Þjóðviljinn - 12.09.1973, Page 4

Þjóðviljinn - 12.09.1973, Page 4
4 SÍÐA — ÞJóÐVILJINNMiðvikudagur 12. september 1973 Verið er að smiða fjögur 150 lesta stálskip i Slippstöðinni á Akureyri. Er smiði tveggja þeirra svo vel á veg komið að þau verða væntanlega afhent i vetur. Annað skipið er smiðað fyrir Sæ- björgu h.f. á Þingeyri en hitt fyrir Björn og Halldór h.f. i Ólafsvik. Smiði hinna skipanna tveggja er skemmra á veg komin. Annað þeirra er fyrir Einhamar h.f. á Bildudal en hitt fyrir Seley h.f. á Eskifirði. Slik raðsmiði á fiski- skipum hefur mikla hagkvæmni i för með sér. Smiði tveggja skipa af sömu stærð er i undirbúningi og þvi næg verkefni framundan fyrir Slippstöðina, en vinnuafls- skortur hefur nokkuð háð fram- kvæmdum i sumar. Þó hafa verið miklar annir i fyrirtækinu vegna viögerða á fiskiskipum, flutningaskipum og á varðskipunum. I viðgerö eins varðskips þurfti t.d. að nota 11 lestir af stálplötum. Alls staðar vantar fólk EN 119 SKRÁÐIR ATVINNULAUSIR — Þar af konur um þrir fjórðu allra atvinnulausra Á atvinnuleysisskrá um síðustu mánaðamót voru 119 manns í landinu öllu, en mánuði áður voru 124 skráðir atvinnulausir. At- vinnulausir eru skráðir á eftirtöldum stöðum (innan (Nrjik<>uni lan«li<> »4k>mum É'é IBÚNAMRBANKÍ ÍSLANDS Laugardalsvöllur Bikarkeppni KSÍ Úrslit FRAM - ÍBK Dómari Eysteinn Guðmundsson. Linuverðir, óli P. Olsen og Sævar Sigurðs- son. Mótanefnd. Auglýsing um sveinspróf Sveinspróf i löggiltum iðngreinum fara fram um land allt i október og nóvember 1973. Meisturum og iðnfyrirtækjum ber að sækja um próftöku fyrir þá nemendur sína, sem lokið hafa námstíma og burtfar- arprófi frá iðnskóla. Umsóknir um próftöku sendist formanni viðkomandi prófnefndar fyrir 1. október n.k. ásamt venjulegum gögnum og próf- gjaldi. Meistarar og iðnfyrirtæki i Reykjavik fá umsóknareyðublöð afhent í skrifstofu Iðn- fræðsluráðs, sem einnig veitir upplýsing- ar um formenn prófnefnda. Reykjavík 12. september 1973. sviga atvinnuleysistala fyrra mánaðar): Reykjavik 11 (17) Sauðárkrókur 1 (1) Siglufjörður 63 (63) Akureyri 2 (2) Hafnarfjörður 2 (0) Skagaströnd 9 (9) Hofsós 31 (29) Atvinnulausir eru semsé skrað- ir á 5 stöðum i landinu. Af at- vinnulausum i Reykjavik eru 3 konur, á Siglufirði eru 55 konur, á Skagaströnd eru eingörfgu konur á atvinnuleysisskrá, en af 31 at- vinnulausum á Hofsósi eru 19 konur. Af öllum atvinnulausum eru konur 88 talsins, eða rétt um 3*/4 allra atvinnulausra. Rikisútgáfa námsbóka Nýlega er komið út hjá Rikisút- gáfu námsbóka safn þjóðsagna og ævintýra. Er það i tveimbókum. Fyrra heftið er einkum ætlað eldri bekkjum barnaskóla, en seinna heftið nemendum i ungl- ingaskóla. Uppistaðan i bókum þessum má teljast úr safni Jóns Arnason- ar, en jafnframt voru könnuð öll helztu bióðsagnasöfn önnur Pálmi Jósefsson, Gunnar Guð- mundsson og Þorleifur Hauksson völdu efnið, og Jóhann Briem list- málari teiknaði myndir i bækurn- ar. Fyrra heftið er 160 bls. að stærð og prentað I Prentsmiðju Jóns Helgasonar, en siðara heftið, sem er 192 bls., er prentað i Ingólfs- prenti hf. Leikfélag Akureyrar: Don Juan er fyrsta verk- efnið í haust Leikfélag Akureyrar er að hefja starfsemi sina og hefur fé- lagið fastráðið 8 ieikara i vetur, en alls verða 12 manns á föstum launum hjá féiaginu I vetur. Fyrsta verkefnið verður Don Juan eftir Moliére i þýðingu Jök- uls Jakobssonar og hefur leikritið ekki verið sýnt hér áður. Næst á dagskrá er Haninn hárprúði eftir Sean O’Casey i þýðingu Þorleifs Haukssonar. Félagið hefur auglýst eftir is- lenskum verkum og rennur frest- ur út um mánaðamótin. Leikhússtjóri er Magnús Jóns- son. Stórhuga kvenna- skólakvenmenn Kvennaskólinn í Reykja- vík hefur á prjónunum miklar byggingarf ram- kvæmdir bakatil á lóð þeirri sem skólahúsið stendur nú á. Hafa for- stöðukonur látið teikna stórt og veglegt hús fyrir þennan kyngreiningarskóla borgarinnar. 1 teikningunni er gert ráð fyrir iþróttasal, fundarsal auk kennslustofa. Er hús þetta svo stórt umfangs að það fyllir út lóð- ina, sem skólinn hefur til umráða. Hefur þvi verið rætt um að skól- inn byggði á öðrum stað, en þá vantar lóð. Kvennaskólakonur hafa nú boð- ist til að lækka húsið um eina hæð, en byggja samt sem áður á sama grunnfleti. Hafa borgaryfirvöld óskað eftir likani af húsinu svo löguðu. Einhverjir borgarráðsmenn munu vera andvigir nýbygging- um á þessum stað. Borgin greiðir árlega fé til reksturs skólans. —úþ af erlendum vettvangí Yfirlýsing hlutlausra ríkja: Hvert ríki ráði sjálft auðlindum sínum ALGEIRSBORG 9/9 — Fjórðu ráðstefnu forystumanna hlut- lausra rikja lauk á sunnudag, og var samþykkt yfirlýsing þess efnis, að hvert riki skyldi hafa fullan rétt á að fara með auðlindir sinar sem þvi best likaöi. Þá urðu leiðtogarnir sammála um að krefjast þess, að Israel skilaði aftur svæðum þeim, sem það heldur hernumdúm frá þvi i sexdaga- striðinu, að allur erlendur her sé fjarlægður frá Indókina, að almenn og fullkomin afvopnun eigi sér stað og öll kjarnorku- vopn séu eyðilögð. Kœrleikar með EBE- ráðherrum KAUPMANNAHOFN 10/9 — Utanrikisráðherrar Efna- hagsbandalagslandanna, sem þinga nú i Kaupmannahöfn, ræddu i dag mál þau, sem EBE hyggst færa i tal er Nixon Bandaríkjaforseti kemur til Evrópu i haust. Meðal mála, sem valdhafar EBE vilja ræða við hann, eru verslunarviðskipti Bandarikj- anna og Evrópu, gengis- og landbúnaðarmál. Hermál verða hins vegar ekki rædd, þar eð gert er ráð fyrir að um þau sé fjallað innan Nató. Samkomulag hefur náðst milli utanrikisráðherranna um hvaða mál skuli ræða við Nixon og lýstu þeir hver af öðrum fögnuði sínum af þvi tilefni. Sir Alec Douglas- Home, utanrikisráðherra Breta og liðsoddur fjand- manna Islands i landhelgis- deilunni, sagði þannig að þessi fundur EBE-rikjanna mark- aði timamót i sögu þeirra, þar eð þetta væri i fyrsta sinn að þau kæmu fram sem eitt og ó- skipt riki i viðskiptum við riki utan bandalagsins. Gull Perons Peron. LUNDÚNUM — Svissneska iögreglan rannsakar nú hvað hæft sé i þeim orðrómi að yfir 400 smálestir af gulli, sem Juan Peron fyrrverandi Argentinuforseti hafi átt, sé nú til sölu. Það fylgir með sög- unni að Peron sé fjárþurfi vegna kosningabaráttu sinnar i Argentinu og hafi þvi boðið gull sitt falt. Fjármálamenn um allan heim eru skelfingu lostnir yfir þessum tiðindum, sem gætu þýtt verðhrun á gullmarkaðn- um, ef sönn reyndust og salan kæmist i framkvæmd. Breska blaðið Sunday Telegraph hefur giskað á að þetta sé fals- frétt og hafi hún verið látin spyrjast til þess eins að eyði- leggja hinn alþjóðlega gjald- eyrismarkað.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.