Þjóðviljinn - 12.09.1973, Síða 3
l/4 hluti Votmúlans seidur fyrir 100
þúsund fyrir þremur árum
Hreppsnefndin
samþykkti
Votmúlakaupin
Annar varamaður settur inn til að tryggja
framgang málsins. Minnihiutinn lýsti
kaupin lögleysu.
Meirihluti Selfosshrepps-
nefndar samþykkti í gær
kaupin á Votmúlajörðun-
um. Vegna fjarveru Guð-
mundar Daníelssonar, sem
sæti á i hreppsnefndinni,
var kallaður til annar vara-
maður svo að samþykktina
mætti gera, en fyrsta vara-
manni Guðmundar var
ekki heimiluð seta á fund-
inum.
Fulltrúar minnihlutans
lýstu kaup þessi lögleysu
með öllu.
Þegar klukkan var orðin 5 i
gærdag var einsýnt að húsnæði
hreppsnefndarinnar, sem vana-
legt er að halda hreppsnefndar-
fundi i, dygöi ekki til þvi ibúarnir
létu sér málið svo miklu varða.
Var fundurinn þvi fluttur i Sel-
fossbió, og var þar ákaflega
margt um manninn áður en yfir
lauk. Þetta mun vera fyrsti
hreppsnefndarfundur sem þar er
haldinn.
ÓIi Þ. Guðbjartsson setti fund-
inn og gerði grein fyrir þvi, að
samkvæmt sveitastjórnarlögum
og með skeyti frá Guðmundi
Danielssyni yrði varamaður hans
á þessum fundi Guðmundur
Helgason en ekki Guðmundur
Kristinsson, sem þó er fyrsti
varamaður. Skeyti Guðm. Dan.
var dagsett 5. sept., en hrepps-
nefndarfundarboðið 6. septem-
ber.
Þá las Óli upp tvö bréf frá
sýslumanni þar sem hann skýrði
frá þvi að honum hefðu borist
undirskriftir samtals 965 Selfoss-
búa eldri en 16 ára, sem mót-
mæltu kaupunum á Votmúlajörð-
unum. Af þessum hópi eru 895 20
ára eða þaðan af eldri, en 70 á
aldrinum 16-20 ára
Þessu næst las Óli, sem er odd-
viti hreppsnefndarinnar, upp
greinargerð þá sem meirihluta-
menn sendufrá sér um málið, en
greinargerð þessi birtist i Þjóð-
viljanum sl. sunnudag. Nefndi
oddvitinn máli sinu til stuðnings
þrjú meginrök: Með þessu fengist
ágætis iþrótta- og útivistarsvæði
fyrir hestamenn og golfmenn; að
mikilsvert væri fyrir Selfoss að
eignast stóran hluta Miðflóans;
landiö væri tilvalið til maka-
skipta. Sagði Óli að allt land sem
hreppurinn ætti væri metið á 123
miljónir.
Þessu næst flutti Óli dagskrár-
tillögu þess efnis að hreppsnefnd
ákvæði að visa þvi til sýslumanns
Arnessýslu hvort hreppnum yrði
það fjárhagslega ofviða næstu ár-
in að standa i þessum landakaup-
um.
Næstur tók til máls Bergþór
Finnbogason. Kraföist hann stað-
festingar á skeyti þvi, sem Guð-
mundur Danielsson var sagður
hafa sent, en ekki taka það gilt
ella.
Þá skýrði Bergþór frá þvi, að
Guðm. Kristinsson, sem vera átti
varamaður og sitja á þessum
fundi, hefði sagt upp starfi þvi
sem hann hefur gegnt undanfarið,
það er starfi ritara hreppsnefnd-
arinnar. Guðmundur Kristinsson
var andvigur kaupum hreppsins á
Votmúlajöröunum og þvi ekki
kvaddur til að taka sæti á þessum
fundi. Las Bergþór upp greinar-
gerð Guðmundar Kr., en honum
hafði veriö meinað að flytja hana
sjálfum, en greinargerðina lagði
Bergþór fram til bókunar. Grein-
argerð Guðmundar Kristinssonar
fer hér á eftir, orðrétt:
„Vegna kaupa meirihluta
hreppsnefndar Selfoss á jörð-
inni Votmúla i Sandvikurhreppi
vil ég 'Sem stuðningsmað-'
ur og 1. varamaður nú-
verandi meirihluta taka fram
eftirfarandi:
1. Ég lýsi mig þessum kaupum
gersamlega andvigan. Ég tel,
aö með þvi að kaupa þetta 256
ha. mýrlendi hlunnindalausrar
eyðijarðar i öörum hreppi fyrir
30 miljónir króna — jafnvirði
nær allra útsvara Selfossbúa I
ár — sé verið að hlunnfara
sveitarfélagið stórlega, útiloka
öll frekari landakaup á sann-
virði og binda borgarana mikl-
um greiðslubyröum um langan
tima.
Landið er óhæft sem bygg-
ingarland vegna þess hve lágt
það er og fjarlægt. Og i þá átt
tel ég allra sist að beina ætti
þróun byggöar á Selfossi. Af
þessum sökum tel ég kaupin á
Votmúla mikið glapræði.
2. Þá tel ég pukur og leynd i
meöferö sliks stórmáls mjög
ámælisvert, er 4 hreppsnefnd-
armenn semja um málið á laun
og leggja undirskrifaðan kaup-
samning upp á 30 miljónir
króna fyrir hreppsnefndarfund
— án þess að getið sé i fundar-
boöi og keyra hann þar i gegn i
krafti meirihlutavalds án nokk-
urs samráðs við nánustu stuðn-
ingsmenn.
3. Þá vil ég mótmæla þvi, að
mér er hafnað við boðun þessa
fundar sem varamanni vegna
forfalla Guðm. Danielssonar en
þess i stað boðaður til fundarins
maður, sem sæti á neðar á
framboðslista I-listans”.
Eftir að Bergþór hafði lesið
yfirlýsingu Guöm. Kr. tók Sigurð-
ur Ingi Sigurðsson, fyrrverandi
oddviti, til máls, og skýrði frá þvi
að minnihlutanum hefði verið
synjað um frest til að athuga
þetta landakaupmál. Þá vitnaði
Sigurður til sveitarstjórnarlag-
anna þar sem segir aö boða beri
til funda i hreppsnefndum með
dagskrá, en kaupin á Votmula
voru alls ekki á boðaöri dagskrá
fundarins 22. ág. þegar kaupin
voru afráðin.
Siöan vitnaöi Sigurður Ingi i
ýmis landakaup sem hreppurinn
hefði gert á undanförnum árum,
og siöast 1969 þegar keypt var
land það sem vatn Selfossbúa er
tekiö úr og allt landiö fékkst fyrir
150 þúsund krónur eða 75 ára fer-
metrinn.
Þá sagði Sigurður að hann efað-
ist um að sagan um fjársterka
kaupendur i Reykjavik að Vot-
múla væri sönn, og þótt hún væri
þaö sagöi Sigurður að það rétt-
lætti ekki að Selfosshreppur stæöi
i samkeppni við braskara úr Rvik
um landakaup. Aö lokum spuröi
hann eftir þvi hvort leitaö hefði
verið eftir öðrum jörðum til
kaups, og sagði að sér sýndist
sem svo að vextir þeir sem Sel-
fosshreppur ætti að greiða næsta
ár og þinglýsingargjaldið væru
réttmæt greiösla fyrir allt landið,
en það mun láta nærri að vera 4
milljónir, en jaröirnar eru keypt-
ar á 30 miljónir.
Þá las hann og upp mótmæla-
bókun minnihlutans.
Næstur tók til máls Guðmundur
Á. Böðvarsson, sveitarstjóri. Las
hann upp bá sömu yfirlýsingu og
hann las yfir blaðamönnum á
Miðvikudagur 12. september 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 3
Hreppsnefnd Selfoss á fundi á sviði Selfossbiós í gær
(Myndirnar tók AK)
Mimisbar i siðustu viku þess efnis
að fjársterkir aðilar hefðu lýst sig
fúsa til að kaupa jarðirnar á 20
miljónir og greiða þær upp á 15
árum. 1 slikum tilvikum vilja
bjóðendur ekki láta nafns sins
getið, sagði GAB, og við það hlógu
Selfossbúar, sem frammi i sal
bióhússins sátu.
Eftir að GAB hafði lýst þvi yfir
að kaupin væru afar hagstæð, lét
hann bóka eftir sér, að hann teldi
sig ekki hafa gegnt hlutverki sinu
sem sveitarstjóri hefði hann ekki
gert 30 miljón króna samninginn
eftir að hann hafði heyrt af 20
miljón króna samningnum.
Næst talaði Arndis Þor-
bjarnardóttir, en hún var ekki á
fundinum 22. ágúst, en þar lýsti
sveitarstjórinn sig mjög fylgjandi
kaupunum, en það sýndist henni
einkennilegur verslunarmaður,
en það er GAB þessi, að hann
hlypi eftir sögusögnum um tilboð
fjarstaddra aðila án þess að
kanna málin nokkuð nánar né
heldur að grennslast fyrir um það
hverjir það væru. Skoraði hún á
GAB að upplýsa hverjir þessir
fjársterku aðilar væru. Þá sagði
Arndis að aldrei hefði veriö farið
fram á aðra umræðu þessa máls,
heldur frest á afgreiðslu þess svo
að mönnum gæfist ráðrúm til að
kynna sér þau betur. Sagði hún að
kaupsamningurinn væri gallaður,
i hann vantaði fyrirvarann um
samþykki sýslunefndar og þvi
Arbæjarlandi væri dáinn og þvi
gæti hann ekki kallað hann til
vitnis.
Arnriis Þorbjarnardóttir spurði
þessu næst að þvi hvers vegna
hreppurinn hefði ekki beðið eftir
uppboði á Votmúlajörðunum, en
þær hefðu verið auglýstar á nauð-
ungaruppboði i Lögbirtingablað-
inu. Þá spurði hún að þvi hvernig
það gæti farið heim og saman að
lögrfæðingur hreppsins hefði i
fyrra gert árangurslausar
tilraunir til lögtaks hjá seljanda
Votmúlajarðanna fyrir skuldum
hans við hreppinn en nú keypti
hreppurinn af honum eignir fyrir
30 miljónir.
Þessu næst stóð upp Guðmundur
Helgason,, varamaður Guöm.
Dan, og las stutta yfirlýsingu þess
efnis að hann væri þessum kaup-
um algjörlega meðmæltur.
Bergþór Finnbogason stóð enn
upp og gerði grin að kaupum
þessum og meirihlutamönnum.
Stóðst þá ekki sveitarstjórinn
GAB mátið öllu lengur og las upp
enn einu sinni Mimisbarsyfirlýs-
inguna frægu um lögmann selj-
anda og tugthúsvist þeirra sem
nálægt málum þessum hafa kom-
ið.
Þessu næst bar oddvitinn til-
lögu meirihlutans um að visa
málinu til umsagnar sýslunefnd-
ar upp til atkvæöa og voru Sjálf-
stæðismenn og I-listamenn, eða
Guömundarlistamenn. henni
Óli Þ. Guöbjartsson
Sigurður Ingi Sigurösson
samþykkir, en tveir fulltrúar
Framsóknarflokksins og fulltrúi
Alþýðubandalagsins henni
andvigir. F'ékk hún þvi 4 atkvæöi
en 3 voru i gegn.
Þessu næst las Sigurður Ingi
upp yfirlýsinguna frá minni-
hlutanum þar sem kaupsamning-
urinn var lýstur lögleysa ein og
nefndi þar til tvö atriði. Fyrst það
að hans hefði að engu verið getið i
boðaðri dagskrá þess fundar, sem
staðfesti hann, og svo að sanfi-'
þykki sýslunefndar var ekki leit-
að áður en ráðist var i kaupin og
samningurinn gerður.
Það var greinilegt af fundi
þessum að meirihlutamenn áttu
ekki fylgi að fagna meðal ibúa
hreppsins. Eftir hverja ræðu
minnihlutamanna, svo og inni i
ræðum þeirra, glumdi við
fagnaðarklappa áheyrenda, en
engum iófa var saman skellt eftir
ræður þeirra meirihlutamanna.
Að lokum skal þess getið, að
samkvæmt upplýsingum sem
undirritaður fékk á fundinum var
1/4 hluti Votmúlajarðanna seldur
Tómasi Brandssyni, þeim er seldi
Þórkeli kaupmanni, sem nú selur
Selfosshreppi, fyrir 100 þúsund
krónur, og siðustu greiðslur ber-
ast nú þessa daga. Þessi
fjórðungur er nú seldur á 7 miljón
krónur til hreppsins.
— úþ
Bergþór Finnbogason
Seðlabankinn
væri hann ólöglegur.
Bergþór Finnbogason talaði
þessu næst og skýrði frá þvi að
minnihlutamenn þeir, sem voru á
fundinum 22. ágúst, hefðu ekki
viljað taka þátt i atkvæöagreiðslu
um málið vegna þess að þeir töldu
það ekki á dagskrá.
Þá spurði Bergþór að þvi hvort
ætlun meirihlutans væri sú að
keppa við þessa fjársterku aðila
hvert sinn sem þeir gerðu sig lik-
lega til að kaupa lönd i nágrenni
Selfoss. Þá benti hann meiri-
hlutanum á að hann heföi getað
fengið betra land undir golf og
hestamennsku fyrir 3 krónur 35
aura fermetrann, en þaö eru
Þórustaðir sem nú eru til sölu.
Oddviti, Óli Þ. Guðbjartsson,
tók aftur til máls og viðurkenndi
að ekki heföi verið leitað eftir að
kaupa aðrar jarðir i nágrenni Sel-
foss, einfaldlega vegna þess að
ekki hefði heyrst af þvi að þær
væru til sölu. Taldi hann grund-
vallaratriði fyrir þéttbýlisbyggö-
ir að eiga land, en aðstaða
þéttbýlisins til landakaupa væri
mjög slæm. Nefndi hann nokkur
dæmi þar um.
Siðan skýrði oddviti frá þvi að
maður sá sem sagt hefði honum
frá nei-yrði Sigurðar Inga fyrir
ákveðnum landakaupum úr
Bankaráð og bankastjórn
Seðlabankans hafa i dag fjallaö
um mótmæli þau, sem fram hafa
komið gegn byggingarfram -
kvæmdum Seðlabankans við
Sölvhólsgötu. Hefur þessi and-
staða komið fram nú að undan-
förnu, þrátt fyrir vandlegan
undirbúning málsins fyrir opnum
tjöldum um nær tveggja ára
skeið. Hefur á þvi timabili verið
fjallað um málið af borgaryfir-
völdum og hafa hinar fyrirhuguöu
teikningar hlotið einróma sam-
þykkt og stuðning fulltrúa allra
flokka i borgarstjórn.
Það hefur frá upphafi verið
stefna bankans að reisa
byggingu, er bæöi hentaði starf-
semi hans og orðið gæti til að
prýða höfuðborg landsins. Væri
þvi vissulega illa farið, ef
byggingarframkvæmdir bankans
yrðu til þess að koma á stað ófriði
og úlfúð, sem aðeins getur skaðað
bankann i mikilvægum störfum
hans i þágu þjóðarinnar.
Bankaráð og bankastjórn vilja
þvi að þessu athuguðu gera eftir-
farandi samþykkt:
1) Bankastjórninni er falið að til-
kynna borgarstjórn Reykjavikur,
að bankinn sé reiðubúinn til
viðræðna við borgaryfirvöld um
hugsanlegar breytingar á
byggingarfyrirætlunum bankans,
svo að þeirri gagnrýni, sem fram
hefur komið, verði mætt og lausn
fáist á húsnæðisþörfum bankans,
sem menn geti sætt sig við.
2) Engar ákvarðanir verði teknar
um frekari framkvæmdir á lóð
Seðlabankans en þegar hefur
veriðsamið við verktaka um, fyrr
en niðurstaða hefur fengizt i við-
ræðurri við borgaryfirvöld.
Það er von bankaráðs og
bankastjórnar, að þessar
ákvarðanir bankans verði til
þess, að menn fáist til þess aö
ræða þessar byggingarfram-
kvæmdir rólega og æsingarlaust,
og málinu verði að lokum „borgiö
með fullri vinsemd og virðuleik”,
svo að notuð séu orð Tómasar
Guðmundssonar, skálds.