Þjóðviljinn - 31.08.1973, Side 5

Þjóðviljinn - 31.08.1973, Side 5
Föstudagur 31. ágúst 1973. ÞJODVILJINN — SÍÐA 5 Náttúruvernd á Austurlandi Aðalfundur Náttúruverndar- samtaka Austurlands verður haldinn um næstu helgi, 1. og 2. september, á Borgarfirði eystra og Eiðum. Laugardaginn 1. september verður farið i kynnis- ferð til Borgarfjarðar og þar verður kvöldvaka, en daginn eftir verða aðalfundarstörf á Eiðum. Megin-mál fundarins að þessu sinni verða auk aðalfundarstarfa áætlanir um raforkuver á Austur- landi,og flytja um þann lið fram- söguerindi þeir Jakob Björnsson, orkumálastjóri og Sigurjón Helgason, verkfræðingur. Hefst dagskrárliður kl. 13.30 á sunnu- dag og er ölium opinn. Lagt verður af stað i ferðina til Borgarfjarðar með rútu og á einkabilum frá Egilsstöðum kl. 13 á laugardag og meðal annars komið við hjá Lagarfossvirkjun og framkvæmdar skoðanir. Edduhótelið á Eiðum er opið um helgina i tengslum við fund- inn, en honum lýkur þar siðdegis á sunnudag. Heilsugæzla fyrir brezku veiðiþjófana meðan þeir virða íslenzk mannslíf einskis Margir hafa hringt til Þjóð- viljans undanfarið vegna hinna tiðu ferða brezka eftirlitsskipsins Miröndu til lands með sjúklinga úr liði landhelgisbrjótanna. Hefur skipið t.d. tvisvar komið til Akur- eyrar siðustu þrjá dagana. Skipið hættir sér raunar ekki inn i höfnina, en hafnsögubátur er séndur til móts við Miröndu út undir Svalbarðseyri til að sækja sjúklingana, og þeir eru ekki veikari en svo að þeir eru látnir i þennan gamla nótabát og fluttir i honum til lands. Fólki þykir einkennilegt að meðan Bretar virða islenzk mannslif einskis eins og rækilega hefur sannazt, þá skuli islenzk sjúkrahús jafnan standa land- helgisbrjótunum opin. Bretar halda áfram að stofna islenzkum mannslifum i hættu og þverbrjóta Islenzk lög og alþjóða siglinga- reglur, en jafnframt finnst þeim sjálfsagt að íslendingar annist fyrir þá heilbrigðisþjónustu á landhelgisbrjotunum, og munu ekki finnast annars staðar dæmi um slik forréttindi árásaraðila sem beitir hernaðarlegu ofbeldi. Allir íslendingar þekkja það hversu erfitt er fyrir þá sjálfa að fá sjúkrahúsvist jafnvel þótt mikið liggi við, og þeim mun erfiðara reynist fólki að skilja þessa þjónustu við Breta. Studnum er sagt, að þarna sé verið að bjarga mönnum, sem gætu verið i lifshættu, en það er hæpin skýring við þessar aðstæður. Varðskipsmenn okkar eru lika i lifshættu, og dauði vél- stjórans á Ægi var bein afleiðing af árás brezks herskips og brezks dráttarbáts. Eftirlitsskipin svo- kölluðu eru fleytur úr sama flota og hafa það hlutverk að stuðla að þvi, að viðhalda landhelgis- brotum og auka þau. Kynþáttaóeirðir í Bandaríkjaher BAMBERG — Herlögregla hand- tók fimmtán svarta hermenn úr hernámsliði Bandarikjanna i Bamberg, Vestur-Þýzkalandi, eftir óeirðir sem urðu nýlega þar i borg milli svartra hermanna og hvitra i hernámsliðinu. Fimm hermenn hlutu meiösli i óeirðunum, og auk þess urðu i þeim nokkrar skemmdir á hús- næði. Formælandi bandariska hersins hefur ekki gefið upp ástæðuna til óeirðanna, en alkunnugt er að hernámslið Bandarikjanna i Þýzkalandi hefur lengi verið þeim höfuðverkur vegna kynþátta- óeirða, hassreykinga og versn- andi aga. Á sinum tima var komist svo að orði i bandarisku blaði, að til Þýzkalands væru sendir þeir hermenn einir, sem vonlaust væri að hægt væri að nota i hernaðinum i Vietnam. Frakkar banna ^stir Krists” PARÍS — Frönsk yfirvöld hafa bannað að kvikmyndin „Astalif Jesú Krists” verði tekin á frönsku iandi, eins og höfundur myndar- innar, Daninn Jens Jörgen Thorsen, hafði fyrirhugað. Var bannið gert heyrinkunnugt er flokkur dansks kvikmyndafólks var i þann veginn að hefja töku myndarinnar I borginni Apt i Suður-Frakklandi. Þessi fyrirhugaða kvikmynd hefur vakið mikið umtal og hneykslun, þótt menn ættu að vera farnir að venjast þvi að nokkuð frjálslega sé fjallað um lausnara kristinna manna. Páll páfi sjötti hefur þannig fordæmt myndina og ikveikjusprengjum var varpað að heimili danska ambassadorsins i Róm, að sögn i mótmælaskyni vegna þess, aö danska rikið fjárstyrkir mynda- tökuna. Einnig draifðu trúaðir menn kaþólskir flugritum i Róm, og stóö á þeim meðal annars að Danmörk væri svinastia Evrópu. Eins og bibliufastir menn vita er þess hvergi getið i Nýja testa- mentinu að Jesú hafi verið viö kvenmann kenndur, en Thorsen er engu að siður harður á þvi,að hann hafi verið i þingum við konur og byggir þá sannfæringu sina á þeirri einföldu röksemd, aö frelsarinn hafi verið i flestu sem aðrir menn. Islandia 73 Viðburóur Islandia 13^ 31.VIII-9.IX Frímerkjasýningin Islandia 73 opnar í dag klukkan 19:00 að Kjarvalsstöðum. Á sýningunni, sem haldin er í tilefni hundrað ára afmælis íslenzka frímerkisins, gefur að líta fjölda einstæðra safngripa, fræg frímerkjasöfn einstaklinga og opinberra aðila. Á meðan á sýningunni stendur, verða kl. 18, daglega kvikmyndasýningar og einnig fjöldi fyrirlestra. Pósthús verður starfrækt á sýningunni, þar sem sérstimpill verður í notkun. 4 söludeildir verða á sýningunni, 3 á vegum frímerkjakaupmanna, og 1 á vegum Póst- og símamálastjórnar, þar sem seld verða umslög sýningarinnar, sérstakar möppur með sýningarmerkjum, stimpluðum og óstimpluðum, og fleiri minjagripir. Hvers konar veitingar í veitingasölum Kjarvalsstaða. Sýningin sem stendur til 9. september er opin daglega frá 14:00—22:00. Islandia 73 Viðburður sem vert er að sjá Póst-og símamálastjórnin Lögtaksúrskurður I dag var kveðinn upp lögtaksúrskurður fyrir eftirtöldum gjaldfölln- um og ógreiddum gjöld- um ársins 1973 o.fl.: Tekjuskattur, eignar- skattur, slysatrygg- ingagjald vegna heim- ilisstarfa, kirkjugjald, kirkjugarðsgjald, slysa- trygginga- og lífeyris- tryggingagjöld atvinnu- rekenda samkv. 36. og 25. gr. almannatrygg- ingalaga nr. 67/1971, at- vinnuleysistryggingaið- gjald, launaskattur, al- mennur og sérstakur, iðnaðargjald, iðnlána- sjóðsgjald, skemmtana- skattur, miðagjald, bif- reiðaskattur, skoðunar- gjald ökutækja, skipa- skoðunargjald, lesta- og vitagjöld, vörugjald af innlendri framleiðslu, matvælaeftirlitsgjald, gjaldfallinn söluskattur og söluskattshækkanir, skipulagsgjald, véla- eftirlitsgjald, rafmagns- eftirlitsgjald, skattsektir til ríkissjóðs og tekju- skattshækkanir. Lögtök fyrir framan- greindum gjöldum, ásamt dráttarvöxtum og lögtakskostnaði, verða látin fara fram að 3 dög- um liðnum frá síðustu birtingu þessarar aug- lýsingar, án frekari fyrirvara, verði þau eigi greidd innan þess tíma. Bæjarfógetinn í Kefla- vík, 15. ágúst 1973. Alfreð Gíslason (sign.)

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.