Þjóðviljinn - 04.09.1973, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 4. september 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Hér er veriö að hefja byggingaframkvæmdir við stórhýsi Aöalverktaka við Höfðabakka, en Aðalverktakar eiga lika húsið i baksýn. Þessi nýja bygging getur hentað
Tækniskólanum mjög vel, að áliti arkitekta, og húsnæðið getur verið fullbúiö næsta haust. Hér er lausnin á húsnæðisvandræðum skólans, segja Tækniskólamenn. (Ljósm.
AK)
ILLA BUIÐ AÐ
TÆKNISKÓLANUM
Nemendur og kennarar fjölmenntu til ráðherra
Tækniskóli islands var sett-
ur i gær, Bjarni Kristjánsson
rektor setti skólann, en aðsókn
er mikil að skólanum. Hins
vegar er húsnæði skólans
gjörsamlega óviðunandi, og
hefur enn ekki rætzt úr þvi
vandamáli.
Við skólasetninguna flutti á-
varp Sigurður Hlöðversson,
form. nemendaráðs skólans,
og fjallaði hann eihnig um þaö
hversu illa er búið að skólan- ,
um varðandi húsnæði.
Kennsla fer fram á fjórum
stöðum, sums staðar við mjög
slæmar aðstæður. Nú býöst
skólanum hins vegar gott
leiguhúsnæði i nýbyggingu
Aðalverktaka við Höfða-
bakka. Nú vilja Tækniskóla-
menn skora á menntamála-
ráðherra að hlutast til um að
húsnæðið við Höfðabakka fá-
ist, og kynnti Sigurður tillögu
þar að lútandi og hvatti menn
til að fylk’ja liði til ráðherra og'
sýna honum að hann hefði
góðan liðstyrk i baráttunni við
fjárveitingavaldið. Að lokinni
ræðu Sigurðar talaði Ólafur
Jens Pétursson form Tækni-
kennarafélagsins, og lýsti yfir
stuðningi kennara við fram-
tak nemenda.
Að lokinni setningarathöfn
skólans gengu svo nemendur
og kennarar niður á Hverfis-
götu, og var menntamálaráð-
herra þar afhent ályktun nem-
endaráðs svohljóðandi:
,,Svo sem yður er kunnugt,
hefur Tækniskóli Islands búið
um árabil við ófullnægjandi
aðstæður i húsnæðismálum.
Eftir nýstaðfesta reglugerð
fyrir skólann, þar sem gert er
ráð fyrir fjölþættri starfsemi,
vex húsnæðisþörfin verulega.
Nemendum skólans er
kunnugt um eina raunhæfa til-
lögu um lausn þessa vanda,
þ.e. leiguhúsnæði við Höfða-
bakka hér i borg.
Ef þér hafiö ekki tekið á-
kvörðun um aðra fullnægjandi
lausn, skorum vér á yður, að
þér hlutizt nú þegar til um
samþykkt umræddrar tillögu,
svo að skólinn fái einn sama-
staö haustið 1974”.
Húsnœðisskorturinn i Eyjum:
Ætla Eyjabúar að
okra á Eyjabúum?
keypt að kaupa þau hús „fyrir
meiri peninga en þá sem það fær I
bætur fyrir nýju húsin sem það
missti”, eins og segir orðrétt i
bréfinu.
Hópurinn skorar á ráðamenn i
Viðlagasjóði að flýta sem mest
uppbyggingu og gera hana sem
glæsilegasta. sj.
Sigurður Magnússon forstjóri
Feröaskrifstofu rikisins.
Nýr forstjóri Ferðaskrifstofu rikisins:
Ríkisstofnun skömmtuð
óarðbærustu yerkefnin
Þjóðviljanum hefur
borizt afrit af bréfi sem
er stílað til Eyjapistils.
Undir bréfið skrifa 72
Vestmannaeyingar, en
tilefni skrifanna er sam-
tal við Hafstein Stefáns-
son, bæjarfulltrúa i Eyj-
um, er fjallaði um
endurkomu fólks til
Eyja og erfiðleika sam-
fara þvi. Þessi hópur
mótmælir öllum úrtöl-
um i sambandi við flutn-
ing fólks til Eyja.
1 bréfinu segir m .a.: „Hin sorg-
lega staðreynd er sú, að það sem
gerir búsetu hér i vetur erfiða,
eða jafnvel ómögulega, fyrir
margt fólk sem vill snúa heim
Tilnefndir menn
á stjórnlagaþing
KAIRÓ 3/9 — Rlkisstjórnir Libýu
og Egyptalands birtu í gær nöfn
hundrað stjórnmálamanna, sem
eiga að semja stjórnarskrá rikja-
sambands þessara landa.
aftur strax, er húsnæðisskortur”.
Ástæðan fyrir húsnæðisskortin-
um er i bréfinu talin meöal ann-
ars sú, að sumt af nothæfu hús-
næði sé I eigu fólks sem ætlar ekki
heim i bráð, vill ekki leigja öðrum
og að mikið af eldra húsnæði er
ekki til leigu, heldur til sölu fyrir
mikinn pening, og fólk ekki gin-
A laugardaginn var
tók Sigurður Magnús-
son, blaðafulltrúi Loft-
leiða i um það bil aldar-
fjórðung, við starfi for-
stjóra Ferðaskrifstofu
rikisins af Þorleifi Þórð-
arsyni, sem hafði stjórn-
að stofnuninni frá þvi
1945.
A blaðamannafundi I gær kom
það greinilega fram, að margt
hefur lagzt á sveif gegn þessari
rikisstofnun: önnur fyrirtæki og
einkaaöilar hafa sölsað undir sig
þau viðfangsefni hennar sem á-
batasömust hafa verið og vildu
enn kippa undan henni arðvæn-
legustu Edduhótelunum. ,,Ef
menn kjósa”, sagði Sigurður,
„að rikið haldi uppi samkeppni
við einkarekstur, þá verður að
búa svo um hnúta, að rikisskrif-
stofan fái fullt frelsi til harörar
samkeppni i þeim greinum sem
arðvænlegastar eru, i staö þess
að takmarka starfsemina við þá
þætti sem varla eru vænlegir til
mikillar fjáröflunar”. A fund-
inum kom það m.a. fram, að
stofnunin er aö flytja i nvtt hús-
næði um næstu mánaðamót. Er
það i húsi Sölufélags garðyrkju-
manna viö Reykjanesbraut.
— Nánar verður sagt frá fund-
inum i næsta blaði.
liminn
stækkar
Timinn kom út i gær, en þaö er i
annaö sinn sem hann kemur út á
mánudegi. Þjóöviljinn haföi tal af
Kristni Finnbogasy ni, fram-
kvæmdastjóra Tiinans og spurði
hann hvort ákveöiö væri aö halda
áfram mánudagsútgáfu Timans.
— Það er ekkert ákveðið i þeim
efnum, sagði Kristinn. Við höfum
ákveðna löngun til að leysa úr
blaðaleysi kaupenda Timans á
mánudögum, en það eru ýmis ljón
i veginum, til dæmis samningar
við blaðamenn og prentara, og
aldeilis óvist hvernig þeim mál-
um reiðir af.
Hins vegar er ákveöið að
stækka blaðið enn frá þvi sem
verið hefur og verður það 20 siður
þrjá daga vikunnar, 24—32 siður
einn dag og 40 siður tvo daga,
sagði Kristinn og er ekki að finna
á þeim framsóknarmönnum
neinn uppgjafatón. —úþ
Úrsögn
úr NATO
og brezka
sendiherrann
til Bretlands
Fischer hugsar sér til hreyfings:
Boðið upp á nýtt einvigi við Spasskí?
WASHINGTON — New York
Times skýrir frá þvi, að Bobby
Fischer ætii að koma fram i
Evrópu opinberlega á næsta
ári, leika fjöltefli og jafnvel
skora Spasskiaftur á hóim. Er
þetta haft eftir málafærslu-
manni Fischers, Stanley Rad-
er.
Rader segir, að Fischer sé
hress og við beztu heilsu, hvað
sem orðrómi liði. Rader er að
fara til Evrópu n.k. sunnudag
til að semja um tvö fjöltefli
sem Fischer efnir til og
keppni, þar sem hann á i höggi
við samanlagða olympiusveit
Hollendinga.
Rader sagði aö Fischer
hefði einnug hug á að fara I
skákferöalag um Austur-
Evrópu. Fischer hefur beint
mörgum skeytum að sovézk-
um skákmönnum fyrir að þeir
hjálpi hver öðrum á mótum og
fengið stundum skammahrin-
ur I staöinn. Engu aö síöur er
Fischer mjög vinsæll þar
eystra. Rader hefur hug á aö
stinga upp á einvigi milli
Spasskís og Fischers og fengi
sigurvegarinn miljón dali i
verölaun en sá sem tapar um
2C0þúsund. Þeir mundu skipta
með sér jafnt tekjum af sjón-
varpsefni o.þ.l.
Eftirfarandi samþykkt hefur
stjórn Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna i Reykjavik gert og
sent hana forsætisráðherra:
Fundur i stjórn Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna i
Reykjavik haldinn 31. ágúst 1973
skorar á rikisstj. Islands að visa
sendiherra Breta þegar í stað úr
landi vegna þeirra atburða sem
gerzt hafa á tslandsmiðum nú
undanfariö og leitt hafa til mann-
tjóns sem Bretar bera fulla
ábyrgð á.
Einnig skorar stjórn Samtak-
anna á rikisstjórnina að hefja nú
þegar undirbúning að úrsögn úr
NATO.