Þjóðviljinn - 22.09.1973, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 22.09.1973, Blaðsíða 5
Laugardagur 22. september 1973 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 segir Helgi Hóseasson. Ekki í sakhœfu ástandi er hann slettti skyrinu, álítur ákœruvaldið laiiclsfeður hafa ekki sansast’ „Tilkynningin er i samræmi við aðra framkomu rikisvaldsins við mig, sem hefur verið allt annað en kurteisleg,” sagði Helgi Hóseasson, húsasmiður, er Þjóð- viljinn hafði tal af honum i tilefni fréttar, sem birtist i fyrradag i Morgunblaðinu og kvöldið þaráð- ur i hljóðvarpinu. Segir þar að saksóknari rikisins hafi sent sakadómi Reykjavikur bréf, þar sem segi að „aðfenginni álitsgerð á geðheilbrigði Helga Hóseasson- ar og að fenginni umsögn dóms- og kirkjumálaráðuneytisins þyki eigi af ákæruvaldsins hálfu efni vera til frekari aðgerða i máli Helga vegna skyrkasts hans á þingmenn og embættismenn við setningu Alþingis 10. okt. i fyrra”. Helgi var sem kunnugt er tek- inn til geðrannsóknar á Klepp eftir umræddan atburð, en látinn laus eftir að hann hafði fallist á að bókað yrði i þjóðskrá að hann teldi sig hafa ónýtt skirnarsátt- mála sinn. Helgi kveðst hafa fall- ist á þetta vegna tilmæla Klem- ens Tryggvasonar, hagstofu- stjóra, og tveggja kunningja sinna sem i málið gengu, en þeir hefðu sagt honum að meiri eftir- gjöf myndi fylgja á eftir af hálfu rikisvaldsins. Krafa Helga er sú að bókað verði i þjóðskrá að hann hafi ónýtt skirnarsáttmála sinn, en ekki að hann telji sig hafa gert það. „En landsfeður virðast ekkert hafa sansast við þá viðvörun, sem ég gaf þeim i fyrrahaust”, sagði Helgi. „Þeir virðast með þessu tómlæti sinu vera að snikja eftir annarri viðvörun frá mér i þessu sambandi. Ég hef ekkert sam- band haft við landsfeðurna út af þessu máli siðan þá, nema hvað ég skrifaði forsætisráðherranum i sumar bréf varðandi það, en hef ekkert svar fengið”. Auk bókun- arinnar i þjóðskrá er krafa Helga Kórskóli að hefja Kórskóli PÓLÝFÓNKÓRSINS byrjar fjórða starfsár sitt um næstu mánaðamót. A fimmta hundrað nemendur hafa stundað nám f kórskólanum, siðan hann hóf göngu sinafyrirþremur árum. Margir af fyrri nemcndum kór- skólans syngja nú i Pólýfón- kórnum og taka virkan þátt i starfi hans. Segja má, að kórskólinn hafi bætt úr brýnni þörf, þvi að almenningur á litinn kost á söng- eða tónlistarkennslu, nema þá dýrri einkakennslu. Fjölda fólks Athugasemd Vegna fréttar blaðsins i gær um að Kópavogsbær hefði hætt við fyrirhuguð ibúðakaup af Miðbæj- arframkvæmdum sf. hafði Björg- vin Sæmundsson, bæjarstjóri, samband við blaðið og vildi benda á að ranghermt væri um ákvörð- un bæjarráðs um kaup á ibúðum af öðrum byggingaraðilum i 1. á- fanga. Hann sagði að ákveðið hefði verið að hætta við öll fbúða- kaup i 1. áfanga. Þetta er hér með leiðrétt. LIV um launamál: Verulegar hækkanir til hinna lægstlaunuðu Helgi segist hafa beðið geð- lækni þann, sem hafði með rann- sóknina á Kleppi að gera, um af- rit af álitsgerð hans, en læknirinn hefði svarað þvi til að það stæði ekki á sinu valdi að verða við þeirri beiðni. Þjóðviljinn hafði samband við Baldur Möller, ráðuneytisstjóra i dóms- og kirkjumálaráðuneytinu út af máli þessu og skýrði hann svo frá, að ákvörðunin um að falla frá frekari aðgerðum i máli Helga mundi hafa verið tekin með tilliti til álitsgerðar geðlæknisins og þó öllu frekar framburðar hans er hann var kallaður fyrir rétt vegna málsins. Hefði sam- kvæmt framburðinum þótt liggja ljóst fyrir, að Helgi hefði ekki verið sakhæfur i þessu ákveðna tilfelli, sökum þess hve fastgrón- um hugmyndum hann hefði þá verið haldinn. Hins vegar þýddi það alls ekki að Helgi væri ósak- hæfur yfirleitt. IX. þing L.Í.V. telur að uintals- verður árangur hafi náðst i síð- ustu kjarabaráttu. Hins vegar lýsir þingið yfir þungum áhyggj- um vcgna sivaxandi verðbólgu i þjóðfélaginu, sem bitnað hefur harðast á þeim sem minnst mega sin, lægst launaða fólkinu. Þingið leggur áherslu á, að þar sem þjóðin býr nú við óvenju mikið góðæri vegna sihækkandi verðlags útflutningsafurða þjóð- arinnar, sem nú er miklu hærra en nokkru sinni fyrr, þá sé ekki annað sæmandi en aö þjóðfélagið standi saman um að tryggja þeim sem lægstu launin hafa verulegar launahækkanir. Þingið leggur þvi höfuðáherslu á, að i næstu kjarasamningum verði fyrst og fremst lögð áhersla á hækkun lægstu launa og trygg- ing kaupmáttar. Þingið leggur jafnframt þunga áherslu á, að sú aukning kaupmáttar, sem barist er fvrir hveriu sinni og mesta þýðingu hefur fyrir alla launþega verði ekki brennd upp i báli óða- verðbólgu. Þingið bendir á þá nauðsyn að stjórnvöld geri allt sem i þeirra valdi stendur til að stöðva siaukna verðbólguþróun. Með ofanritað I huga, ályktar IX. þing L.t.V. að sett verði fram krafa um lágmarksgrunnlaun fyrir dagvinnu kr. 27.000,00 á mánuði. Auk þess skal við gerð nýrra kjarasamninga hafa hlið- sjón af eftirfarandi atriðum: 1. Full laun verði eftir 6 ár i stað 12 ára nú. 2. 3ja daga viðbótar orlof verði veitt eftir 15 ára starsaldur, þannig að heildarorlof verði 30 virkir dagar. 3. Starfsfólk, sem unnið hefur þrjú ár hjá sama vinnuveitanda, skal fá greidda ákveðna upphæð þegar það fer i orlof til greiðslu á orlofskostnaði. 4. Það fólk, sem ekki er unnt að veita sumarfri á þeim tima, sem lög gera ráð fyrir að sumarfri sé almennt tekið, þ.e. á timabilinu frá 2. mai til 15. september ár hvert, skal fá sem svarar 25% lengra orlof. 5. Deilitalan 160 gildi, fyrir af- greiðslufólk i verslunum eins og skrifstofufólk við útreikning timakaups i dagvinnu. 6. Sett verði ákveðin deilitala til að finna út kaup pr. dag við út- reikning á orlofsgreiðslu og greiðslu I veikindaforföllum. 7. Matar- og kaffitima i helgi- dagavinnu skal veita eftir sömu reglu og á virkum dögum og telj- ast til vinnutimans og séu þeir unnir greiðist tilsvarandi lengri vinnutimi. 8. Kona, sem unnið hefur eitt ár eða lengur hjá sama vinnuveit- anda skal eiga rétt á óskertu kaupi I 3 mánuði eftir að hún hættir störfum vegna barnsburð- ar. 9. Greiða skal fulla verðlagsupp- bót á öll laun samkvæmt kjara- samningum verslunarmanna. Araiifrur af slofnun Flugleiða Utanlands- flugið verður samræmt Vetraráætlun millilandaflugs Flugfélags Islands og Loftleiða hefst 1. nóvember n.k. og gildir til 31. mars 1974. Samstarfsnefnd fé- laganna, sem hóf störf skömmu eftir stofnun Flugleiða h.f., hefur að undanförnu unnið að samræm- ingu á áætlunarferðum félaganna i vetur, og kemur nú i fyrsta sinn út sameiginleg flugáætlun. Alls verða 33 áætlunarflugferð- ir á viku frá tslandi á vetri kom- anda, þar af 11 til Bandarikjanna og 22 til Evrópulanda. Farkostir nýttir til þessara flugferða verða þotur af gerðunum Douglas DC-8 og Boeing 727. Auk þess verða Friendship-skrúfuþotur nýttar til Færeyjaflugsins. Sætaframboð félaganna á viku til og frá Islandi verður frá 6.500 og allt að 7.000, og fer eftir þvi hve mikið rými verður nýtt til vöru- flutninga hverju sinni. Auk vetraráætlunarinnar, hef- ur áætlunarflug flugfélaganna til Norðurlanda verið samræmt frá og með 6. október og til mánaðar- loka, þannig að frá þeim degi verður flogið fjórum sinnum i viku til Osló, tvisvar til Stokk- hólmsog daglega til Kaupmanna- hafnar. Pólýfónkórsins starfsemi sína langar til að syngja og iðka tónlist en hefur fá tækifæri til þess eða kemur sér ekki að þvi sökum óframfærni, jafnvel þótt það sé gætt góðum hæfileikum. Þessu fólki veitir kórskólinn gott tæki- færi til að reyna getusinaog leggja grundvöll að söngnámi og hollri tónlistariðkun. Rétt beiting raddarinnar er öllum mikilsverð, bæði i tali og söng. Kennslan fer fram i smáhópum, og eru engar kröfur gerðar til fyrirframkunn- áttu. Hins vegar veður starf- ræktur framhaldsflokkur fyrir þá, sem stundað hafa nám i kór- skólanum áður eða hafa nokkra reynslu og kunnáttu fyrir. Kennt í Vogaskóla Meðal kennara kórskólans eru Rut Magnússon, Einar Sturlu- son, Lena Rist og Ingólfur Guð- brandsson, söngstjóri Pólyfón- kórsins. Kennslan fer fram i Vogaskóla á mánudagskvöldum, og verður kennt 2 stundir i senn, raddbeiting, söngur, heyrnar- þjálfun, tónheyrn og taktæfingar og nótnalestur. Námsskeið það, sem nú hefst, stendur til jóla, og hafa margir þegar látið innrita sig. Bach i vetur Starfsemi Pólýfónkórsins er einnig aö hefjast, og er i ráði að taka eitt af stórverkum J.S. Bachs til flutnings i vetur með kórnum, hljómsveit og einsöngv- urum. Allir, sem hafa hug á að taka þátt i starfsemi kórsins i vetur, eru beðnir að hafa samband við stjórn kórsins eða söngstjóra hið allra fyrsta. Hljómplata væntanleg Eins og kunnugt er, fór Pólýfón- kórinn i mikla söngför til Svi- þjóðar og Danmerkur i sumar, þar sem hann hélt opinbera tón- leika og hlaut mikið lof þekktra gagnrýnenda i stærstu dag- blöðum Norðurlanda. 1 þeirri för var fyrsta hljómplata kórsins hljóðrituð hjá sænska útvarpinu i Stokkhólmi. A eftir henni kemur út úrval þeirrar efnisskrár, sem flutt var i söngförinni, bæði is- lensk og erlend tónlist, og kemur hún á markað hjá hinu þekkta hljómplötufyrirtæki RCA bæði hér heim aog erlendis i næsta mánuði. Munu hinir mörgu aðdá- endur kórsins hugsa gott til að fá þetta sýnishorn af söng kórsins til jólagjafa. Aðspurður um kröfu sina um legstað utan kirkjugarðs sagði Helgi: „Bókunin i þjóðskrána væri viðurkenning rikisvaldsins á ónýtingu skirnarsáttmálans og rétti minum til hliðstæðrar fyrir- greiðslu og kristingar og væntan- lega æsingjar njóta i þessu efni”. sú að úr gildi verði felldir hæsta- réttardómar, er gengið hafa i máli hans, en hann telur bókunina ekki fullgilda, jafnvel þótt hún fengist, nema dómarnir verði ó- nýttir. I bréfinu mælist Helgi til þess við forsætisráðherra, að hann komi þvi til leiðar við Al- þingi að það samþykki fyrir næstu jól að nema dómana úr gildi. I bréfinu til ráðherra leggur Helgi áherslu á vilja sinn til að komast af við rikisvaldið á frið- samlegan hátt. Lögreglan þjarmar að Ilelga Hóseassyni við Alþingishúsið i fyrra.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.