Þjóðviljinn - 22.09.1973, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. september 1973
T Hafnarfjörður —
— Verkamenn
Hafnarfjarðarbær óskar að ráða verka-
menn til ýmissa framkvæmda á vegum
bæjarins.
Upplýsingar gefa yfirverkstjóri og skrif-
stofa bæjarverkfræðings. Simi á bæjar-
skrifstofunni er 5-34-44.
Bæjarverkfræðingur.
Tilboð óskast í
fólksbifreiðar og nokkrar ógangfærar bif-
reiðar, er verða sýndar að Grensásvegi 9
þriðjudaginn 25. september kl. 12-3.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl.
5.
Sala Varnarliðseigna.
Söluskattur
Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir águst
mánuð 1973, hafi hann ekki verið greiddur
i siðasta lagi 25. þ.m.
Dráttarvextir eru 11/2% fyrir hvern byrj-
aðan mánuð frá gjalddaga, sem var 15.
sept. s.l., og verða innheimtir frá og með
26. þ.m.
Fjármálaráðuneytið, 20. sept. 1973.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Starfsfólk vantar að UPPTÖKU-
HEIMILI RÍKISINS i Kópavogi.StÚ-
dentsmenntun eða hliðstæð menntun
æskileg. Starfið gæti auðveldað leið
til náms við félagslega hjálp. Nánari
upplýsingar hjá forstöðumanni, simi
41725. Skriflegar umsóknir berist
Skrifstofu rikisspitalanna, Eiriksgötu
5, fyrir 28. þ.m.
Reykjavik, 21. september 1973
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5,SÍMI 11765
Frá námsflokkum
Haf narf j arðar
Innritað verður i húsi Dvergs h/f. frá 24.
sept-26. sept. kl. 17-20 alla dagana.
Kennt verður á mánudögum og fimmtu-
dögum.
Athygli skal vakin á nokkrum nýjum
flokkum.
Svo sem uppeldis- og barnasálarfræði,
keramik, itölsku og dönsku og enskuflokk-
um þar sem kennsla verður miðuð við
kennslu i 5. bekk framhaldsdeilda gagn-
fræðaskólanna.
Námsskrá liggur frammi i bókabúðum
bæjarins.
Forstöðumaður
SKAMMTUR
Af dæmigerðri poppgagnrýni
Loksins, loksins. Já ég
verð að segja það, að
hafi nokkurn tíman ver-
ið ástæða til að segja
LOKSINS, þá er það
núna loksins. Loksins
hafa hljómleikar ársins
verið haldnir og enginn
sem þarna var á laugar-
dagskvöldið þarf að ef-
ast um það. Ég verð að
segja fyrir mig að mér
hefur ekki þótt nógu
mikið um að vera í popp-
heiminum síðan Trúbrot
flutti ,,Lifun" hérna um
árið. Það var því ekki að
undra, þótt mikil eftir-
vænting væri í Tónabæ
s.l. laugardagskvöld,
þegar hvorki stóð meira
né minna til en að flytja
nýtt frumsamið verk,
„Þungun", og fjórar
vinsælustu hljómsveitir
landsins, — „Satan",
„Samfarir", „Heilög
þrenning" og „Grjúp-
án", voru mættar til
samleiks.
En snúum okkur að
því, sem fram fór þetta
kvöld.
„Satan" hóf leik. Gústi
var með Rex á ásláttar-
hljóðfæri ýmiss konar,
en „Heilög þrenning" sá
um fjörið að mestu.
„Heilög þrenning" er
tvímælalaust lang vin-
sælasta tríóið hér á landi
um þessar mundir. Það
vartvímælalaust sniðugt
af Dagbjarfi að taka son
sinn Rúmba á bassagítar
en láta Sigga Júdas fara.
Það var altalað um dag-
inn að „Heilög þrenn-
ing" væri að leysast upp
og að flautuleikarinn
Halli Andy hefði verið að
semja við „Statan", en
þetta munu hafa verið
fregnir úr lausu lofti
gripnar og nú er „Heilög
þrenning" á hápunktin-
um og á góðum vegi með
að verða vinsælasta tríó í
Evrópu, það er að segja
ef tólf laga platan
þeirra slær í gegn.
Fyrsta og eina verkið,
sem „Satan", „Heilög
þrenning", „Samfarir"
og „Grjúpán" fluttu
þessu sinni, var „Þung-
un". Til liðs með sér
höfðu þeir fengið Rex
Harfmann og Gústa Pét-
urs.
Söngkona var Cannon
Groovie, sem núna syng-
ur með „Satan". Margir
höfðu búist við því að
Bergþóra Lúlú yrði látin
syngja í „Þungun," en
hún er núna með
„Grjúpán". Persónulega
fannst mér Bergþóra
alltaf njóta sín betur i
„Samförum" en með
„Grjúpán," en það er
bara smekksatriði og
vafalaust hefur Rex
Hartmann krafist þess
að Cannon Groovie yrði
sett í „Þungun" frekar
en Bergþóra. Annar
ssögðu strákarnir í
„Heilagri þrenningu"
mér það í óspurðum
fréttum um daginn að
Hamar
Steinsson
segir frá
hljómleikum
hljóm-
sveitanna
„Satan” —
„Samfarir” —
„Heilög
þrenning”
og „Grjúpán”.
Cannon og Begga hefðu
báðar verið testaðar fyr-
ir hljómleikana og Berg-
þóra hefði ekki komist
nógu hátt.
Þegar flutningur
„Þungunar" hófst,
sýndu áhorfendur, því
miður, fullkomið tillits-
leysi og þess vegna gat'
ég engan veginn notið
þess sem verið var að
gera á hljómleikunum.
Áhorfendur ruddust á
fætur með ópum og öskr-
um upp á borð og stóla,
fleygjandi flöskum,
glösum og öskubökkum
eins og um venjulegan
dansleik væri að ræða.
„Satan" var gersamlega
umkringdurog sprautaði
þá appelsíni í miðri sóló
og raunar slapp „Heilög
þrenning" ekki heldur
og „Samfarir" gátu ekki
athafnað sig fyrir skríls-
látum. Hafi Dagbjartur í
„Heilagri Þrenningu"
einhvern tíman verið
show-maður, þá fer það
víst áreiðanlega ekki
milli mála að sonur hans
Rúmbi, skyggir full-
komlega á hann í
þeim efnum. Rúmbi er
tvímælalaust á góðum
vegi með að verða mesti
show-maður okkar.
Vegna þessa ti11 itsleys-
iráhorfenda, sem ég var
áðan að tala um, gafst
mér enginn kostur á því
að sjá hvað „Satan" var
að gera, en þó kom
greinilega í gegn að það
var mjög gott.
Mér tókst með naum-
indum að ná því, þegar
Halli Andy í „Heilagri
þrenningu" fór úr sokk-
unum og saug á sér tána
og til að byrja með var
þetta sniðugt, en full
langt, þegar til lengd-
ar lét enda heyrði Halli
áreiðanlega ekki í sjálf-
um sér fyrir áhorfend-
um. Svona þumbara-
háttur áhorfenda á tón-
leikum er óþolandi, en
fólk virðist alls ekki hafa
gert sér Ijóst, að þótt
laugardagur væri þá var
hér ekki um dansleik að
ræða.
En þó að áheyrendur
hafi ekki heyrt neitt af
því, sem fram fór í
Tónabæ á laugardaginn
var, þá er mér áreiðan-
lega óhætt að fullyrða að
jólaplatan í ár verður
„Þungun" eftir „Sam-
farir", „Satan", „Heil-
aga þrenningu" og
„Grjúpán".
Ekki má gleyma Þor-
steini Erlingssyni, sem
gerði textana við
„Þungun", en Steini er
tvímælalaust langbesti
textahöfundur okkar í
dag. Óðurinn til ástar-
innar er snilldarverk og
Steini gaf mér leyfi til að
birfa hann hér, en hann
verður líka á jólaplöt-
unni:
I love you and you
love me
we love him and he
loves you
she loves us and we
love she
love, love, love
we three are quite a
company
I need you and you
need me
he needs she and she
needshe
you need she and she
needs he
we need he and he
needs we.
Oh! Oh! Oh! Oh! Oh!
Ooohhhhhhh!!!
What a group of
heavenly
company in onany.
Love love love love
love love love
love love love love
love love love
Ooooooohhhhhhhhhh!!!!
for me. Flosi