Þjóðviljinn - 12.09.1973, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 12.09.1973, Qupperneq 5
Miftvikudagur 12. september 1973 ÞJÓÐVILJINN — StPA 5 Norsku kosningarnar: Stórsigur Sósíalíska kosningabandalagsins Óvœnt fylgisaukning Kristilega þjóðarflokksins - hrakfarir auðvalds- og EBE-sinna Ljóst er nú orðið að Sósíalíska kosningabanda- lagið vann í kosningunum til norska Stórþingsins ein- hvern glæsilegasta sigur, sem sósíalistar á Norður- löndum hafa átt að fagna síðustu áratugina. Flokkur- inn fékk 11.2 af hundraði greiddra atkvæða, líklega sextán þingmenn kjöma. Hugsanlegt er að sú tala eigi enn eftir að hækka um einn, en ennþá eru ekki fulltalin utankjörstaðaat- kvæði í nokkrum kjördæm- um, svo að tölurnar geta raskast eitthvað lítillega. Burtséð frá stórsigri Sósial- íska kosningabandalagsins vekur mesta athygli sigur Kristilega þjóðarflokksins, sem hlaut 11.8 af hundraði atkvæða og tuttugu þing- menn kjöma, hafði áður fjórtán. Samkvæmt siðustu tölum, sem varla raskast mikið úr þessu, eru heildarúrslit kosninganna þessi: Verkamannaflokkur 757.507 at- kvæði og 62 þingmenn kjörnir, Hægri flokkur 369.461 atkv. og 29 þingmenn, Miðflokkur 145.149 atkv. og 21 þingmaður, Kristilegi þjóðarflokkurinn 251.766 atkv. og 20 þingmenn, Sósialiska kosn- ingabandalagið 238.140atkv. og 16 þingmenn, Vinstri flokkurinn 48.551 atkv. og tveir þingmenn, Nýi þjóðarflokkurinn 73.147 atkv. og einn þingmaður og flokkur Anders Lange 106.130 atkv. og fjórir þingmenn kjörnir. Hlut- fallslega skiptast atkvæðin sem hér segir: Verkamannaflokkur 35.5 af hundraði, Hægri 17.3, Mið- flokkur 6.8, Kristilegir 11.8, Sósialiska kosningabandalagið 11.2, Vinstri 2.3, Nýi þjóðarflokk- ur 3.4 og Anders Lange 5.0. Þó nokkrir flokkar fleiri buðu fram, en fengu daufar undirtektir. Sprækastur þeirra reyndist Röd Valgallianse (maóistar) sem fékk nærri niu þúsund atkvæði eða 0.4 af hundraði. Aðrir smáflokkar fengu samtals 0.5 af hundraði greiddra atkvæða. „Margur kratinn fór þá flatt . . ." Hroðalegasta útreið úr kosn- ingunum fékk Verkamannaflok- urinn, sem hrapaði úr 46.5 af hundraði greiddra atkvæða i kosningunum 1969 niður i aðeins 35.5 af hundraði nú og tapaði tólf þingsætum, og Vinstri flokkurinn, sem klofnaði út af EBE-málinu með þeim afleiðingum að EBE- sinnar úr flokknum gengu nú til kosninga undir nafninu Nýi RÆTT VIÐ FINN GUSTAVSEN Gekkbeturen okkur hafði dreymt um Þjóðviljinn náði laust eftir hádegið í gær tali af Finn Gustavsen, leið- toga Sósíalíska kosn- ingabandalagsins, höfuðsigurvegara norsku stórþingskosn- inganna, og spurði hann nokkurra spurninga varðandi ástand og horfur í norskum stjórn- málum, að kosningum afstöðnum. — Það er fullvist að við fáum fimmtán þingsæti, sagði Gustavsen, — en þau gætu orðið seytján, þvi að enn eru ekki fulltalin utankjörstaöaat- kvæði i nokkrum kjördæmum. Það er verið að telja i Björg- vin og hugsanlegt að við fáum tvo þar. Allt bendir til þess aö borgaraflokkarnir verði i minnihluta á næsta Stórþingi. — Myndið þið stjórn með Verkamannaflokknum? — Við höfum ekki áhuga á þvi, en við komum engu að siður til með að hafa mikil áhrif á gang landsmála. Eitt það mál, sem við leggjum mesta áherslu á, er að tryggja fullkomið sjálfstæði Noregs, að það verði ekki háð stór- veldum og stórveldablökkum. — Myndar Verkamanna- flokkurinn kannski stjórn með beinum eða óbeinum stuðningi eins eða fleiri borgaraflokk- anna? — Það er svo sem ekki úti- lokað að sósialdemókratarnir hérna finni upp á þvi að hegða sér eins aulalega og islensku Finn Gustavsen, leiðtogi Sósiaiiska kosningabanda- lagsins. Kosningasigur þess þýðir væntanlega sveiflu til vinstri i norskum stjórn- málurn. kratarnir, en þá yrðu þeir stimplaðir sem borgara- flokkur. Ég held að þeir hafi vit á þvi að forðast þá ófæru og taki heldur höndum saman við okkur um framkvæmd ýmissa róttækra stefnumála. Tækju þeir hinsvegar upp á þvi að snúa sér til borgaraflokk- anna, eins og islensku krat- arnir gerðu, yrði niðurstaöan sú sama hér og hjá ykkur: að kratarnir dyttu úr sögunni sem flokkur, sem nokkurt verulegt mark væri tekið á. Gustavsen var að vonum mjög ánægður með úrslit kosninganna. — Arangurinn er svo að segja allsstaðar jafngóður, hvert á land sem litið er, sagði hann. — Við höfum fengið þingsæti i fylkjum, þar sem okkur hafði ekki dreymt um að við fengjum verulegt fylgi. Við höfum nú þingsæti i þrettán fylkjum af nitján alls og tvö þingsæti i fjórum þeirra. Sterkastir tiltölulega eru- um við á Finnmörk, þar sem viö fengum 19,4 pró- sent greiddra atkvæða. Við erum nú fylgismesti flokkur- inn bæði þar og á Þelamörk. A Finnmörk voru það ekki sist fiskimenn, sem kusu okkur, vegna þess, að við höfum lýst þvi yfir að við viljum að fisk- veiðilandhelgi Norðmanna sé umsvifalaust færð út i fimmtiu milur, að dæmi Islendinga. A Þelamörk eru fjölmennastir fiskimenn, iðnverkamenn og smábændur, og allir þessir stéttahópar virðast hafa fylkt sér um okkur. — Atti landhelgismálið drýgstan þátt i kosningasigri ykkar, að þinu áliti? — Það hafði mikið að segja, en EBE-málið skipti lika mjög miklu máli, einkum i Norður- Noregi. Við eigum baráttu okkar gegn EBE að mjög miklu leyti að þakka flygis- aukningu okkar i Nordland, Troms, á Finnmörk og i Þrændalögum. En EBE-málið var raunar nátengt land- helgismálinu. Þátttaka Noregs i Efnahagsbanda- laginu hefði þýtt að við hefðum orðið að hleypa togurum EBE-landanna inn fyrir landhelgislinu okkar. þjóðarflokkurinn. Þótt atkvæða- tölur beggja þessara flokka eða flokksbrota séu lagðar saman, þá hafa þeir tapað nærri helmingi fylgis sins frá þvi i kosningunum 1969, miðað við hundraðstölu. Hægri flokkurinn, sem einn norskra flokka breiddi faðminn af fullkomnum bliðskap móti EBE, varð einnig fyrir verulegu fylgis- tapi, enda þótt svo sé að sjá að hann ætli að lafa i sömu þing- mannatölu og áður. Miðflokkur- inn bætti litillega við sig fylgi. Flest bendir til þess að meginástæðan til hrakfara krata og ihalds i Noregi sé sameiginleg fikn þessara flokka eftir að komast i eina sæng með EBE- stórauðvaldinu, og er þetta i ann- að sinn á skömmum tima að norska þjóðin veitir þeim mátu- lega ráðningu fyrir þá áráttu. Helsta ástæðan til hinna ofboðs- legu hrakfara hinna tveggja arma Vinstri flokksins (hann fékk 13 þingmenn i siðustu kosningum) mun vera klofningurinn og ringulreiðin i honum út af EBE, sem svipt hefur hann trausti meirihluta stuðningsmanna hans. Sigur sósíalista Að Sósialiska kosningabanda- laginu standa sem kunnugt er Sósialiski þjóðarflokkurinn, Kommúnistaflokkur Noregs og róttækari verkamannaflokks- menn, sem búnir eru að fá sig fullsadda á sleikjuskap flokks sins við EBE. 1 kosningunum 1969 fengu Sósiaiiski þjóðarflokkurinn og Kommúnistar aðeins 4.5 af hundraði greiddra atkvæða sam- tals og komu engum manni að. Þaö er þvi helst svo að sjá að vinstri armur Verkamanna- flokksins hafi i nokkurn veginn heilu liki skilið sig frá flokki sin- um og tekið saman við sóSialista og kommúnista. Hvort krata- broddarnir draga lærdóm af þeirri viðvörun kemur væntan- lega i ljós áður en langt um iiður. Kosningabaráttan hefur verið óhemju fjörug og spennandi, og helsti brandarinn i henni var að sjálfsögðu Anders gamli Lange, sem lofar skattalækkun niður úr öllu valdi og fór óskaplega i taug- arnar á snobbhyskinu i Hægri flokknum með óhefluðu orðbragði og þaðan af óheflaðri tiltækjum og ekki bætti það hug hinna norsku ,,sjálfstæðis”manna til hans að hann fiskaði einkum á sömu miðum og þeir. Anders er annars bóndi og ræktar hunda, gefur meira að segja út blað.sem heitir Hundeavisen, eða Hunda- blaðið. Þetta blað fjallaði að visu upðhaflega um hunda og það sem þeim viðkemur, en um leið og Anders slengdi sér út i pólitikina gerði hann sér hægt um hönd og breytti Hundablaðinu i flokksblað sitt, en sá ekki ástæðu til annars en að láta nafnið halda sér. Hann mun einkum hafa dregið að sér fólk frá borgaraflokkunum, lifs- þreytta litla menn sem þjást orðið af króniskum timburmönnum út af kerfi velferðarkapitalismans, en eru svo vonlausir um að finna leið út úr þvi völundarhúsi að þeir eru reiðubúnir að elta hvaða mýrarijós sem vera skal. Siðustu fréttir herma að einnig hér uppi á Islandi sé kominn fram hliðstæð- ur spámaður og þeir Anders Lange og Glistrup, og ekki vonum fyrr. Lars Korvald — margar stoðir runnu undir sigur Hokks hans, þótt hann kæmi nokkuö á óvart. Trygve Bratteli, mesti hrakfalla- hálkur kosninganna, sem þó verður liklega næsti forsætisráð- herra Noregs. < Keidar Larsen, formaður Kommúnistaflokks Noregs, er einn hinna nýkjörnu þingmanna Sósialiska kosningabandalagsins. Kristilegir framsóknarmenn Sigur Kristilega þjóðarflokks- ins virðist hafa kömið allmjög á óvart, ekki siður en fylgishrun kratanna. En þar hjálpaðist hitt og þetta að. Kristilegi flokkurinn hafði rænu á þvi að taka afstöðu gegn EBE, hann hefur verið hinn galvaskasti i umhverfisverndar- málum og leiðtogi hans, Lars Korvald, sem áður var litt áber- andi stjórnmálamaður, hefur þótt standa sig nokkuð vel sem for- sætisráðherra. Flokkurinn hefur lika sinnt æskulýðsmálum af miklum áhuga og staðið i mikilli krossferð gegn fiknilyfjafaraldr- inum. Siöast en ekki sist beita þessir kristilegu framsóknar- menn sér af hörku gegn fóstur- eyðingum, en komið hefur til orða að dregið verði úr hömlum á þeim i Noregi. Norðmenn hafa lengi haft orð á sér fyrir að vera kristn- astir allra þjóða i lútherskum dómi, og gott ef ekki i saman- lagðri kristninni, og það segir ennþá furðanlega til sin þegar átök verða um eitthvað sem snertir kynlif og getnað. Að öllu samanlögðu er hægt að ganga út frá þvi að kosningarnar hafi verið hrakfarir EBE-sinna Framhald á bls. 15.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.