og lifandi
kvika.
Þegar Appolló sigldi á Ægi fyrr
um daginn var Ægir aö koma að
austan og höfðum við engan
brezkan togara séð. Höfðu þeir
verið á Skaga- og Sporðagrunni,
en liklega var enginn þar nær
okkur en 20-25 sjómilur.
Þegar Statesman kom a
sjónarsviðið stefndi hann i fyrstu
dálitið vestur fyrir okkur, jók
skyndilega feröina og tók siðan
stefnuna beint á okkur eftir að
Appolló var farinn út af radar.
Eins og áður segir jók ég ferð-
ina til aö forðast ásiglingu, en þá
gerðist þetta hörmulega slys.
Statesman hélt áfram að elta
okkur, en fljótlega dró i sundur
með skipunum, enda höföum viö
ekki mælt meiri hraða á dráttar-
bátunum en 16 til 16 1/2 sjómilu.
Stuttu siðar heyröum við aö
Statesman var sagt aö halda til
togaranna á Skagagrunni.
Það fer ekki milli mála, sagði
Þröstur, að þarna voru brotnar
fleiri en ein siglingaregla.
Þjóðviljinn spurði Þröst hvort
það þjónaöi nokkrum tilgangi að
halda sjöpróf i slikum málum, og
hvort hann teldi aö eölilegt fram-
hald af þeim væri málshöfðun.
Þröstur taldi að þessa spurn-
ingu ætti frekar að leggja fyrir
löglærða menn, en benti á, að hér
væri fyrst og fremst verið að
rannsaka tildrög atburðanna.
Þjóðviljinn hefur bent á, að 85%
tjóna á varðskipum sé greitt af
brezka tryggingafélaginu Lloyds,
og það er ekki alveg vist aö þeir
sætti sig við aö greiða tjón sem
verða af völdum ólöglegra að-
geröa, jafnvel þótt brezki herinn
eigi i hlut.
Aðspurður sagði Þröstur, að
hann teldi sig hafa heimild til aö
taka togara ef hann sæi sér fært.
Hann sagðist ekki vita til þess að
nokkurn tima hefðu veriö gefin út
skrifleg fyrirmæli um hvernig
landhelgisgæzlunni skyldi háttað,
þ.e. hvort og hvernig eigi að
skjóta eða ekki skjóta. Sjálfsagt
væri að stofna ekki mannslifum i
hættu, en slikt hlyti alltaf aö vera
matsatriði hverju sinni.
För Ægis vestur með Norður-
Framhald á 11. siðu.
Varðskipið Ægir á siglingu.