Þjóðviljinn - 22.09.1973, Page 1
ROl
UÚÐVIUINN
Laugardagur 22. september 1973. — 38. árg. — 217. tbl.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA Í KRON
APOTEK
OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 7.
| NEMA LAUGARDAGA TIL KL. í,
SUNNUDAGA MILLI KL. 1 OG 3
filMI 40102
Ráðstefna
Sjómanna-
sambandsins
I gær var haldin í
Reykjavík ráðstefna Sjó-
mannasambands islands
þar sem fjallað var um
kjaramál og uppsögn
kjarasamninga. Ráðstefn-
una sóttu 30 fulltrúar hinna
ýmsu sjómannafélaga inn-
an Sí.
Leitað að
einum
manni á
trillu
Á fimmtudagsmorguninn
fór lítil trilla frá Siglufirði.
Um borð í trillunni var einn
maður. f gærmorgun var
hafin leit að trillunni, en
hafði ekki borið árangur í
gærkvöld. Skip og flugvél-
ar tóku þátt í leitinni og
f jörur voru gengnar.
Átthagafjötr-
ar Nixons
Washington 21/9 - Llkur eru á aö
Nixon forseti veröi aö hætta viö
fyrirhugaöa ferð sina til Evrópu i
haust er haft eftir heimildum I
Hvita húsinu.
Ástæöan fyrir þessari óvissu
um heimshornaflakk Nixons er sú
að hann er bundinn i báða skó
heimafyrir vegna Watergate-
málsins og annarra innanrikis-
mála.
Skemmtun í
Sindrabæ
Alþýöubandalagiö á Höfn i
Hornafirði efnir til fundar i
Sindrabæ klukkan niu i kvöld.
Ræöumenn veröa þeir Helgi
Seljan alþingismaður og ólafur
G. Einarsson, menntaskólakenn-
ari.
Fjölbreytt skemmtiatriöi veröa
siðan á fundinum, og að lokum
veröur stiginn dans fram eftir
nóttu.
Þess er vænst, að sem flestir
Alþýöubandalagsmenn og stuön-
ingsmenn þeirra fjölmenni ásamt
vinum og vandamönnum til þess-
arar skemmtunar.
Haustsýning FÍM
Efri myndin, sem helst viröist sýna völvu eða norn, er eftir Harald
Guðbergsson, hin eftir örn Inga frá Akureyri og heitir Agat. — Nánar
er sagt frá haustsýningu Félags islenskra myndlistarmanna á bls. 12.
Hefur notað svartolíu í ár:
Reynslan
mjög góð
Sparnaður miðað við venjulega olíu
3-400 þúsund krónur á mánuði
Um þessar mundir er um
ár liðið frá því að fyrst var
sett svartolía á vélar togar-
ans Narfa í reynsluskyni.
Við höfðum samband í gær
við Gunnar Bjarnason,
fyrrverandi skólastjóra, og
spurðum hvernig svartolíu-
notkun hefði reynst.
Gunnar sagöi, að árangurinn
væri mjög góöur og þaö kæmi
ekki fram neitt óvenjulegt slit,.
Gerðar voru mælingar á vélunum
i gær og i fyrradag. Vélin er göm-
ul meö frekar lágum meöalþrýst-
ingi og þýöir að henni er ekki eins
hætt og vélum meö hærri þrýst-
ingi.
Narfi hefur notað oliuna sam-
fleytt siðan i ágúst i fyrra og
sparar milli 3-400 þúsund krónur
á mánuði miðaö við verð á venju-
legri oliu.
Gunnar sagði, að t.d. væru vél-
ar togaranna Ogra og Vigra gerð-
ar fyrir svartoliu, en útgerðin
notaði hana ekki.
Gunnar benti á, að ef fleiri út-
gerðarmenn vildu reyna svart-
oliuna, þá þyrfti að fara varlega I
sakirnar og vélstjórarnir að vera
vel fróðir um kosti svartoliunnar
og hugsanlega galla miðað við
vélartegundir.
Útgerðarmenn ræddu þetta mál
nýlega á fundi og má búast við að
þeir sýni þessu máli aukinn á-
huga eftir hina góðu reynslu á
notkun svartoliunnar. Þá fer oliu-
verð sihækkandi og breikkar bilið
stöðugt milli svartoliuverðs og
verðs á venjulegri oliu.
sj.
14 sjúkrahús
auglýsa eftir
hj úkrunarliði
Ekki færri en 14 sjúkrahús aug-
lýsa eftir hjúkrunarkonum I dálk-
inum „Lausar stöður” I Timariti
Hjúkrunarfélags tslands, 3. tbl.
þessa árgangs, sem nýkomiö er
út. Er auglýst eftir mörgum
hjúkrunarkonum á flestum stöö-
unum, svo ekki viröist ástandiö
vera aö skána I hjúkrunarmálun-
um.
Efni blaösins er annars að
venju um ýmis hjúkrunarmál og
fréttir af nýjungum á þvi starfs-
sviði. Sagt er frá alþjóöaþingi
hjúkrunarkvenna i Mexikó á
þessu ári, en það sátu af tslands
hálfu þær Maria Pétursdóttir,
Guðrún Marteinsson og Sigriður
Bachmann. Einnig er skýrsla um
ráðstefnu um æðri menntun i
hjúkrun, sem haldin var i Haag á
vegum Alþjóða heilbrigðismála-
stofnunarinnar, WHO; sagt er frá
75 ára afmæli finnska hjúkrunar-
félagsins og frá samvinnu hjúkr-
unarkvenna á Norðurlöndunum
og fréttir eru af deildum félags-
ins.
Frá Borðtennis-
sambandi Islands
Fréttamynd af ásiglingartilraun sennilega
Sýnd um alla V-Evrópu
Ometanlegt framlag til kynningar okkar á fiskveiðideilunni
Eins og fyrr var frá skýrt voru
sænskir kvikmyndatökumenn um
borð i Ægi, þegar breska freigát-
an Lincoln reyndi að sigla á hann
20. þ.m. Þeir kvikmynduðu itrek-
aðar ásiglingartilraunir freigát-
unnar vel og vandlega, og mun sú
stórfróðlega fréttamynd hafa
verið sýnd i danska og sænska
sjónvarpinu þegar i gærkvöldi, og
sennilega miklu viðar, að sögn
Eiðs Guðnasonar, fréttamanns
hjá sjónvarpinu.
Sviarnir, sem starfa við sænska
sjónvarpið, voru þrir saman um
borð i Ægi, og hraðaði einn þeirra
sér úr landi með filmuna eins
fljótt og hann gat við komið, þar
eð þetta var iitfilma og þvi ekki
hægt að framkalla hana hér á
landi. Fullvist mun að myndin
hafi verið sýnd i danska og
sænska sjónvarpinu þegar i gær-
kvöldi og að öllum líkindum um
öll Norðurlönd — nema hér — og
miklu víðar, þar eð hún hefur trú-
legast verið send út gegnum
fréttamyndaskiptikerfið Eurovis-
ion. Eiður sagðist telja vist að
myndirnar væru góðar, þar eð
Sviarnir hefðu verið mjög ánægð-
ir með þær.
Fréttamaðurinn, sem fyrir
Sviunum er, heitir Björn Anderö
og vinnur við þátt sem nefndur er
Rapport og fjallar einkum um
fréttaskýringar.
Varla þarf aö taka fram hversu
óhemju mikilvægt framlag til
kynningar okkar i fiskveiðideil-
unni þessi sjónvarpskvikmynd
kann að verða, ef vel hefur tekist
til með hana. Eins og menn vita
hefur það verið fastur vani
bresku stjórnarinnar að ljúga þvi
blákalt, að þegar herskip hennar
hafa reynt að sigla á islensku
varðskipin, að það hafi verið
varðskipin sem reynt hafi ásigl-
ingu. Það verður erfitt fyrir
bresku stjórnina að halda þeirri
lygi áfram, þegar hálf eða öll
Evrópa verður búin að horfa á
skip hennar hátignar Lincoln
gera itrekaðar tilraunir til ásigl-
ingar á islenskt varðskip, Senni-
lega hefur myndin verið sýnd i
breska sjónvarpinu sjálfu þegar i
gærkvöldi. í islenska sjónvarpinu
verður hún likl. sýnd um helgina.
Á vegum Borðtennissambands-
ins verður kvikmyndasýning i
Laugarásbiói laugardaginn 22.
sept. kl. 14.00. Er hér um að ræða
þrjár kvikmyndir, sem kinverska
sendiráðið útvegaði frá landsleik
Kiná og Japans, frá Asiu- og
Afrikukeppni i borðtennis og að
lokum stutt leikfimimynd.
Sýningin tekur tvo klukkutima.
Heimsókn kinverska landsliðs-
ins verður i byrjun desember og
er þvi fróðlegt að fá slikt sýnis-
horn af borðtennis eins og hann
gerist bestur i heiminum.
í 15, sæti
A Evrópumeistaramótinu i
bridge töpuðu Islendingar i gær
fyrir Svium 11 gegn 9. Island er
nú i 15. sæti,en Italir, Frakkar og
tsraelsmenn eru i efstu þremur
sætunum. Islendingar spila i dag
við Ungverja og Israelsmenn.